Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Side 7
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987. 29 Iþróttir helgariimar: Knattspyman á fullu Vormót öldunga Kappamót öldunga í frjálsum íþróttum fer fram á Valbjarnar- velli mánudaginn 8. júní kl. 14. Keppt verður í öllum aldurs- flokkum karla (35 ára og eldri) og kvenna (30 ára og eldri). Fimm ára bil er á milli flokka. Skráning fer fram á mótsstað. Verðlaun verða veitt. Þátttökugjald er 250 kr., fyrir fyrstu grein, síðan 150 kr. hver grein. Mótsstjóri er Ólaf- ur Unnsteinsson, formaður Öldungaráðs FRÍ. Keppnisgreinar verða: Karlar: 200 m, 400 m, 800 m, 10.000 m hlaup, 110 m grindahlaup, lang- stökk, hástökk, kúluvarp, kringlukast og sleggjukast. Kon- ur: 200 m, 400 m og 5000 m hlaup, hástökk, langstökk, kúluvarp og kringlukast. Fjáröflunarmót hjá GR A morgun fer fram annað fjár- öflunarmót hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Ætlunin er að kaupa sjónvarpsskerm á Golf- skálann til móttöku á sjónvarps- sendingum um gervihnetti þannig að hægt verði að horfa á beinar útsendingar frá stærstu golfmótum erlendis. Sl. fimmtu- dag fór fram sams konar mót og þá safnaðist um helmingur þess fjár sem þarf til kaupanna en skermur með tilheyrandi tækjum kostar um 170 þús. kr. Leikin verður punktakeppni með fullri forgjöf og ræst út frá kl. 9. Eru allir kylfingar hvattir til að mæta svo að hægt verði að kaupa skerminn sem fyrst. Á mótinu sl. fimmtudag voru 92 þátftakendur og urðu úrslit þessi: 1. Hjalti Atlasón, 46 punktar 2. Óskar Ingason, 45 punktar 3. Gunnar P. Herbertsson, 42 punktar. íslandsmótið Heil umferð fer fram í 1. deild SL. mótsins í knattspynu nú yfir hvítasunnuhelgina. Verða leikir í 1. deild sem hér segir: KA - Valur, laugardag..kl. 14 FH - Víðir, laugardag..kl. 14 Völsungur - í A, laugardag ,.kl. 14 ÍBK - Þór, laugardag...kl. 14 Fram - KR, laugardag...kl. 20 2. deild KS - Víkingur, föstud..kl. 20 ÍR - ÍBV, föstud.......kl. 20 UBK - Selfoss, föstud..kl. 20 ÍBÍ - Leiftur, laugard.kl. 14 Einherji - Þróttur, laugard. kl. 14 Þá verður leikið í 3. og 4. deild yfir helgina. HRESST BLAÐ VIKULEGA Sliklur Péturs Guðjónssonar leiðtoga Flokks mannsins. Hann segir með- al annars í Vikuviðtalinu: -„Það sem Ólafur (Ragnar Grímsson) er að gera er alls ekki svo vitlaust en ég hef ekki mikla trú á þess- um þjóðaleiðtogum vegna þess að ég þekki þá. Ég þekki Alfonsin, ég þekki Miguel de la Madrid; alger skunkur og mafíuforingi. Ég þekki líka Felipe Gonzales; skúrkur og svikahrappur. Radjiv Gandhi er frjáls- hyggjugaur frá Indlandi, mömmustrákur sem veit ekkert í sinn haus. Svona í hrein- skilni sagt þá er þetta tómt plat." Leiðtogafundurinn í augum Bandaríkjamanna Þeirra atvinna er að ferðast - hvert fara þeir í fríum? Rætt við fjóra einstaklinga um draumaferðina. Gunnbjörg Óladóttir er nafn Vikunnar Nýr megrunarmatseóill og meira um megrunartöflur níunda áratugarins sem kynntar voru í síðustu viku. HELGARBLAÐ Frjálst.óháð dágblað Á MORGUN HELSTU TJALDSVÆÐI LANDSINS LOKUÐ UM HVÍTASUNNUHELGINA Er lokað á unglingana um hvítasunnuna? Samkvæmt upplýsingum sem blaðið hefur fengið verða öll helstu tjaldsvæði landsins lokuð núna um helgina, eina af mestu ferða- og útileguhelgum ársins. Að öllum líkindum mun þó straumurinn liggja í Borgarfjörðinn, að Geirsárbökkum, þar sem Stuðmenn verða með skipulagða útihá- tíð. Helgarblaðið kannaði þessi mál. Spennandi spurningakeppni i Helgarblaöinu veröur kynnt spennandi spurningakeppni sem er aö fara af stað I blaðinu og mun standa fram yfir verslunarmannahelgina. í þessari keppni verða skólamenn og skólastjórar teknir á beinið og baunað á þá erfið- um og flóknum spurningum. Einn forráðamanna keppninnar sagði að hann hefði mikla ánægju af þvi að semja spurningar fyrir keppnina þar sem með því fengi hann tækifæri til að hefna sín á skólakerfinu. I þessu Helgarblaði verður keppnin, keppendur og tilhögun kynnt. íslensk nútímatónlist fyrir Kínverja Nokkrir islenskir tónlistarmenn fóru nýlega til Kína til að kynna fyrir þarlend- um islenska nútímatónlist. Þeirra á meðal var Áskell Másson tónsmiður. Hann segir í skemmtilegu viðtali frá viðtökum Kínverja og viðhorfi þeirra til Islendinga og nútimatónlistar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.