Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1986, Page 7
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 25. MARS1986.
7
Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál
„Hekluúlpur" frá
Hong Kong og Kóreu
Saumaðfyrir
Sambandið í
Austur-
löndum fjær:
Frá Jóni G. Haukssyni, blaða-
manni DV á Akureyri:
Sambandið ætlar að flytja inn frá
Hong Kong og Suður-Kóreu hluta
þess fatnaðar sem Hekla á Akureyri
framleiðir þegar starfsemi verk-
smiðjunnar lýkur í næsta mánuði.
Aðallega verður um úlpur og galla-
buxur að ræða. Búið er að gera
fyrstu pöntunina og er von á send-
ingunni seinnipart sumars.
„Við höfum átt þennan markað
og ætlum ekki að sleppa honum
þegar Hekla hættir,“ sagði Jafet
Ólafsson, framkvæmdastjóri versl-
unardeildar Sambandsins. „Ef við
flytjum ekki inn þessi föt þá gera
það bara einhverjir aðrir.“
Jafet sagði ennfremur að Sam-
bandið hefði brugðið á þetta ráð
vegna kröfu markaðarins um lág-
marksverð. I samningunum gerðu
Hong Kong og Kóreumenn kröfu
um mikið magn og afgreiðslutíminn
væri þetta 5-6 mánuðir. „Við erum
þegar búnir að stíga fyrsta skrefið
og gerðum pöntun í Hong Kong og
Suður-Kóreu. Þetta er hluti þess
fatnaðar sem Hekla framleiðir
núna. Við leggjum hvað mesta
áherslu á úlpur og gallabuxur."
Iðnaðardeild Sambandsins á
Akureyri mun yfirtaka húsnæði og
starfsemi Heklu. Búið er að tryggja
flestum saumakvennanna vinnu við
að sauma ullarjakka.
Gleðilega paska.
JIS
AAA AAA * Os.
CGCD 3'33'H«3|ÍS3U3^
íieilzccu
Jon Loftsson hf. i in i%i'i i'i'rmi
Hringbraut 121 Sími 10600
Opið
í öllum deildum til kl. 22 i kvöld,
laugardag fyrir páska kl. 9-16.
Hangikjöt
Læri frá Frampartur
kr. 326,- frá kr. 228,-
Sértilboð á svínabógum
Reyktur frá l\lýr frá
kr. 304,-
kr. 289,-
Kjúklingahlutarfrá kr. 215,-
Kjúklingarfrá kr. 189,-
Fokkervélin sem Flugleiðir hafa leigt frá Bretlandi. DV-myndKAE.
Leigufokker til Flugleiða
Flugvél, merkt Air UK, flýgur nú á í skarðið fyrir TF-FLO, eða Árfara, laugardag. Flugleiðir hafa leigt vél-
innanlandsleiðum Flugleiða. Þetta er sem skemmdist mikið í óhappi á ina í tvo mánuði. I vor er líklegt að
Fokkerinn sem Flugleiðir leigðu frá Reykjavíkurflugvelli þann 10. mars. félagiðkaupiFokkerfráFinnair.
Bretlandi í síðustu viku til að hlaupa Leigufokkerinn kom til landsins á -KMU
Allt í páskamatinn
Stýrimenn í ham:
„Erum tilbúnir íverkfall
„Við neituðum að skrifa undir
kjarasamningana. Við teljum okkur
eiga inni hjá útgerðinni og viljum
sjálfir koma nálægt okkar samning-
um. Það er búið að vara alltof lengi
að einhverjir aðrir séu að semja
fyrir okkur,“ sagði Guðlaugur
Gíslason, formaður Stýrimannafé-
lags íslands, en stýrimenn á farskip-
um hafa enn ekki samið.
Viðræðufundur stýrimanna og
viðsemjenda verður í dag. Stýri-
menn hafa lagt mikla áherslu á að
ná fram ýmsum réttindamálum sín-
um, m.a. að þeir sem standa í kjara-
baráttunni fyrir þá geri það óáreitt-
ir og þannig að vinna þeirra sé ekki
í hættu fyrir vikið.
„Við erum tilbúnir í verkfall ef
ákveðin mál nást ekki fram i við-
ræðum okkar við útgerðina," sagði
Guðlaugur. -KB
Arnarflugsmenn í Alsír
Arnarflugsmenn hafa verið boð-
aðir á fund i Alsír í dag, þriðjudag.
Gera þeir sér vonir um að fá ein-
hvern hluta af verkefnum þeim sem
Alsírmenn buðu út.
Flugleiðamenn láta engan bilbug
á sér finna. Þeir hafa undanfamar
vikur sagst vera á fullu við að
undirbúa flugið fyrir Air Algerie.
„Það kæmi okkur ekki á óvart
að þessu yrði skipt á milli tveggja
aðila,“ sagði Goði Sveinsson, sem
ásamt Halldóri Sigurðssyni fór í
gær á vegum Arnarflugs suður til
Alsír.
„Alsírmenn hafa fækkað þeim
vélum sem þeir þurfa. Þeir töluðu í
fyrstu um átta vélar. Núna em þeir
að tala um fjórar til sex vélar,“ sagði
Goði. -KMU
JIB- hornið
í JlS-portinu
Gosdrykkir
á
tilboðsverði.
Urvals
nauta- og svínakjöt af nýslátruðu.