Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Side 5
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987.
5
Ásmundur Stefánsson
Alþýðubankinn:
Ásmundur
ekki einn í
bankaráðinu
- segir Magnús Geirsson
I einhverjum fjölmiðli var það haft
eftir samvinnumönnum varðandi til-
boð þeirra í Útvegsbankann og þá
hugsanlega sameiningu við Sam-
vinnubanka og Alþýðubanka að
Ásmundur Stefánsson, formaður
bankaráðs Alþýðubankans, sem stadd-
ur er í sumaríríi austur í Sovétríkjun-
um, hefði gefið grænt ljós á
sameiningu. Sú yfirlýsing, ef rétt er,
gengur þvert á það sem varaformaður
ráðsins, Magnús Geirsson, hefur sagt.
„Ég er enn sama sinnis og vil benda
á það að Ásmundur Stefánsson er ekki
einn í bankaráði Alþýðubankans. Eft-
ir því sem ég best veit er ekki vilji þar
til að sameina Alþýðubankann Út-
vegsbankanum. Menn hafa verið að
tala um að efla Alþýðubankann og það
verður trauðla gert með því að bank-
inn verði 5-7% í sameinuðum Útvegs-
banka,“ sagði Magnús Geirsson í
samtali við DV í gær.
Samkvæmt heimildum DV hefur það
aukið alþýðubankamönnum bjartsýni
að tvo síðustu mánuði hefur rekstur
Alþýðubankans verið plús megin við
strikið og mun það vera í íyrsta skipti
í eitt og hálft ár.
-S.dór
Keyrði inn
í garð
Ökumaður missti stjóm á bifreið
sinni og ók inn í húsagarð í Breið-
holtinu í fyrradag. Fór betur en á
horfðist, því bílstjórinn slapp ómeidd-
ur og bíllinn var í ökufæru ástandi.
-JFJ
Fréttir
íslendingur í Svíþjóð:
Starfar við uppfinningu
á nýju lyfi við geðklofa
- virðist laust við aukaverkanir
„Þetta nýja lyf lofar mjög góðu
og virðist laust við þær aukaverkan-
ir sem hin hefðbundnu lyf við
geðklofa ífam að þessu hafa óhjá-
kvæmilega haft í för með sér eins
og áhrif á miðheilann sem geta or-
sakað Parkinson-veiki. Það er þó of
snemmt að koma fram með nokkrar
fullyrðingar því þetta er enn allt á
tilraunastigi. Því miður get ég ekki
gefið upp nafhið á því enn sem kom-
ið er,“ sagði Einar Kristjánsson,
íslenskur læknir í tauga- og geðsjúk-
dómum, sem að undanfömu hefúr
starfað við uppfinningu á nýju lyfi
við geðklofa á Huddinge háskóla-
sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, en þar
hefur Einar verið starfandi síðustu
ár.
„Lyfið hefur verið notað á nokkra
sjúkhnga í tvö ár undir sérstöku eft-
irliti," sagði Einar „þannig að ekkert
er hægt að segja til um hvort auka-
verkanir verða af langvarandi
notkun þess. Við höfum ekki töl-
fræðilegar niðurstöður um hvemig
lyfið hefur reynst en bindum miklar
vonir við það. Það standa yfir við-
ræður við sænskt lyfjafyrirtæki um
að hefja ffamleiðslu á því.“
-BTH
Jón L. Ámason teflir í Lettlandi
Jóni L. Ámasyni stórmeistara hefur
verið boðið á alþjóðlegt skákmót í
Lettlandi sem fram fer dagana 30.
ágúst til 17. september og hefúr Jón
þekkst boðið.
I samtali við DV í gær sagðist Jón
ekki vita um alla þátttakendur á mót-
inu sem sagt er vera í 11. styrkleika-
flokki. Hann sagðist aðeins vita um
þrjá kunna stórmeistara sem verða
meðal þátttakenda, þá Mikhail Tal,
Romanishin og Psakhis, sem allir em
Sovétmenn.
Skáksamband Islands reyndi að fá
samþykki Sovétmanna fyrir þvi að
senda tvo stórmeistara á mótið en það
gekk ekki upp.
Jón L. Ámason fer því einn i austur-
veg og sagði hann að eftir frammistöðu
Jóhanns Hjartarsonar í Ungverjal-
andi á dögunum væri ekki um annað
að ræða fyrir islensku stórmeistarana
héðan i frá en að setja alltaf stefnuna
á efsta sætið og það myndi hann sann-
arlega gera að þessu sinni.
-S.dór
Viðtalið
„Með dulspekiáhugann
frá unglingsaldri“
- segir Garðar Garðarsson, framkvæmdastjóri Þrídrangs
„Við stofnuðum þetta fyrirtæki
við óvenjulegar aðstæður alveg fyrir
tilviljun en fullkominn sólmyrkvi
varð einmitt þann dag. Þetta var 3.
október 1986,“ segir Garðar Garðars-
son, framkvæmdastjóri Þrídrangs,
en Þrídrangur er fræðslu- og upplýs-
ingamiðstöð sem á að leiða til
aukinnar lífsfyllingar manna, eins
konar velferðarsamtök eins og Garð-
ar orðar það sjálfúr. Um síðustu
helgi var haldið mót á vegum Þrí-
drangs þar sem áhugafólki um
mannrækt var gefið tækifæri til að
hittast og miðla af reynslu sinni.
Garðar er 27 ára Njarðvíkingur
sem áður vann sjálfstætt sem sölu-
og markaðsstjóri. Hann hefúr verið
framkvæmdastjóri Þrídrangs frá
stofnun fyrirtækisins.
„Ég hef alveg frá 12 ára aldri lesið
bækur um dulspeki og haft mikinn
áhuga á öllu sem þvi viðkemur án
þess þó að verða fyrir áhrifúm frá
nokkrum í íjölskyldunni eða kunn-
ingjum. Þetta kviknaði eiginlega
með því að ég varð stundum fvrir
dulrænni reynslu sem strákur.
Dulspeki og heildrænar aðferðir
eru min helstu áhugamál og það að
sökkva mér niður i þau við lestur.
Þetta er líka það sem Þrídrangur
fæst við að miklu leyti. Heildræna
aðferð má nota til að bæta heilsufar
sitt, þá er tekið mið af því heilbrigða
í manninu og stuðlað að þvi að fólk
vaxi í átt til fullrar birtingar hæfi-
leika sinna, óháð öllum trúarkenn-
ingum eða öðru.“
Er Þrídrangur þá að markaðssetja
dulspekina?
„Við erum að setja á stofn fyrirtæki
Garðar Garðarsson, framkvæmda-
stjóri velterðarsamtakanna Þrí-
drangs. DV-mynd JAK
sem fæst við ákveðna þætti sem fólk
hefúr áhuga á rétt eins og að opna
verkfræðistofu eða hvað annað.
Starfsemi á við það sem Þrídrangur
er með hefur verið í gangi erlendis
lengi. Við viljum gefa fólki upplýs-
ingar um hvaða leiðir það getur
notað til að ná líkamlegri og and-
legri heilsu. erum upplýsingamið-
stöð. Ég hef orðið var við mikinn
áhuga á þessu og það sýndi sig best
með þátttökunni á samkomunni á
Amarstapa um síðustu helgi þar sem
2-300 manns mættu. Ég er því viss
um að markaður er fyrir slíkt fyrir-
tæki hér enda eru íslendingar
þekktir f\TÍr dulspekiáhuga sinn
gegnum aldimar." sagði Garðar að
lokum.
-BTH
VINNUFATABUÐIN
§5?
Laugavegi 76 - Hverfisgötu 26
f!
JTv.í’ . P