Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Blaðsíða 11
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 11 Grundartanga- f erja í stað Akraborgar? Að sögn Jóns Sigurðssonar, for- stjóra Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, hefur verið gerð at- hugun á því hvort bílferjurekstur yfir fjörðinn á milli Grundartanga og Reykjavíkur er hagkvæmt fyrir- tæki. Er hugsunin á bak við þetta sú að rekstri Akraborgarinnar verði hætt, enda er hún rekin með stór- felldu tapi sem greitt er úr ríkissjóði og ríkisábyrgðasjóði. Að sögn Jóns var haft samband við Skallagrím, útgerðarfélag Akraborgarinnar, um að félagið tæki yfir rekstur bílferju milli Grundartanga og Reykjavíkur en það hefur enn ekki tekið afstöðu til málsins. Jón sagði að gerð hefði verið minni háttar úttekt á þessum málum, m.a. á því hvers konar mann- virki þyrftu að koma beggja vegna fjarðarins og ennfremur hvers konar ferjur hentuðu. Reyndar hefur verið leitað eftir hentugum nýlegum en notuðum ferjum erlendis en sú leit ekki borið árangur. Hér er um að ræða allt öðruvísi ferju en Akraborg- ina. Hugmyndin er að ferjan gangi á 2o mín. fresti því Jón sagði það ljóst að ferðir yrðu að vera tíðar til þess að menn tefðust ekki við það að taka ferjuna og jafnvel borgaði sig að keyra fyrir fjörðinn. Málið er að ná stærri hluta umferðarinnar en Akra- borgin hefur í dag og það er ekki hægt nema fjölga ferðum. Og þjón- ustan verður að vera það góð að það sé jafnvel verjandi að draga úr eða fresta vegaframkvæmdum fyrir Hvalfjörð. Skýrsla um þetta hefur verið lögð fyrir samgönguráðuneytið en ekkert svar er komið þaðan. Sfld veidd á Reyöarfirdi þessa dagana: A VQSLUBORD SUDURLANDABÚA UM MIDJAN MAÍ Frá Vigfúsi Ólafssyni, fréttaritara DV á Reyðarfirði: Verktakar hf. á Reyðarfirði hafa fengið leyfi til að salta í 1000 tunnur af síld sem seld verður til Englands. Til veiðanna var fengið nótaskipið Magnús frá Neskaupstað. Kom hann til Reyðarfjarðar á föstudag til að sækja veiðieftirlitsmann. Ekki liðu nema tvær klukkustund- ir frá þvi að Magnús lagði frá bryggju þar til hann kom aftur með 120-130 tonn af síld, og af því var helmingurinn í nótinni við skipshlið. Spriklandi síldinni var síðan dælí beint úr nótinni á vörubíla sem fluttu hana á vinnslustað. Var hún söltuð á laugardag og sunnudag. Kaupandi síldarinnar er fyrirtæki sem heitir Burton LTD í Great Yarmouth, Englandi og verður hún send þangað í mars. Þar verður hún reykt og seld áfram til Miðjarðar- hafslanda, fyrst og fremst til Grikk- lands, Ítalíu og Egyptalands. Allar líkur eru á því að síldin, sem veiddist skammt undan Holtastaða- eyri í Reyðarfirði í síðustu viku, verði komin á veisluborð Suður- landabúa um miðjan mai. Vélsleðamenn auka öryggiö Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni DV á Akureyri: Tilkynningaskylda 'vélsleðamanna er á meðal efnis sem farið er rækilega í á námskeiði sem Landssamband vélsleðamanna heldur um þessar mundir. Fyrsta námskeiðið var á Akureyri í síðustu viku. Það næsta verður í Reykjavík. „Nú er sá tími að koma sem vél- sleðamenn fara mikið í ferðir inn á hálendið. Með námskeiðinu viljum við fyrirbyggja óhöpp, hafa öryggið sem mest,“ sagði Vilhelm Ágústsson, formaður Landssambands vélsleða- manna, um námskeiðið. Tilkynningaskyldan er þannig að menn eru hvattir til að skilja ná- kvæma ferðaáætlun eftir heima hjá sér eða á næstu lögreglustöð. Hvert og hverjir ætla að fara, hvernig útbúnir, hvaða leið farin, komutími og í hvaða skála menn ætla. Á námskeiðinu er einnig farið í skipulag ferða, hvaða útbúnaður sé nauðsynlegur, hvaða leiðir sé best að velja og síðast en ekki síst, notkun áttavita. Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni DV á Akureyri: Það pusaði vel yfir skút- una Spiku í vindganginum sem gekk yfir Akureyrarhöfn á dögunum. Sextíu hnútar flugu um borð, dágóður vindur það. Það er franski sægarpurinn Yves Pestel sem á Spíku og hún hefur eytt vetrinum á Akureyri. DV-mynd JGH. Pú getur unnið 125,000 krónur I verðlaun fyiir gott nafh á stóra verslanahúsið I nýja miðbænum. í nýja miðbænum í Keykjavík er veríð að relsa mikla bygglngu, sem hýsa á fjölmargar verslanir, veitinga- og þjónustufyrirtæki. I raun og veru er húsið samfellt verslanaþorp með yflrbyggðum göngu- götum á tveim hæðum. Við þessar götur verða allt að 90 fyrírtæki, allt frá fatahreinsun til stórmarkaða. Góð verðlaun Hagkaup hf. efnir til verðlaunasamkeppni um nafn á nýja stórhýsið. Um samkeppnina gilda eftirfarandi reglur: 1. Tillaga að nafni póstleggist í lokuðu umslagi með eftirfarandi utanáskrift: Hafnakallar Pósthólf 1444 121 Reykjavík 2. Vinsamlega látið aðeins eina tillögu í hvert umslag, og gleymið ekki að merkja tillöguna greinilega með nafni- og heimilisfangi höfundar. 3. Umslagið verðurað vera póststimpiað í síðasta lagi þann 14. mars 1986. 4. Fyrstu verðlaun eru 125.000 krónur, en dómnefnd getur veitt fleiri verðlaun, ef hún telur þess þörf. 5. Þátttaka í samkeppninni er öllum heimil. 6. Ef fleiri en einn leggja til það nafn, sem dómnefnd telur best, verður dregið um hver þeirra hljóti peningaverðlaunin. Dómnefnd Sérstök dómnefnd mun velja bestu nöfnin, en áskilur sér rétt til að hafna þeim öllum, ef hún telur engin þeirra nægilega góð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.