Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1986, Page 32
FRÉTT ASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju umfrétt-
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað i DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið i
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1986.
Hella:
Tvö þúsund
búniraðtjalda
í morgun voru um tvö þúsund manns
búnir að slá upp tjöldum á Gadda-
staðaflötum á Hellu þar sem landsmót
hestamanna hefet í dag. Hestamenn
með þúsundir hesta streyma að úr öll-
um áttum, margir komnir langt að og
reikna mótshaldarar með að gestir
verði á bilinu 10-20 þúsund áður en
yfir lýkur á sunnudagskvöldið.
Landsmótið hefst formlega klukkan
13.00 í dag með dómum á kynbóta-
hrossum. Aðstaða fyrir gesti, jafnt
manneskjur og dýr, er hin ákjósanleg-
asta á Hellu. Búið að græða upp alla
sanda innan mótssvseðisins en að-
gangseyrir er 1200 krónur. -EIR
Rannsókn
á máli
Sólbergsins
í biðstöðu
Rannsókn á máli Sólbergsins ÓL 12
„frá Ólafsfirði, vegna gruns um meinta
Íolsun á löndunarskýrslum, hefur ekki
enn verið hafin og liggur ekki ljóst
fyrir hvaða stefna verður tekin í mál-
inu.
í mars fyrr á þessu ári sendi sjávar-
útvegsráðuneytið beiðni um rannsókn
til Rannsóknarlögreglu ríkisins, vegna
gruns um stófellda fölsun á löndunar-
skýrslum Sólbergsins, bæði við
löndum innan lands og utan. Grunur
vaknaði vegna upplýsinga sem komu
fram í skrifúm Bjöms V. Gíslasonar
þar sem birtar vom tölur um raun-
verulegan afla og löndunarsk'ýrslur
ónefnds skips.
RLR hefur nú sent málið til ríkisak-
sóknara til umsagnar um „hvort og
með hvaða hætti rannsókn skuli fara
--fi-am'f Bragi Steinarsson, sem hefúr
mál Sólbergsins til umfjöllunar, sagði
í samtali við DV að engin ákvörðun
lægi fyrir ennþá. „Ég er ekki farinn
að fletta þessu ennþá og get ekki sagt
hvaða stefna verður tekin í þessu
máli.“ -S.Konn.
ALLAR GERÐIR
SENDIBÍLA
•*-** Skemmuvegur 50
LOKI
Svona getur sænsk sál
fræði leikið menn.
Innbrotsþjófar slógu lógreglu og lögðu á flótta:
Teknir eftir
öfluga mótspyrnu
Rétt fyrir klukkan þrjú í nótt var vom tveir menn í búðinni. Urðu að handjáma annan þeirra eftir skömmu síðar á harðahlaupum á
lögreglunni tilkynnt um innbrot í mennimir ekki lögreglunnar varir nokkur átök en hinn sló lögreglu- Bugðulæknum. íljóskomaðþarvar
verslunina Lækjarkjör við Brekku- fyrr en hún hafði umkringt staðinn. þjón í höfuðið og lagði á flótta. á ferðinni strokufangi af Litla-
læk. Bmgðust þeir engu að síður hart við Fleiri lögreglumenn vom kallaðir á Hrauni sem lýst hafði verið éftir í
Þegar lögiæglan kom á staðinn og veittu öfluga mótspyrnu. Tókst vettvang og náðist maðiuinn gær. Báðh menmmir em í vörslu
lögreglunnar. -ÞJV
Sálfræðingur og sænskur goði
Thure Claus og Sveinbjörn Beinteinsson á gangi í Hallargarðinum í Reykjavik i gær.
DV-mynd S.
„Ég var með Sveinbimi Bein-
teinssyni allsherjargoða að
Draghálsi í nótt. Hann talaði ís-
lensku og ég sænsku og við
skildum hvor annan ágætlega,"
sagði Thure Claus, allsherjar-
goði sænskra ásatrúarmanna, í
samtali við DV í gær. Thure
Claus er staddur hér á landi í
sambandi við listahátíðina
N’art’86 sem hefst á túninu við
Norræna húsið 18. júlí. N’art’86
er nokkurs konar afmæliskveðja
til Reykjavíkur á 200 ára af-
mælinu, hingað streyma á annað
hundrað norrænir listamenn,
ferðast um landið og sameinast
svo í Reykjavík seinni hluta
mánaðarins.
„Nú em á milli 3 og 400 ásatrú-
armenn í Svíþjóð en þeir höfðu
ekki allir ráð á að koma á hátíð-
ina hér í Reykjavík," sagði Thure
Claus sem er menntaður sálfræð-
ingur og starfar sem slíkur á
sjúkrahúsi í Stokkhólmi. Hann
er 31 árs og áhugi hans á ásatrú
vaknaði snemma: „Ég hef lagt
stund á yoga og hugleiðslu frá
12 ára aldri og skynjaði snemma
ýmsa krafta í náttúrunni og út-
geislun frá fólki. Það lá beint við
að rækta þessa eiginleika í ásatr-
únni.“
Thure Claus ætlar að halda
fyrirlestra um seið og ýmsa fom-
eskju 19. og 20. júlí. Þá hyggst
hann einnig verða með sýni-
kennslu í ýmsum siðum ásatrú-
armanna enda blóta sænskir
ásatrúarmenn guði sína á annan
hátt en íslenskir:
„Ég blóta Óðin en Sveinbjöm
Beinteinsson blótar Þór,“ sagði
’lhure Claus allsherjargoði.
-EIR
Veðrið á morgun:
4
Hæg-
viðri
Fremur hæg austlæg átt á landinu.
Þokuloft á annesjum norðvestan-
lands en súld eða rigning við suð-
austurströndina.
Rainbow-málið:
Viðræður í dag
Hans G. Andersen mun í dag eiga
viðræður við Derwinsky, sérlegan ráð-
gjafa bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins, um það hvaða hugmyndir
bandaríkjastjóm hefur um breytingar
á útboðum varðandi vöruflutninga til
vamarliðsins.
Þessar viðræður em framhald af við-
ræðum Matthíasar Á. Mathiesen
utanríkisráðherra og Schultz utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna í Halifax
í vor þar sem Schultz talaði um að
athuga nýjar leiðir í málinu.
Samkvæmt upplýsingum frá utan-
ríkisráðuneytinu er ekki mikilla
tíðinda að vænta af fundi Hans G.
Andersen og Derwinsky í dag og frek-
ar búist við að framhald verði á
viðræðunum. -KB