Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Síða 28
40
DV. FÖSTUDAGUR11. APRÍL1986.
Andlát
Björn Jóhannsson vélstjóri lést 5.
mars sl. Hann fæddist í Reykjavík
25. ágúst 1952. Foreldrar hans voru
hjónin Jóhann Björnsson og Ingunn
Símonardóttir. Björn lauk námi frá
Vélskólanum í Reykjavík. Lengst af
starfaði hann á skipum Hafskips.
Útför hans verður gerð frá Hafnar-
fjarðarkirkju í dag kl. 13.30.
Helga Grímsdóttir er látin. Hún
fæddist á Grímsstöðum í Reykjavík
árið 1888. Hún giftist Magnúsi
Magnússyni en missti hann frá sjö
börnum árið 1934. Útför Helgu verð-
ur gerð frá Fossvogskirkju í dag kl.
13.30.
Theodór Gíslason lést 3. apríl sl.
Hann fæddist 4. ágúst 1907. Theodór
réðst til Reykjavíkurhafnarárið 1941
en áður hafði hann verið stýrimaður
hjá Slysavarnafélagi íslands á björg-
unarskipinu Sæbjörgu. Theodór var
kvæntur Sigríði Helgadóttur og
eignuðust þau þrjú börn. ÚtförTheo-
dórs verður gerð frá Langholtskirkju
í dág kl. 13.30.
Halldóra Gunnarsdóttir lést 1. apríl
sl. Hún fæddist 15. janúar 1893 á
Grafarbakka í Hrunamannahreppi.
Foreldrar hennar voru hjónin Gunn-
ar Halldórsson og Þorbjörg Jóns-
dóttir. Halldóra giftist Guðmundi
Vigfússyni en hann lést árið 1958.
Þeim hjónum varð fjögurra barna
auðið. Útför Halldóru verður gerð
frá Hallgrimskirkju i dag kl. 13.30.
Guðmundur J. Frímannsson lést 3.
apríl. Hann fæddist þann 6. júlí árið
1910. Foreldrar hans voru hjónin
Margrét Jónsdóttir og Frímann Guð-
mundsson. Guðmundur lauk námi
frá Kennaraskóla íslands vorið 1936.
Nokkru síðar hóf hann kennslustörf
í Gaulverjabæjarhreppi í Árnessýslu
og þar kenndi hann til ársins 1945.
Guðmundur gegndi starfi skólastjóra
á Hjalteyri í 20 ár. Síðustu starfsárin
kenndi hann við barnaskólana á
Akureyri. Guðmundur var giftur Evu
Kristínu Magnúsdóttur, en hún lést
árið 1981. Þeim hjónum varð tveggja
bama auðið. Útför Guðmundar verð-
ur gerð frá Akureyrarkirkju í dag.
Thor R. Thors lést 30. mars sl. Hann
fæddist 15. júní 1919 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Richard Thors
og Jóna Thors. Thor lauk námi í
Verslunarskóla íslands árið 1936 og
stundaði framhaldsnám í viðskipta-
fræði, fyrst í Englandi og Þýskalandi
og síðan í Bandaríkjunum. Er Thor
kom heim til íslands að loknu námi
gerðist hann framkvæmdastjóri
Kveldúlfs hf. Hann gegndi því starfi
til ársins 1967 er hann var ráðinn
forstjóri Bjamarins hf. Hann var
aðalræðismaður Ítalíu á íslandi frá
1963. Eftirlifandi eiginkona hans er
Helga Möller. Þau hjónin eignuðust
einn son. Útför Thors verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Andrés Eyjólfsson, fyrrverandi bóndi
og alþingismaður, Síðumúla í Borg-
arfirði, lést í sjúkrahúsi Akraness 9.
apríl.
Margrét Árnadóttir, Skeggjagötu 21,
andaðist í Borgarspítalanum 9. aprii.
Þórunn Jóhannesdóttir, Kleppsvegi
8, lést 9. þessa mánaðar.
Kristín Á. Gustavsson lést 2. apríl í
Helsingborg í Svíðþjóð. Útförín
verður gerð frá Helsingborgs Kre-
matorium þann 15. apríl.
Guðmunda Gísladóttir, Brekku,
Hvalfjarðarströnd, verður jarðsung-
in frá Hallgrímskirkju í Saurbæ
laugardaginn 12. apríl ki. 14.
Páll Eyjólfsson, Eyjahrauni 12, Vest-
mannaeyjum, verður jarðsunginn frá
Landakirkju laugardaginn 12. apríl
kl. 14.
Guðmundur Lúðvík Þorsteinsson,
Ólafsvegi 19, Ólafsfirði, verður jarð-
sunginn frá Ólafsfjarðarkirkju
laugardaginn 12. apríl kl. 14.
Ólafía Sigríður Þorsteinsdóttir,
Hringbraut 111, Reykjavík, sem lést
5. apríl, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík miðvikudag-
inn 16. apríl kl. 15.
Utvarp_____________Sjónvarp
Eiríka Á. Friðriksdóttir hagfræðingur
Fréttir ekki
nógu skipulegar
Ég heyrði fréttir og íslenskt mál
i gær og það vár allt og sumt, ég
hef venjulega annað að gera við
tímann minn. Það er þá helst að ég
hlusti á tónlist meðan ég vinn eitt-
hvað annað. Það sem helst vakti
athygli mína í innlendum fréttum í
gær voru væntanleg bankakort. Ég
veit að þau hafa verið notuð nokkur
ár í löndunum í kringum okkur.
Þau eiga eftir að koma í veg fyrir
ávísanafals að einhverju leyti - en
konan í húsinu á móti mér lenti
einmitt í því að heftinu hennar var
stolið. Svo tók ég líka vel eftir því
sem sagt var um síldarstofninn.
Þó ég hlusti alltaf á fréttir verð
ég að segja að þær eru allt of hratt
lesnar, ekki einu sinni komma eða
punktur á eftir setningum og allt í
sama tón. Ég er ekki ein um þessa
skoðun, hef talað um þetta við
fjölda fólks sem er á sama máli.
Mér fyndist líka betra ef fréttir frá
hverju landi væru tilkynntar með
sama hætti og í BBC, sagt: Banda-
ríkin! og þá kæmi allt um Bandarík-
in, ísland! og þá innlendu fréttimar,
frekar en hafa þetta í einni hrúgu
hvað innan um annað. Auk þess
ætti að hafa eins og í gamla daga
ákveðið lag á undan fréttum svo
fólk vissi að þær væru að koma.
Nú er spiluð poppmúsík alveg þang-
að til allt í einu fréttir eru byrjaðar
og maður missir kannski af byrjun-
inni. I sveit era útvarps- og sjón-
varpsfréttir ákaflega mikilvægar af
því að blöðin era svo sein og þar
er svona fréttalag mjög mikilvægt.
Ég horfi ekki mikið á sjónvarp -
nema fréttir - þar er gott að hafa
myndirnar. En biddu fyrir þér! ég
horfi ekki mikið á þessar myndaser-
íur frá nítján hundrað sjötíu og
fjögur sem keyptar eru í kílóavís.
Tilkynningar
Einkaframtak og
aímenningsálit
Verzlunarráð Islands heldur al-
mennan félagsfund í Átthagasal
Hótel Sögu miðvikudaginn 30. apríl
1986 kl. 08.15-09.30.
Efni fundarins verður: Einkafram-
tak og almenningsálit. Antony
Fisher, formaður „Átlas Economic
Research Foundation“ í San Fran-
cisco, flytur erindi.
Fisher er Breti og.var orrustuflug-
maður í flugher hennar hátingar þar
til 1948. Samkvæmt ráleggingum Fri-
edrich Hayeks, hins kunna austur-
ríska hagfræðings, ákvað hann að
helga sig útgáfu rita um hagfræðileg
málefni. Til þess þurfti fjármagn svo
Fisher stundaði viðskipti um árabil.
Árið 1955 stofnaði hann I.E.A., „Inst-
itute of Economic Affairs". Núver-
• andi framkvæmdastjóri þeirrar
stofnunar er Lord Harris sem er fé-
lögum VÍ að góðu kunnur en hann
var gestur á viðskiptaþinginu 1985.
Fisher hætti í viðskiptum árið 1975
og hefur helgað sig formennsku í
stofnunum i Kanada og Bandaríkj-
unum sem starfa á sama grundvelli
og I.E.A.
Bækur þessar skipta nú orðið
hundruðum og eru lesnar í u.þ.b. 40
löndum. Sagt er að bækur þessar sé
að finna jafnt á borðum nemenda sem
og helstu ráðamanna í þjóðfélaginu.
Þátttaka á morgunverðarfundin-
um tilkynnist sem fyrst á skrifstofu
VÍ í síma 83088. Morgunverður kost-
ar kr. 450.
Félag Snæfellinga
og Hnappdæla
í Reykjavík
Vorfagnaður félagsins verður hald-
inn í Domus Medica laugardaginn
12. apríl og hefst kl. 21. Félagar íjöl-
mennið og takið með ykkur gesti.
Eftirgjöf aðflutningsgjalda
vegna bifreiðakaupa til öryrkja
Samkvæmt tillögum úthlutunar-
nefndar bifreiða til öryrkja mun
íjármálaráðuneytið á næstu dögum
senda tilkynningu þeim öryrkjum
sem í ár verður veitt eftirgjöf að-
flutningsgjalda vegna bifreiðakaupa.
Að þessu sinni var 546 öryrkjaleyf-
um úthlutað sem er áþekkur fjöldi
og úthlutað hefur verið á undan-
förnum áram. Fjárhæð eftirgefinna
gjalda af 530 bifreiðum var ákveðin
allt að kr. 25.000,- af hverri bifreið
en full eftirgjöf vegna 16 bifreiða
samkvæmt sérstakri heimild toll-
skrárlaga.
Eins og við fyrri úthlutanir var við
ákvörðun eftirgjafarinnar tekið tillit
til þeirra breytinga sem orðið hafa á
framfærslukostnaði og aðflutnings-
gjöldum á bifreiðum frá því núgild-
andi grunnfjárhæð eftirgjafar vai
lögfest 1981.
Alyktun stjórnar Húseigendafé-
lagsins
Stjórn Húseigendafélagsins mót-
mælir harðlega framkomnum
hugmyndum um framlengingu á
tímabundnum eignarskatti á íbúðar-
húsnæði. Reynsla hefur sýnt að
tímabundnir skattar hafa reynst
ærið lífseigir hér á landi.
Kvennadeild Rangæingafé-
lagsins
verður með kökusölu og flóamarkað
á Hallveigarstöðum laugardaginn
12. apríl nk. kl. 14.
Gullbrúðkaup eiga á morgun, laug-
ardaginn 12. apríl, hjónin Kristjana
Enn hefur verðið á islensku agúrk-
unum lækkað. Heildsöluverð hjá
Sölufélaginu er komið í 77 kr. fyrir
I. flokk. Heildsöluverð hefur þá lækk-
að um helming frá því að gúrkumar
Frá Ægi Kristinssyni, fréttaritara DV
á Fáskrúðsfirði:
Framboðslisti óháðra borgara á
Fáskrúðsfirði, vegna komandi sveit-
arstjómarkosninga, var ákveðinn i
gærkvöld. Að sögn Eiríks Stefánsson-
ar, formanns Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Fáskrúðsfjarðar, ríkti
mikil eining og baráttuhugur á fund-
inum þar sem listinn var ákveðinn.
Eiríkur hafnaði, sem kunnugt er, 3.
sæti á lista Alþýðubandalagsins eftir
að hafa gefið kost á sér í prófkjöri
innan þess. Listi óháðra er þannig
skipaður:
1. sæti: Eiríkur Stefánsson, formað-
ur Verkalýðs- og sjómannafélags
Fundir
Fundur kvenfélags Bústaða-
sóknar
verður haldinn mánudaginn 14. apríl
kl. 20.3Ö í safnaðarheimili Bústaða-
kirkju. Spiluð verður félagsvist og
rætt um sumarferðina.
Kvenfélag Breiðholts
Fundur verður í Breiðholtsskóla
mánudaginn 14. apríl kl. 20.30. Spilað
verður bingó, kaffiveitingar. Félags-
konur fjölmennið og takið með
ykkur gesti.
Ásbjörnsdóttir og Dagbjartur Sig-
urðsson, Álftagerði í Mývatnssveit.
Þau hófu búskap þar fyrir 50 árum
1936.
komu fyrst á markaðinn fyrir fáeinum
vikum. Við sögðum frá, 30% verð-
lækkun á Neytendasíðu í gær.
Gúrkumar hafa lækkað aftur um
30% síðan þá. -A.Bj.
Fáskrúðsfjarðar, 2. sæti: Birgir Krist-
mundsson verkamaður, 3. sæti: Vignir
Hjelm verkamaður, 4. sæti: Óðinn
Magnason verkamaður, 5. sæti: Ing-
ólfur Hjaltason vélvirki, 6. sæti:
Guðný Sigmundsdóttir verkakona, 7.
sæti: Grétar Arnþórsson verkstjóri,
8. sæti: Ingvar Sverrisson sjómaður,
9. sæti: Benedikt Sverrisson stýrimað-
ur, 10. sæti: Jón Kárason sjómaður,
11. sæti: Agnar Sveinsson útgerðar-
maður, 12. sæti: Lúðvík Daníelsson
iðnverkamaður, 13. sæti: Sigurbjörg
Kristmundsdóttir húsmóðir og í 14.
sæti er Þórarinn Bjamason á Borg,
elsti íbúi Fáskrúðsfjarðar, kominn á
tíræðisaldur.
Enn lækka gúrkurnar
Listi óháðra á Fáskrúðsfirði:
Verkalýðsfor-
maðurinn í 1. sæti