Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Page 17
17
Lesendur
Lesendur
Lesendur
DV. FÖSTUDAGUR11. APRÍL1986.
„Skyldu ekki flestir fanganna vera þarna inni vegna neyslu vímuefna og ýmissa glæpa sem þeir fremja undir áhrifum
þeirra? Geta svo haldið áfram neyslunni á hælinu og komið verri út en inn.“
Þarf meira eftirlit
á Litla-Hrauni
7193-9685, RK, skrifar:
Væri ekki rétt að eiturlyfjalögregl-
an sæi um leit á gestum sem koma á
Litla-Hraun á sunnudögum, sem er
eini leyfilegi heimsóknardagurinn,
karlar leiti á körlum og konur á kon-
um. Eiturlyfjaneysla á hælinu við-
gengst, það er sannleikur og á allra
vitorði, að minnsta kosti þeirra sem
eiga þar ættingja. Fanginn, sem sagði
frá í blöðunum, sagði satt frá ástand-
inu þar. En Lrúnaðarmaður fanga
segir það uppspuna. Forstöðumaður-
inn segir fangana óhressa yfir við-
talinu, annars nennti hann ekki að
mótmæla svona vitleysu, en hann
getur ekki mótmælt þessu nema hann
sé svona andvaralaus og óábyrgur í
starfi sínu.
Frændi minn á Hrauninu segist
eiga auðvelt með að fá dóp
Eg á ungan frænda þarna og hefur
hann oft verið undir annarlegum
áhrifum þegar ættingjar hafa heim-
sótt hann. Aðspurður segist hann eiga
mjög auðvelt með að fá dóp þarna.
Ég kom til hans í mars, en hef ekki
komið þama fyrr, hann átti von á
mér og var því eðlilegur. Þrír verðir,
stórir og stæðilegir, voru í anddyrinu.
Ég spurði þá hverjir það væm sem
kæmu með vímuefni á hælið. „Ýmiss
konar fólk,“ sagði einn, „jafnvel
mömmur og ömmur.“ Við vorum fimm
sem heyrðum þetta svar svo ekki þýð-
ir fyrir þá að mótmæla þessari játn-
ingu á því að þarna væm vímuefni.
Leitin, sem gerð var á mér, var sú
að þeir gáðu í veskið mitt og sögðfi
mér að taka upp úr vösum mínum.
„Já, auðvitað tek ég allt nema dópið
ef ég er með slíkt,“ en því var nú
ekki ansað. Kona hefði til dæmis átt
að leita á mér og afklæða mig, konur
geta til dæmis falið dóp í brjóstahald-
aranum. Svona leit er tómt kák.
Unnar Hansen lýsti ástandinu rétt
hvað sem verðimir segja.
Skyldu ekki flestir fanganna vera
þarna inni vegna neyslu vímuefna og
ýmissa glæpa sem þeir fremja undir
áhrifum þeirra? Geta svo haldið áfram
neyslunni á hælinu og komið verri
út en inn. Ég krefst meiri löggæslu
þarna, það má ekki bíða deginum
lengur. Vonandi verða fleiri fangar
til að tjá sig um þetta mál, svo alvar-
legt sem það er.
BLAÐBERA VANTAR
í Helgalandshverfi í Mosfellssveit
Upplýsingar hjá umboðsmanni
í síma 66481.
AIROBIC AIROBIC
Nú byrjar airobic á fullu í Orkulind mánudaginn 14.
apríl. Mánaðarkort á aðeins 1500 kr. Airobic púl- og
svitatímar 3 daga í viku. Hver tími 90 mín.
Mánud. kl. 18.00.
Miðvikud. kl. 18.30.
Laugard. kl. 14.00.
Einnig bjóðum við upp á músíkleikfimi
fyriralla aldurshópa. Hvertími 60 min.
Þriðjud. kl. 17.30.
Föstud. kl. 17.30.
Það er líka mjög góð aðstaða til vaxtar-
ræktar.
Ljós og sána á staðnum að sjálfsögðu.
Líttu hraustlega út og láttu þig alls
ekki VANTA.
ORKULIND, BRAUTARHOLTI 22.
FRONSKUNAMSKEIÐ
ALLIANCE FRANCAISE
Seinni námskeið vorannar hefjast
mánudag 21. apríl.
- 8 vikna námskeið
- Kennt verður á öllum stigum
- Bókmenntaklúbbur (10 vikur)
Innritun fer fram á bókasafni Alliance Francaise alla
virka daga frá kl. 3-7 og hófst fimmtudag 10. apríl.
Nánari upplýsingar í síma 23870.
Veittur er 10% staðgreiðsluafsláttur og 15% stað-
greiðsluafsláttur fyrir námsmenn.
„Bubbi Morthens hefur sagt frá því hvernig skólakerfið var að gera út af við
sig, þessi klári strákur varð utanveltu vegna þess að enginn áttaði sig á jafn
augsýnilegri takmörkun og lesblindu. Hvað ætli séu mörg álíka dæmi til?“
Uppeldisblinda
skólakerfisins
Björgvin skrifar:
Ekki get ég lýst óánægju minni með
skólakerfið og uppeldismál nógsam-
lega í litlu lesendabréfi sem fáir koma
til með að lesa, en þó vil ég reyna að
vekja athygli á henni þau uppeldis-
og skólamál þurfa ítarlega endur-
skoðun. Böm eru svo misjöfn sem þau
eru mörg og þó að sé erfitt að taka
tillit til þarfa hvers og eins, er það
engu að síður grundvallaratriði í bar-
áttunni fyrir betra þjóðfélagi. Bubbi
Morthens hefur sagt frá því hvemig
skólakerfið var að gera út af við sig,
þessi klári strákur varð utanveltu
vegna þess að enginn áttaði sig á jafn
augsýnilegri takmörkun og lesblindu.
Hvað ætli séu mörg álíka dæmi til?
Þau börn sem á einhvem hátt eru
öðruvísi fá ekki möguleika, öllum er
nauðgað gegnum sama nálaraugað,
sama þó þriðjungur komi út illa bækl-
aður. Ég þori ekki að segja um það
hversu mikil áhrif uppeldið hefur, en
það skiptir örugglega meira máli en
flest annað. Foreldrar þurfa að gera
sér það ljóst að manneskjan er ekki
fullsköpuð þegar hún kemur í heim-
inn. Erfiðasta hlutverk lífs þeirra er
þá eftir, það ættu þeir reyndar að vita
áður en barnið er getið.
Jli
Jón Loftsson hf.
T
Z3
U
Hringbraut 121 Sími 10600
Útborgun
kr. 10.000,
afgangur á 8 mánuðum
Vönduð
hjónarúm úr
kirsuberjaviði,
rúm + springdýnur + 2 náttborð.
Verð aðeins kr. 54.600.
Opið til
kl. 20
i öllum
deildum.
Verð aðeins kr. 56.400.