Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987.
19
Dansstaðir - Matsölustaðir - Leikhús - Sýningar - Kvikmyndahús - Myndbönd o. fl.
Ef þú vilt dansa
Ártún,
Vagnhöfða 11, sími 685090.
Gömlu dansarnir á föstudagskvöld, gömlu
og nýju dansarnir laugardagskvöld.
Hljómsveitin Danssporið ásamt söng-
konunni Kristbjörgu Löve bæði kvöldin.
Broadway,
Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500
Skemmtidagskráin „Allt vitlaust“ föstu-
dags- og laugnrdagskvöld.
Evrópa
v/Borgartún
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavík
„Leitin að týndu kynslóðinni", lifandi tón-
list áranna fyrir 1975.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Gömlu dansarnir á sunnudagskvöld.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavxk, sími
82200
Dansleikir á föstudags- og laugardags-
kvöld. Tískusýning öll fimmtudagskvöld.
Hótel Saga
v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221
„Laddi og félagar" föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Lennon
við/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Miami,
Skemmuvegi 34, Kópavogi, sími 74240.
Diskótek fostudaga og laugardaga. Ald-
urstakmark 16 ára.
Casablanca
við Skúlagötu
Diskótek um helgina.
Upp og niður,
Laugavegi 116, Reykjavík, sími 10312
Opið alla daga vikunnar, lifandi tónlist.
Þórskaffi,
Brautarholti 2, Reykjavík, sími 23333
Grínveisla ársins, Þórskabarett á föstu-
dags- og laugardagskvöld. Hljómsveitin
Santos ásamt 'söngkonunni Guðrúnu
Gunnarsdóttur.
TJkyimingar
Greifamir á
nýjum stað
Eigendaskipti urðu nýlega að ungl-
ingaskemmtistaðnum High Tech í
Kópavogi. Gagngerar breytingar
hafa verið gerðar á skemmtistaðm
um og nafninu breytt í Miami. i
kjölfar breytinganna er bryddað
upp á ýmsum nýjungum. Til dæmis
verða Greifarnir góðu þar á upp-
hækkuðum palli í kvöld og leika
listir sínar.
I framtíðinni gefst ungu hljóm-
sveitarfólki kostur á að koma þar
fram og auk þess verða fengnir vin-
sælir piötusnúðar til þess að vera
gestaplötusnúðar og verður því
mikil fjölbreytni í lagavali staðar-
ins. Fyrst um sinn verða dansleikir
á föstudagskvöldum en við bætast
fleiri kvöld ef áhugi er fyrir hendi.
Miami er skemmtistaður sem ætl-
aður er 16 ára unglingum og eldri.
Mynd: Greifarnir munu láta ljós
sitt skína í kvöld á Miami. nýjum
skemmtistað að Skemmuvegi 34a í
Kópavogi.
Náttúru-
skoðunar-
ferð
á flétturíka
staði
Áhugahópur um byggingu nátt-
úrufræðihúss fer í náttúruskoðun-
arferð á morgun, laugardaginn 23.
maí. Tilgangur ferðarinnar er að
kynna lágplönturnar fléttur eða
skófír.
Þetta er einstakt tækifæri því að
Hörður Kristinsson prófessor, sem
er eini sérfræðingur okkar fslend-
inga í fléttum, er á förum norður
til Akureyrar til að taka við for-
stöðumannsstarfi við Náttúru-
gripasafnið þar. En Hörður verður
leiðbeinandi í ferðinni. Farið verð-
ur á nokkra flétturíka staði á
Innnesjum.
Lagt verður af stað frá Norræna
húsinu kl. 13.30, frá Náttúrugripa-
safninu, Hverfisgötu 116 (gegnt
lögreglustöðinni), kl. 13.45 og Nátt-
úrufræðistofu Kópavogs, Digra-
nesvegi 12, kl. 14.00. Komið verður
til baka milli kl. 17.00 og 18.00.
Allir eru velkomnir.
Áhugahópurinn hefur sett upp
sýninguna íslenskar fléttur í and-
dyri Háskólabíós í tilefni ferðar-
innar. Þessi sýning stendur fram
yfir helgi og er öllum opin frá kl.
16.30 til 19.00 alla dagana.
Vorsýning MHÍ
Vorsýning Myndlista- og handíðaskóla
íslands verður haldin í húsakynnum skól-
ans að Skipholti 1 laugardaginn 23. maí
og sunnudaginn 24. maí nk. Sýningin verð-
ur opin frá kl. 14-22 báða dagana. Sýnd
verða verk þeirra nemenda sem nú eru að
ljúka námi við skólann. Þeir eru 56 talsins
úr öllum deildum. Lokaverkefni textíl-
deildar eru með nýju sniði. Þau eru mjög
stór og unnin með ákveðnar byggingar í
huga. Um er að ræða verk i hið nýja hús
Verslunarskóla íslands og tvö verk í
Seðlabankann. Þau verða sýnd á þessum
stöðum, enda rúmast þau ekki i húsnæði
skólans. Hægt er að skoða verkin á báðum
þessum stöðum á venjulegum opnunar-
tíma stofnananna alla næstu viku og
einnig í dag, 22. maí. Sýningin í skólanum
stendur aðeins um helgina. Nemendur 3.
árs verða með kaffisölu til styrktar ferða-
sjóði sínum. Venja er að þeir fari í
námsferð áður en þeir hefja nám á síðasta
Lokadansleikur
prófþreyttra unglinga
1 Tónabæ munu um helgina
koma fram þrjár hljómsveitir sem
hafa verið í sviðsljósinu að undan-
förnu til að skemmta prófþreyttum
unglingum.
Það eru hljómsveitirnar Bláa
bílskúrsbandið, sem vakti mikla
athygli í nýafstöðnum Músíktil-
raunum. meðal annars fyrir kröft-
ugt gítarspil. Stuðkompaníið frá
Akurevri sem sigraði í ofangreind-
um tilraunum og er komið til
höfuðborgarinnar aftur til að
hljóðrita sína fvrstu skífu og Síðan
skein sól. skemmtileg hljómsveit á
skemmtilegum tíma á skemmtilegri
hljómplötu Vímulausrar æsku.
Skemmtileg nótt.
Þetta verður ball fyrir skemmti-
legt fólk. fætt árið 1974 og eldra.
Ellen Kristjánsdóttir ásamt kvartett
treður upp i Duus á sunnudags-
kvöld.
Ellen
Kristjáns-
dóttir
ásamt
kvartett
Síðan skein sól, sem segir sig skemmtilega hljómsveit á skemmtilegum tíma, leikur fyrir dansi fyrir próf-
þreytta unglinga i Tónabæ í kvöld.
Heiti potturinn er enn við lýði og
blómstrar að sögn ög nú á sunnu-
dagskvöld verður þar band sem enn
er ónefnt. Engu að síður er hér um
að ræða kunna tónlistarmenn sem
hafa verið lengi í bransanum eins
og sagt er. Bandið er skipað Ellen
Kristjánsdóttur sem sér væntan-
lega um söng enda hefur hún átt
mörg lögin sem ennþá eiga sér stað
í hjörtum margra manna. Eyþór
Gunnarsson leikur á píanó, Stefán
Stefánsson á saxófón, Gunnlaugur
Briem á trommur og Jóhann Ás-
mundsson á bassa. Allt eru þetta
kúnnir jassgeggjarar.
Heiti potturinn færir enn út
kvíarnar því á mánudagskvöld
verða Skátarnir með jasskvöld
vegna fjölda áskorana. Skátarnir
eru eins og nafnið bendir til hress-
ir og kátir og fara ekki troðnar
slóðir í jassflutningi.
„Nú er það Svanfríður," sagði Ómar Valdimarsson árið 1972. Og nu
er það Svanfriður í Hollywood.
„Nú er það
Svanfríður“
Eitt stærsta númer sjöunda ára-
tugarins, hljómsveitin Svanfríður.
tekur nú að sér að leita týndu kvn-
slóðarinnar um helgina. Hún var
meira að segja svo vinsæl að Trú-
brot var talið í mikilli hættu á þeim
tíma. Ómar Valdimarsson sagði í
apríl 1972 í blaðagrein sem birtist
um tónleika sem hljómsveitin hélt
í Austurbæjarbíói 23 mars, eða
nokkrum dögum áður, að hún hefði
stormað upp á sviðið og fryst lýð-
inn algjörlega.
Svanfríði skipuðu og skipa í
Hollywood um helgina Gunnar
Hermannsson bassaleikari, Sigurð-
ur Karlsson trommuleikari, Birgir
Hrafnsson gítarleikari og Pétur
Kristjánsson söngvari.