Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Blaðsíða 32
44 DV. FÖSTUDAGUR ll.APRÍL 1986. Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Olyginn sagði... Priscilla Presley fékk mótleikara sina í Dallas- þáttunum, þar sem hún hefur fengið hlutverk nú um hrið, til að glenna upp augun þegar hún mætti i upptökur með nýja hár- greiðslu. Ekkja rokk-kóngsins var margrómuð fyrir sitt síða svarta hár en nú var það orðið Ijóst og stutt í þokkabót. Þegar félagarnir höfðu jafnað sig voru allir á einu máli um að frúin hefði yngst um 10 ár. Elísabet Englands- drottning varð nýverið fyrir barðinu á hraklegum rekstri þegnanna á járnbrautum rikisins. Vandræð- in byrjuðu með eilífum töfum. Eimreiðin snerist vart heilan snúning vegna bilana. Lestin varð þvi mörgum klukkutímum á eftir áætlun þegar æfareið drottningin steig loks út á braut- arpallinn í Lundúnum. Á meðan starfsmenn járnbrautanna voru að baksa við að koma lestinni á leiðarenda mátti drottningin þola sult og seyru því allt sem nota átti i eldhúsinu var líka bil- að. Á endanum mátti drottningin sætta sig við kaldan morgun- verð einan matar. Penelope Keith sem sjónvarpsáhorfendur muna vel eftir úr þáttunum um Ættar- óðalið. rakar nú saman pening- um á því að fá Ameríkana til að trúa því að hún sé í raun og veru aðalskona. Ferðaskrifstofa. fyrir vestan hafið hefur gert við hana samning um að drekka síðdegiste með bandarískum ferðalöngum. Bandaríkjamenn flykkjast nú í te hjá frúnni enda vita þeir ekkert æðislegra en enska aðalsmennsku. Ný Dana- drottning? Danir státa nú af ekta rokkdrottn- ingu. Hún heitir Nathalie Kollo, spræk hnáta með kröftuga rödd. Það er ekkert Madonnuvæl sem hún lætur frá sér fara heldur rífandi rokk - þungt og hrátt. Hæfileikana á hún ekki langt að sækja. Faðir hennar er Rene Kollo, sem einu sinni var næstum heimsfrægur tenór. Móðir hennar er Dó- róthea Kollo ein af þekktustu dægur- lagasöngkonum Dana. En sú stutta kærir sig hvorki um óperusöng né ástar- söngva-hún vill hafa það rokk og ról. Nathalieernýorð- in 18 ára gömul en samt eru plötuút- gefendur farnir að slást um samninga við hana. Fyrsta plata kemur út síðar á þessu ári og er spáð mikillisölu afþeim sem heyrt hafa söng- inn. En Nathalie gerði aðeins samning um þessa einu plötu þannig að áhugas- amir útgefendur sem geta boðið vel eiga möguleika á að gefa út þá næstu, Til að styrkja rödd- ina hefur Nathalie sótt söngtíma hjá Florie Darte - frægri söngkonu í Ham- borg. Húnfórtil Cannes til að læra undirstöðuatriðin í sviðsframkomu svona til að fá stílinn yfir það sem hún hef- ur lært undanfarin árí jassballett. Og nú er allt til- búið til að taka við frægðinni þegar hún kemur í sumar - ef allt gengur að óskum. Prýðilegir líkamsburðir eru nauðsyn- legir í rokk- inu. Þar er Nathalie. í engu áfátt. Upp komast svik um síðir Hún Díana prinsessa er klár í kollinum og kann að drýgja í skart- gripum sínum. Tískufrömuðum þykir þó meðferð hennar á skart- gripum krúnunnar í hæpnara lagi. Drottningarmóðirin átti eitt sinn ennisband forkunnarfagurt með dýrum steinum og öllu. Díana fékk þetta band en gafst fljótt upp á að hafa það á höfðinu og gengur nú með það um hálsinn. Auðvitað er ekkert athugavert við að venjulegt fólk hagi sér svona en prinsessur... Ellen Kinnally: Ég skipti skapi eftir bíómyndum sem ég sé, eftir að hafa séð rómantíska mynd langar mig að líta út eins og Ófelía - og þá fæ ég mér þannig hárkollu. Hár á hár ofan „Þegar ég var ung stúlka á sjöunda áratugnum elskaði ég þær og lang- aði ekki jafnmikið í neitt í jóla- og afmælisgjöf," segir Ellen Kinnally tiskuhönnuður, sem er sérhæfð í hártísku og förðun, um hárkollur. „Leon Bucheit, einn fremsti hár- kolluhönnuður þeirra tíma, bjó í grennd við mig og ég fór iðulega i heimsókn til hans og horfði á hann vinna hárkollur á stjömur eins og Jackie Kennedy og Faye Dunaway. En það þýddi ekki fyrir mig að biðja um eina, hann hefði aldrei látið mig hafa, en þegar ég var fjög- urra ára gaf hann mér hárkollut- ösku sem ég nota enn þann dag í dag.“ Ellen er dæmigerð fyrir þá sem lifa og hrærast með hárkollur í næturklúbbamenningu Manhatt- an. „Þetta er ekki raunverulegur heimur og enda enginn sem heldur því fram. Þetta er heimur þeirra krakka sem hafa alist upp fyrir framan sjónvarpið, horfandi á end- ursýningar, og lesandi gamanblöð. Rétt eins og foreldrar þeirra vilja líkjast Ronald Reagan vilja þau líkjast Fred Flintstone. Og kannski er þá hárkolla allt sem þarf.“ -JSÞ Oteljandi andlit á einum manni Yfirleitt eru það örlög amerískra kvikmyndastjarna að geta ekki lá- tið sjá sig á götu án þess að eiga í vandræðum með aðdáendaskarann sem situr um hvert fótmál þeirra. Joel Grey er þó laus við þessi vand- ræði. Ekki vegna þess að hann hafi ekki getið sér gott orð á hvíta tjaldinu. Galdurinn er sá að leika aldrei án þykks andlitsfarða. Hann lék til frægðar í Kabarelt á móti Lizu Minnelli en var óþekkj- anlegur í hlutverkinu vegna þess að andlitið var málað hvítt. Þess vegna segir enginn sem sér Grey á götu: „Nei sko, er þetta ekki sá frábæri úr Kabarett." Þannig hefur andlitsfarðinn reynst Grey skjól- góður í næðingnum á toppnum. Nú er væntanleg ný mynd með Joel Grey í aðalhlutverki. Þetta er „Remo“ sem nú er verið að sýna í einu af kvikmyndahúsum borgar- innar. Enn er kappinn óþekkjan- legur. I þetta sinn leikur hann gamlan Kóreubúa að nafni Chiun, mikinn meistara í austurlenskri bardagalist. Dag hvern sem unnið var að upp- tökum myndarinnar þurfti Grey að eyða fimm klukkutímum í að koma gervinu upp og taka það af sér aft- ur. Árangurinn var í samræmi við erfiðið en samt er Grey það skapi næst að hætta þessum leik með farðann og nota sitt eigið andlit í næstu mynd. Joel Grey varð fyrst frægur fyrir leik sinn á móti Lizu Minnelli í Kabarett. Enginn þekkti hann þó undir gervinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.