Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 8
30 FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987. ISLENSKUR TEXTI Mynd- bönd Umsjón: Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Sigurður Már Jónsson Það eru litlar breytingar sjánlegar á listanum að þessu sinni. Nýjar myndir eru aðeins tvær - mynd um strákinn -Joey og konurnar í Na- polí sem segja mafíunni stríð á hendur. Hetjan Hávarður víkur úr efsta sætir.u fyrir annarri hetju sem er orðin vön því að verma efsta sætið, nefnilega hinuro hollenska Rutger Hauer sem leikur reyndar einnig í annarri mynd á listanum, A Breed Apart. A þáttalistanum eru litlar breyt- ingar. Þættirnir u^ fjölmiðlafólk- ið, ril Take Manhattan, eftir sögu Judit Kranz eru áfram í efsta sæti. Greinilegt að fólk er ekki enn orð- ið leitt á fjölmiðlafólki og undrast það margir. I Englandi er Freddy djöfulóði í efsta sæti og vill ekki hleypa Monu Lísu að. -SMJ ★★ Brellumeistarar SHORT CIRCUT/Ráðgóði róbotinn Útgefandi: Steinar/Tri Star. Leikstjóri: John Badham. Aðalhlutverk Ally Sheedy, Steve Guttenberg, Fisher Stevens, Austin Pendleton. Tónlist: David Shire. Handrit: S.S. Wilson og Brent Maddock. Framleiðendur David Foster og Lawrence Turman. Bandarisk, 1986. 96 min. Öllum leyfð Tölvusnillingnum Newton hefur tekist að búa til mjög fullkomið vélmenni sem er til margra hluta nytsamlegt. Herinn vill vitaskuld nýta sér þessa uppgvötvun og því er leysigeislavopni komið fyrir á vélmenninu sem er reyndar til í fleirtölu. En þegar eldingu lýstur niður í eitt vélmennið (númer 5) gerast einkennilegir hlutir. Vél- mennið hættir að hlýða skipunum og fer út í heimin til að skoða sig um og kynnast lífmu. Þar eignast það góðan vin en hættursteðja að... Það er nóg til af peningum í Hollywood þegar kemur að því að búa til tæknibrellur. í Ráðgóða róbotinum eru brellur alfa og omega og hafa h'klega nokkrar milljónir farið í þær. Afraksturinn er lítið greindarleg en þokkalega hugljúf saga um járnhrúgu sem á að heita vélmenni og fær allt í einu líf. Auðvitað er ekki hægt að taka svona sögu alvarlega en hins vegar er hér heilmikið grín á ferðinni. Oft má hlæja og til þess er leikur- inn gerður. -SMJ Útgefandi: Háskólabió/Cannon Aöalhlutverk: Chuck Norris, Lou Gosset jr. og Melody Anderson. Leikstjóri: J. Lee Thompson. Bandarísk 1986. Bönnuó yngri en 12 ára Hér segir frá þeim félögum Max og Leo sem neita að vinna frá 9-5 og þola ekki jakkaföt. Þeir lifa mjög svo ævintýralegu lífi þar sem þeir þvælast úr einu klandrinu í annað án þess að hafa svo mikið sem bót fyrir rassinn á sér upp úr þvi. Þeir kynnast ungri stúlku sem kveðst vita hvar mikill íjársjóður er falinn og þá hefst stóra ævintýr-, ið. Chuck Norris sýnir á sér dálítið aðra hlið en venjulega í þessari ævintýra/spennu/gamanmynd og er það nokkuð gáfulegt hjá karli. Hann kemst líklega betur frá þessu hlutverki en flestum sem hann hef- ur leikið um dagana. Söguþráður- inn hér er ósköp hefbundinn og tekur greinilega mið af þeim vin- sældum sem innihaldslausar ævintýramyndir hafa notið á und- anförnum árum. Með því að hafa þokkalegar brellur og hraða at- burðarás þykir framleiðendum þessara mynda þeim allir vegir fær- ir. Þessi mynd er hvorki betri né verri en þær myndir af þessu tagi sem sést hafa að undanförnu. Rokk í eyðimörkmni Staðið á öndinni Thompson hefur áratugareynslu af því að starfa með hörkunöglum eins og Charles Bronson og kann sitt fag sem leikstjóri. En frumlegur er hann ekki. Gossett er hér greini- lega til að slappa af og græða peninga sem er sjónarmið út af fyr- ir sig. Þá er kannski gaman að geta þess fyrir kvikmyndaáhuga- menn að stóri indíáninn úr Gaukshreiðrinu er hér mættur til leiks. -SMJ Útgefandi: Laugarásbió/CIC Handrit og Iramleiöendur: Willard Huych og Gloria Katz. Myndataka: Richard H. Kline. Aðstoðarfram- leiöandi: Gorge Lucas. Leikstjóri: Willard Huyck. Aðalhlutverk: Lea Thompson, Jeffrey Jones og Tim Robbins sem „Howard The Duck. Bandarisk 1986. 105 min. Bönnuð yngri en 12 ára Öndin Hávarður lifir sæl og glöð á sinni plánetu þar til fyrir „tæknileg mistök“ að hún berst til jarðar. Á jörðu stingur þessi talandi önd eðlilega dálítið í stúf. Hávarði tekst þó að vingast við nokkra jarðarbúa og í samvinnu við þá berjast þeir gegn illum öflum alheimsins sem hafa borist til jarðar. - Og þá reynir á hetjuskap Hávarðar... Hávarður reyndist framleiðendum sínum dýrkeyptur enda er hér um þokkalega dýra framleiðslu að ræða. Tæknibrellur eru margar og kosta sitt í stúdíói Lucasar. Eftir fremur misheppnaða markaðssetningu í Bandaríkjunum var reynt að breyta um ímynd og nafni myndarinnar m.a. breytt - líklega til að fólk ruglaði Hávarði ekki sam- an við fjarskyldan ættingja hans úr Andabæ. Af þessari mynd má læra að erfitt er að búa til ímyndaðar (figurativar) persónur sem öllum líkar. Spielberg tókst það með ET enda var geimálfurinn okkur jarðarbú- um Qarlægur og forvitnilegur í útliti. Öfugt við Hávarð sem fljótlega fer að virka á okk- ur sem dvergur í grímubúningi. Þá var ET í raun hlutlaus persónuleiki með mjög svo þægilega lund. Hávarður er „mannlegri", skiljanlegri og því miklu síður spennandi. Ævintýri hans tekur fljótlega venjubundna stefnu og þó að aðalhetjan sé vissulega fiðr- aðari en maður á að venjast þá er hér allt eftir formúlunni. -SMJ Ally Sheedy og leikstjóri Ráðgóða Róbotsins, John Badham, myndatökuna Útgefandi: Laugarásbió/Universal Höfundar: Tim Rice og Andrew Lioyd Webber. Aðalhlutverk: Ted Neeley, Carl Anderson, Yvonne Elliman og Barry Dennen. Kvikmyndahandrit: Melvyn Bragg og Norman Jewi- son. Leikstjóri: Norman Jewison. Framleiðendur: Norman Jewison og Robert Stig- wood. Stjórnandi tónlistar: Andre Previn. Bandarisk, 1973. 107 min. öllum leyfð. Rokkóperur voru eitt af einkennum hippa- tímans og er þessi ópera um ævi Jesú Krists líklega einna frægust þeirra verka. Þeir Rice og Webber eiga glæsilegan feril að baki. Evita og Cats hafa tryggt feril þeirra enn frekar sem hófst þó með Superstar. Sagan af Jesú er hér sögð frá sjónarhóli Júdasar og er myndin færð upp í eyðimörk- um Israel. Tónlistin er sem fyrr mögnuð og undrast þeir sjálfsagt sem ekki voru orðnir háir í loftinu á hippatímanum hve vel þeir muna eftir lögunum. Sviðsmyndin er hins vegar öll mjög losaraleg og nær ekki að setja svipaða dýpt í söguna og tókst við kvikmyndun Hársins enda Superstar mun nær upprunalega sviðsverkinu. Þetta verð- ur til þess að myndræn upplifun verður takmörkuð án þess þó að segja að hún sé ónóg - eftir sem áður stendur frábært tón- verk sem er sterkur vitnisburður um áhrif- amikið tímaskeið i rokksögunni. j **____________________(0Ð Chuck Norris aö grínast DV-LISTINN ________MYNDIR_________ 1. (2) Wanted Dead or Alive 2. ( 1) Howard 3. ( 5) Extremities 4. ( 4) Out of Bounds 5. ( 6) Enemy Mine 6. ( 3) Armed and Dan- gerous 7. ( 8) A Breed Apart 8. (10) Pretty in Pink 9. (-) Joey 10. (-) Camorra ÞÆTTIR l 1. (1) ril Take Manhattan 2. ( 4) Sterk lyf 3. ( 2) The Great Booke Robbery 4. ( 3) Anna í Grænuhlíð 5. ( 5) Pirates BRETLAND I 1. (4)Nightmare on Elm. St.ll 2. ( 2) Mona Lisa 3. ( 1) Karate Kid II 4. ( -) Aliens 5. ( 3) Nílarsteininn 6. (-) Poltergeist 7. (10) Back to the Future 8. (19) Police Academy III 9. ( 6) Commando 10. ( 5) Cobra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.