Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Síða 7
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986
7
Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál
Botnfæst
hugsanlega
íAlsírmálið
umnæstu
helgi:
HAFA FLUGLEIÐIR
HLAUm A SIG?
Annaðhvort hafa Flugleiðamenn
ærlega hlaupið á sig eða þeir, mjög
líklega ekki með lægsta tilboð, njóta
svo mikils trausts að hafa náð samn-
ingi við ríkisflugfélag Alsír um mesta
verkefni íslendinga erlendis og það
áður en Alsírmenn fóru að ræða við
aðratilboðsgjafa.
Flugleiðamennirnir Steinn Logi
Björnsson og Baldur Maríusson
komu heim frá Alsír um siðustu helgi
með plagg undirritað af Steini Loga,
fyrir hönd Flugleiða, og Bendjedid,
forstjóra Air Algerie,
Fiugleiðamenn fóru samdægurs í
fjölmiðlana og lýstu því yfir að þeir
hefðu náð samningi um umfangsmik-
ið áætlunarflug og pílagrímaflug
fyrir einn milljarð króna, 24 milljónir
dollara.
Arnarflugsmenn vefengdu þetta
daginn eftir og sýndu fram á með
skeyti frá Alsír að þeir eru boðaðir
til viðræðna við Air Algerie um
næstu helgi. í skeytinu lýstu Alsír-
menn því jafnframt yfir að þeir hefðu
engan samning gert.
Vera má að Air Algerie gefi þessa
yfirlýsingu, sem er í ósamræmi við
yfirlýsingar Flugleiða, vegna þess að
það á eftir að fá samþykki þarlendra
stjórnvalda fyrir samningnum.
Plaggið, sem Steinn Logi og for-
stjóri Air Algerie skrifuðu undir, er
svokallað „letter of intend" eða
viljayfirlýsing. í því eru tilgreind
leiguverð, þotur og tímabil samn-
ings.
Flugleiðamenn líta svo á að komið
sé samkomulag. Jafnframt segja þeir
að samið hafi verið um ákveðinn dag
í næsta mánuði til að ganga frá
samningum í smáatriðum.
Arnarflugsmenn telja að „letter of
intend" geti ekki talist samningur.
Algengt sé að slík viljayfirlýsing sé
undirrituð án þess að úr verði samn-
ingur.
Einn af heimildarmönnum DV, sem
þekkir af eigin reynslu vel tiLsamn-
inga íslensku flugfélaganna um er-
lend verkefni, telur mjög líklegt að
Arnarflug hafi boðið lægra í Alsír-
flugið en Flugleiðir.
Flugleiðir hafa hins vegar sinnt
pílagrímaflugi í tólf ár. Undanfarin
fimm ár hafa þeir samið við Air
Algerie. Alsírmenn vita því við
hverja þeir eru að semja.
Flugleiðamenn ættu einnig að hafa
öðlast nægilega reynslu til að vita
hvenær samningur er kominn.
Aisírmenn þekkja reyndar líka tii
Pílagrímar um borð í Flugleiðaþotu.
Arnarflugs, sem leigði þeim tvær
þotur í fyrra.
Agnar Friðriksson, framkvæmda-
stjóri Arnarflugs, sagði í blaðaviðtali
í gær að samkvæmt útboðslýsingu
Air Algerie væri verðmæti samnings-
ins um 650 milljónir króna. Flug-
leiðamenn telja sig hins vegar hafa
gert samning upp á einn milljarð
króna. Þarna munar 350 milljónum
króna.
Þessi munur er í rauninni meiri því
að Flugleiðamenn segjast hafa samið
um tvær þotur i áætlunarflugið milli
Alsír og Frakklands. Alsírmenn
buðu hins vegar út ieigu á fjórum
þotum.
Menn hafa klórað sér í höfðinu og
jafnvel spurt hvort verið geti að
Flugleiðir hafi boðið svona miklu
meira í flugið og samt fengið það.
Sennilegri skýring á þessum mismun
er að Flugleiðir hafi gert ráð fyrir
að fá áætlunarflugið í tólf mánuði
en útboðslýsingin miðað við íjóra
mánuði.
Hugsanlega fæst einhver botn í
þetta sérkennilega mál eftir fund
Arnarflugsmanna í Alsír næstkom-
andi sunnudag. Margir bíða spennt-
ir. Gífurlegir hagsmunir eru í húfi.
-KMU
80 UNGIR ÍSLENDINGAR FÁ VINNU
í SUMAR Á VEGUM „NORDJOBB”
Allt æskufólk af Norðurlöndum
á aldrinum 18-25 ára á nú kost á
að sækja um sumarvinnu í öðru
norrænu landi í gegnum atvin-
numiðlunina „Nordjobb“ sem er
starfrækt á öllum Norðurlöndun-
um.
„Nordjobb“ er norrænt sam-
vinnuverktjfni undir stjórn sjálfs-
eignarstofnunarinnar „Nordjobb".
Auk þess að gefa möguleika á
sumarvinnu í öðru norrænu landi
er tilgangurinn sá að efla tengsl
Norðurlandanna, auka þekkingu
viðkomandi á dvalarlandinu og
þjóðinni sem þar býr og gefa eins
mörgu ungu fólki og unnt er tæki-
færi til þess að blanda geði við
ungt fólk frá öðrum norrænum
löndum.
Engar sórstakar menntunar- eða
hæfniskröfur eru gerðar en starfs-
reynsla er kostur og umsækjendur
með iðnréttindi eða menntun geta
notið forgangs til tiltekinna starfa.
Að öðru leyti þurfa umsækjendur
að vera sjálfstæðir. búa yfir aðlög-
unarhæfni, hafa löngun til þess að
gera eitthvað nýtt og öðruvísi og
gera sér ljóst að um atvinnu er að
ræða sem full laun eru greidd fyrir
og verður þess vegna að taka alvar-
lega.
Hin margvíslegustu störf eru í
boði og standa þau til boða á tíma-
bilinu 1. júní til 31. ágúst. Umsókn-
arfrestur er til 1. mars og umsókna-
reyðublöðum ber að skila til Norr-
æna félagsins sem ennfremur veitir
allar nánari upplýsingar.
Húsnæði í viðkomandi landi er
ekki frítt en reynt verður að hjálpa
til við húsnæðisöflun. Flugleiðir
munu bjóða þeim islensku ung-
mennum sem utan fara á vegum
„Nordjobb" sérstök kjör.
Samráð hefur verið haft við aðila
vinnumarkaðarins hér á íslandi um
þessi mál og miðað er við að álíka
mörg ungmenni fái atvinnu utan
íslands og hingað koma.
„Siminn rauðglóandi“
„Það er mikil ásókn í þetta og
horfur á að við getum ekki útvegað
öllum starf. Síminn hefur verið
rauðglóandi. Miðað er við að átta-
tíu manns fari héðan og jafnmargir
komi hingað. Fyrirtækin hafa verið
jákvæð og búið að útvega vinnu
hér frrir næstum áttatíu einstakl-
inga í t.d. bönkum, við útivinnu og
fieira." sagði Eyjólfur Pétur Haf-
stein hjá Norræna félaginu.
-KB
1007. MEIRI LÝSING
OSRAM halogen perur lýsa 100/ meira en
venjulegar perur og endast tvöfalt lengur.
P
OSRAMfæst CQQA Hinn velupplýsti maður AOH A II/I
ábensínstöðvum er með peruna í lagi KJ w