Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1987, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1987, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1987. Sljómmál DV Árni Gunnarsson, ritstjóri Alþýðublaðsins, og Kolbrún Jónsdóttir alþingismaður hafa bæði boðið sig fram i fyrsta sætið á framboðslista Alþýðuflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra. Prófkjör Alþýðirflokksins á Norðuriandi eystra: Ámi keppnislaus og Sigbjöm skorar Jón G. Haukssan, DV, Akureyii- Ámi Gunnarsson er talinn keppn- islaus í prófkjöri Alþýðuílokksins í Norðurlandskjördæmi eystra sem verður um helgina. Hann vinnur íyrsta sætið með yfirburðum, segja alþýðuflokksmenn. Kolbrún Jóns- dóttir, áður Bandalagi jafnaðar- manna, býður sig, eins og Ámi, bæði fram í fyrsta og annað sætið. Hún er ekki talin eiga alltof mikla mögu- leika á öðm sætinu. Menn reikna með að Hreinn Pálsson bæjarlög- maður eða öllu frekar Sigbjöm Gunnarsson verslunarmaður vinni annað sætið. Því er spáð að tvö fyrstu sætin verði alþingissæti. Prófkjör Alþýðuflokksins í um- dæminu er síðasta prófkjör stjóm- málaflokkanna fyrir komandi þingkosningar. Að vísu er Kvenna- listinn í kjördæminu með könnun í gangi og eiga niðurstöður hennar að verða tilbúnar um og eftir mán- aðamótin. Fimm eru í prófkjöri Alþýðu- flokksins, Ámi, Kolbrún, Sigbjöm, Hreinn og Amór Benónýsson, leik- ari í Reykjavík. Þeir þrír síðast- nefndu bjóða sig aðeins fram í annað sætið. Amór á ættir að rekja til Þin- geyjarsýslunnar. Árni horfið frá kjördæminu? Þrátt fyrir að Ámi Gunnarsson sé talinn sigra Kolbrúnu Jónsdóttur með yfirburðum í kosningunni um efsta sæti listans gustar ekkert ægi- lega um hann í vinsældum. Hann á sér andstöðu ýmissa. Mönnum finnst sem hann hafi „horfið frá kjördæm- inu“ eftir að hann datt út af Alþingi í kosningunum 1983. Andstæðingar hans segja að hann hafi lítið látið sjá sig fyrir norðan, þeim finnst hann lítið hafa verið áberandi. Ennfremur má ekki gleyma því að Ámi er ekki að norð- an. Hann er Reykvíkingur. Miklir spádómar hafa verið að undanfömu um hve mikið fylgi Ámi fái í fyrsta sætið. Tölur eins og 80 til 85 prósent heyrast. Það þýðir að Kolbrún fær þá þetta 15 til 20 pró- sent atkvæða í fyrsta sætið. Vilja „rússneska kosningu“ Það geta reynst henni dýrmæt at- kvæði í baráttunni um annað sætið. Hún tekur atkvæði sin um fyrsta sætið með sér í annað sætið. Þetta em þeir Sigbjöm og Hreinn mest hræddir við. Þeir óska þess heitast að Ámi gersigri Kolbrúnu og hljóti „rússneska kosningu". Ámi bauð sig fyrst fram fyrir Al- þýðuflokkinn í kosningunum árið 1978. Hann var þá í öðm sæti á eftir Braga Sigurjónssyni frá Akureyri. Eins og menn muna sigraði Al- þýðuflokkurinn með yfirburðum í þessum kosningum og var það talið Vilmundi Gylfasyni mest að þakka. Sigurvíman varði stutt. Aftur komu kosningar 1979. Harður próf- kjörsslagur varð þá á milli þeirra Braga og Áma um fyrsta sætið. Þeim átökum lyktaði með því að Bragi féll. I alþingiskosningunum sama ár kom bakslag á Alþýðuflokksskút- una. Það fór ekki nema einn maður inn frá Alþýðuflokknum úr kjör- dæminu, Ámi Gunnarsson. Sigbjörn kom á óvart Það var einmitt í prófkjörinu 1979 sem Sigbjöm Gunnarsson, þá um þrítugt, kom á óvart. Hann lenti í þriðja sæti og fékk um 60 prósent allra atkvæða í prófkjörinu. Stóra bomban varð svo í kosning- unum 1983. Ámi Gunnarsson komst ekki inn á þing. Hann náði ekki að leiða Alþýðuflokkinn til neinna stór- ræða. Gríðarleg vonbrigði í flokkn- um. Að sjálfsögðu fékk Ámi sína gagnrýni. Tapinu em menn ekki ennþá búnir að gleyma. Hreinn Pálsson bæjarlögmaður skipaði annað sætið í kosningunum 1983. En Sigbjöm Gunnarsson, sem hafði komið svo á óvart 1979, bauð sig ekki fram í prófkjörinu og var þess vegna ekki með í lokaslagnum. Mikill slagur um annað sætið Margir þeirra sem DV hefur rætt við um prófkjörið hallast að því að baráttan um annað sætið verði með ólíkindum jöfn en að Sigbjöm slefi upp fyrir Hrein og að hann hafi það af. Sigbjöm er sonarsonur Steindórs Steindórssonar, fyrrum skólameist- ara MA á Akureyri. Steindór er mikill krati og sat í bæjarstjóm Akureyrar árum saman. Móðir Sig- bjöms, Guðrún Sigbjömsdóttir, hefur starfað mikið fyrir flokkinn og verið varabæjarfulltrúi. Fréttaljós Jón G. Hauksson, DV, Akureyri Krataættingjar Sigbjöms em fleiri. Eiginkona hans er Guðbjörg Þorvaldsdóttir frá Dalvík, dóttir Þorvalds Jónssonar, bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins þar í mörg ár. Sterk ætt og iþróttahreyfingin Sterk ætt kemur Sigbimi því til hjálpar. En meira kemur til. Sigbjöm hefur starfað mikið að íþróttamálum á Akureyri. Hann rekur sportvöm- verslun og lék á sínum tíma knatt- spyrnu með ÍBA. Það em einmitt tengsl hans við íþróttahreyfinguna sem menn telja að geri gæfumuninn. Prófkjörið er nefnilega fyrir alla sem em orðnir 18 ára og em í Alþýðuflokknum eða óflokksbundnir í öðrum flokkum. Fólk þarf því ekki að baksa við að ganga inn í flokkinn fyrir helgi og skrá sig úr honum eftir helgina. Rætt er um að Sigbjöm hafi smalað vel innan íþróttahreyfingarinnar að undanfömu. Reyndar sagði einn keppinautur hans að Sigbjöm hefði byijað prófkjörsslaginn í desember og ætli sér sigur. Eitt er víst, mikil bjartsýni ríkir á meðal hans stuðn- ingsmanna. Hreinn er líka sterkur. Hann er lögmaður Akureyrarbæjar og hefur unnið mikið fyrir flokkinn í gegnum tíðina og hefur í þeim efnum vinn- inginn yfir Sigbjöm. Flokksmaskínan styður Hrein Flokksmaskínan styður við bakið á Hreini. Það reynist honum drjúgt. Meira að segja vom raddir uppi um það að Hreinn færi í fyrsta sætið og keppti við Áma. En Hreinn vildi það ekki. Hann býður sig eingöngu fram í annað sætið. Bæði Sigbjöm og Hreinn em Ak- ureyringar. Það kemur þeim til góða. Alþýðuflokkurinn er langsterkastur á Ákureyri í kjördæminu. Og Akur- eyringar vilja fá þingmann innan flokksins. Minna má á að í síðustu sveitarstjómarkosningum bætti Al- þýðuflokkurinn mjög við fylgi sitt og var hinn eiginlegi sigurvegari. Við erum þá komin að Amóri Ben- ónýssyni, leikara í Reykjavík. Kvisast hafði út um framboð hinna, framboð hans kom því mjög á óvart. Faðir hans er Benóný Amórsson, bóndi á bænum Hömrum í Reykja- dal, Þingeyjarsýslu. Sat Benóný sem varaþingmaður á Alþingi fyrir Frjálslynda og vinstrimenn, leysti Bjöm heitinn Jónsson af. Amór er ekki talinn fá mikið fylgi í prófkjörinu um helgina, helst að hann sæki fylgi sitt í Þingeyjarsýsl- una og til Húsavíkur. Kolbrún spurningarmerki Kolbrún er mönnum nokkurt spumingarmerki. Hún er núverandi þingmaður og býr á Húsavík. Hún var einn BJ-þingmannanna sem gengu yfir í Alþýðuflokkinn í haust. Þeir virðast ekki hafa fallið jafnvel inn í flokkinn og menn gerðu ráð fyrir. Kolbrún hefur eitthvað verið á ferðinni í smölun á Akureyri og að sjálfsögðu á Húsavík. Annars segja flokksmenn að ótrúlega h'tið hafi farið fyrir henni í prófkjörsslagnum. Nái Kolbrún ekki fyrsta eða öðm sætinu ætlar hún ekki að vera á list- anum. Litum aðeins nánar á dæmið. Byrj- um á Ólafsfirði. Þar er Ámi Gunnarsson talinn fá algjöra „rúss- neska kosningu" í fyrsta sætið. Hreinn og Sigbjöm em taldir fá svipað fylgi í annað sætið. Andstaða á Dalvík gegn Árna Á Dalvík er annað uppi á teningn- um. Þar mun Ámi eiga sér einhverja andstæðinga og þeir munu kjósa Kolbrúnu í fyrsta sætið þó þeim þyki sá kostur heldur ekki góður. En þeir verða að merkja við annað hvort þeirra, aðrir em ekki í framboði. Á Dalvík er Sigbjöm talinn eiga mikið fylgi í annað sætið. Fylgið á Akureyri skipti öllu máli í prófkjörinu. Þar er Alþýðuflokkur- inn langsterkastur miðað við hina bæina. Ámi er ömggur með fyrsta sætið. Þefr Sigbjöm og Hreinn verða hnífjafnir um annað sætið. Ennfrem- ur fær Kolbrún eitthvert fylgi í annað sætið á Akureyri. Á Húsavík. em frambjóðendumir allir taldir eiga svipaða möguleika, þó Kolbrún sýnu mesta, að minnsta kosti í annað sætið. Ámi ku nefni- lega eiga drjúgt fylgi á Húsavík. Austan Húsavikur, í bæjum eins og Kópaskeri og Raufarhöfh, er Al- þýðuflokkurinn talinn eiga sáralítið fylgi. En hvað um það, þar gætu reynst einhver atkvæði, flokkurinn er í sókn og hefur 25 prósent fylgi kjósenda í síðustu skoðanakönnun- um. Um þúsund kjósa Menn reikna með að allt að þús- und manns kjósi í prófkjörinu um helgina. Menn minnast þess þó að Alþýðuflokkurinn fékk 1544 atkvæði i bæjarstjómarkosningunum á Ak- ureyri í vor. Og þegar sveiflan mikla var árið 1978 kusu um 2 þúsund manns í próf- kjörinu sem var á undan, en í sjálfum kosningunum fékk flokkurinn þá 2900 atkvæði. Ein spáin Reynum að sjá hvemig prófkjörið fer fram. Ámi hlýtur 80 prósent at- kvæða í fyrsta sætið og Kolbrún 20 prósent. Ami vinnur en Kolbrún flytur þá sín 20 prósent með sér áfram í slaginn um annað sætið. Fái hún þar 15 prósent atkvæða er hún komin með 35 prósent fylgi í sætið. Þetta þýðir að Sigbjöm eða Hreinn verða að fá 36 prósent atkvæða til að sigra hana. Tekst það eða ekki? „Sigbjöm var frábær knattspymumaður, ákaflega lipur skorari. Hann greip alltaf tæki- færin upp við markið. Ég tel hann sigri og fai annað sætið,“ var sagt. -JGH-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.