Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Síða 36
36
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Michael J. Fox
er hygginn maöur. Hann
kann sannarlega ráð við
hlutunum. Starfs síns vegna
ferðast hann mikið og hefur
hann allan varann á. Micha-
el hefur svo miklar áhyggjur
af því að óprúttnir náungar
girnist farangur hans. Þess
vegna hefur hann tekið upp
það ráð að merkja ferðatösk-
ur sínar ekki sjálfum sér
heldur einkaritara sínum. Og
ekki nóg með það. Hann
sendir farangurinn með ann-
arri flugvél þannig að hann
fær hann daginn eftir eigin
komudag á áfangastað.
Snjallt hjá stráknum.
Boy George
var á dögunum á feroinni í
London. Þar heimsótti hann
hljómplötuverslun eins og
margra frægra söngvara er
siður. Átta hundruð aðdá-
endur stjörnunnar mættu á
staðinn og má geta þess hve
hrifnir þeir voru af goðinu
sínu. En þó voru aðeins tíu
manns sem tóku kossaboði
hans. Hvernig stóð á því
uppátæki hans að bjóða
aðdáendum kossa er ekki
alveg vitað. En söngvarinn
ku hafa verið í sínu besta
skapi og þá er honum víst
til alls trúandi. Ekki er heldur
hægt að skýra það hvers
vegna svo fáir tóku boðinu;
þarna voru jú einskærir
aðdáendur hans. Sjálfsagt
hefur flestum bara brugðið
um of.
Tom Cruise
leikarinn sæti sem tryllir yng-
ismeyjar hvar sem til hans
sést mun leika eitt aðalhlut-
verkið í nýjum bandarískum
sjónvarpssápuþætti sem á
að fara að framleiða. Og
mótleikari hans er heldur
ekki af verri endanum. Það
verður Rob Lowe sem kann
jafn vel lagið á ungu stúlk-
unum. Þeir tveir saman í
sjónvarpsþætti. „Hvernig
verður það?" spyr fólk. Því
er spáð að frá og með frum-
sýningu fyrsta þáttarins geti
Linda Evans, Larry Hagman,
Joan Collins og fleiri, úr
áður vinsælum sjónvarps-
þáttum, farið að leita sér að
nýrri atvinnu.
Þessar stúlkur stunduðu nám í skólanum á árunum ’68-'69, þá flestar 17-20 ára gamlar. Eins og sjá má á myndinni var hártískan í þá daga túpering
og klæðaburðurinn pínupils. Fremstar fyrir miðju eru þær Gerður Pálsdóttir kennari, Guðriður Eiriksdóttir kennari og Lena Hallgrímsdóttir skólastjóri.
Túpering og
pínupils
Ján G. Hauksson, DV, Akureyii:
Húsmæðraskólinn að Laugalandi í Eyjafirði verður fimmtíu ára í haust og
verður þess minnst með meiri háttar nemendamóti. Skólinn sjálfur á afinæli
3. október en nemendamótið verður haldið föstudagskvöldið 2. okt.
Allir árgangar sem útskrifast hafa frá skólanum munu mæta á mótið. Um
1300 nemendur stunduðu þar nám á meðan skólinn var starfræktur. Skóla-
stjóri var lengst af Lena Hallgrísmdóttir.
„Við sjáum fram á mikið íjölmenni á nemendamótið, það er mikill áhugi
á því og vonandi mæta allar konur sem voru í skólanum, “ sagði Þóra
Hjaltadóttir en hún er ein þeirra sem undirbýr skemmtunina.
Morten í A-ha
kominn á fast?
fslenskar stelpur lifa sælar í minn-
ingunni um þá A-ha stráka þrjá sem
heimsóttu landið fyrir stuttu. Aðal-
söngvarinn Morten Harket vekur
sérstaka athygli ungra stúlkna um
víða veröld. Hann þykir andlitsfríður
og í alla staði álitlegasta mannsefni.
En nú er hann líklega kominn á fast.
Hann sést æ oftar í fylgd ungrar
bandarískrar söngkonu, Helenu
Springs. Hún hefur nýlega sungið
inn á sína aðra smáskífu og sækist
hún stíft eftir frægð og frama. Sam-
band hennar við Morten er kannski
besta tækifærið sem henni hefur
hlotnast til að láta á sér bera.
Helena Springs er ung söngkona sem átt hefur „náiö samband” viö aöalsöngv-
ára þljómsveitarinnar A-ha, Márten Harket, að undanfömu. v
Hairn á heima
á Akureyri
Jón G. Hauksson, DV, Akureyii:
Þennan tröppubíl þekkja örugg-
lega allir sem fóru um gömlu
flugstöðina í Keflavík. Hann var
þar einn af tíu félögum sínum sem
allir voru eins og sem notaðir voru
sem landgangar úr þotunum. Þegar
tæknin ruddi sér til rúms í flugstöð
Leifs Eiríkssonar með rönum og
öllu tilheyrandi var ekki lengur
jafnmikið not fyrir þessa bíla. Þessi
var því fluttur með skipi norður til
Akureyrar og þar dúsir hann núm-
erslaus á flugvellinum. Það er þörf
fyrir hann því að annað slagið
lenda þotur á Akureyrarflugvelli.
Nú á hann heima á Akureyrarflug-
velli en áður bjó hann í Keflavík.
•■'StirjJti ''•*’-3ÍÍÍ4»'-Í»itsáfc.iis'i
Aður Keflvíkingur en nú orðinn Akureyringur.