Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Blaðsíða 19
DY. FÖSTUDAGUR11. APRÍL1986. 31 Iþróttir iþróttir Iþróttir Iþróttir Saabvann. 27-21. og Tobbi fékk tilboð frá Savehof - „Erum komnir með annan fótinn í Allsvenskan/‘ sagði Þorbergur Aðalsteinsson eftir sigur Saab í gærkvöldi. Tobbi skoraði 7 mörk og lék sinn besta leik með Saab Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, blaða- manni DV í Svíþjóð: „Það má segja að við séum komnir með annan fótinn i Allsvenskan. Þetta var mjög góður sigur hjá okkur og ég lék minn besta leik með Saab frá upphafi," sagði Þorgbergur Aðal- steinsson sem bæði þjálfar og leikur með sænska handknattleiksliðinu Saab. í gærkvöldi lék Saab á heimavelli sínum gegn Sávehof í úrslitakeppni 1. deildar, þar sem sex lið leika um þrjú laus sæti í Allsvenskan, og sigr- aði Saab með 27 mörkum gegn 21. Staðan í leikhléi var 11-10 Saab í hag. Þorbergur lék mjög vel með Saab og skoraði sjö mörk með lang- skotum í leiknum. Orslit í öðrum leikjum voru Saab mjög í óhag. H43 vann Viking 25-24 og efsta liðið í úrslitakeppninni, Frölunda, tapaði mjög óvænt á heimavelli fyrir Cliff, 27-29. Sávehof bauð Þorbergi samn- ing „Það var virkilega ánægjulegt að sigra Sávehof í kvöld vegna þess að litlu munaði að ég færi til liðsins fyrir keppnistímabilið. Það var sér- lega gaman að geta gert þeim þann óleik að sigra,“ sagði Þorbergur en eftir leikinn komu forráðamenn Sávehof til hans og buðu honum samning og voru ólmir í að fá hann til liðsins. Ekki skrítið því Þorbergur hefur gert mjög góða hluti hjá Saab, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann verður áfram hjá Saab sem leikmaður og þjálfari og þá vonandi í Allsvenskan næsta vetur. Nú er aðeins ein umferð eftir í úr- slitakeppninni og staðan fyrir hana er þannig að Frölunda er efst með 6 stig og markatöluna' 108-98, Cliff er með 6 stig og markatölu 99-92, Saab er i þriðja sæti með 5 stig og marka- töluna 84-79, H43 í fjórða sæti með 4 stig og markatöluna 88-88, Sávehof er í 5. sæti með 3 stig og markatölu 88-99 og neðstir eru Víkingarnir með ekkert stig og markatöluna 86-97. f síðustu umferðinni leikur Frölunda gegn Saáb, Cliff fær H43 í heimsókn og Víkingar leika gegn Sávehof. -SK • Þorbergur Aðalsteinsson á leið með Saab í Allsvenskan. US. Masters keppnin í golfi hófst í gærkvöldi: ROK OG SLEIP GRÍN í ADALH LUTVERKUNUM • Rudolf Havlik. Havlik hættur með HK - og fer heim til Tékkósió- vakíu Tékkneski þjálfarinn Rudolf Hav- lik, sem þjálfað hefur lið HK í 2. deild handboltans, mun ekki verða með liðið á næsta keppnistímabili. Havlik, sem stjórnað hefur Kópavogsliðinu sl. þrjú keppnistímabil, mun líklega halda til síns heima í Tékkóslóvakíu. Havlik kom hingað til lands fyrir þremur árum til þess að þjálfa Vík- ing. Samstarf hans við félagið var þó með styttra móti, aðeins nokkrir mánuðir áður en hann gekk til liðs við HK. Hann var um tíma aðal- þjálfari tékkneska landsliðsins auk þess sem að hann þjálfaði lið Dukla Prag. -fros Falla meistar- arnir í Firðin- um? íslands- og bikarmeistarar Víkings munu leika í undanúrslitum bikar- keppni HSÍ gegn hinu unga og ört vaxandi Iiði FH í Hafnarfirði en Vík- ingar slógu Þór frá Vestmannaeyjum út í 8-liða úrslitunum í Eyjum í fyrra- kvöld, 31-21. FH kom fyrr upp úr hattinum er dregið var í gær og þvi fer leikurinn fram í Hafnarfirðinum. Þá leika Ármann og Stjarnan um hitt sætið í úrslitunum og er leikur- inn heimaleikur Ármenninga. Leikdagar hafa ekki enn verið ákveðnir en stefnt er að því að leika báða leikina á mánudaginn. -fros „Rokið gerði gæfumuninn í dag. Grínin voru hræðileg,“ sagði Banda- ríkjamaðurinn Ken Green eftir að hann hafði leikið golfvöllinn í Aug- usta í Bandarikjunum á 68 höggum og náð forystunni ásamt landa sín- um, Bill Kratzert, eftir fyrsta keppn- isdaginn af fjórum á US Masters golfmótinu sem nú fer fram í Banda- ríkjunum en mót þetta er eitt hið allra stærsta hjá atvinnumönnum í golfi á hveiju keppnistímabili. Mikið óveður setti svip sinn á leik kylfing- anna í gær og skor var yfirleitt í hærri kantinum sökum þess. Þá voru grínin mjög erfið. Hvítu kúlurnar runnu mjög hratt á þeim og keppend- ur urðu að taka mikið tillit til þess. Þrátt fyrir að Ken Green hafi kvartað yfir grínunum eftir keppnis- daginn í gær púttaði hann hvað eftir annað stórglæsilega og setti meðal annars niður pútt af 30, 50 og 70 feta færi. Hann náði sjö sinnum að leika holur á höggi undir pari (bördí) en þrisvar á höggi yfir pari. • Margir frægir kylfingar urðu veðráttunni að bráð í gær. Þar má nefna sigurvegarann frá því í fyrra, Bernhard Langer frá Vestur-Þýska- landi og Severiano Ballesteros frá Spáni. Langer lék á 74 höggum en Ballesteros á 71 höggi. „Eg átti í vandræðum með vindinn og grínin. Vindurinn var mjög erfiður," sagði Langer og bætti við að í einu púttinu hefði vindurinn feykt kúlunni frá holunni rétt áður en hún lak ofan í. „Það er enn mikið eftir af þessari keppni og ég er ekki úr leik þrátt fyrir hátt skor í dag,“ sagði Langer ennfremur. • „Völlurinn var mjög erfiður. Það var mjög erfitt að pútta. Ég gerði aðeins ein stór mistök í dag og það er ekki mikið á þessum velli,“ sagði Spánverjinn Severiano Ballesteros eftir keppnina í gær og virtist ánægð- ur með skor sitt. • Bandarikjamaðurinn Tom Wat- son, sem vann US Masters 1977 og 1981, en hefur ekki náð sér á strik á síðustu árum var mjög ánægður með höggin sín 70 í gær: „Ég púttaði sér- staklega vel og var mjög heppinn að ná þessu skori. • Bretinn Sandy Lyle sem vann stórt mót atvinnumanna fyrir skemmstu náði sér aldrei á strik í - á fýrsta degi US Masters golfkeppninn- ar í gær. TVeir efstu menn á 68 höggum en Bernhard Langer lék á 74 höggum Severiano Ballesteros lék á 71 höggi á fyrsta degi US Masters keppn- innar og var ánægður. gær og lék á 76 höggum. Greinilegt er að slæmt veður hefur gert mörgum kappanum skráveifu í gær og ef svo heldur áfram getur allt mögulegt skeð á þessu mikla golfmóti. Og þá er það staða efstu manna eftir fyrsta daginn. Fyrst kemur skor eftir fyrstu níu holurnar, þá síðari níu og loks samanlagt: 1.-2. Bill Kratzert, USA ...35-33 = 68 högg 1.-2. Ken Green, USA........33-35 = 68- 3.-4. Gary Koch, USA........35 34 = 69- 3.-4. Chung Chen, Taiwan....37-32 = 69- 5.-10. Tom Kite, USA........36 34 = 70- 5. 10. T. Nakajima, Japan...35-35 = 70- 5. 10. Dave Barr, Kanada....37-33 = 70- 5.-10. Bob Tway, USA........37-33 = 70- 5. 10. Tom Watson, USA......35 35 = 70- 5. -10. Greg Norman, Ástral.36-34 = 70- KNATTSPYRNUÞJÁLFARAR óskast fyrir 5. fl., 4. fl. og 3. fl. karla og mfl. kvenna. Upplýsingar í síma vs. 13334, hs. 83751, Sveinn. Knattspyrnudeild Ármanns. • Pétur Arnþórsson. Búinn að ná sér og hefur vakið athygli í Noregi. Pétur búinn að ná sér -oghefurfengiðgóða domaíNoregi Pétur Arnþórsson, knatt- I spyrnumaðurhjá Viking, Stavan- ger í Noregi, er nú að fullu búinn að ná sér eftir ristarbrotið sem háði honum i vetur og hann hefur [ átt góðu gengi að fagna hjá liði sínu það sem af er í æfingaleikjum | félagsins fyrir komandi keppnis- | tímabil. Pétur hefur verið fastamaður í I liðinu og hefur fengið góða dóma, meðal annars hjá dagblaðinu Aft- enposten sem tók stutt viðtal við hann i vikunni. Blaðið kvað þennan unga íslending eiga eftir að gera góða hluti á miðjunni hjá | Viking. „Það eru margir góðir leik- I menn hér hjá Viking en ég hef þó lítið náð að kynnst þeim enn- þá. Ég býst við að ná að vinna mér fast sæti í liðinu í sumar en annars er erfitt að segja um slíkt | þar sem liðið er ekki mótað,“ gði Pétur. Alls gengu ellefu I leikmenn yfir i raðir Viking eftir síðasta keppnistímabil svo ljóst er að baráttan um sæti kemur til | með aö verða hörð. Jón Erling Ragnarsson sem [ gekk til liðs við Viking á sama I tima og Pétur mun taka sér hvíld frá knattspyrnunni næstu daga | eftir að hafa tognað á æfmgu í j vikunni. Hann mun þó væntan- lega verða klár í slaginn fyrir keppnistímabilið sem hefst eftir tæpar þrjár vikur. -fros 11.-16. S. Ballesteros, Spáni....35-36 = 71- 11.-16. Corey Pavin, USA....34-37 = 71 11. 16. Roger Maltbie, USA ....35-36 = 71- 11.-16. Ben Crenshaw, USA....36-35 = 71- 11.-16. Hubert Green, USA...35-36 = 71- 11. -16. Danny Edwards, USA .37-34 = 71 16,-17. Bill Glasson, USA...35-37 = 72 16.-17. Fred Couples, USA...35-37 = 72- 18.-23. D. Hammond, USA.....38-35 = 73- 18.-23. Fuzzy Zöller, USA...38-35 = 73- 18. -23. Wayne Levi, USA....38-35 = 73- 18.-23. Larry Rinker, USA...37-36 = 73- 18.-23. Larry Nelson, USA...34-39 = 73- 18. 23. Curtis Strange, USA....37-36 = 73- Á 74 höggum voru meðal annarra Jack Nicklaus, Craig Stadler, Mark OMeara og Raymond Floyd. Calvin Peete var á 75 höggum, Lee Trevino á 76 höggum, Hale Irwin á 76, Lanny Wadkins á 78 og Bill Rogers á 80 höggum svo ein- hverjir næstu menn séu nefndir. -SK Barcelona og Zaragoza - leika til úrsllta í spænsku bikarkeppninni Það verða Barcelona og Real Zaragoza sem leika til úrslita í spænsku bikarkeppninni. í fyrra- kvöld kom Zaragoza verulega á óvart og sló Real Madrid úr kcppninni. Að visu sigraði Madrid-liðið Zaragoza þá 3-2 á leikvelli sínum. Það nægði ckki. Zaragoza sigraði 2 0 i fyrri leikn- um og vann því samanlagt 4-3 í undanúrslitunum. Barcelona sigraði Atletico Bilbao, 2-1 fyrrakvöld og sigraði í báðum leikjum liðanna í undanúrslitum, samanlagt 3-1. Úrslitaleikur Barcelona og Real Zaragoza verð ur á Vincente Calderon leikvang- inum í Madrid 26. april. hsím

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.