Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Blaðsíða 18
18
ÐV. FÖSTUDAGUR11. APRlL 1986.
Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir
• Kristján Arason.
Sexmörk
Kristjáns
dugðu ekki
Frá Atla Hilmarssyni, fréttarit-
ara DV i V-Þýskalandi:
Kristján Arason og félagar hjá
Hameln í 2. deild v-þýska hand-
boltans töpuðu leik sínum gegn
Bayer Leverkusen, 24-20, í fyrra-
kvöld. Á meðan vann efsta liðið
og Hameln féll þar með úr efsta
sæti deíldarinnar. Lokatölur urðu
24-20.
Kristján Arason átti þokkaleg-
an leik fyrir Hameln. Hann
skoraði sex mörk, þar af tvö
þeirra úr vítaköstum. Sex um-
ferðir eru nú eftir í deildinni og
hefur lið Dormagen tveggja stiga
forystu. Hameln er í öðru sætinu
með tveimur stigum minna.
L Bradv úti
í kuldanum
Jack Charlton, landsliðseinvaldur
íra, kom mjög á óvart er hann til-
kynnti að hinn þekkti leikmaður,
Liam Brady, myndi ekki verða í liði
hans sem mætir landsliði Uruguay
þann 23. apríl næstkomandi.
Þetta er í fyrsta skipti í um tíu ár
sem Brady kemst ekki í landslið íra.
Charlton setti fleiri þekkta leikmenn
út í kuldann fyrir leikinn gegn Ur-
uguay. Þannig eru þeir Ronnie
Whelan, Liverpool, og David Lang-
an, bakvörður hjá Oxford, ekki í
landsliðshópnum hjá Jackie Charl-
ton. Sjálfur segir hann að það að
þessir þekktu leikmenn leiki ekki
með gegn Uruguay þýði ekki að fer-
ill þeirra með írska landsliðinu sé á
enda.
„Ég þarf enn að líta á nokkra leik-
menn og það hefur engan tilgang að
kalla á leikmenn í landsleiki ef þú
ert ákveðinn í að nota þá ekki þegar
á hólminn er komið,“ sagði Jackie
Charlton í gærkvöldi.
Brady skammt frá landsleikja-
metinu
Liam Brady, sem er þrítugur, er
mjög nálægt því að setja nýtt lands-
leikjamet. Hann hefur leikið 55
landsleiki fyrir írland en metið er 57
leikir og er í eigu hins þekkta Jo-
hnny Giles. Brady leikur sem
kunnugt er með ítalska liðinu Inter
Milan. Þrátt fyrir fjarveru Bradys
gegn Uruguay er talið nær víst að
kappinn verði í eldlínunni með írska
landsliðinu í Mexíkó í sumar.
-SK
• Liam Brady hlýtur ekki náð fyr-
ir augum Jackie Charlton sem telur
sig geta verið án hans.
Enn verður Hamborg
að selja
- liðið hefur hætt við kaupin á Schiister
Hamburger SV, eitt þekktasta
knattspyrnufélag V-Þýskalands, á
nú í miklum ijárhagsörðugleikum.
Hefur það ákveðið að selja leikmenn
úr aðalliði sínu til að mæta þeim,
hefur reyndar þegar selt fimm leik-
menn. Meðal þeirra eru skoski
landsliðsmaðurinn Mark McGhee og
norski landsliðsmaðurinn Erik Soler
og nú á að selja þrjá til viðbótar.
Hamborg hefur þegar náð sam-
komulagi við Bayer Leverkusen um
kaupverð á framverðinum Wolfgang
Rolff. Hann fer eftir keppnistímabilið
fyrir 1,5 milljónir marka, tæpar 27
milljónir króna. Þá voru Michael
Schröder og Manfred Wasner settir
á sölulista félagsins í gær.
„Við hörmum þessa þróun mála en
það er ekkert annað hægt að gera,“
sagði Gúnther Netzer, framkvæmda-
stjóri félagsins, í Hamborg i gær.
Hann hættir hjá félaginu eftir leik-
tímabilið og tekur Felix Magath,
þekktasti leikmaður Hamborgarliðs-
ins, við af honum. Hættir um leið í
knattspyrnunni. Netzer og forseti fé-
lagsins, Wolfgang Klein, hættu í gær
við ferð til Barcelona. Hamborg hafði
vonast til að kaupa Bernd Schúster
frá Barcelona en Netzer sagði að
spánska félagið vildi fá of mikla pen-
inga fyrir leikmanninn. -hsím
-fros
Skinfaxi
stækkar
Skinfaxi, blað Ungmennafélags
íslands, hefur vcrið stækkað og
efnisval og uppsetning nokkuð
breyst. Fyrsta tölublaðið 1986 er
nýkomið út. Af efni þess má ncfna
„Þeir kölluðu mig Big Red“, við-
tal við Steingrím Hermannsson
forsætisráðherra. Einnig eru við-
töl við Eggert Hauksson söngv-
ara, sem segir frá íþróttaferli
sínum, og Sigrúnu Lárusdóttur.
Grein er um íjármál íþróttahreyf-
ingarinnar, hugleiðing um sund,
rætt við Þiðrik Baldvinsson, sem
sótt hefur 51. þing UMFÍ. Samúel
Örn Erlingsson fréttamaður
skrifar um HM í Sviss, Jón L.
Árnason um skák og Guðmundur
Páll Amarson um bridge svo fátt
eitt sé nefnt af efni blaðsins. Skin-
faxi er 40 síður og margar myndir
prýða blaðið, m.a. frá HM í Sviss,
myndir sem Bjamleifur Bjarn-
leifsson tók þar. Guðmundur
Gíslason er ritstjóri Skinfaxa.
hsím
Fyrstatap
Stavanger
- á heimavelli í norska
handbottanum
Stavanger tapaði sínum fyrsta
leik á heimavelli í norska hand-
boltanum er liðið mætti Skiens
Starclub í fyrrakvöld. Leikurinn
var liður í 4 liða keppni þar sem
fjögur efstu lið deildarinnar leika
saman um peningaverðlaun að
upphæð 25 þúsund norskar krón-
ur. Liðin munu mætast aftur á
sunnudaginn, þá á heimavelli
Starclub, og sigri Stavanger
þurfa liðin að leika þriðja leikinn
um sæti í úrslitunum.
íslensku leikmennimir í liði
Stavanger voru með rólegra móti
að þessu sinni. Sveinn Bragason
skoraði tvö og Jakob Jónsson
eitt. -fros
Uppgjör Liverpool og
Lundúnaliða í lokin!
Líverpool leikur á Stamford Bridge 3. maí-West Ham á Goodi-
son Park 5. maí. Lawrenson meiddur- Lineker með á ný
dag. Hann slasaðist í leiknum við
Man. Utd á Old Trafford 31. mars
og gat ekki leikið með Everton þegar
liðið sigraði Sheff. Wed. í undanúr-
slitum bikarsins á laugardag. Búast
má við látum á Highbury, mikil
gremja er meðal stuðningsmanna
Lundúnafélagsins vegna brotthvarfs
stjórans, Don Howe. Eftir jafnteflis-
leikinn við Nottingham Forest nú í
vikunni á Highbury söfnuðust nokk-
ur hundruð þeirra saman og létu í
ljós óánægju sína. Búist er við skipu-
lögðum mótmælum á laugardag.
Eftir sigur Chelsea á Man. Utd á
Old Trafford í fyrrakvöld virðast
möguleikar United á meistaratitlin-
um úr sögunni. Stjórinn, Ron
Atkinson, er þó á annarri skoðun.
Eftir leikinn sagði hann. „Við teljum
að við eigum enn möguleika. Liðið
hefur leikið af miklum krafti að und-
anförnu." Þetta sagði Atkinson er
leikmenn hans nýttu ekki færin. Það
kom vel I ljós gegn Everton og
Chelsea á Old Trafford. Leikir sem
áttu að vinnast en gáfu aðeins eitt
stig. Síðustu 20 mínúturnar sótti
United stöðugt gegn Chelsea og var
betra liðið allan leikinn. En inn vildi
knötturinn ekki þrátt fyrir gífurlega
hættu við mark Lundúnaliðsins.
Nokkrum sekúndum fyrir leikslok
náði Chelsea skyndisókn, allir leik-
menn Man. Utd á vallarhelmingi
Chelsea nema markvörðurinn Turn-
er og Kerry Dixon skoraði sigurmark
Chelsea.
Liverpool-liðin, Everton og Li-
verpool, standa best að vígi hvað
meistaratitilinn snertir en Lundúna-
liðin, Chelsea og West Ham, hafa
einnig allgóða möguleika. Svo
írski landsliðsmaðurinn snjalli,
Mark Lawrenson, mun ekki leika
með Liverpool næstu þrjár vikurnar
vegna meiðsla. Hann leikur þvi varla
fleiri deildaleiki á þessu keppnistíma-
bili en verður væntanlega orðinn
góður 10. maí þegar Liverpool mætir
Everton í úrslitaleik ensku bikar-
keppninnar á Wembley. Gary Gille-
spie er nú miðvörður hjá Liverpool
með Hansen, Beglin og Nicol bak-
verði.
Howard Kendall, stjóri Everton,
reiknar með að enski landsliðsmið-
herjinn, Gary Lineker, geti leikið
gegn Arsenal á Highbury á laugar-
• Mark Lawrenson.
skemmtilega hittist á að þau mætast
í lok keppninnar. Það verður uppgjör
borganna Liverpool og Lundúna ef
svo má segja. Chelsea og Liverpool
leika á Stamford Bridge í Lundúnum
3. maí, Everton og West Ham leika
á Goodison Park í Liverpool 5. maí.
Frestaður leikur frá 5. apríl vegna
bikarleiks Everton. hsím
• Gary Lineker.
Beckenbauer
skellti
hurðum
- eftir sigurteik þýskra í
Sviss
„Það sem ég sá líkist ekki á neinn hátt
knattspyrnuleik. Við verðum að fara í
undirstöðuatriðin á ný, hvernig stöðva á
knöttinn, senda hann og hlaupa. Það var
vissulega hægt að búast við öðrum leik
af vestur-þýsku landsliði. Þetta voru
bara átök, slagsmál um knöttinn,“ sagði
Franz „keisari“ Beckenbauer, landslið-
seinvaldur Vestur-Þýskalands í knatt-
spyrnunni, og skellti hurðum eftir að lið
hans hafði sigrað Sviss, 1-0, í landsleik í
Basel í fyrrakvöld.
Beckenbauer hældi aðeins einum leik-
manni þýska landsliðsins, hinum 33ja
ára Dieter Hoeness, og sagði að hann
ætti góða möguleika á að komast í
HM-liðið sem leikur í'Mexíkó. Hoeness,
sem er miðherji Bayern Múnchen, lck í
fyrsta sinn í landsliðinu í sjö ár og skor-
aði eina mark leiksins á 34. mín. Skallaði
knöttinn í mark i þessum þriðja sigur-
leik þýska . landsliðsins í röð. Þriðji
landsleikur hans og fjórða mark hans í
þeim.
Þegar fréttamaður þýska sjónvarpsins
spurði Beckenbauer hvort hann hefði
haft ánægju af einhverju í leiknum sagði
hann aðeins „nei“ og svaraði ekki fleiri
spurningum fréttamannsins. Hvarf hann
síðan á brott og hætti við fund með vest-
ur-þýskum fréttamönnum sem voru í
Basel. hsím
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
• Franz Beckenbauer.
Verona vill 108 i
milljónir j
-fyrir Hans-Peter Briegel g
en Sampdoria vill greiða
minna ■
Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara DV: ■
Flest bendir nú til þess að knatt- Q
spymumaður ársins í V-Þýskalandi, *
Hans-Peter Briegel, sem nú leikur með |
Verona, muni skrifa undir þriggja ára _
samning við Sampdoria. Briegel mun þá |
fylla skarð Graeme Souness sem skrifaði i
undir samning við Rangers í vikunni. I
Nokkuð er þó deilt um kaupverðið á I
Briegel. Sampdoria hefur lýst sig reiðu- •
búið til að greiða 4,5 milljónir þýskra I
marka (u.þ.b. 81 millj. ísl.) en Verona
hefur farið fram á sex milljónir marka ]
(u.þ.b. 108 millj. ísl. króna.) -fros
Sigurjón með j
sigurmarkið j
Sigurjón Kristjánsson skoraði sigurmark- I
ið í gærkvöldi í leik Vals og lR í leik liðanna ■
á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu. Sigur- |
jón leikur nú með Val en lék áður með ÍBK. |
Markið kom á 35. mínútu leiksins. _
Næsti leikur á mótinu verður á sunnudag- I
inn en þá leikur KR gegn Þrótti. -SK. "