Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Blaðsíða 5
5 DV. FÖSTUDAGUR11. APRÍL1986. Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Sjávarútvegssjóðir lagðir niður: Tvö hundruð og fimmtíu milljóna arfur Verði sjóðaskrímsli sjávarútvegsins höggvið leggjast alveg af tveir sjóðir og sá þriðji verður settur í frost fyrst um sinn. Talið er að í þessum sjóðum verði um 250 milljónir króna 14. maí, þegar áformað er að aftökunni ljúki. Ekki er talið víst að neitt verði eft- ir í Aflatryggingasjóði sjávarútvegs- ins, allt eins gæti þar orðið um skuld að rsgða. En verði afgangur fær Fisk- veiðasjóður íslands það fé. Búist er við að 130-140 milljónir króna verði eftir í Tryggingasjóði fiskiskipa. Af því eiga 12 milljónir að renna til ör- yggismála sjómanna og björgunaræf- inga á fiskiskipum og aðrar 12 milijónir til undirbúnings byggingu sjávarútvegshúss í Reykjavík. Þær 100-110 milljónir, sem þá kunná að standa eftir, eiga að ganga til Fisk- veiðasjóðs. Þá er áætlað að 110 115 milljónir króna standi eftir í Ureldingarsjóði fiskiskipa. Af því á að verja 6 milljón- um til varðveislu sjóminja, meðal annars gamalla fiskiskipa. Að öðru leyti á að frysta eftirstöðvarnar og ávaxta þær á bestu kjörum, eins og þar stendur, þar til starfsemi sjóðsins og Aldurslagasjóðs fiskiskipa hefur verið endurskoðuð frá grunni. Þetta sjóðakerfi virðist ekki hafa verið flókið, fljótt á litið. Það hefur hins vegar verið vettvangur flókinna millifærslna sem nú verður hætt. Áætlað var að þessar millifærslur næmu rúmlega 2,4 milljörðum króna á þessu ári. Millifærsluflóðið var slíkt, og er raunar þangað til sjóða- skrímslið er allt, að í útreikningum um afkomu til dæmis togaranna á þessu ári fækkar færslum úr 51 í 26. Fyrir utan sparnað á vinnu og pappír þýðir þessi breyting nánast nýjan skilning á verðmætamyndun í helstu útflutningsgreinum okkar. HERB Sjóðakerfi sjávarútvegsins hefur ver- ið vettvangur flókinna millifærslna sem nú verður hætt. DV-mynd Heiðar Marteinsson Sjálfstæðisflokkurinn á Seyðisfirði: Jafnrétti á listanum Skipað hefur verið á lista Sjálfstæð- isflokksins á Seyðisfirði fyrir sveitar- stjórnarkosningarnar í vor. Þessir eiga sæti á listanum: Guðmundur Ingvi Sveinsson læknir i 1. sæti, Ambjörg Sveinsdóttir skrif- stofumaður í 2. sæti, Sigfinnur Mikaelsson framkvæmdastjóri í 3. sæti, Lilja Kristinsdóttir forstöðu- kona í 4. sæti, Adolf Guðmundsson framkvæmdastjóri í 5. sæti, Sigur- björg Óskarsdóttir húsmóðir í 6. sæti og Davíð Gunnarsson lögregluþjónn í 7. sæti. Það þykir í frásögur færandi varð- andi þennan lista að algert jafnrétti ríkir um skipan frambjóðenda. Af 18 frambjóðendum eru 9 konur og 9 karl- ar og er þeim raðað til skiptis á listann. Listi sjálfstæðis- manna á Skagaströnd Uppstillingarnefnd sjálfstæðis- manna í Höfðahreppi á Skagaströnd hefur skipað á framboðslista flokks- ins í komandi hreppsnefndarkosning- um. Þessir eiga sæti á listanum: 1. Adolf J. Berndsen umboðsmaður, 2. Heimir L. Fjeldsted framkvæmda- stjóri, 3. Sveinn S. Ingólfsson fram- kvæmdastjóri, 4. Sigrún Lárusdóttir verslunarmaður, 5. Kári S. Lárusson húsasmíðameistari, 6. Þórey Jóns- dóttir húsmóðir, 7. Rúnar Loftsson verkamaður, 8. Guðmundur Ólafsson rafvirki, 9. Árni Björn Ingvarsson vélstjóri og 10. Gylfi Sigurðsson stýri- maður. Sjálfstæðismenn í Grundarfirði: Sigríður efst Frá Bæring Cecilssyni, fréttarit- ara DV í Grundarfirði: Skipað hefur verið á lista sjálfstæð- ismanna í Grundarfirði fyrir komandi sveitarstjómarkosningar. Þessir eiga sæti á honum: Sigríður Þórðardóttir í 1. sæti, Kristjón Guðmundsson í 2. sæti, Ámi Emilsson í 3. sæti, Sigríður Gísladótt- ir í 4. sæti og Páll Harðarson í 5. sæti. í fyrra færði Leiðtoginn okkur HiFi hljómgæðin - í ár færir hann okkur HQ myndgæðin Myndbandstæki HighQuality [VHS STEREO í tilefni 10 ára afmælis VHS kynnir JVC á íslandi nýtt myndbandstæki, HR-D566 HQ Hi-Fi. Nýjar rásir frá JVC skýra útlínur myndar um 20% (V/CL) og auka skerpuna til muna (DE). Niðurstaðan er sú að HR-D566 skilar betri mynd en nokkurt annað VHS tæki. HiFi eiginleikinn gerir það jafnframt að besta upptöku- og hljómflutningstæki samtímans. En það nægir ekki, HR-D566 hefur líka hljóðsetningu, upptökuminni í ár, lyklaborð til að stimpla inn upplýsingar, ljósborð með stórum táknmyndum, þráðlausa Qarstýringu sem tíma- stillir og sjálfvirka gangsetningu fyrir utan allt annað. Verðið er ótrúlegt, kr. 60.400* HR-D250 WCL myndgæði, 4 myndhausar. Truflunarlaus kyrrmynd. Margföld hægmynd. Myndavélatenging. Hentugt fyrir stofnanir og skóla. Verð: 52.900' GR-C2 Videomovie. Nýja, sambyggða vélin frá JVC með sjálfvirkum fókus. Hentugasta upp- tökuvélin á markaðnum. Taska fylgir með ótal fylgihlutum. Verð: 118.900" HR-D158MS. Glænýtt fjölkerfa tæki fyrir NTSC-PAL-SECAM sjónvarpskerfin. WCL myndgæði. Lyklaborð. Þráðlaus fjarstýrinq. Verð: 56.400' BJÓÐUM HINA FRÁBÆRU TÖLVUSKJÁI FRÁ BARCO 2740F: 27". MEÐ TENGI FYRIR RGBOG VIDEO. FJÖLKERFA. HENTUGIR FYRIR SKÓLA OG STOFNANIR. VERÐ: 65.600* MUNIÐ JVC MYNDBÖNDIN. ENGINN ÞEKKIR ÞARFIR VHS BETUR EN JVC. FACO LAUGAVEGI89, SÍMI13008 lOára afmœli VHS ÖRUGGT KERFI Í F0RTÍÐ 0G FRAMTÍÐ *Staögreidsluverö 07.04. ’86.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.