Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1986, Side 13
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1986.
13
Neytendur
Reykt svínslæri verður
ekki sjálfkrafa að
Bayonneskinku
„Margir kalla reykt svínslæri Bay-
onneskinku en það er ekki rétt.
Bayonneskinka er meðhöndluð á
ákveðinn hátt, hún er rauðvínssöltuð
eftir ákveðnum uppskriftum og síðan
léttreykt. Svínslæri, sem er einungis
saltað og reykt, getur þvi ekki kallast
þessu na£ni,“ sagði Guðmundur Guð-
laugsson, kjötiðnaðarmaður í Nóat-
úni, í samtali við DV.
Bayonneverkuð skinka kom á markað
í fyrra í Nóatúni og einnig sænsk jóP
askinka sem er sykursöltuð og létt-
reykt. Mæltust þessar vinnsluaðferðir
mjög vel fyrir meðal neytenda. Kjötið
er úrbeinað og látið í sérstakar sellu-
losa gamir sem halda vel í sér safanum
úr kjötinu.
Bayonneskinkan, sem við skoðuð-
um, kostaði 595 kr. kg og sænska
jólaskinkan 690 kr. kg.
Dýrasta reykta svínakjötið í verð-
könnun Verðlagsstofnunar á dögun-
um var úrbeinaður svínahamborgar-
hryggur en hann kostaði 1104 kr. kg.
- Sjá verðsamanburð á reyktu svína-
kjöti í töflu. -A.BJ
Guðmundur Guðlaugsson kjötiðnað-
armaður. DV-mynd Brynjar Gauti
Ráðið bót á heilsuleysi
með réttu
mataræði
Heilbrigði og vellíðan nefnist ein af
bókunum sem nú koma út hjé Iðunni.
Bókin fjahar m.a. um hvemig með-
höndla má ýmsa sjúkdóma með
mataræði og lækningajurtum, vamar-
leiðir gegn algengum eiturefhum í
náttúrunni og umhverfinu. Þá em
uppskriftir að ýmsum mat og heilsu-
bótarfæði. Leiðarvísir um fjör- og
steinefhamyndandi fæðutegundir og
ráðlagðir dagskammtar af vítamínum
og steinefnum (í Bandaríkjunum).
Loks er að finna í bókinni töflu yfir
efnasamsetningu ýmissa fæðutegunda,
þar með talið hitaeiningainnihald.
Bókin er 310 bls., höfundurinn er
finnskur, dr. Paavo Airola, en Am-
grímur Amgrímsson þýddi. Bókin er
prentuð hjá Prenttækni. Hún kostar
1688 kr. út úr búð.
I þessari bók er að finna greinargóð-
ar leiðbeiningar um mataræði fyrir
þó sem haldnir hinum ýmsu sjúk-
dómum. Þar má einnig lesa um hvaöa
gagn bætiefnin gera okkur og hvað
gerist ef okkur vantar eitthvað af þeim
i fæðu okkar.
íf»i0j!!ÍÉÍS
*VfSA„
• Fullur stadgreiðsluafsláttur.
• Afsláttur við helmingsútborgun, en
raðgreiðslur í 2-12 mánuði.
• Þægilegur og ódýr greiðslumáti.
Látið ekki happ úr hendi sleppa
Lagerinn verður opinn
á morgun kl. 10-18.
Þar eru til sölu með
ríflegum afslætti
ýmsar gerðir af gólfteppum, flísum,
hreinlætistækjum og öðrum
byggingavörum. ,
2 góðar byggingavöruverslanir
austast og vestast í borginni,
Stórhöfða, sími 671100,
Hringbraut, sími 28600.
Opið laugardag
20. desember kl. 10-18.
Opið þriðjudag
23. desember kl. 8-19.
Lokað aðfangadag og
laugardaginn 27. desember.
Við bjóðum vöru sem er
sambærileg við
„þú veist hvar"
á verði sem aðeins við
vitum hvernig
Tökum upp í dag mikið úrval af peysum, skyrtum og hinar vin-
sælu vendipeysur í mörgum litum og gerðum.
Urvalið er ótrúlega mikið.
Líttu inn og þú uppgötvar nýtt land.
Smiðjuvegi 2', Kópavogi
-A.BJ.