Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1986, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1986, Page 6
28 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986. Malcom Arnold (Skarpica) og Elín Osk Oskarsdóttir (Tosca) í hlutverkum sinum í óperunni Tosca. Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús Leikhús - Leikhús Tosca - allra síðustu sýningar Óperan Tosca, eitt af meistaraverkum ítalska óperutónskáldsins Puccini, er nú að kveðja Þjóðleikhúsið þar sem allra síðustu sýningar verða í kvöld og sunnudagskvöld. Óperan hefur verið súnd við húsfylli frá því í október. Leik- stjóri er Paul Ross, hljómsveitarstjóri er nú Guðmundur Emilsson, æfingastjóri tónlistar Agnes Löve, hönnuður leikmynda og búninga Gunnar Bjamason, ljósahönnuður Kristinn Daníelsson, aðstoðarleikstjóri er Sigríður Þor- valdsdóttir og sýningarstjóri er Jóhanna Norðfjörð. Elín Ósk Óskarsdóttir syngur og leikur titil- hlutverkið, óperusöngkonuna Floria Tosca á þessum sýningum. Kristján Jóhannsson fer með hlutverk listmálarans, Mario Cavaradossi, en eftir honum bíða nú samningar við ópemhús erlendis næstu þrjú árin, þar á meðal hlutverk hertogans af Rigoletto við kanadísku þjóðaró- peruna í Torontó sem frumsýnd verður í janúar. Og bandaríski barítonsöngvarinn Malcom Arn- old er kominn aftur til að fara með hlutverk Scarpia lögreglustjóra. Breytt hlutverkaskipan verður í hlutverkum djáknans og Sciorrone þar sem Sigurður Bergsson fer nú með hlutverk djáknans og Guðjón Óskarsson með hlutverk Sciorrone. í helstu hlutverkum öðrum eru Viðar Gunn- arsson (Anglotti), Sigurður Björnsson (Spo- letta) og Stefán Amgrímsson (fangavörður). Óperan Tosca var frumsýnd í Róm árið 1900 og varð strax óhemju vinsæl. Puccini fékk hug- myndina að ópemnni þegar hann sá spennu- leikritið La Tosca eftir Sardou með Söru Bernhardt í aðalhlutverkinu. Hann fékk síðan Illica og Giacosa til að semja óperutextann en þessi svokallaða „heilaga þrenning" stóð einnig saman að óperunni Manon Lescaut, La Bohéme og Madam Butterfly. Atburðarásin gerist í Rómaborg og lýsir því hvemig miklum ástríðum reiðir af andspænis hættulegu stjórnmálaástandi. Af frægum aríum í Tosca má nefna „Recondita aroma“, „Non la sospiri la nostra casetta“, „Te daum“ og fleiri. Um 150 manns taka þátt í sýningu Þjóðleik- hússins á Tosca með einsöngvumm, Þjóðleik- húskórnum, drengjakór, aukaleikurum og 70 manna sinfóníuhljómsveit. Konsertmeistari er Sean Bradley. Hvað er á seyði um helgina - Hvað er á seyði um helgina - Hvað er á seyði um helgina - Hvað er á seyði um helgina Sýningar Árbæjarsafn Opið samkvæmt samkomulagi- Gallerí Islensk list, Vesturgötu 17 11 þekktir listmálarar sýna þar verk sín, þeir Bragi Ásgeirsson, Einar G. Baldvins- son, Einar Þorláksson, Guðmunda Andrésdóttir, Hafsteinn Austmann. Jó- hannes Geir, Jóhannes Jóhannesson, Kristján Davíðsson, Kjartan Guðjónsson, Vilhjálmur Bergsson, Valtýr Pétursson. Auk þess á Guðmundur Benediktsson verk á sýningunni. Sýningin er opin virka daga kl. 9-17. Lokað um helgar. „Hér eru stjóm- málin í návígi“ -segiiforsætisráðherrafrwn, Edda Guðmunds- dóttir, í Vikuviðtalinu. Eddasegirfráuppvextismum, viðburðaríku lítimeðstjómmálamanninum SteingrímiHer- mannssyniogkynnumafþekktufólki. Gallerí Svart á hvitu við Óðinstorg Þar stendur yfir sýning á verkum Ómars Stefánssonar. Galleríið er opið kl. 14-18 alla daga nema mánudaga. Sýningin stendur til 14. desember. Gallerí Listver Guðmundur Kristinsson sýnir um 50 verk unnin á síðustu 5 árum, olíumálverk, vatnslitamyndir og pastelmyndir. Þetta er fyrsta einkasýning Guðmundar. Sýningin er opin dagana 6.-14. desember kl. 16-20. Galleri Gangskör Amtmannsstíg Jólasýning Gangskörunga. Gangskörung- ar eru Jenný Guðmundsdóttir, Kristjana Samper, Lísbet Sveinsdóttir, Sigurður Ör- lygsson, Egill Eðvarðs, Hafdís ólafsdóttir, Kristín ísleifsdóttir, Lísa K. Guðjónsdótt- ir, Sigrid Valtingojer og Þórdís Á. Sigurð- ardóttir. Sýningin er opin út desember- mánuð. Virka daga kl. 12-18 og kl. 14-18 um helgar. Gallerí Langbrók-Textíll Bókhlöðustíg 2 Opið þriðjudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14. Gallerí Skipholti 50 c Gunnar örn sýnir 16 mónótýpur frá þessu ári. Hann hefur haldið 18 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga víða um Evrópu. Sýningin er opin virka daga og laugardaga kl. 14-18. Gallerí Hallgerðar Þar stendur yfir sýning á klippimyndum Valgerðar Erlendsdóttur. Sýningin er opin frá kl. 14-18 daglega til 14. desember. ára. Sýningin er opin daglega kl. 9-22 nema sunnudaga kl. 12-19 og stendur hún til desemberloka. Nýlistasafnið Vatnsstíg Á morgun opnar Ólafur Sveinn Gíslason sýna fyrstu einkasýningu, „ísland", í Ný- listasafninu. Ólafur sýnir auk fimm skúlptúra, blýantsteikningar og málaðar myndir. Jafnhliða sýningunni gefur ólafur út bók með blýantsteikningum frá árunum 1984-1985 og verður hún til sölu á sýning- unni. Opnunartími um helgar kl. 14-22, virka daga kl. 15-20. Aðgangur að sýning- unni er ókeypis. Listasafn Einars Jónssonar við Njarðargötu er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega frá kl. 10-17. Listasafn Háskóla íslands í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn- inu er ókeypis. Listasafn íslands Þar stendur yfir yfirlitssýning á verkum Valtýs Péturssonar. Sýningin spannar all- an listferil Valtýs allt frá því að hann var við nám í Bandaríkjunum 1944-46 til verka frá þessu ári. Eru þar alls 127 verk, olíu- myndir, mósaík og gvassmyndir. 1 tilefni sýningarinnar hefur verið gefin út vönduð sýningarskrá og litprentað plakat. Sýn- ingin er opin virka daga frá kl. 13.30>-18 en kl. 13.30-22 um helgar. Jólamatur KiæsmgarísérQokki YErþijátíu uppskriftiifyrirjóliii Vikanleitaðitilnokkurra einstaklingasemkunna veltilverka ogárangurinn ersextánsíðnablað- auki, alltílit, afdýrindisjólamat. Síðasta tölublað Vikunnar, kökublaðið, seld- ist upp. -Betra aðhafa snörhandtökog tryggja séreitteintakafþessari Viku. Mokkakaffi Skólavörðustíg Pétur Þór sýnir 21 verk, bæði olíu- og pastelmyndir sem unnar eru á síðustu mánuðum. Þetta er fyrsta sýning Péturs í höfuðborginni en hann hefur áður sýnt í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnaríjarðar, og tekið þátt í samsýning- um í Danmörku þar sem hann stundar nám. Mokkakaffi er opið mánudaga til laugardaga frá kl. 9-23.30 og á sunnudög- um frá kl. 14-23.30. Nýlistasafnið Vatnsstíg Síðasta sýningarhelgi á verkum Ólafs Sveins Gíslasonar. Á sýningunni eru teikningar og skúiptúrar sem Ólafur hefur unnið á árunum 1985-86. Á sýningunni er seld nýútkomin bók eftir Ólaf með blýants- teikningum frá árunum 1984-85. Aðgang- ur að sýningunni er ókeypis. Opnunar- tímar virka daga kl. 13-20 og um helgina kl. 14-22. Norræna húsið I anddyri hússins stendur yfir sýning á finnskum minnispeningum. Á þessari sýn- ingu eru munir úr tveimur söfnum: Urval finnskra minnispeninga fyrri alda úr safni Anders Huldéns, sendiherra Finna á Is- landi, og úrval finnskra minnispeninga síðari tíma úr sláttu fyrirtækisins Kultate- ollisuus/Finnmedal, sem nú er nærri 100 Listver Austurströnd 6, Seltjarnarnesi Guðmundur Kristinsson sýnir olíumál- verk, vatnslitamyndir og pastelmyndir. Sýningin er opin frá kl. 15-20. Síðasta sýningarhelgi. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns Einholti 4. Opið til 20. des. kl. 16-19 virka daga en 14-16 um helgar eftir 20. des. Á sunnudög- um kl. 14-16. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning opin á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14- 16. Sjóminjasafn íslands Vesturgötu 8, Hafnarfirði Opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 14-18. Sædýrasafnið Opið alla daga kl. 10-17. Ingólfsbrunnur Aöalstræti Birgir Schiöth sýnir 22 myndir, teikningar og vatnslitamyndir í Ingólfsbrunni við Aðalstræti. Sýningin stendur út desember og er sölusýning. Opið á verslunartíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.