Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1986, Blaðsíða 9
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 25. MARS1986. 9 Utlönd Utlönd Þrjú bandarísk flugmóðurskip eru nú í nánd við Líbýu og fylla fylgdarskip þeirra úr flotanum nú þriðja tuginn. „Gera Gaddafi aðhetju íaraba- heiminum Tilvalin fermingargjöf. Borð fyrir heimilistölvur, stillaiúeg. TÖLVUBORÐ Nýbýlavegi 12, Kópavogi. - segja gagniýnendur Bandaríkjastjómar Bandarískar herþotur eyðilögðu líbýska eldflaugastöð, sökktu einum líbýskum fallbyssubáti og stór- skemmdu annan í loftárásum í hefnd- arskyni fyrir eldflaugaárás á bandar- ískar herþotur í gær. Sovéskir fjöl- miðlar birta í morgun fréttir af því að Bandaríkjamenn hafi misst þrjár flugvélar sinar í árásum Líbýumanna og hafa fyrir því líbýskar heimildir. Weinberger, vamarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur vísað öllum fregnum um tjón Bandaríkjamanna á bug. Vara við auknum átökum Bandaríska stórblaðið New York Times varar í morgun við auknum átökum við Líbýu og segir að Banda- ríkjastjórn verði að halda átökunum innan ákveðinna marka. Blaðið segir að aukin átök geti gefið Gaddafi Líbýuleiðtoga ástæðu til þess að leiða sovéska bandamenn sína í átökin gegn Bandaríkjunum og á slíkt sé ekki hættandi fyrirBandaríkjamenn. „Það er ekki að ástæðulausu sem Sovétmenn hafa farið varlega í sam- skiptum sínum við Líbýu og Gaddafi Líbýuleiðtoga og hafa fram að þessu neitað öllum óskum Gaddafis um bindandi vináttusáttmála ríkjanna," segir blaðið í forystugrein í morgun. „Sovétríkin hafa ekki stutt staðhæf- ingar Líbýu um yfirráð yfir Sidra flóa þó þau hafi harðlega gagnrýnt banda- rískar heræfingar á svæðinu. Það er ekkert sem betur myndi þjóna hags- munum Gaddafis en það að geta flækt sovéska bandamenn sína í átökum við Bandaríkjamenn." Aukin hermdarverk? Sérfræðingar í málefnum Líbýu eru fullir varkárni í morgun og telja aukin átök Bandaríkjamanna og Líbýumanna geta orðið varasöm er til lengdar lætur. Telja sérfræðing- arnir að líbýskt stríð við Bandaríkin verði aðeins til að styrkja Gaddafi í leiðtogasætinu og sameina sundrað- an heim araba gegn Bandaríkjunum og bandamönnum þeirra. Vara sérfræðingamir ennfremur við hættunni á auknum hermdar- verkum araba hliðhollum Líbýu sem þegar hafa hótað að beita öllum til- tækum ráðum til að klekkja á Banda- ríkjamönnum „hvar sem til þeirra næst“, eins og sagði í fréttatímum líbýska ríkisútvarpsins .1 morgun og nótt. Aðgerðir Bandaríkjamanna virðast njóta stuðnings beggja deilda þings- ins sem lýst hafa yfir stuðningi við Reagan forseta. Aðrir em þó fullir efasemda. „Reagan var að ögra Líbýu af ásettu ráði til að sýna styrkleika sinn,“ sagði Eugene Larocque, fyrrum aðmíráll, kunnur vamarmálasérfi-æð- ingur vestra „en um leið er hann að gera Gaddafi að hetju í arabaheimin- um“. Svo hvarf eimreiðin Frá Ketilbirni Tryggvasyni, fréttaritara DV í V-Berlín: Lestarfarþegar á ferð milli Þýska- lands og Austurríkis upplifðu fyrir skömmu nokkuð sem hingað til hefur frekar tilheyrt bíómyndum en raun- vemleika. A ferð niður dal einn ná- lægt borginni Wurzburg í Vestur- Þýskalandi fór lestin stöðugt að hægja á sér og eftir að hafa stöðvast augnablik að renna aftur á bak. Nokkm síðar, þegar lestin stöðvaðist algjörlega, fóm hinir undrandi far- þegar að rýna út um glugga til að sjá hvað ylli þessu mjög svo undarlega háttarlagi lestarinnar. Skýringin olli mikilli furðu og kannski ekki nema von þvi að á lest- ina vantaði allt í einu eimreið. Hafði dráttarvagninn sem sé gert sig frjáls- an og farið fram úr vögnunum, upp brattann. Nokkrum mínútum síðar, þegar flestir farþegar vom búnir að stíga út, kom síðan eimreiðin bmnandi niður hlíðina, aftur á bak. Forsvarsmenn þýsku jámbraut- anna sögðu seinna að ástæðan fyrir þessu óhappi væri smá mistök við tengingu vagnanna. Var ljóst á máli þeirra að atvik þetta var þeim all- neyðarlegt enda má telja mestu mildi aðekkifórverr. FERMINGARGJAFIRNARIÁR. GEFIÐ GÓÐAR GJAFIR. Verð kr. 4.536,- Viðleguútbúnaður og garðhúsgögn í miklu Ú rvali. Hagstætt verö. ^Uger^ Eyjaslód 7, Reykjavík Póslhólf 659 Simar 14093 - 13320 Nafnnr. 9879 -1698

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.