Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Blaðsíða 20
20
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987.
íþróttir
í Guðmundur Torfason
í misnotaði vrtaspymu
- í sínum fyvsta deildarieik með Winterslag
Kristján Bembuig, DV, Belgía;
Guðmundur Torfason misnotaði
vítaspymu í sínum fyrsta deildarleik
með Winterslag í gærkvöldi. Guð-
mundur, sem fiskaði sjálfur víta-
spymuna, skaut föstu skoti
knötturinn hafnaði á þverslánni og
þeyttist þaðan hátt í loft upp. Þetta
gerðist í leik gegn FC Liege, sem fór
með sigur af hólmi, 2-0, í Winterslag.
Malbasa skoraði bæði mörk Liege,
á 3. og 15. mín. Guðmundur misnot-
aði vítaspymuna á 14. mín. Sjö þús.
áhorfendur sáu leikinn. Aftur á móti
sáu 21 þús. áhorfendur Amór Guðjo-
hnsen og félaga hans vera heppna
að ná að leggja Charleroi að velli,
1-0, með marki Danans Frimann.
Amór, sem er meiddur í læri, fór af
leikvelli á 75. mín.
• Þess má geta að Winterslag
keypti í gær V-Þjóðverjann Uwe
Dittuss, sem leikur stöðu miðvarðar,
fá áhugamannafélaginu Aschaffen-
burg.
Standard Liege tapaði óvænt fyrir
Racing Jet, 1-2, á heimavelli. Loker-
en vann sinn fyrsta sigur, 1-0, í
Beveren í tíu ár. Leikmenn Antver-
pen og Kortrijk fóm í lyljapróf, eftir
leik liðanna, sem Antwerpen vann,
3-0. FC Bmgge vann sigur í Gent,
1-0. -SOS
Lánlausir
Völsungar
lágu heima
- skoruðu eítt mark gegn þremur gestanna
• Tamas Darnyi sést hér tagna
heimsmeti sínu i gær.
Símamynd Reuter/Jacky Naege-
len
Undramaður
setti met
Jón K. Sigurðesan, DV, Sttasbourg;
„Ég er í sjöunda himni. Þetta er
gott skref í áttina til ólympíuleik-
anna í Seoul," sagði ungverski
undramaðurinn Tamas Damyi eft-
ir að hann var búinn að setja nýtt
heimsmet (4:15,42) í 400 m íjórsundi
á EM í gær. Árangur hans vakti
geysilega athygli þvi að þetta var
fyrsta greinin sem hann keppti í.
Honum er líkt við bandaríska
sundkappann Mark Spitz og sagð-
ur arftaki hans. Damyi er 20 ára.
-sos
Kari-Heinz
í Miinchen
Jcn K Sigurðasan, DV, Söasbourg;
Karl-Heinz Rummenigge, fyrrura
fyrirliði v-þýská landsliðsins í
knaftspymu, sem kemst ekki leng-
ur í lið Inter Milano á ftalíu, er
nú staddm- í Múnchen. Rummen-
igge, sem á við meiðsli að stríða,
er þar til að leita sér lækninga.
Forráðamenn Bayem Múnchen
ætla að nota tækifærið og ræða
við kappann. Freistast til að fá
hann aftur til Bayem. -SOS
Johannes Siguijónssan, DV, Húsavík
Lánið lék ekki við Völsunga í leik
þeirra við KA á Húsavík. Sóttu heima-
menn mun ákafar og áttu þeir ágæt
tækifæri. KA-menn nýttu hins vegar
sín og því höfðu þeir sigur, 3-1, þegar
upp var staðið.
Fyrri hálfleikur var heldur slakur
en þó var hann opinn með svipuðu
lagi og sá síðari. Talsvert var um
markfæri á báða bóga.
Gestimir tóku forystuna á 24. min-
útu eftir homspymu. Erling Kristjáns-
son skallaði boltann aftur yfir sig og
fór hann í háum boga í markhomið
fjær.
Við markið eíldust Völsungar mjög
og sóttu þeir ákaft um hríð.
Á 32. mínútu varði til að mynda
Ólafur Gottskálksson mjög vel koll-
spymu frá Birgi Skúlasyni. Örskömmu
síðar skallaði Jónas Hallgrímsson í
þverslána á marki Akureyringa og var
þá hættan síst liðin. Helgi Helgason
þrumaði nefiiilega knettinum rétt yfir
markvínkilinn í næstu sókn heima-
manna.
Á 41. mínútu jöfriuðu síðan Húsvík-
ingar. Hörður Benónýsson slapp í
gegn vinstra megin og sendi knöttinn
inn í vítateiginn. Þar var Kristján
Olgeirsson fyrir og þrumaði sá knett-
inum í netið af stuttu færi.
í síðar hálfleik höfðu Völsungar yfir-
höndina og áttu þeir fjölmörg færi sem
ekki nýttust. Má meðal þeirra nefria
umdeilt atvik á 49. mínútu er knetti
var bjargað á línu. Hörður Benónýs-
son komst í gegnum vöm gestanna
og lék á markvörðinn. Sá svaraði með
því að skella Herði í grasið áður en
hann fengi spymt knettinum. Dómar-
inn lét þetta afskiptalaust og var þeim
hnöttótta bjargað frá á marklínu.
Á 82. mínútu ná KA-menn foryst-
unni gegn gangi leiksins. Þeystu þeir
fram í skyndisókn og rak Tryggvi
Gunnarsson smiðshöggið. Þrumaði
hann knettinum í bláhomið af nokkru
færi. Var markið sérlega glæsilegt og
raunar dæmigert fyrir Tryggva.
KA bætti síðan um betur er Þorvald-
ur Örlygsson skoraði með fallegu skoti
á 85. mínútu.
Bestir í liði gestanna vom þeir Erl-
ingur Kristjánsson, sem var klettur í
vöm, og Sigurður Már Harðarson. Er
hann komungur leikmaður með mikla
og áberandi tækni.
Helgi Helgason átti bestan dag með-
al Völsunga. Þá átti Jónas Hallgríms-
son góðan leik að venju og Hörður
Benónýsson var skæður í framlínunni.
Ólafur Lárusson dómari rétti eitt
gult spjalt til himins og leit það Þor-
valdur Örlygsson, KA.
-JÖG
Stórsigur Hugins
Monaco á toppinn
Huginn frá Seyðisfirði vann stór-
sigur, 7--0, gegn liði HSÞ-c í úrslita-
keppni 4. deildar í gærkvöldi.
Staðan í riðlinum :
Huginn........3 2 0 1 114 6
Hvöt..........2 2 0 0 4-0 6
HSÞ-c........3 0 0 3 3-12 0
í hinum úrslitariðlinum fóm fram
tveir leikir. Víkverji lagði Gróttu
að velli, 2-1, og í Bolungarvík sigr-
aði árvakur, 1-0, fyrir vestan.
Staðan í riðlinum :
Víkveiji.....4 2 115-6 7
Bolungarvík...4 2 117-9 7
Grótta........4 2 0 2 lfr8 6
Áxvakur.......4 1 0 3 8-7 3
-RR
Tony Hateley skaut Monaco upp á
toppinn í Frakklandi í gærkvöldi, þeg-
ar hann skoraði sigurmark, 1-0,
félagsins gegn St. Germain í París. Á
sama tíma varð Bordeaux að sætta sig
við jafritefli, 0-0, gegn Montpellier.
Hateley skoraði markið á 41. mín. -
hann hamraði knöttinn fram hjá Joel
Bats, landsliðsmarkverði Frakklands.
Mikil ólæti bmtust út eftir leikinn
þar sem áhangendur Parísarliðsins
sættu sig illa við tapið. Hnefar vom á
lofti. Lögreglan skarst í leikinn og
handtók nokkra ólátarseggi. Einn var
fluttur á sjúkrahús.
• Klaus Allofs tryggði Marseille
sigur, 1-0, yfir Brest.
• Monaco hefur 10 stig eftir sex
umferðir, Bordeaux 8, Toulon, St.
Germain, Racing Club og Cannes hafa
sjö stig. -SOS
Brann glímir í
undanúrslHum
Brann, lið Bjama Sigurðssonar
landsliðsmarkvarðar, komst í gær-
kvöldi í undanúrslit norsku bikar-
keppninnar. Brann lagði Strömmen,
1-0, í framlengdum leik.
Brann mætir Hamar í undanúrslitum.
-JÖG
: : ' . ■
.
• Framarar sjást hér fagna marki Péturs Ormslev sem hann skoraði á elleftu stundu.
Pálmar klár
í rimmuna
- körfuknattieikslandsliðið er á
fullu fyrir EM í Sviss
Nú standa fyrir dyrum æfingar og leik-
ir hjá körfuknattleikslandsliði okkar.
Framundan er undanriðill meginmóts
Evrópukeppninnar og fer sá fram í Sviss.
Þar glíma okkar kempur við heima-
menn, Dani og Frakka. Allir eru þessir
mótherjar erfiðir og því er markið sett
hátt.
Um helgina verða spilaðir æfingaleik-
ir við úrvalslið frá Illinois og fara þeir
fram á þremur stöðum, í Grindavík,
Hafnarfirði og í Njarðvík. Eru leikimir
liður í undirbúningi fyrir nefnt mót með
sama lagi og rimmur sem settar hafa
verið á í september. Þá leikur íslenska
liðið í átta liða móti í Belgíu og verða
heimamenn meðal þátttakenda auk
ýmissa félagsliða frá Frakklandi, Þýska-
landi og Hollandi.
Evrópumótið sjálft fer síðan fram um
miðjan september og ræðst þá hvort Is-
land glímir meðal 16 bestu þjóða álfunn-
ar í íþróttinni.
Sú keppni fer fram með því lagi að
leikið er heima og heiman. Hefur það
lið sigur sem stendur best að vígi eftir
alla leikina.
Hópurinn sem leggur hart að sér
þessa dagana
Fjórtán manna hópur hefur verið val-
inn til æfinga og eru í honum þessir
Torfí Magnusson Tómas Holton Val Val
Leifur Gústafeson Val
Sturla Örlygsson Val
IvarWebster Haukum
Valur Ingimundarson UMFN
Jóhannes Kristbjömsson.... UMFN
Birgir Mikaelsson KR
• Pálmar Sigurðsson.
Guðni Guðnason KR
Hreinn Þorkelsson ÍBK
Guðjón Skúlason ÍBK
Sigurður Ingimundarson ÍBK
Jón Kr. Gíslason ÍBK
Guðmundur Bragason...........UMFG
Athygli vakti að riafn Pálma Sigurðs-
sonar, Haukum, er hvergi á listanum.
Óttast var um hríð að hann kæmist
ekki til keppni vegna anna héima fyrir.
I spjalli við DV í gærkvöldi sagðist
garpurinn hins vegar ekki sjá neitt í
veginum og hyggst hann því leika með
landsliðinu í Sviss.
„Öll mín mál hvað starf mitt varðar
eru í höfri. Ég sé því ekkert því til fyrir-
stöðu að ég leiki í Evrópukeppni," sagði
Pálmar.
Þess má geta að Pálmar skar sig á fingri
fyrir skemmstu og hefur því hægt um
sig þessa dagana. Sárin gróa hins vegar
fljótt og verður kapinn því kominn á
siglingu áður en varir. -JÖG
Johnson nálægt heimsmeti
Aðeins mótvindur kom í veg fyrir að Kanadamaðurinn Ben Johnson setti heims-
met á frjálsíþróttamóti í Zurich í gær. Hljóp hann 100 metrana á 9,97 sekúndum.
Mótvindur var nokkur og mældist hraði hans 1,2 metrar á sekúndu.
Heimsmetið, sem nemur 9,93 sekúndum, á Calvin nokkur Smith og var það sett
fyrir fjórum árum. Þess má geta að Johnson fór nefrida vegalengd í Köln fyrir fáein-
um dögum á 9,95 sekúndum. -JÖG
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987.
21„
Iþróttir
DV-mynd Brynjar Gauti
Staðan í SL-mótinu 1. deild í knatt-
spyrnu er þannig:
Fram - FH Akranes - Valur... Keflavík - Víðir... Þór - KR 2-1 0-2 0-0 3-1
Völsungur - KA... 1-3
Valur ...15 9 5 1 28-10 32
Fram ...15 8 3 4 31-20 27
Akranes.... ...15 8 2 5 30-24 26
KR ...15 7 4 4 26-15 25
Þór ...15 8 1 6 28-27 25
KA ...15 5 3 7 17-16 18
Keflavík.... ...15 4 4 7 21-30 16
Völsungur ...15 4 3 8 16-27 15
FH ...15 3 3 9 15-29 12
Víðir ...15 1 8 6 13-27 11
• Markahæstu leikmenn:
Pétur Ormslev, Fram............12
Pétur Pétursson, KR.............8
Halldór Áskelsson, Þór..........7
Óli Þór Magnússon, ÍBK..........7
Sveinbjörn Hákonarson, ÍA.......7
Björn Rafnsson, KR..............6
SigurjónKristjánsson, Val.......6
Glæsimark Péturs rotaði
FH-inga á endasprettinum
- Framarar í 2. sætið eflir 2-1 sigur gegn FH og halda enn í vonina um meistaratitil
„Það er ljóst að við getum leikið
mun betur en við gerðum í kvöld. Ég
er ánægður með stigin þijú og íslands-
meistaratitillinn er ekki úr augsýn
ennþá. Leikur okkar gegn Val á
sunnudagskvöldið verður úrslitaleik-
ur fyrir okkur og ef við vinnum hann
munar aðeins tveimur stigum á okkur
og Valsmönnum fyrir tvær síðustu
umferðimar,“ sagði Ásgeir Elíasson,
þjálfari Framara, í gær eftir sigur
Fram gegn FH, 2-1, í Laugardal.
Fyrir leikinn bjuggust flestir við
næsta auðveldum sigri Fram enda
hafa leikmenn liðsins leikið vel í und-
anfömum leikjum, skorað mikið af
mörkum og unnið sanngjama sigra.
En Framarar geta þakkað öðrum en
sjálfum sér fyrir sigurinn og stigin
þrjú í gærkvöldi. Liðið lék illa lengst
af og úr því sem komið var í Iokin var
jafritefli ef til vill sanngjöm úrslit. En
stórglæsilegt sigurmark Péturs
Ormslev verður lengi í minnum haft.
Óli Olsen dæmdi vafasama auka-
spymu að margra dómi utan vítateigs
og Pétur þrumaði knettinum í net
Hafrifirðinganna, efst í markhomið
þegar tæpar tvær mínútur vom liðnar
umfram venjulegan leiktíma. Nokkr-
um sekúndum síðar var flautað til
leiksloka.
Gífurleg vonbrigði
FH-ingar vom mjög ósáttir við tapið
eftir leikinn og fékk dómarinn það
óþvegið á leið til búningsherbergja.
Sumir leikmanna FH ætluðu hrein-
lega að ijúka í þann svartklædda en
honum var forðað frá átökum. Engu
líkara var en Hurðaskellir hefði
ruglast í ríminu og komið í fyrra lagi
til byggða. Hurðinni á búningsher-
bergi FH-inga var nefriilega skellt
Guðmundur
í leikbann
Guðmundur Hilmarsson, fyrir-
liði FH-inga í knattspymu, mun
ekki leika með félögum sínum í
mikilvægum fallbaráttuleik gegn
Keflavík á sunnudagskvöldið.
Guðmundur, sem er einn besti
maður FH-liðsins, fékk að líta gula
spjaldið hjá Óla Olsen dómara í
gærkvöldi í leiknum gegn Fram
og var það hans fjórða spjald í
sumar. -SK
• FH-ingar voru óhressir eftir leikinn. Hér á myndinni sést gamla kempan Viðar Halldórsson koma í veg fyrir að
Guðmundur Hilmarsson komi nálægt dómaranum Óla Olsen.
DV-mynd Brynjar Gauti
fram og aftur. Vonbrigði FH-inga vom
gífurleg en þeir geta sjálfum sér um
kennt að hafa ekki verið búnir að
gera út um leikinn fimmtán mínútum
fyrir leikslok þegar Jón Erling komst
einn innfyrir vöm Fram og hefði hann
getað komið FH í 2-0 en Friðrik bjarg-
aði vel.
Framarar byrjuðu betur
Leikmenn Fram hófu leikinn af
nokkrum krafti. Pétur Ormslev átti
skalla rétt framhjá á 9. mínútu, Ragn-
ar Margeirsson hitti knöttinn illa í
upplögðu færi irrnan vítateigs á 31.
mínútu og Guðmundur Steinsson
skallaði í þverslá og yfir frá markteig
á 42. mínútu. Það var svo nokkrum
sekúndum fyrir leikhlé sem Guðjón
Guðmundsson FH-ingur skoraði fyrsta
mark leiksins með glæsilegum skalla
eftir aukaspymu.
lan Fleming
úr leik?
Þjálfari FH-inga, Ian Fleming,
lék ekki með liði sinu í gærkvöldi
vegna meiðsla. Nokkrar líkur em
taldar á því að Fleming geti ekki
leikið meira með FH-liðinu á þessu
keppnistímabili.
-SK
Framarar jafna metin
íslandsmeistaramir gengu hnípnir
til búningsherbergja sinna í leikhléi
og flestir áttu von á skörpum við-
brögðum frá þeim í síðari hálfleik. Svo
fór þó ekki. Leikur liðsins gekk ekki
upp, leikmenn vom alltof lengi að losa
sig við knöttinn og koma honum fram
völlinn í sóknina. Framarar vom
meira með knöttinn en FH-ingar vom
þó til alls líklegir. Á 34. mínútu fengu
FH-ingar kjörið tækifæri til að gera
út um leikinn þegar Jón Erling komst
einn inn fyrir vöm Fram en Friðrik
varði. Fimm mínútum síðar skoraði
Guðmundur Steinsson jöfriunarmark
Fram með góðu skoti úr vítateig. Eftir
markið hljóp mikið kapp í Framara
og sóttu þeir látlaust til leiksloka.
Aukaspymunni og sigurmarkinu er
áður lýst.
• Framarar verða að leika betur
gegn Val á sunnudag ef þeir ætla að
eiga von um sigur. Janus Guðlaugsson
lék ekki með í gærkvöldi. Jón Sveins-
son tók stöðu hans og skilaði sinu
hlutverki mjög vel. Ragnar Margeirs-
son var einnig mjög góður en aðrir
leikmenn hafa leikið betur.
• FH-ingar eiga enn góða mögu-
leika á að bjarga sér frá falli þrátt
fyrir þetta slysalega tap í gærkvöldi.
Og að margra dómi er FH-liðið með
alltof gott lið til að falla. Guðmundur
Hilmarsson og Halldór markvörður
vom einna skástir í liði FH.
• Dómari var Oli Olsen og gerði
nokkur mistök en annars var ósam-
ræmið í dómum hans mest áberandi.
-SK
„Hefði verið
skemmtilegra
að sigra"
- sagði Viðar sem lék sinn
400. leik
„Gamli maðurinn" í FH-liðinu í
knattspymu, Viðar Halldórsson,
náði þeim merka áfanga að leika
400. leik sinn með meistaraflokki
FH í gærkvöldi. Viðar. sem hefur
átt við meiðsli að stríða í mestallt
sumar, hóf leikinn með félögum
sínum og var ftTÍrliði í gærkvöldi.
Honum var síðan skippt út af í
síðari hálfleik.
„Það hefði auðrítað verið
skemmtilegra að vinna sigur í 400.
leiknum. Við klúðruðiun leiknum
algerlega og misnotuðum dauða-
færi undir lok leiksins. Þar hefði
verið hægt að klára þennan leik.
Annars var markið hjá Pétri gull-
fallegt. Framundan hjá okkur er
hörð fallbarátta en við munum
ekkert gefa eftir. Að mínum dómi
er FH-liðið alltof gott til að falla
niður í 2. deild," sagði Viðar.
-SK
Þjátiari frá
V-Þýskalandi
Dýrmætur sigur Valsmanna
- lögðu Akumesinga að velli, 2-0, á Skipaskaga
Sigurgeir Sveinssan, DV, Akianest
Valsmenn færðust nær landsmeist-
aratitli með fræknum sigri á Skipa-
skaga í gærkvöldi. Gerðu þeir tvö
mörk án þess að Akumesingar næðu
að rétt sinn hlut. Hafa Hlíðarendapilt-
ar nú 32 stig en Framarar koma þeim
næstir með 27. Þessi nágrannalið eiga
að glíma í næstu umferð og kunna
úrslit mótsins að ráðast í þeim leik.
Það verður að segjast sem er að
Valsmenn unnu sanngjaman sigur á
Skagamönnum í gærkvöldi. Þeir vom
ákveðnari, beittari og gáfu hvergi eftir
í baráttunni inni á vellinum.
Fyrsta markfærið féll í þeirra hlut
og kom það á 9. mínútu. Ámundi Sig-
mundsson fékk þá knöttinn á auðum
sjó en Birkir Kristjánsson varði laust
skot hans án teljandi vandkvæða.
Valsmenn vom aftur beittir skömmu
síðar. Kom þá knötturinn beint á koll-
inn á Sævari Jónssyni úr homspymu.
Birkir varði hins vegar skallann vel
og jiað ekki í síðasta sinn í leiknum.
A 29. mínútu skaut Sigurjón Kristj-
ánsson þrumuskoti í hliðametið frá
markteigshomi, eftir frábæra send-
ingu frá Jóni Grétari. Má segja að þar
hafi heimamenn sloppið með skrekk-
inn margfræga.
Eftir þessi færi Valsmanna óx Akur-
nesingum ásmegin og áttu þeir tvö
hættuleg færí sem ekki nýttust. Val-
geir Barðason var á ferðinni í bæði
skiptin og varði Guðmundur Baldurs-
son meistaralega skot hans.
Staðan var jöfri i hléinu, 0-0.
I síðari hálfleik sóttu gestimir
grimmt og tóku þeir foiystuna á 54.
mínútu. Varð þuð til með þeim hætti
að Aðalsteinn Víglundsson stöðvaði
góða sókn en í stað þess að hreinsa
frá markinu gaf hann knöttinn á Ingv-
ar Guðmundsson sem þakkaði fyrir
með því að skora.
Síðara mark sitt gera Valsmenn síð-
an á 67. mínútu og var Ingvar aftur
að verki. Fékk hann knöttinn á víta-
teigslínu og þrumaði honum efst í
markhomið.
Eftir afrek hans gerðist lítið en á
undan fóru nokkur færi í súginn hjá
báðum liðum.
Guðni Bergsson varði til dæmis
þrumskot Sveinbjamar Hákonarsonar
á markteignum og Birkir varði tvíveg-
is úr dauðafærum í sömu sókninni,
fyrst frá Siguijóni en síðan frá Sævari
Jónssyni.
Bestur meðal Valsmanna var sá
markheppni, Ingvar Guðmundsson.
Þá vom þeir Guðni Bergsson og Sæv-
ar Jónsson mjög traustir í vöminni.
Gömlu j axlamir stóðu upp úr Skaga-
liðinu, þeir Sigurður Lárusson og
Sveinbjöm Hákonarson.
Sigi Held á Akranesi
Sigi Held, landsliðsþjálfari í knattspymu, sem er kominn til landsins,
var meðal áhorfenda á leik Skagamanna og Valsmanna á Akranesi í
gærkvöldi. Held spáir í tvo leiki um næstu helgi, Valur - Fram og KR
- Akranes. Hann fer síðan með 21 árs landsliðinu til Nyborg í Danmörku
á mánudaginn.
-sos
til Islands
Jón K Sguiöœon, DV, Söasbourg;
Sundþjálfari frá V-Þýskalandi
mun koma til Islands í haust á
vegum Sundsambandsins. Hann
mun þjálfa sundfólk hér á landi
og fær hann það hlutverk að finna
veika bletti hjá íslenska landsliðs-
fólkinu. Gefa ráð til úrbóta og
þjálftm. -SOS
Oddurfor
holu í höggi
Gyffi Kristjánsscn, DV, Akuieyri:
Oddur Jónsson, kylfingur í Golf-
klúbbi Akureyrar, vann á dögun-
um það afrek að fara holu í höggi.
Draumahögginu náði Oddur á 11.
braut Jaðarsvallar og notaði hann
jám númer sex. Kúla Odds hafriaði
efst á hallandi gríninu og rann síð-
an vinalega rétta boðleið.
-SK
JÖG