Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Qupperneq 8
8
DV. FÖSTUDAGUR11. APRÍL1986.
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Standa
vörð
um
sjúkl-
inginn
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DV i Lundi:
Sænska lögreglan hefur enn ekki
fundið nein spor eftir þá tvo menn er
síðastliðið þriðjudagskvöld réðust á
eiginkonu Hans Holmer lögreglu-
stjóra þar sem hún var að skokka úti
í skógi í Huddingehverfinu fyrir sunn-
an Stokkhólm.
Ingrid Holmer hefur legið á sjúkra-
húsi frá því hún varð fyrir líkamsárás-
inni en hún fékk slæmt taugaáfall auk
þess sem læknar hafa staðfest að hún
hafi hlotið nokkuð öflug karatehögg
í hnakkann.
Ingrid Holmer hafði áður fengið
hótanir frá óþekktum mönnum og
höfðu tveir lífveröir því verið látnir
gæta hennar. Þeir sátu hins vegar inni
í stofu hjá frú Holmer og horfðu á sjón-
varp meðan hún fór út til að skokka.
Sænsk blöð segja að mennimir tveir,
er réðust á frú Holmer, hafi sagt við
hana að þetta væri „síðasta viðvör-
un“ þeirra.
Lögreglan veit ekki enn hveijir
mennimir em en samkvæmt lýsingu
frú Holmer em þeir um 35 ára gamlir.
Ijögregla segist ekki telja að um sé
að ræða neitt samband við Palme-
morðið eins og ýmis sænsk blöð hafa
þó gefið í skyn.
WALDHEIM-
SKJOLIN
Það er búist við þvi að Sameinuðu
þjóðimar ákveði í dag hvort ísrael
skuli leyfður aðgangur að fleiri stríðs-
glæpaskjölum eftir lestur skjalanna
um Kurt Waldheim, íyrrum fram-
kvæmdastjóra SÞ. - Það munu vera
skjölin yfir Alois Bmnner sem var
aðstoðarmaður Eichmanns og eins af
diplómötum nasista.
Kvittur er á kreiki um að diplómat-
inn sé Herman Klenner sem nú er
varaformaður mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna. ísraelsmenn
hafa haldið því fram að hann hafi
gengið í nasistaflokkinn 20. apríl 1944
en A-Þýskaland, þaðan sem Klenner
kemur, hefur borið á móti því að hann
hafi verið nokkuð tengdur nasistum.
I aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna
í New York í gær var neitunum Wald-
heims á ásökunum um hlutdeild í
stríðsglæpum á Balkanskaga dreift
fjölrituðum í gær. Það var sonur
Waldheims, Gerard bankastjóri, sem
stóð fyrir því. Sonurinn sagði í sjón-
varpsviðtali að hann mundi fagna því
mjög ef júgóslavnesk yfirvöld legðu
fram allar skýrslur sem þau hefðu
hugsanlega í fórum sínum um Wald-
heim. Nasistaveiðarinn, Simon
Wiesenthal, hafði sagt að Júgóslavía
gæti skýrt málið.
Waldheim, sem spáð er sigri í for-
setakosningum Austum'kis 4. maí
næstkomandi, játar að hafa verið á
lista Júgóslavíu yfir grunaða stríðs-
glæpamenn en segir að sérhver þýskur
hermaður, sem þjónaði í Júgóslavíu,
hafi farið sjálfkrafa á þann lista.
m--------------►
Kurt Waldheim, forsetaframbjóð-
andi í Austurríki, á nýlegum
kosningafundi í Salzburg. Yfirvöld
i Austurriki hafa nú skoðað skjöl
úr striðsskjalasafni Sameinuðu
þjóðanna varðandi meinta aðild
Waldheims að grimmdarverkum
nasista í síðari heimsstyrjöld.
i ' -V
í i
Bandarísk flugmóðurskip hafa nú
yfirgefið bækistöðvar sínar á Spáni
og haldið út á Miðjarðarhaf. Heim-
ildir í Washington herma að nú sé
ekki spurt hvort heldur hvenar
Bandaríkjastjórn lætur til skarar
skríða gegn Líbýu. Á innfelldu
myndinni brennur libýskur fall-
byssubátur eftir árás bandarískra
flugvéla í síðustu viku.
Taugastríð gegn Líbýu
Stjóm Hvíta hússins verst allra
frétta af ferðum sjötta flotans um Mið-
jarðarhafíð en síðast fréttist af honum
á leið til Sídraflóa og að landhelgi
Líbýu. Flotadeildin er nú yfir 30 skip
og þeirra stærst flugmóðuskipið „Kór-
alhaf ‘ með 170 herflugvélar um borð.
Kallaði Gaddafi „óðan hund“
Það hefúr ekki undanfamar vikum-
ar staðið á yfirlýsingum Bandaríkja-
stjómar um ábyrgð Líbýu í hryðju-
verkum arabískra skæmliða en í gær
tók skyndilega fyrir allt slíkt og al-
gjörlega var neitað að veita upplýsing-
ar um siglingu flotadeildarinnar. I
ræðu i fyrradag hafði Reagan Banda-
ríkjaforseti kallað Gaddafi, leiðtoga
Líbýu, „óðan hund“ og flogið hefur
fyrir að Bandaríkjastjóm telji sig nú
hafa vissu fyrir því að Líbýa hafi haft
fingur með í spilinu í undirbúningi
sprengjuárásarinnar á diskótekið La
Belle í Vestur-Berlín.
Hvenær stríð?
Flestir íjölmiðlar erlendis í morgun
tóku þessi teikn sem vísbendingu um
að Bandaríkjastjóm hefði í huga ein-
hverja hernaðaraðgerð, sem sjötti
flotinn mundi taka þátt í gegn Líbýu.
Mörgum fannst það meira spurning
um hvenær, fremur en hvort.
í Vestur-Þýskalandi var haft eftir
háttsettum embættismönnum að
Bonnstjómin hefði þungar áhyggjur
af því að út kynnu að brjótast hernað-
arátök milli Líbýu og Bandaríkjanna.
Þar taka menn mjög alvarlega hótun
Reagans forseta á blaðamannafúndi á
miðvikudaginn um „að svara“ Líbýu
á verðugan hátt ef rannsókn leiddi í
ljós að Líbýumenn væm viðriðnir
hryðjuverkaárásir að undanförnu.
Hemámsyfirvöld V-Berlín, Banda-
ríkjamenn, Bretar og Frakkar hafa
efnt til sérstaks fundar til þess að
ræða þann möguleika að banna
Líbýumönnum (einnigdiplómötum) að
koma frá A-Evrópuríkjum til V-Berlín.
Lendir Líbýa í flugbanni?
Stéttarfélög flugmanna í farþega-
flugi íhuga nú að setja bann við flugi
sinna manna í fiugvélum til landa, sem
skjóta skjólshúsi yfir flugræningja,
eÓa láta undir höfuð leggjast að
tryggja öryggi fólks í flughöfnum.
Brýna IFALPA-samtökin ríkisstjómir
mjög á þvi að gera eitthvað dugandi
gegn hryðjuverkum.
Loftvarnarflaugar frumskot-
mörk
Talið er hugsanlegt að loftárásir
verði gerðar á skotmörk í Líbýu. Uþp-
hafleg skotmörk gætu orðið íjórar
loftvamarstöðvar við Sídraflóa, allar
búnar eldflaugum. Talið er að næstu
skotmörk gætu orðið þrír stórir her-
flugvellir í Líbýu.
Olíklegt þykir að Bandaríkjamenn
grípi til loftárása á olíuvinnslusvæði
eða olíuhreinsistöðvar í Líbýu að svo
stöddu.
Bandarísk stjómvöld unnu í gær að
könnun á því hvers konar aðgerðir
væm vænlegastar og hvaða vopna-
búnaði væri hægt að beita við þær.
Líklegt er talið að Sovétmenn séu í
viðbragðsstöðu vegna hugsanlegra
hemaðaraðgerða Bandaríkjamanna
og að stjómvöld í Washington reyni
að takmarka aðgerðimar svo Sovét-
menn telji sig ekki þurfa að blanda sér
í málið.
Lokaákvöróun eftir helgi?
NBC sjónvarpsstöðin sagði hér i
gærkvöldi að Reagan forseti hefði nú
til athugunar nokkrar tillögur um
framkvæmd árásar á Líbýu en myndi
ekki taka lokaákvörðun um hvaða
leið yrði farin fyrr en Bush varafor-
seti kemur aftir til Washington frá
ferð sinni til hliðhollra ríkja í Mið-
austurlöndum auk vamarmálaráð-
herrans Weinberger sem einnig hefúr
verið á ferðalagi erlendis.
Bush kemur til Washington á morg-
un og Weinberger er væntanlegur frá
Kyrrahafslöndum á sunnudag.