Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Side 36
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1986.
Stúdentapólitík:
Bylting
í bifreið
„Jú, ökuferðin var farin,“ sagði Ari
Edwald, einn af fulltrúum hins ný-
stofnaða stúdentafélags, Stígandi, í
samtali við DV.
Eins og kunnugt er af fréttum hafa
orðið miklar sviptingar varðandi
myndun meirihluta í stúdentaráði
Háskóla Islands sem nú samanstend-
ur af 12 Vökufulltrúm og 4 Stígandi-
mönnum. Eftir sitja 13 vinstrimenn
og einn umbótasinni.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um DV fór formaður Vöku og
núverandi formaður Stúdentaráðs
með tvo umbótasinna í ökuferð um
Suðurland, meðal annars til að ræða
við einn umbótasinna er var við störf
íJÞorlákshöfn. Átti að reyna til þraut-
ar hvort meirihlutasamstarf þessara
aðila væri mögulegt. Annar umbóta-
sinninn í bifreiðinni og sá er var við
störf í Þorlákshöfn voru til í slaginn
en eitthvað vafðist ráðabruggið fyrir
þriðja umbótasinnanum, Gylfa Ást-
bjartssyni, sem jafnframt var formað-
ur Félags umbótasinna. Var þá ekið
með hann vítt og breitt um Suðurland
þar til numið var staðar á Stokks-
eyri, stúdentafélagið Stígandi stofn-
að, Gylfi gerður að formanni,
nauðsynlegar ráðstafanir gerðar í
~ gtignum síma, brunað í bifreiðinni til
Reykjavíkur og völdin tekin.
Kom þetta ráðabrugg mönnum í
opna skjöldu og gátu andstæðingarn-
ir ekkert aðhafst. -EIR
Þjoðaratak gegn
krabbameini
Vigdís gengur
ekki í hús
Forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, mun ekki ganga í hús og safna
í landssöfnun Krabbameinsfélagsins
sem gengur undir kjörorðinu „Þjóð-
arátak gegn krabbameini - þín
vegna“.
‘Vigdís er að vísu skráð sem einn
af sjálfboðaliðum söfnunarinnar en
hennar framlag veður fólgið í því að
heimsækja miðstöðvar söfnunarinnar
á höfuðborgarsvæðinu á laugardag-
inn, heilsa upp á fólk og fylgjast með
framgangi mála. Vigdís er einnig
vemdari átaksins. -KB
Geriö uerösamanburö og pantiö úr
1 utÁ7\ 1 k V/ M \ I I r V Sl
7 Simi: 52866
Nægir Albert ekki kollur í stað ráðherra- stóls ef hann er hálfur út úr stjórninni?
Þeir þvælast
fyrir öllum
mínum málum
„Það er rangt að ég hafi farið af
ríkisstjórnarfundi i síðustu viku.
Hins vegar fór ég strax að honum
loknum. Ég sagði það þá að ég sæi
ekki til hvers ég væri að mæta á
slíka fundi á meðan framsóknar-
menn brygðu fæti fyrir öll mál mín
sem iðnaðarráðherra og ég hefði
ekki annað erindi en að taka þátt
í afgreiðslu mála fyrir aðra ráð-
herra.“ Þetta sagði Albert Guð-
mundsson iðnaðarráðherra í
morgun.
Málgagn Framsóknarflokksins,
dagblaðið Tíminn, fullyrti eftir um-
ræddan ríkisstjórnarfund að Albert
væri kominn hálfur út úr ríkls-
stjóminni. Hann hefði gengið af
fundinum, skellt hurðuin og sagst
ekki mæta framar nema sérstaklega
boðaður til þess að Qalla um mál-
efni síns ráðuneytis. Forsætisráð-
herra var sagður staðfesta
brottgönguna og þykja þetta slæm
hegðun.
Albert hló kankvíslega að þessu í
morgun og sagði það ekki óvanalegt
að bunan stæði út úr Steingrími
Hermannssyni eins og stórfoss þeg-
ar minnst varði. Hann sagðist hins
vegar bíða með að svara honum
þangað til hann kæmi aftur heim
og hefói kynnt sér ummæli forsætis-
ráðherra og samflokksráðherra
hans. „En mér er full alvara í því
að eiga erindi sem erfiði í ríkis-
stjórninni á meðan ég er þar,“ sagði
Albert.
„Ráðhemar Framsóknarflokksins
hafa lagst á öll mín mál í vetur, sum
síðan í haust. Sprengipunkturinn
var svo viðbrögð þeirra við hug-
mvndum mínum um aðgerðir til
þess að halda sem mestu af end-
urnýjun togaraflotans, sem nú er
að hefjast, í íslenskum skipasmíða-
stöðvum. Við erum að missa þessi
- segir Albert
Guðmunds-
son iðnaðar-
ráðherra
um fram-
sóknarráð-
herrana
verk öll til þess að halda uppi út-
lendingum á okkar kostnað. Það er
heimskulegt að sporna ekki við fæti
í þessu máli, við höfum engin efni
á því að haga okkur þannig sé
finnanlegur flötur á því að halda
þessum verkefnum í landinu. Fram-
sóknarmenn voru hins vegar ekki
til viðræðu um það.“
Albert vildi ekki svara því hvort
hann ætlaði að mæta á næsta ríkis-
stjómarfund eftir heimkomuna án
sérstakrar boðunar. „Ég hef ekki
aðstöðu til þess að svara því fyrr
en ég kem heim.“
HERB
■ ..1 .................■■■■'-
Veðrið á morgun:
Skúrir og
slyddafyrir
norðan
Á morgun verður hæg, breytileg
eða norðvestlæg átt á landinu, lít-
ilsháttar skúrir eða slydduél verða
á annesjum norðanlands en súldar-
vottur sunnan- og vestanlands,
aðallega við strandlengjuna. Frem-
ur svalt í veðri. Heldur hlýrra
sunnanlands þar sem hiti getur far-
ið upp í 6 stig.
-A.Bj.
Vorhugur er kominn í æsku landsins. Þróttmiklir krakkar nota hvert tækifæri til þess að leika sér
í boltaleik, snú-snú, teygjutvist og ýmiss konar eltingarleikjum. Þessi börn voru frelsinu fegin
er hringt var út í friminútur eftir kennslustund i Hlíðaskóla, gripu strax til boltans eða brugðu sér i
Sólarhrings-
verkfall
- veitingahús almennt
opin í kvöld
Sólarhringsverkfall ófaglærðs
starfsfólks á veitingahúsum hófst á
hádegi í dag. í morgun slitnaði upp
úr viðræðum aðila eftir um 20
klukkutíma samningafund hjá sátta-
semjara ríkisins sem hófst klukkan
13 í gær. Ekki hefur verið boðaður
nýr sáttafúndur en starfsfólkið hefur
boðað tveggja sólarhringa verkfall
sem hefst klukkan 9 að morgni 18.
apríl nk. .
Að sögn veitingahúsaeigenda hefur
verkfallið núna sáralítil áhrif á rekst-
ur húsanna. Almennt verður opið á
veitinga- og skemmtistöðum. Það
kemur til af því að eigendur munu
starfa sjálfir og einnig að fagfólk
verður við störf, s.s. þjónar óg mat-
reiðslumenn.
Það eru kaupkröfur starfsfólksins
sem viðsemjendur þeirra sætta sig
ekki við og telja allt of háar.-APH
Utanríkisráð-
herra dreginn
fyrir dóm
„Deilan stendur um hvort utan-
ríkisráðherra hafi sveitarstjómarvald
á varnarsvæðunum. Hann telur að
svo sé en Miðneshreppur telur að
svipta verði sveitarstjómir því valdi
með lögum,“ sagði Olafur Ragnars-
son, lögfræðingur Miðneshrepps.
Hreppurinn hefur höfðað mál gegn
utanríkisráðherra vegna byggingar-
leyfisgjalda nýju flugstöðvarbygging-
arinnar á Keflavíkurflugvelli.
Flugstöðin er staðsett í Miðneshreppi
en utanríkisráðherra neitar að greiða
byggingargjöldin vegna þess að flug-
stöðin er byggð á varnarsvæði.
„Byggingarleyfisgjaldið er rúm
milljón með vöxtum en fasteignagjöld
um ókomin ár em umtalsverð fjár-
hæð,“ sagði Ólafur Ragnarsson.
„Málflutningur fer fram á föstudag-
inn eftir viku,“ sagði Þorgeir Þor-
steinsson, lögreglustjóri á Keflavík-
urflugvelli í gær. -EIR