Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 5
22
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987.
27
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi sunnudaginn
24. maí 1987
Bænadagur Þjóðkirkjunnar
Árbæjarprestakall. Guðsþjónusta í
Árbæjarkirkju á bænadegi Þjóð-
kirkju kl. 11.00 árdegis. Organleikari
Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson. Uppstigningardagur:
Guðsþjónusta í Árbæjarkirkju kl.
14.00. Organleikari Jón Mýrdal. Allt
eldra fólk í söfnuðinum sérstaklega
boðið velkomið til guðsþjónustunn-
ar. Kaffiveitingar í boði Kvenfélags
Árbæjarsóknar eftir messu. Sr. Guð-
mundur Þorsteinsson.
Áskirkja. Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtsprestakall. Guðsþjónusta í
Breiðholtsskóla kl. 11. (Ath. breyttan
messutíma.) Organisti Daníel Jónas-
son. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Aðalsafnaðarfundur eftir messu.
Borið fram kaffi. Æskulýðsfélags-
fundur þriðjudagskvöld. Sr. Ólafur
Skúlason.
Digranesprestakall. Messa kl. 11.00
í Kópavogskirkju. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
Dómkirkjan. Kl. 11. Bænadagsmessa.
Ræðu- og bænarefni: Fjölskyldan og
heimilið. Sr. Þórir Stephensen pré-
dikar og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Hjalta Guðmundssyni. Orgelleikar-
inn leikur á orgel kirkjunnar í 20
mín. fyrir messuna. Sr. Þórir Step-
hensen. Aðalfundur Dómkirkjusafn-
aðarins verður haldinn í kirkjunni
mánudaginn 25. maí kl. 20.30.
Landakotsspítali. Messa kl. 13.30.
Organleikari Birgir Ás Guðmunds-
son. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Elliheimilið Grund. Guðsþjónusta kl.
10. Sr. Anders Jósepsson. Uppstign-
ingardagur: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Gylfi Jónsson.
Fella- og Hólakirkja. Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Gylfi Jónsson messar. Org-
anisti Guðný Margrét Magnúsdóttir.
Sr. Hreinn Hjartarson.
Fríkirkjan í Reykjavík. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Pavel Smid. Sr.
Gunnar Björnsson.
Grensáskirkja. Messa kl. 11.00. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson. Sr.
Halldór S. Gröndal. Uppstigningar-
dagur: Messa kl. 14. Kaffi og kökur
eftir messu. Eldri borgurum er sér-
staklega boðið í þessa messu og að
þiggja veitingar að henni lokinni.
Kvöldmessa kl. 20.30. Altarisganga.
UFMH tekur þátt í messunni. Þor-
valdur Halldórsson stjórnar söng og
tónlist. Kaffisopi á eftir. Allir vel-
komnir. Sr. Halldór Gröndal.
Hallgrímskirkja. Messa kl. 11. Sr.
Karl Sigurbjörnsson. Þriðjudagur:
Fyrirbænamessa kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Landspítalinn. Messa kl. 10. Sr. Karl
Sigurbjömsson.
Háteigskirkja. Messa kl. 11. Organ-
leikari Orthulf Prunner. Sr. Arn-
grímur Jónsson.
Kársnesprestakall. Guðsþjónusta á
uppstigningardag á degi aldraðra í
Kópavogskirkju kl. 14 á vegum
beggja safnaðanna í Kópavogi. Sr.
Árni Pálsson.
Langholtskirkja. Kirkja Guðbrands
biskups. Á bænadegi kirkjunnar fjöl-
menna hestamenn á gæðingum
sínum til guðsþjónustunnar kl. 11.
Listamenn úr röðum þeirra aðstoða
við flutning guðsþjónustunnar,
þeirra á meðal Lárus Sveinsson og
dætur hans, Ingibjörg og Hjördís
Elín, Sveinn Birgisson, Gunnar Eyj-
ólfsson, Jón Sigurbjörnsson og
Garðar Cortes. Prestur sr. Sig. Hauk-
ur Guðjónsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Þjóðkirkjan helgar daginn
umhugsuninni um heimilið og fjöl-
skylduna. Leiðumst því saman í
kirkju, njótum helgrar stundar með
frábærum listamönnum. Safnaðar-
stjórn.
Laugarneskirkja. Laugardagur 23.
maí. Guðsþjónusta í Hátúni 10B, 9.
hæð, kl. 11. Sunnudagur: Guðsþjón-
usta kl. 11. Margrét Hróbjartsdóttir
hjúkrunarfræðingur prédikar. Fé-
lagar úr kristilegu félagi heilbrigðis-
stétta lesa ritningarorð. Laufey G.
Geirlaugsdóttir syngur einsöng.
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987.
Yngve Zakarias, Norðmaóur bú-
settur i Berlín, heldur sýningu á
grafík og málverkum í Norræna
húsinu.
Norskur myndlistarmaður:
Yngve
Zakarias í
Norræna
húsinu
Yngve Zakarias, þrítugur Norð-
maður frá Þrándheimi, opnar
sýningu á málverkum og grafík i
sýningarsölum Norræna hússins á
morgun, 23. maí, kl. 15.
Yngve Zakarias nam við Kunst-
skolen í Þrándheimi frá 1976 til
1977 í grafík og málaradeild og
fyrstu einkasýningu sína hélt hann
þar í Kunstskolens gallerí árið
1977. Næstu fimm árin starfaði
hann að krafti við gerð grafík-
mynda og teikninga. Frá árinu 1984
hefur hann búið í Berlín.
Yngve hefur haldið átta sýningar
víða um heim á undanförnum
árum.
Þj óðminj asafnið:
Eldhúsið .
frain á
okkar daga
Opnuð verður um helgina sýning í
Bogasal Þjóðminjasafns Islands
sem ber yfirskriftina Hvað er á
seyði? Eldhúsið fram á okkar daga.
Á sýningunni er saga eldhússins
rakin frá upphafi byggðar hér og
sýnd eldhúsáhöld frá ýmsum tím:
um.
Sýningin verður opin fram í okt-
óber á venjulegum opnunartíma
Þjóðminjasafnsins, eða daglega frá
kl. 13.30 til 16.00.
ivær syningar eru um helgina í Gallerí Borg, sýning Eddu Jónsdóttur
og Vignis Jóhannssonar, en hann er nú búsettur í Nýju-Mexíkó.
Gallerí Borg:
Vatnslitamyndir,
ætingar,
olíumyndir og
kolateikningar
Tvær sýningar verða í gangi í
Gallerí Borg um helgina. Annars
vegar sýning Eddu Jónsdóttur í
nýja sýningarsalnum í Austur-
stræti 10 þar sem hún sýnir vatn-
slitaþrykk og ætingar og hins
vegar sýning Vignis Jóhannssonar
í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, á
olíumyndum og kolateikningum.
Edda stundaði nám í Myndlista-
skólanum í Reykjavík, Myndlista-
og handíðaskóla Islands og í ríkis-
akademíunni í Amsterdam.
Þetta er áttunda einkasýning
Eddu en hún hefur tekið þátt í
fjölda samsýninga hérlendis og er-
lendis.
Vignir stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands 1974
til 1978 og við Rhode Island Sehool
of Design í Bandaríkjunum 1979 til
1981 þar sem hann lagði stund á
grafík og málun.
Sýning þessi er 9. einkasýning
Vignis en hann hefur einnig tekið
þátt í fjölda samsýninga hér heima
og erlendis.
Sýningarnar báðar eru opnar
virka daga frá kl. 10.00 til 18.00
nema mánudaga frá kl. 12.00 til
18.00 og um helgar frá kl. 14.00 til
18.00. Sýningu Vignis lýkur 2. júní
en Eddu 3. júní.
FÍM-salurinn:
„Land og fólk“
Guðrún Svava Svavarsdóttir
opnar sýningu í FÍM-salnum,
Garðastræti 6, Reykjavík, í dag kl.
17.00 og sýnir hún þar teikningar
unnar með ýmsum aðferðum. Sýn-
ingin ber yfirskriftina Land og fólk.
Við opnun sýningarinnar mun Erik
Mogensen leika á klassískan gítar
en hann hefur lært list sína á
Spáni.
Guðrún Svava stundaði nám í
Myndlistaskólanum í Reykjavík og
Stroganov myndlistaháskólanum í
Moskvu og er sýning þessi hennar
fjórða á einkavegum en hún hefur
tekið þátt í fjölda samsýninga.
Guðrún Svava hefur hannað leik-
myndir, búninga og brúður fyrir
fjölmargar leiksýningar allra at-
vinnuleikhúsanna í Reykjavík.
Auk þess hefur hún gefið út eina'
ljóðabók er nefnist Þegar þú ert
ekki.
Sýningin er opin daglega frá og
með morgundeginum til 8. júní frá
kl. 14.00 til 18.00.
Verkið sem Jóna Imsland sýnir í Verslunarskóla Islands er 11 metrar á lengd og 1 metri og 25 sentímetrar
á hæð.
Lokaverkefni nemenda Mynd-
lista- og handíðaskólans
Sýning verður á lokaverkefnum
nemenda sem eru að útskrifast úr
Myndlista- og handíðaskóla fs-
lands í húsnæði hans að Skipholti
1 um helgina. Þar munu nemendur
hátt í 60 talsins úr öllum deildum
skólans sýna verk sín. Einnig verða
tvö útibú frá sýningunni, annars
vegar í Seðlabanka íslands og hins
vegar í Verslunarskóla fslands,
nýja skólanum, þar sem Jóna Ims-
land sýnir verk sem er 11 metrar á
lengd og 1 metri og 25 sentímetrar
á hæð, allsérstætt verk sem hlotið
hefur nafnið Saga og er mjög litríkt
tauþrykkverk sem kemur til með
að setja svip sinn á skólann í fram-
tíðinni. Hún notar nýtt efni,
álamímumduft, í verkið sem ekki
hefur verið notað hér á landi áður
og gefur það verkinu sérstæðan
blæ.
Sýningin er opin frá kl. 14.00 til
22.00 laugardag og sunnudag.
Borghildur Óskarsdóttir hefur sýnt verk sín víða um lönd, þar á meðal í Skotlandi,
Júgóslavíu, á ítaliu og Norðurlöndunum.
Borghildur
Óskarsdóttir
sýnir
keramikskúlptúr
í Gallerí Svart á hvítu við Óðinstorg
opnar Borghildur Óskarsdóttir sýningu á
keramikskúlptúr á morgun, laugardag, kl.
14.00.
Borghildur stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1959-60 og árið
eftir til 1964 var hún við nám við Edin-
bourgh Collage of Art í Skotlandi.
Hún hefur þegar haldið tvær einkasýn-
ingar hér á landi, sú fyrri var í Ásmundar-
sal 1983 og síðari sýningin var í Gallerí
Langbrók 1984. Þá hefur hún tekið þátt í
fjölda samsýninga, meðal annars á Kjarv-
alsstöðum 1980 og „Leirlist 82“ í List-
munahúsinu. Auk þess var hún þátttak-
andi í farandsýningu undir heitinu „Form
ísland" um Norðurlönd árið 1984. Verk
hennar hafa einnig veríð sýnd á Ítalíu, í
Júgóslavíu og Skotlandi.
Á síðasta ári varð Borghildur félagi í
International Academy of Ceramices sem
hefur aðsetur í Genf í Sviss.
í sýningarskrá segir Halldór B. Runólfs-
son listfræðingur meðal annars um verk
Borghildar: „í þessum nýju verkum sínum
nálgast Borghildur ekki einasta náttúru
landsins heldur er hún komin í tæri við
sjálfar höfuðskepnurnar.“
Listasafn ASÍ:
Norrænn
heimilisiðnaður
Sýning, unnin í tilefni norræns heimili-
siðnaðarþings í Kuopio, Finnlandi, verður
opnuð í Listasafni ASI við Grensásveg á
morgun, laugardag, kl. 14.00.
Þema þingsins var vöruþróun í heimili-
siðnaði, frá hugmynd til fullmótaðra
hluta, og tók hvert land mið af því við
undirbúning sýningarinnar.
Sýningin er mjög fjölbreytt að efni, allt
frá textílvinnu af ýmsum toga til málm-
og beinasmíði.
Sýningin er opin virka daga kl. 14.00 til
20.00 og um helgar frá kl. 14.00 til 22.00
og lýkur sunnudaginn 31. maí.
Sigrún Eðvaldsdóttir og
Selma Guðmundsdóttir
í Norræna húsinu
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari heldur tónleika ásamt Selmu Guö-
mundsdóttir í Norræna húsinu i kvöld.
Síðustu tónleikar í tónleikaröð
Norræna hússins, Ungir norrænir
einleikarar. verða haldnir í kvöld kl.
20.30. Þar koma fram Sigrún Eð-
valdsdóttir fiðluleikari. fulltrúi
Islands á tónlistarhátíðinni í Hels-
inki í fvrravor. og Selma Guðmunds-
dóttir sem leikur á píanó.
Þær stöllur fengu mjög góða dóma
fvrir tvenna tónleika sem þær héldu
á hátíðinni í Helsinki í fvrra og er
ekki að efa að margir hafa beðið með
óþrevju að hevra þær leika saman
hér á landi.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk
eftir Bach, Beethoven, Mozart og
Zimbalist/Sarasate og verða að-
göngumiðar seldir við innganginn.
Þriðjudagur 26. maí: Bænaguðsþjón-
usta kl. 18. Uppstigningardagur:
Guðsþjónusta kl. 14 á degi aldraðra.
Biskup Islands, herra Pétur Sigur-
geirsson, prédikar. Boðið verður upp
á kaffi í safnaðarheimilinu eftir
messu. Sóknarprestur.
Neskirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Frank M. Halldórsson. Þriðjudagur:
Opið hús fyrir aldraða kl. 13-17.
Miðvikudagur: Fyrirbænamessa kl.
18.20. Sr. Frank M. Halldórsson.
Uppstigningardagur: Guðsþjónusta
kl. 11. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Sr. Guðmundur óskar Ól-
afsson.
Seljasókn. Guðsþjónusta í Öldusels-
skólanum kl. 11 árdegis. Sóknar-
prestur.
Seltj arnarneskirkj a. Guðsþj ónusta
kl. 11. Organisti Sighvatur Jónasson.
Prestur Solveig Lára Guðmunds-
dóttir.
Akraneskirkja. Messa kl. 10.30. Sr.
Guðmundur Örn Ragnarsson prédik-
ar. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Sóknarprestur.
Ti3kyimingar
Háskólafyririestur
Peter Kemp, lektor f heimspeki við Kaup-
mannahafnarháskóla, flytur opinberan
fyrirlestur í boði heimspekideildar Há-
skóla Islands sunnudaginn 24. mai 1987
kl. 15 í stofu 101 í Lögbergi. Fyrirlesturinn
fjallar um kenningar franska heimspek-
ingsins Pauls Ricoeurs um frásagnir og
tíma sem hann setur fram í ritverki sem
nýlega er komið út í þremur bindum, bæði
á frönsku og ensku. Peter Kemp er þekkt-
ur danskur fræðimaður og heimspekingur
og hefur hann áður flutt fyrirlestra hér á
landi. Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og er öllum heimill aðgangur.
Gönguferð um
Kópavogskaupstað
Náttúruvemdarfélag Suðvesturlands
stendur fyrir gönguferð milli útivistar-
svæða og merkisstaða í Kópavogskaup-
stað á morgun, laugardag, 23. maí. Þessi
gönguferð verður farin að mestu umhverf-
is meginbyggðina og verða þræddir
gangstígar þar sem þeir eru, annars valin
besta leiðin. Ýmislegt verður gert til fróð-
leiks og skemmtunar á leiðinni. Allir eru
velkomnir. Gangan hefst á Borgarholtinu
við kirkjuna. Fólk er beðið að mæta kl.
8.45 en lagt verður af stað kl. 9. Göngunni
lýkur við kirkjuna um kl. 12.30. Ekkert
þátttökugjald. Ýmsir góðir gestir verða
með í ferðinni, s.s. jarðfræðingur, lífíræð-
ingur, sagnfræðingur og landslagsarki-
tekt. Lúðrasveit Kópavogs mun leika í
Kópavogsdal og Fossvogsdal ef veður leyf-
ir. Strætisvagnar Kópavogs munu flytja
fólk í gönguna og úr henni, kl. 10 og kl.
11 frá Borgarholti og úr henni kl. 10.10 frá
Fífuhvammsvegi og kl. 11.10 úr Fossvogs-
dal.
Leikferð til Danmerkur
Leikhúsið í kirkjunni hefur þegið boð um
að koma í leikferð til Danmerkur og Sví-
þjóðar með leikritið um Kaj Munk sem
sýnt hefur verið í Hallgrímskirkju í vetur
við góðan orðstír. Til ágóða fyrir sýningar-
ferð þessa verður efnt til aukasýningar
nk. sunnudag kl. 16. Leikararnir sjálfir
munu einnig leggja sitt af mörkum til að
gera þessa ferð fjárhagslega mögulega.
Allur ágóði af sýningunni á sunnudaginn
mun renna í ferðasjóð og einnig munu
þeir leita til velunnara kirkju- og menn-
ingarlífs um fararstyrk. Forráðamenn
Hallgrímskirkju hafa ennfremur óskað
eftir því að sýning á leikritinu verði einn
liður í kirkjulistarhátíð sem haldin verður
í kirkjunni dagana 6.-13. júní. Ágóði af
þeirri sýningu mun einnig renna í ferða-
sjóð.
Harmóníkuleikarar frá Noregi
heimsækja íslands
Sigmund Deli leiðir hljómsveitina sem
samanstendur af fjórum harmóníkuleik-
urum, bassaleikara, gíitarleikara, raf-
magnsharmóníku og trommum. Sigmund
Deli hefur tvisar orðið Noregsmeistari og
tvisvar Norðurlandameistari í harmón-
íkuleik. Hann hefur ferðast um öll
Norðurlöndin en er að spila núna í fyrsta
sinn á íslandi. Hann spilar að mestu
gamla, norska tónlist en með spilar hann
einnig ný lög. I kvöld spilar hann á Akur-
eyri og annað kvöld á Húsavík.
Litli skátadagurinn
Sunnudaginn 24. maí nk. mun Bandalag
íslenskra skáta gangast fyrir miklum há-
tíðarhöldum í Öskjuhlíð. Dagurinn ber
yfirskriftina „litli skátadagurinn" og er
ætlaður skátum á aldrinum 7-10 ára.
Margt verður sér til gamans gert og má
þar meðal annars nefna þrautabraut,
metasvæði, íþróttakeppni, varðeld, útield-
un, söng glens og gleði. Dagskráin hefst
kl. 11 og er áætlað að henni ljúki kl. 17.
Kl. 15.30 hefst varðeldur með söng og
skemmtiatriðum og eru borgarbúar hvatt-
ir til að koma þá upp í Öskjuhlíð og taka
þátt í dagskránni.
Leikfélag Reykjavíkur
Djöflaeyjan verður sýnd í kvöld og annað
kvöld kl. 20 í leikskemmu LR v/Meistara-
velli.
Dagur vonar, sýning á laugardagskvöld
kl. 20.
Óánægjukórinn, sýning á sunnudags-
kvöld kl. 20.30. Aðeins þrjár sýningar eru
eftir á „Óánægjukórnum" og fjórar sýn-
ingar eftir á „Degi vonar" á þessu leikári.
Vegna utanfarar með Land míns föður á
leiklistarhátíð í Gautaborg í næstu viku
(26.-30. maí) verða engar sýningar hjá LR
frá mánudeginum 25. maí til laugardagsins
30. maí (báðir dagar meðtaldir).
Alþýðuleikhúsið
Nú fer sýningum Alþýðuleikhússins á
leikritinu „Eru tígrisdýr í Kongó?" að
fækka. Næstu sýningar verða laugardag-
inn 23. maí, fimmtudaginn 28. maí og
föstudaginn 29. maí og eru þetta allra síð-
ustu sýningar. Miðaverð er kr. 750 og í
því er innifalið leiksýningin. léttur hádeg-
isverður og kafii. Miðapantanir eru í síma
11340 í Kvosinni og í síma 15185 tekur
sjálfvirkur símsvari við pöntunum allan
sólarhringirin.
Þjóðieikhúsið
Eg dansa við þig er á fjölum Þjóðleik-
hússins í kvöld. Örfáar sýningar eftir.
Hallæristenór. Næstsíðasta sýning á
laugardagskvöld.
Rympa á ruslahaugnum. Síðasta sýning
á sunnudag kl. 15.
Yerma verður sýnd í 5. sinn á sunnudags-
kvöld.
Tónleikar i íslensku óperunni
Um miðjan næsta mánuð mun Kristinn
Sigmundsson bregða fyrir sig betri fætin-
um, brýna raust sína og taka þátt í
söngkeppni ungra óperusöngvara, „Singer
of the World". Keppni sú er haldin á
tveggja ára fresti á vegum BBC útvarps-
stöðvarinnar í Cardiff í Wales. Af þessu
tuemi mun is.nstinn. asamt Jonasi Ingi-
mundarsyni, halda tónleika í Islensku
óperunni nk. sunnudag. 24. maí kl. 20.30.
Á efnisskránni verða sönglög og aríur eft-
ir Richard Strauss. Wolf. Ives. Hageman.
Griffes, Mozart, Wagner. Verdi. Giordani.
Gounod og Bizet. Þar á meðal eru verk
sem Kristinn er að undirbúa fyrir keppn-
ina. Allur ágóði af tónleikunum rennur til
Islensku óperunnar.
Júgóslavneskur
sellósnillingur
hjá Tónlistarfélaginu
Síðustu tónleikar Tónlistarfélagsins í
Reykjavík veröa haldnir í Islensku óper-
unni. Gamla bíói. laugardaginn 23. maí
kl. 14.30. Þar mun ungi sellósnillingurinn
Valter Despalj spila á 300 ára gamalt
hljóðfæri. smíðað í Cremona af Gianbatt-
ista Rogeri. tónlist eftir Beethoven.
Schumann. Lukas Foss og Brahms. Píanó-
leikarinn. sem einnig er júgóslavneskur.
heitir Arbo Valdma. Valter Despalj hefur
unnið til margra verðlauna og hefur leikið
einleik með flestum frægustu hljómsveit-
um heims og haldið tónleika um allan
heim. Alls staðar þar sem hann hefur kom-
ið fram hefur hann vakið gífurlega athygli
og hlotið lof fvrir óaðfmnanlega tækni og
sjaldgæfar tónlistargáfur. Á sunnudag
munu listamennirnir fara til ísafjarðar og
halda tónleika þar í sal grunnskólans fyr-
ir Tónlistarfélag Isafjarðar og hefjast þeir
tónleikar kl. 17. Nokkrir aukamiðar verða
til sölu við innganginn í íslensku óper-
unni á laugardagstónleikana.
Húsavíkurkórinn flytur messu
eftir Dvorák í Kristskirkju
Tónlistarfélag Kristskirkju heldur fimmtu
tónleika sína á þessu starfsári nk. laugar-
dag kl. 16. Verða þeir í Kristskirkju í
Landakoti. Að þessu sinni kemur kór frá
Húsavík, Húsavíkurkórinn, og mun hann
flytja messu í D dúr op. 86 eftir tékkneska
tónskáldið Antonin Dvorák. Með kómum
syngja fjórir einsöngvarar: Margrét Bóas-
dóttir, sópran, Þuríður Baldursdóttir, alt,
Michael Clarke, tenór, og Robert Faulkn-
er, bassi. Orgelleikari verður Bjöm
Steinar Sólbergsson og stjórnandi Ulrik
Ólason. Þessi messa Dvoráks þykir ein af
fáum rómantiskum kirkjuverkum sem eru
jafnvel fallin til flutnings í guðþjónustum
og á tónleikum.
Kór Langholtskirkju
heldurtil Færeyja
Undir lok maímánaðar heldur kór Lang-
holtskirkju í tónleikaferð til Færeyja.
Daginn fyrir brottför kórsins, þann 26.
maí, heldur kórinn tónleika í Langholts-
kirkju og hefjast þeir kl. 20.30 með efnis-
skrá þeirri sem flutt verður í Færeyjum.
Nemendaleikhúsið
Allra síðustu sýningar á ..Rúnar og Kyl-
likki" verða á laugardag og sunnudag kl.
20. Sýningar hefjast tímanlega. Miðapant-
anir em í síma 21971. Sýningin er bönnuð
börnum.
Ferðalög
Útivistarferðir 22.-24. maí
1. Eyjafjallajökull - Seljavallalaug.
Gengið frá Þórsmörk yfir að Seljavalla-
laug. Gist í Básum. Góð jöklaferð.
2. Þórsmörk - Goðaland. Gönguferðir við
allra hæfi. ásamt skoðunarferð að Eyja-
fjöllum (Seljavallalaug). Gist í útivistar-
skálanum Básum. Munið sumardvöl í
heila eða hálfa viku í Þórsmörk.
Dagsferð sunnudaginn 24. mai.
kl. 13 á útilegumannaslóðum á Reykja-
nesskaga. Ekið verður suður að bor-
holunni hjá Eldvörpum vestan við
Svartsengi og gengið þaðan að útilegu-
mannakofum og niður að húsatóftum
vestan Grindavíkur. Einnig skoðaður úti-
legumannahellir með mannvistarleifum og
gálgaklettur. Merkar fornminjar og eld-
stöðvar. Létt ganga. Verð kr. 600. frítt f.
börn m. fullorðnum. Brottför frá BSl. bens-
ínsölu. Hengilsferð er frestað. Kvöldferð
i Búrfellsgjá miðvikud. 27. maí kl. 20.
Ferðafélag íslands
Dagsferðir sunnudaginn 24. maí.
1. kl. 10.30 Skógfellaleið/gömul þjóðleið
á Reykjanesi. Gangan hefst á móts við
Voga á Vatnsleysuströnd á Skógfellavegi.
sem gengið verður eftir til Grindavíkur.
Þægileg gönguleið en í lengra lagi. Verð
kr. 600.
2. kl. 13 Selatangar - fjölskylduferð.
Þessi ferð er sérstaklega skipulögð fyrir
fjölskyldufólk með böm. Ekið verður um
Grindavík áleiðis að Selatöngum. Sela-
tangar eru gömul verstöð miðja vegu milli
Grindavíkur og Krýsuvíkur. Fjölmennið
með börn og barnabörn í þessa ferð. þar
sem sérstakt tillit er tekið til yngstu far-
þeganna. Farþegar eru teknir við bensin-
stöðina á Kópavogshálsi og við kirkju-
garðinn í Hafnarfirði. Verð kr. 600.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni austan-
megin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir böm í
fvlgd fullorðinna.
Dagsferð 28. maí (uppstigningardag).
kl. 13 Sveifluháls - Seltún. Ekið í Vatns-
skarð og gengið þaðan eftir Sveifluhálsi.
komið að Ketilstíg við Arnarvatn og geng-
ið þaðan niður að Seltúni sunnan Kleifar-
vatns. Verð kr. 500.
Helgarferð 22.-24. maí.
Þórsmörk - EyjafjalInjökuII. Gist í Skag-
fjörðsskála/Langadal. Gengið yfir Evja-
fjallajökul frá Þórsmörk og komið niður
hjá Seljavallalaug. Dvöl í Þórsmörk fyrir
þá sem vilja. Upplýsingar og farmiðasala
á skrifstofu F.I.. Öldugötu 3. ATH:
Greiðslukortaþjónusta.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga frístundahóps-
ins Hana nú í Kópavogi verður á morgun.
laugardaginn 23. maí. Lagt af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10. Garðar bæjarins
skarta nú fegursta sumarskrúði. Takmark
göngunnar er: samvera. súrefni. hreyfing.
Góður félagsskapur. Nýlagað molakafii.
Söguferð til Þingvalla
Sögufélag Kjalamesþings gengst fyrir
söguferð til Þingvalla laugardaginn 23.
maí nk. Lagt verður af stað frá Hlégarði
í rútu kl. 13 og áætlað að koma til baka
um kl. 17. Leiðsögumaður verður Pétur
J. Jóhannsson frá Skógarkoti í Þingvalla-
sveit. Auk þess sem hann rekur sögu
Þingvalla mun hann fræða fólk um jarð-
sögu og náttúrufar staðarins. Gengnar
verða ótroðnar slóðir. Fólk er beðið um
að taka með sér nesti.