Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 8
30 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986. Mynd- bönd Umsjón: Þorsteinn J. Vilhjálmsson \ _______- Átökin um toppsæti DV listans fara harðnandi. Salvador er nú númer eitt. Vestrinn Silverado er þar með kominn í annað sætið og í því þriðja situr sem fyrr ævintýra- myndin Cocoon. Ágæt þrenning það. Af nýjum myndum á listanum má geta njósnamyndarinnar Gotc- ha og gamanmyndarinnar um sjálfboðaliðana í Thailandi. Fleiri nýjar myndir eiga vafalaust eftir að sjást á listanum á næstunni. Allt er með kyrrum kjörum á þát- talistanum þessa vikuna. Á bandaríska leigulistanum er Jewel of the Nile komin í efsta sætið. Back to the Future er á nið- urleið eftir mikla velgengni. Murphys Romance og Delta force eru hins vegar á hraðri uppleið. Sömu sögu má segja um Iron Eagle. Hún er ný á listanum og stefnir hærra. -ÞJV DV listinn Myndir 1. ( 2) Salvador 2. ( 1) Silverado 3. ( 3) Cocoon 4. ( 6) Revolution 5. ( 4) Goonies 6. ( 5) Eye Witness 7. ( 7) Windows 8. ( —) Gotcha 9. ( —) Volenteers 10. ( 8) Ladyhawke Þættir 1. ( 1) H Tomorrow Comes 2. ( 2) The Twilight Zone 3. ( 3) Harem 4. ( 4) Police in Action 5. ( 5) Blood and Orchids 6. ( 7) Kane and Able 7. ( 6) Umsátriö 8. ( 8) Space 9. ( 9) Feigðarsýn 10. (12) Til lífstíðar Bandaríkin 1. ( 2) Jewel of the Nile 2. ( 1) Back to the Future 3. ( 5) Spies like us 4. ( 4) White Nights 5. (19) Murphys Romance 6. ( 3) Jagged Edge 7. ( 6) Nigthmare on Elm Street-2 8. (16) Delta Force 9. ( 7) Cocoon 10. (—) Iron Eagle Einstök ævisaga Rithöfundurinn Yukio Mishima. Hann framdi sjálfsmorð 1970. MISHIMA Framleiöendur: Mata Yamamoto.Tom Luddy Handrit: Paul Schrader, Leonard Schrad- er Leikstjóri: Paul Schrader Aðalhlutverk: Ken Ogata, Kenji Sawada Bönnuö yngri en 16 ára Yukio Mishima var einn af þekkt- ustu rithöfundum Japana eft.ir stríð. Hann framdi sjálfsmorð (har- akiri) árið 1970, eftir misheppnaða tilraun til að ná völdum innan jap- anska hersins. Þetta er skrýtið efni í vestræna kvikmynd. Enn undarlegra er þó að einhverjir skuli vilja leggja fé í annað eins fyrirtæki. Francis Coppola og George Lucas létu til- leiðast enda frægir fyrir dirfsku á því sviði. Eða kannski var það trú- in á leikstjóra og handritshöfund myndarinnar, Paul Schrader, sem reið baggamuninn. Schrader hefur áður leikstýrt myndum eins og American gigolo og Cat people. Síðast en ekki síst skrifaði hann handritið að þeirri frábæru mynd Taxi driver. í þessari mynd Schraders er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Fyrir utan að vera snjall rithöfundur var Mishima stórbrot- inn persónuleiki. En á ótrúlegan hátt tekst Schrader að draga upp heilsteypta mynd af þessum sér- staka manni. Til þess notar hann aðallega atriði úr leikritum Mis- hima. Þau atriði lýsa vel brennandi áhuga höfundarins á að endur- vekja stolt japönsku þjóðarinnar eftir niðurlægingu stríðsáranna. Mishima var annt um að endur- reisa keisaraveldið og var tilraun hans til valdaráns innan hersins hápunktur þess. Við gerð þessarar myndar mætti Schrader miklum erfiðleikum. Það er ekki hlaupið að því fyrir Banda- ríkjamann að gera mynd um eina af þjóðsagnapersónum Japana. Að minnsta kosti voru Japanir ekki par hrifnir af því. En erfiðið hefur skilað sér. Eftir stendur hreint ein- stök ævisaga. ★ ★ 'i I kvermat>úri HAREM Framleiöandi: Michael Dryhurst. Handrit: Karol Ann Hoeffner. Leikstjóri: Billy Hale. Aöalhfutverk: Art Malik, Sarah Miles, Omar Sharif, Ava Gardner. 2 spólur. Bönnuö yngri en 16 ára. Sögusvið Harem erDamaskus um aldamótin. Þangað kemur breskur sendiráðsstarfsmaður ásamt heit- konu sinni. Uppreisnarmenn vaða uppi í landinu. Þeir stela stúlkunni og selja hana í kvennabúr soldáns- ins. Mannsefnið leggur allt í sölurnar til að fá unnustu sína aft- ur. En honum verður lítið ágengt fyrr en hann fær sökudólgana sjálfa, uppreisnarmennina, í lið með sér. Eitthvað á þessa leið er sögu- þráðurinn í Harem. Þetta eru spánýir breskir þættir sem byggja ævintýri upp á gamla móðinn. Prinsessan/unnustan er seld í ánauð og vaskir menn reyna að koma henni til hjálpar. Uppreisn- arforinginn verður hlutskarpastur. Þau ríða ástfangin út í eyðimörk- ina í lokin. Fjöldi stórleikara kemur við sögu í þáttunum. Frammistaða þeirra er upp og ofan. Ava Gardner stendur fyrir sínu sem eiginkona soldánsins og Nancy Travis er ósköp sæt í hlutverki stúlkunnar sem allir vilja eiga. Á heildina litið er Harem ákaf- lega þægileg afþreying. Örlagasaga af gamla skólanum og endirinn með afbrigðum rómantískur. ★ ★ Löggulíf THE POLICE STORY Framleiöandi: Joseph Wambaugh Handrit: E. Jack Neuman Leikstjóri: William Graham Aðalhlutverk: Vic Morrow, Edward Asner Bönnuö yngri en 16 ára Myndin The police story er ein af sjö í þáttaröðinni Police in act- ion. Eins og nöfhin gefa til kynna eiga myndimar sammerkt að fjalla um líf og störf lögreglumanna. I The police story segir frá lög- reglumanninum Joe La Frieda. Hann á í höggi við þann stórhættu- lega glæpamann, Slow boy. Sá er hið mesta varmenni og stundar rán í stórmörkuðum. Hart er barist þar til skúrkurinn liggur í valnum. The police story er ekki í um- ræddum myndaflokki fyrir ekki neitt. Hér er allt upp á gömlu lög- reglubókina lært. La Frieda er dæmigerður harðjaxl og lætur sér fátt fyrir brjósti brenna. Undir skelinni leynist samt hjartgóður maður, sem einungis hefur öruggi samborgaranna að leiðarljósi. Dá- góð afsökun fyrir fólskuverkin. Ed Ásner leikur yfirmann þessa kvika löggumanns. Hann er auðvitað alltaf geðillur og á stöðugt reiði lögreglustjórans yfir höfði sér. Traustur leikari Asner enda ekki i fyrsta skipti sem hann bregður sér í þetta hlutverk. Lögreglumyndir hafa ætíð verið vinsælar. Það er sama hvar drepið er niður í myndaflokkinn Police in action. Hér er um sígilda afþrey- ingu að ræða. wHTj"; tstmsmm nxrt iMKOÚiðui ★ ★ FaUeg umgjörð CANNERY ROW Framleiðandj: Michael Phillips Handrit David S. Ward Gerö eftir sögum John Steinbeck Leikstjóri: David S. Ward Aöaffilutveric Nick Notte, Debra Winger Öllum leyfð Þessi mynd er gerð eftir tveimur sög- um John Steinbeck, Cannery row og Sweet Thursday. Handritshöfundur og leikstjóri er David S. Ward sem líklega er þekktastur fyrir handrit sitt að þeirri margfrægu mynd Sting. Hér tvinnar Ward saman sögu tveggja ungmenna sem búa í smábæn- um Cannery row í Califomiu. Dokki (Nolte) er fyrrverandi homaboltahetja sem stundar rannsóknir á sjávardýr- um. Súsí (Winger) er aðkomustelpa sem finnur sér ekkert betra að gera en að vinna í hóruhúsi bæjarins. Á ýmsu gengur áður en ást þeirra nær að blómstra. Cannery row er falleg mynd. Kvik- myndatökumaðurinn er sjálfur Sven Nykvist, dyggur aðstoðarmaður Ing- mars Bergman í gegnum tíðina. Leiktjöld em ennfremur íburðarmikil. Annað er ekki til mikillar fyrirmynd- ar. Hvorki handrit Ward né leikur stórstimanna, Nick Nolte eða Debm Winger (Officer and a gentleman), rís upp fyrir meðalmennskuna. Umgjörð Cannery row er falleg. En myndin sjálf' er aðeins léleg eftirlíking.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.