Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Qupperneq 2
2
DV. FÖSTUDAGUR11. APRÍL1986.
I Frétlir Fréttir Fréttir Fréttir
Veðurþjónustan
veikur hlekkur
- segir Helgi Jónsson flugmaður
„Veðurþjónustan er veikur hlekk-
ur. Það þyrftu að vera betri upplýs-
ingar fyrir flug,“ sagði Helgi
Jónsson flugmaður er DV ræddi við
hann í gær. Helgi rekur flugskóla
og leiguflug á Reykjavíkurflugvelli.
„Það fást engar nákvæmar upp-
lýsingar um skýjahæð og ísingar-
skilyrði. Þetta er bara happa- og
glappaaðferð," sagði Helgi.
Kvaðst hann oft hafa orðið var
við mjög ónákvæmar upplýsingar
sem fengjust með því að senda loft-
belgi upp frá Keflavíkurflugvelli.
Vindátt gæti verið þveröfug. Á
skýjatoppum gæti skakkað mörg
þúsund fetum.
Helgi Jónsson kvaðst að morgni
síðastliðins laugardags, daginn sem
flugslysið varð í Ljósufjöllum, hafa
séð á Veðurstofunni veðurtungla-
mynd sem sýndi greinilega fjalla-
bylgjumar yfir Vesturlandi.
„Aðvörun var gefin út eftir að
slysið varð. Það var ekki gert um
morguninn.
Ég tel að of lítið sé gert að því
að safna upplýsingum um veður frá
flugvélum yfir landinu. Flugvélar
eru á ferðinni allan daginn og þær
gætu hæglega gefið veðurupplýs-
ingar. Veðurstofan ætti að safna
þessum upplýsingum þannig að veð-
urfræðingar gætu nýtt sér þær til
að gefa flugmönnum nákvæmari
upplýsingar," sagði Helgi.
Helgi Jónsson við skrúfuþotu sína sem búin er jafnþrýstiklefa.
DV-mynd GVA
Hann bætti því við að óþægilegt
væri að hafa enga veðurstofu á
Reykjavíkurflugvelli. Þjónustan
við flugið hefði verið miklu betri
meðan Veðurstofan var í einu her-
bergi í flugturninum. -KMU
Vandinn upplýsingar
um afbrigðilegt veður
- segir Markús A. Einarsson, deildarstjóri veðurspádeildar
„Þó að við sjáum bylgjuský á veð-
urtunglamyndum er það eitt út af
fyrir sig engan veginn næg ástæða
til þess að senda út sérstaka aðvör-
un,“ sagði Markús Á. Einarsson,
deildarstjóri veðurspádeildar Veð-
urstofu Islands, í framhaldi af
gagnrýni sem fram hefur komið.
„Veðurtunglamynd segir okkur
ekkert um styrkleika bylgjunnar og
fjallabylgjur eru algengt fyrirbæri
hér á landi.
Um fullyrðingar um slaka flug-
veðurþjónustu og að það vanti
mikið upp á að flugmenn séu aðvar-
aðir vil ég gjaman gera grein fyrir
því hvemig þetta er starfrækt.
Það sem við gerum er að senda
út þessi formlegu veðurskeyti, þess-
ar formlegu veðurspár fyrir flugvel-
lina. Gögnin að öðru leyti sitjum
við með hér. Við gefum upplýsingar
um flugskilyrði þegar eftir er leitað.
Við veitum flugmönnum og flug-
félögum upplýsingar sem em
byggðar á þeim gögnum sem við
höfum. Það er hin almenna regla
að flugfélögin koma hingað upp á
Veðurstofu, taka ljósrit af veður-
geta fengið hér leið-
Og það gera flest
kortum og
beiningar.
flugfélögin.
Flugfélög úti á landi geta auðvit-
að ekki gert þetta en þau hafa þó
aðgang að veðurfræðingi hér allan
sólarhringinn.
Flugmenn geta hvenær sem er
hringt til okkar og sem betur fer
eru margir sem gera það en því
miður eru margir sem gera það ekki.
Ég vil gjaman að það komi fram
að Flugfélagið Ernir, Flugfélag
Norðurlands, svo dæmi séu nefnd,
eru aðilar sem em í góðu sambandi
við okkur símleiðis.
Þannig að ég tel það mjög ósann-
gjamt að halda því fram að flug-
mönnum sé ekki leiðbeint því að
hver einasti flugmaður, sem hefur
lært sína veðurfræði þegar hann var
að læra að fljúga, veit af þessari
þjónustu hér á Veðurstofu.
Við höfum þá skyldu að gefa út
sérstök aðvömnarskeyti þegar mjög
alvarleg og afbrigðileg skilyrði eru,
til dæmis mikil ísing og því um líkt.
Slíkt gemm við því aðeins að það
séu alveg glöggar upplýsingar um
að þetta sé eða þá að það hafi kom-
ið glöggar upplýsingar frá flugvél-
um sem hafa upplifað þetta. Þá em
þessi skeyti send út.
Að öðm leyti vitum við hér á
Veðurstofunni ekki hvert er-flogið,
hvenær er flogið og hverjir em að
fljúga. Þannig að það er hin al-
menna regla að flugfélögin leita
upplýsinga hér á Veðurstofu. Þetta
vil ég undirstrika.
En það er rétt. Það vantar áreið-
anlega einhveija miðlun til flug-
mannanna sjálfra. Þetta er mér Ijóst
og ég hygg að flugmálastjóm sé
þetta Ijóst og við höfum rætt þetta.
Menn eru að reyna að leita lausnar
á þessu.
Það er tvennt sem skortir á. I
fyrsta lagi, og það ætti Helgi að
vita sjálfur og athuga sjálfur, að það
skortir mjög mikið á það að flug-
menn láti strax vita þegar þeir
verða fyrir ísingu eða kviku í lofti.
Vandinn er upplýsingar um af-
brigðilegt veður hér yfir landinu.
Þar erum við í þeirri stöðu að við
höfum ekki á neinn að treysta ann-
an en flugmanninn, að hann aðstoði
okkur og láti flugtum vita. Þá koma
upplýsingamar til okkar.
I öðm lagi vildi ég gjarnan vita
af því að allir flugmenn, einkaflug-
menn og atvinnuflugmenn, hefðu
nýjustu upplýsingar um veður yfir
landinu. Veðrið er svo breytilegt
hér að það er oft ótrúlegt, enda eðli-
legt í fjöllóttu landi,“ sagði Markús
Á. Einarsson. -KMU
Neytendafélag Reykjavíkur kærir
ÁTVR vegna sölu á ítölskum vínum:
Eldurinn komst í einangrun í hænsnahúsinu og breiddist hratt út. Slökkvistarf gekk greiðlega fyrir sig.
DV-myndir Snorri.
Stórtjón er kjúklingabúið að Hýrumel í Borgarfirði brann:
Talið að kviknað hafi
í út frá rafmagni
Frá Snorra Kristleifssyni, fréttaritara
DV í Borgarfirði:
Stórtjón varð er hænsnabúið að
Hýrumel í Borgarfirði brann til
kaldra kola í fyrrakvöld. Ekki er vit-
að nákvæmlega hversu mikið það er,
en allir kjúklingamir á búinu dráp-
ust, sextán þúsund talsins. Þeir vom
tryggðir, svo og húsnæðið sem brann.
Talið er að kviknað hafi í út frá raf-
magni.
Eldsins varð fyrst vart um sexleytið
í fyrrakvöld. Slökkviliðið kom mjög
fljótt á staðinn. Gekk greiðlega að
slökkva eldinn.
Hænsnabúið var bámjámsklætt
stálgrindahús, einangrað með frauð-
plasti. Komst eldurinn í einangmnina
og breiddist út um allt húsið á
skammri stundu, með ofangreindum
afleiðingum.
Hænsnabúið var rekið af fyrirtæki
sem heitir Ungar sf. Það eru Ægir
Jónsson og Aðalheiður Þorsteins-
dóttir sem em bústjórar á Hýrumel.
Búið var ^fullum rekstri og kjúkling-
arnir nær tilbúnir til slátrunar þegar v
bmninn varð. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvort búið verður byggt
upp aftur.
Forstjórinn vill
ekki lík á
skrifstofuna
„Ég hef ekki séð þessa kæm og
það hefur enginn frá Neytendafé-
laginu komið hingað til okkar.
Kæran virðist vera byggð á al-
mannarómi eða blaðaskrifum,"
sagði Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, en fyrirtæki hans hefur nú
verið kært af Neytendafélagi
Reykjavíkur og nágrennis vegna
sölu á ítölskum vínum. „Þegar
menn kæra verða þeir að leggja
fram eitthvað annað en almanna-
róm. Við höfum vissu fyrir því að
meginþorri þeirra ítölsku vína sem
við seíjum em yngri en þau sem í
hefur ftmdist tréspíritus á Ítalíu og
hin sem em yngri em frá viður-
kenndum fyrirtækjum sem á engan
hátt tengjast þessu vínhneyksli,
Neytendafélaginu er hins vegar
frjálst að kaupa hjá okkur ítölsk
vín og rannsaka að vild. Við að-
höfumst ekkert fyrr en einhver gögn
liggja fyrir sem benda til nð við sé-
um að selja eitruð vfn. Ég er hins
vegar ekki að fara fram á að Neyt-
endafélagið komi með lík sem
sönnunargagn hingað á skrifstof-
umar til okkar,“ sagði Höskuldur
Jónsson.
í kæru Neytendafélagsins til
Rannsóknarlögreglu ríkisins er
meðal annars vitnað í hegningarlög
þar sem segir að hver só sem hefur
á boðstólum eða vinnur að því að
útbreiða neysluvömr sem em
skemmdar geti átt von á 6 óra fang-
elsi.
„Forstjóri ÁTVR eða aðrir geta
ekki ákveðið upp á eigið eindæmi
að ekkert sé athugavert við sölu á
ítölskum vínum, sérstaklega ekki
núna þegar fréttir berast um að það
séu ekki einvörðungu léleg, ítölsk
vín sem mafían sé að versla með sem
hér eiga hlut að máli,“ sagði Guð-
steinn V. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Neytendafélagsins.
„Forstjórinn og félagar hans eiga
ekki að selja þessi vín nema þeir
geti lagt sálu sína að veði um að
þau séu óeitruð. Hér er á ferðinni
mál sem þolir ekki að tekin sé
áhætta. Það er ukki nóg að spyrja
yfirvöld í Danmörku hvort einhver
hafi látist þar í landi af völdum vín-
drykkju. Það er ábyrgðarlaust að
selja ítölsk vfn eins og óstatt er.“
-EIR