Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Page 9
9 DV. FÖSTUDAGUR11. APRÍL1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Byrjaðir tilraumr að nýju með kjamavopn Bandaríkjastjóm hefur daufheyrst við öllum mótmælum erlendis sem heima fyrir og hóf í gær að nýju til- raunir með kjamavopn, þótt Sovét- Bandaríska kjarnorkusprengjutil- raunin í gær er áætluð hafa verið um 1,6 kilótonn, „barnasprengja“ í heimi kjarnorkuvísindanna. menn hafi sjálfviljugir og einhliða stöðvað sínar tilraunir nú í átta mán- uði. Orkumálaráðuneytið greindi frá því að sprengt hafi verið 1300 fetum undir yfirborði Nevada-eyðimerkurinnar í gær en þeim sprengitilraunum hafði tvívegis áður verið frestað. Um tilraunimar í gær var ekki ann- að látið uppi en sprengjan hefði verið minni en 20 kílótonn og hefði verið til þess að kanna áhrif kjamorku- sprengju á ótilgreint skotmark. - Þetta var níunda tilraun Bandaríkjamanna, síðan Sovétmenn hættu í bili sínum tilraunum. Sovéska fréttastofan Tass fordæmdi strax tilraunina í gær og sagði hana hættulega vígbúnaðarjafnvæginu. Sakaði hún Bandaríkjastjóm um að Bobby Ewing endurlHgaður? Halldór Valdimarsson, fréttaritari DV í Bandaríkjunum: Patrick Dufíi, líklega betur þekkt- ur sem Bobby Ewing, hugleiðir nú möguleika á að hefja störf við Dallas sjónvarpsmyndaflokkinn að nýju. Duffy hætti störfum fyrir um ári þar sem samningar milli hans og framleiðenda náðust ekki. Á þeim tíma varð úr að láta Bobby Ewing farast í bifreiðarslysi og hefur sorg og eftirsjá ríkt í þáttunum í allan vetur. Eftirsjáin er ekki síðri meðal áhorf- enda því þættirnir hröpuðu svo mikið í vinsældum að nú hefur alvar- lega verið íhugað að fá Duffy inn í þá aftur. Ljóst er að erfitt verður að endur- lífga Bobby Ewing svo líklega verður Duffy nýfundinn tvíburabróðir eða eitthvað álíka. Patrick Duffy, betur þekktur sem Bobby Ewing í Dallas-mynda- flokknum, var sem kunnugt er lát- inn farast i bílslysi fyrr í þáttaröð- inni. ítalir herða eftiriitá vínum sínum Reisa stærsta spila- víti í heimi Áströlsk-bandarísk fyrirtækjasam- steypa hefúr opinberað áætlanir sínar um að reisa stærsta spilavíti í heimi í borginni Sidney í Ástralíu. Fyrirtækin em ástralska Hoover samsteypan og bandaríska Harrah spilavítasamsteypan og ætla þau kostnað við smíðina ekki undir hálf- um milljarði dollara. „Við ætlum okkur að reisa mest spennandi spilavíti í heimi,“ sagði talsmaður fyrirtækjanna er bygging- aráætlanir vom boðnar út. Hér yrði um fyrsta löglega spilavít-1 ið í Sidney að ræða og er því áætluð staðsetning í miðborginni skammt frá aðalfjármálahverfinu. Bandarísk-áströlsk fyrirtækjasam- steypa íhugar nú byggingu á stærsta spilavíti í heimi og skal það rísa í Sidney í Ástralíu. Stærsta spilavíti heims í dag er rekið af Harrah spilavítasamsteyp- unni í bænum Lake Tahoe í Nevadaríki í Bandaríkjunum sem þekkt er fyrir lögleg spilavíti sín. Sagði talsmaður Hoover og Harrah að búist væri við að hið nýja spilavíti yrði með að minnsta kosti 500 herbergi, 300 spilaborð og yfir 1500 sjálfvirka spilakassa. í frumdrögum að spilavítinu er gert ráð fyrir að það verði opnað eigi síðar en í lok ársins 1988. ítölsk stjómvöld kynntu í gær nýja reglugerð er miðar að því að koma í Tveir ítalskir lögreglumenn kanna vínflöskur í vínbúð í Róm í vikunni. veg fyrir að eitruð vín geti borist á markað í framtíðinni. Nú hafa að minnsta kosti 20 manns látist vegna eitraðra italskra vína á undanfömum vikum og segja sérfræð- ingar að það muni taka langan tíma þar til ítalskur víniðnaður jafriar sig á þeim álitshnekk er hann hefur orðið fyrir í kjölfar vínhneykslisins. Stjómvöld hafa mátt sæta mikilli gagnrýni að undanfömu fyrir að- gæsluleysi í málefnum vínframleið- enda og segja gagnrýnendur að yfirvöld hafi einnig sýnt of mikla lin- kind við rannsókn á útbreiðslu eitmðu vintegundanna. í nýrri reglugerð stjórnvalda er eftir- lit hert með framleiðslu vínbænda og komið á harðari refsingum gagnvart þeim er uppvísir verða að því að blanda ólöglegum efnum í vínfram- leiðslu sína. Stjómarandstaðan á ítalska þinginu hefur krafist afsagnar ráðherra heil- brigðis- og landbúnaðarmála og sakar þá um vanhæfni í starfi og óbeina ábyrgð á því hvemig komið er. Italskir fjölmiðlar sögðu í gærmorg- un að vínútflytjendur byggjust við að minnsta kosti þriðjungs samdrætti í útflutningi á vínum í kjölfarið á vín- hneykslinu og kváðu þá geta haft alvarlega áhrif á atvinnuástand vissra vínframleiðsluhéraða í landinu. Bandarísk yfirvöld bönnuðu í gær innflutning ítalskra vína, sem ekki hafa áður verið prófuð, til þess að ganga úr skugga um hvort þau séu neysluhæf. Ítalía hefur árlega flutt um 73 milljónir gallona af víni til Banda- ríkjanna. sýna almenningsálitinu í heiminum „glæpsamlega fyrirlitningu". - Green- peace-samtökin sögðu að endurkast þessarar sprengingar í heiminum mundi ekki linna í mörg ár. „Þetta sýnir með sann hræsni Reagans for- seta í aistöðu hans til vopnatakmark- ana,“ sagði í yfirlýsingu samtakanna. Upphaflega hafði verið ætlunin að gera tilraunina á þriðjudag en þann dag kvaddi Reagan sovéska sendiherr- ann Dobrynin og ræddi við hann um væntanlegan leiðtogafund þeirra Gor- batsjovs. Fjórir prestar fórust ísnjó- flóði Gizur Helgason, fréttaritari DV í Zúrich: Mikið snjóflóð varð í fyrradag fjór- um prestum að bana hér í vesturhluta Sviss. Fimm kaþólskir prestar ásamt leið- sögumanni voru á leið í fjallakofa sem liggur í fjallgarði á landamærum ítal- íu, Frakklands og Sviss er mikið snjóflóð úr fjallinu Saint Martin Vesubie féll á þá og grófúst þeir allir sex undir henni. Talið er að fjórir prestanna hafi þeg- ar látist en einn komst af ásamt leiðsögumanninum. Er þeim loksins tókst tveim stundum síðar að gera hjálparsveitum viðvart var komið svo mikið vonskuveður á þessum slóðum að ekkert var hægt að aðhafast í bili. Síðdegis í fyrradag hafði björgunar- mönnum þó tekist að finna þrjú lík og það síðasta fannst svo í gærmorgun. Rannsókn Palme-morðs Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari DV í Lundi: Dagblaðið Arbetet, eitt helsta mál- gagn sænska jafhaðarmannaflokksins krafðist þess í leiðara í gær að skipuð yrði óháð nefrid til að kanna rannsókn Stokkhólmslögreglunnar á Palme- morðinu. Sex vikur eru nú liðnar síðar Olof Palme var myrtur og gagnrýnin á hendur lögreglunni, fyrir árangurs- leysi í leitinni að morðingjunum, fer stöðugt vaxandi. Karin Söder, formaður Miðflokks- 'ins, tók í gær undir kröfur er fram hafa komið um að rannsókn hefjist þegar í stað á starfi lögreglunnar. Bengt Vesterberg, leiðtogi Þjóðar- flokksins, og Ulf Adelsohn, leiðtogi íhaldsflokksins, sögðust einnig telja ástæðu til þess að óháð nefhd rannsak- aði starf lögreglunnar í Palme-morð- inu. Sten Wickbom dómsmálaráðherra sagði að nefiid yrði skipuð en taldi það hins vegar enn sem komið væri ekki timabært. Nú væri þýðingarmest að lögreglan fengi starfsfrið til að leysa morðgátuna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.