Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Síða 4
4 DV. FÖSTUDAGUR11. APRÍL1986. Fréttir Fréttir Slagurinn um pflagrímana: Hvomgur viður- kennir undirboð Flugleiðamenn virðast hafa verið of bráðir á sér þann 16. febrúar sið- astliðinn þegar þeir lýstu því yfir í sjónvarpi og dagblöðum að þeir hefðu náð samkomulagi við ríkis- flugfélag Alsír um pílagrímaflug og áætlunarflug. Sögðu Flugleiðamenn að samn- ingurinn ætti að geta fært félaginu allt að einn milljarð króna í tekjur. Samningurinn hefði verið sá langstærsti sem íslenskt fyrirtæki hefði nokkru sinni gert um erlend verkefni. Núna, tæpum átta vikum síðar, bendir allt til þess að fulltrúi Arn- arflugs skrifi á morgun undir 270 milljóna króna samning um pila- grímaflug fyrir Alsírmenn. Ósamið um áætlunarflugið Enn er ósamið um áætlunarflugið milli Alsír og Evrópu en meirihluta milljarðsins ætluðu Flugleiðir að fá af því. Pílagrimaflugið átti að- eins að vera þriðjungur af verkefn- inu. Með hruni olíuverðs hefur efna- Á ýmsu gekk í Algeirsborg Urslit pílagrímamálsins virðast hafa ráðist í Algeirsborg síðastlið- inn þriðjudag. Þann dag voru mættir til borgarinnar fulltrúar bæði Flugleiða og Arnarflugs. Þeir höfðu bókað sig inn á sama gisti- hús. Fyrir Flugleiðir voru Steinn Logi og Baldur Maríusson. Fyrir Arnar- flug voru Goði Sveinsson og með honum fulltrúi UAS, United Aviat- ion Services, þess fyrirtækis sem ætlar að leigja Arnarflugi þotur í verkefnið. Á ýmsu virðist hafa gengið þenn- an þriðjudag. Arnarflugsmenn gengu fyrstir um morguninn á fund fulltrúa alsírska ríkisflugfélagsins. Flugleiðamenn fóru næstir. Síðar um daginn fengu Amarflugsmenn aftur áheyrn. Keppinauturinn rægður? Keppinautarnir gruna hvor ann- an um græsku. Er Flugleiðamennirnir gengu Pílagrímar um borð í Flugleiðaþotu. flugi. í sumar fljúga þeir með Arnar- < /' hagur olíuríkisins Alsír gjörbreyst á þeim stutta tíma sem liðinn er frá því flugverkefni þessi voru boðin út. Hrun þjóðartekna er trúlega meginskýringin á því hvað Alsír- menn hafa dregið að semja. Víst er að þörf þeirra fyrir leiguvélar í áætlunarflugið er mun minni en þeir gerðu ráð fyrir ef nokkur. „Það er mjög líklegt að við fáum ekki pílagrímaflugið," sagði Steinn Logi Bjömsson, aðalsamninga- maður Flugleiða, er DV ræddi við hann í gær. Um áætlunarflugið vildi hann hins vegar ekkert segja. „Brjóta samninga á okkur“ „Við treystum okkur ekki til að semja um áhættusamt leiguflug nema að eiga von á að græða eitt- hvað á því. Eða eins og Sigurður Helgason forstjóri sagði í blaðavið- tali: Við fljúgum ekki bara til þess að fljúga. Það er verið að brjóta samninga á okkur. Alsírmenn gerðu sér grein fyrir því að þeir væru að brjóta á okkur samninga. En þeir telja sig engu að síður geta hagnast á því. Sparnaður þeirra er það mikill,“ sagði Steinn Logi. Flugleiðir hafa undir höndum plagg, sem þeir hafa sagt vera rammasamning, með undirskrift forstjóra Air Algerie, sem er bróð- ursonur forseta Alsír. Sú spuming vaknar hvort Flugleiðir fari í skaðabótamál: „Það hefur ekki verið tekin á- kvörðun um það. En ég á ekki von á málaferlum og látum. Við viljum leysa þetta á annan hátt og ekki spilla fyrir möguleikum okkar á samningum við þá í framtíðinni," sagði Steinn Logi. Fréttaljós Kristján Már Unnarsson fyrir alsírsku viðræðunefndina var sagt við þá: Þið hafið engan samn- ing um flugvélar. Flugleiðir höfðu átt í vandkvæð- um með að tryggja sér flugvélar til verkefnisins og grunuðu nú kep- pinautinn um að hafa laumað þeirri vitneskju til Air Algerie. Þegar Arnarflugsmenn komu inn var sagt við þá: Þið eruð gjald- þrota. Báðir aðilar neita staðfastlega að hafa rægt hinn. „Að við höfum sagt Alsírmönnum að Amarflug væri gjaldþrota er rangt. Á fundi okkar með Alsír- mönnum var ekkert rætt um Amarflug og því síður um fjár- hagsstöðu Arnarflugs," sagði Steinn Logi Bjömsson. „Okkur aldrei att saman“ „Okkur var aldrei att saman við einn eða neinn. Þegar við sitjum fundi er ekki talað um aðra. Það var aldrei talað um Flugleiðir. Við höfum aldrei minnst á Flugleiðir við þá,“ sagði Halldór Sigurðsson, deildarstjóri erlendra verkefna Arnarflugs. í DV í fyrradag var skýrt frá því að Arnarflug hefði farið þess á leit við samgönguráðuneytið að það sendi skeyti til Alsír um stöðu Arn- arflugs. Sú skýring fylgdi beiðninni að leiðrétta þyrfti upplýsingar sem Flugleiðamenn hefðu gefið Alsír- mönnum um að Amarflug væri gjaldþrota. „Þetta er alveg hárrétt. Þeir sögðu okkur ekki beint frá Flug- leiðum en þeir komu með spurning- ar sem við vissum hvaðan voru komnar. Spurningarnar báru þann keim. Þessir menn fylgjast ekki með því sem gerist innanlands hjá okkur. Flugleiðamenn voru á fundi þennan sama dag með þeim,“ sagði Halldór Sigurðsson. Villandi Moggafyrirsögn Hvers vegna fengu Flugleiðir ekki pílagrímasamninginn? „Þessi fyrirsögn í Morgunblað- inu í gær, að Flugleiðir segist hafa boðið lægra en Arnarflug, er geysi- lega villandi. Þetta er alrangt. Greinin er rétt en fyrirsögnin er gjörsamlega út í hött, ekki í nein- um tengslum við það sem við höfum sagt,“ sagði Steinn Logi. „Málið er einfaldlega það að við vorum ekki tilbúnir að lækka okk- ur nægilega til að vera samkeppn- isfærir við lægsta tilboð. Þegar við gerðum þetta ramma- samkomulag á sínum tíma vorum við upphaflega með kröfu um hækkun en féllumst síðan á sömu verð og í fyrra. Eftir að við gerðum samkomulag- ið um miðjan febrúar er okkur sagt að þeir hafi fengið lægri tilboð. Við lækkuðum okkur örlítið til að sýna lit. Þetta var í byrjun mars. Síðastliðinn þriðjudag segja þeir okkur að við verðum að lækka verðið mjög verulega til að vera samkeppnisfærir við aðra. Ég spyr hvað hafi breyst. Þeir segja að aðr- ir hafi lækkað sín verð verulega. „Fáránleg verð“ Við fljúgum ekki til þess að fljúga heldur til að græða á því. Þannig að við neituðum að gera þetta. Þegar staðan var orðin svona slæm, farið að tala um fáránleg verð, og það var ljóst að við værum ekki inni í myndinni, vildum við þó að minnsta kosti reyna að koma tveimur vélum í vinnu og hafa frek- ar ekkert upp úr því bara til þess að koma ekki aftan að þeim aðilum sem við ætluðum að leigja vélarnar af. Þess vegna buðum við þeim að fá vélarnar á kostnaðarverði en þeir sögðu að það væri samt miklu hærra verð en aðrir hefðu boðið," sagði Steinn Logi Björnsson. Halldór Sigurðsson sagði hins vegar í gær að hann teldi að Arnar- flug hefði boðið ívíð hærra en Flugleiðir. „Við héldum okkar verðum allan tímann." Þvertók hann fyrir að Arnarflug hefði lækkað sín verð. „Við erum með hærri verð en við vorum sjálfir með í fyrra,“ sagði Halldór og sagði ástæðuna lægra verð dollarans. Stöðug skot i vetur Flugleiðir og Arnarflug unnu saman að Alsírfluginu í fyrra. Flugleiðir sömdu þá um tvær þotur en leigðu þær af Arnarflugi. Arnar- flug samdi auk þess beint um tvær þotur. I allan vetur hafa hins vegar stöð- ug skot gengið á milli flugfélag- anna. I slag sem þessum um erlent verkefrn hljóta menn að spyrja hver hagnist. „Kannski hefði verið skynsam- legra út frá þjóðhagslegu sjónar- miði að félögin hefðu unnið saman að þessu,“ sagði Arnárflugsmaður- inn Halldór Sigurðsson. -KMU Stjórnmál Stjórnmál Upplýsingar um einkahagi manna „Það er að mínu mati óþolandi að það sé verið að dreifa upplýsingum um menn án þess að þeir viti af því sjálfir," segir Kristófer Már Kristins- son, varaþingmaður Bandalags jafnaðarmanna. Hann lagði fram frumvarp til laga um að aðilum, sem skrá niður upplýs- ingar um einkahagi einstaklinga og fyrirtækja, verði skylt að upplýsa við- komandi um að það sé verið að dreifa þessum upplýsingum. I greinargerð segir að tilgangurinn með firumvarpinu sé að koma í veg fyrir að upplýsingar um einkahagi manna gangi kaupum og sölum án þess að þeir sjálfir hafi hugmynd um áreiðanleika þeirra eða notkun. -APH Óvissa um fram- gang bjór- frumvarpsins Óvíst er að það takist að ljúka af- greiðslu bjórfrumvarpsins á þessum síðustu dögum Alþingis sem nú fara í hönd. Frumvarpið hefúr nú um nokkurt skeið verið í umfjöllun í allsheijar- nefnd efri deildar Alþingis. Að sögn formanns nefndárinnar, Jóns Krist- jánssonar, er gert ráð fyrir að frumvarpið verði afgreitt úr nefndinni í dag og jafnvel tekið til umræðu í efri deild á mánudag. Ógemingur er að sjá fyrir hvaða framgang frum- varpið fær eftir það. Frumvarpið er efhislega það sama og lagt var fram á síðasta þingi. Hins vegar er gert ráð fyrir að í þjóðarat- kvæðagreiðslu verði endanlega skorið úr um hvort þjóðin vill fá bjór Bjórmálið bíður afgreiðslu þingsins eða ekki. -APH og er afgreiðsla málsins í óvissu. Ekkert samráð haft við Albert Tilgangur ferðar forsætisráðherra til Sviss fyrri hluta marsmánaðar var að vera viðstaddur leiki lands- liðs íslands í handknattleik á heimsmeistaramótinu. Jafnframt notaði hann tækifærið til að ræða við forráðamenn Alusuisse. Ekkert samráð var haft við iðnaðarráð- herra um þessar viðræður. Niður- stöður þessara viðræðna hafa ekki verið ræddar í ríkisstjóminni. Þetta kemur fram í svari forsætis- ráðherra við fyrirspurn um ferðir hans til Sviss á dögunum. Hann segir að þessi ferð hafi verið ákveð- in með 10 daga fyrirvara. Fundur- inn með Alusuisse var ákveðinn í samráði við stjórnarformann ís- lenska álfélagsins, Halldór H. Jónsson. Einn fundur var haldinn og segist forsætisráðherra hafa fengið fróðlegar upplýsingar um það sem er að gerast í æðstu stöðum hjá fyrirtækinu, einnig um viðhorf- in til ísals og um möguleika á stækkun í Straumsvík. Þá kemur einnig fram að ráðherr- ann ræddi við Ernst Furgler, ráðherra efnahags- og viðskipta- mála í Sviss. -APH Onýtt vaxta- gjöld færð yfir á næsta ár Lagt hefur verið fram frumvarp á Alþingi sem gerir ráð fyrir því að hægt verði að færa vaxtagjöld hús- næðiskaupenda umfram hámarks- vaxtafrádrátt yfir á næsta framtalsár. Flutningsmenn eru varaþingmenn- imir Jón Sveinsson, Framsóknar- flokki, og Jón Magnússon, Sjálfstæð- isflokki. Gert er ráð fyrir að frumvarpið verði að lögum nú þegar. Það þýðir að ónýttur vaxtafrádráttur frá 1984 sem féll niður á skattárinu 1985 kæmi til framdráttar á þessu skattári. Fram kemur í greinargerð að til- tölulega fáir verði fyrir þessari skerðingu og tekjutap ríkissjóðs yrði því óverulegt vegna þessara breyt- inga. Þessi breyting sé hins vegar réttlætismál þeirra sem fyrir skerð- ingunni verða. -APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.