Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Side 3
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987.
3
dv ___________________________________________________________________________Fréttir
Kaupmannahöfh:
Islendingur eftirlýstur
„Maðurinn er eftirlýstur í Dan-
mörku og ef hann finnst ekki í dag
eða á morgun munum við lýsa eftir
honum alþjóðlega í gegnum Interp-
ol,“ sagði Áxel Náskov hjá fíkniefna-
lögreglunni í Kaupmannahöfn um
íslending sem er leitað í Danmörku
t
- vegna amfetamínmálsins, þrír bíða enn dóms
vegna aðildar hans að amfetamín-
máli sem þrír aðrir fslendingar, 53,
44 og 23 ára gamlir, sitja í gæsluvarð-
haldi vegna í Vestre fangelsinu í
Kaupmannahöfn.
„Það er jafnvel haldið að hann
hafi farið úr landi strax þegar leit
dönsku lögreglunnar að honum
hófet. Við munum leita aðstoðar ís-
lensku fíkniefnlögreglunnar því að
möguleiki er á hð hann hafi farið til
íslands,“ sagði Axel.
íslendingur þessi er um þritugt og
hefur búið í Kaupmannahöfn í nokk-
ur ár án þess þó að hafa komið við
sögu fíkniefnalögreglunnar þar áð-
ur. Mun hann hafa aðstoðað hina
íslendingana við flutning á tæplega
einu og hálfu kilói af amfetamíni í
lok síðasta mánaðar. Helgi Skúlason
hjá fíkniefhadeild lögreglunnar vildi
engar upplýsingar gefa um hvort ís-
lenska fíkniefhalögreglan hefði
hafið leit að manninum hér á landi
eða hvort hann hefði komið við sögu
hjá þeim áður.
-BTH
Kaup Lífeyrissjóðs verslunaimanna á hlutabréfum:
Trúum að Út-
vegsbankinn
muni skila arði
segir Þorgeir Eyjólfsson framkvæmdastjóri
„Okkar meginmarkmið er arðsemi
og það gildir um þetta mál sem önn-
ur,“ sagði Þorgeir Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verslunar-
manna, í samtali við DV í gær en
Lífeyrissjóður verslunarmanna bauð
60 milljónir króna í hlutabréf Útvegs-
bankans.
Þorgeir var spurður hvort stjóm
sjóðsins væri ekki hikandi við að verja
sem nemur 5% af ráðstöfunarfé sjóðs-
ins í ár til þessa fyrirtækis.
„Við erum allsendis óbangnir við
það. Þama verða bankaleg sjónarmið
eflaust höfð að leiðarljósi. Síðan verð-
ur bankinn að minnsta kosti samein-
aður Iðnaðarbankanum og því fylgir
mjög mikil rekstrarleg hagkvæmni."
Lífeyrissjóður verslunarmanna á um
8% hlutafjár í Verzlunarbanka ís-
lands, 2% i Iðnaðarbankanum, 3% í
Eimskip og auk þess hluti í Tollvöm-
geymslunni, Fjárfestingarfélaginu,
Þróunarfélaginu óg Frumkvæði. Þá
átti sjóðurinn nokkum hlut í Hafekip.
„Við reiknuðum út arðsemi þessa
hlutafjár í heild fyrir sjóðinn og hún
var mjög góð. Þannig að menn átti sig
á stærðarhlutföllunum get ég bent á
að við síðustu áramót var aðeins um
1% af heildareignum sjóðsins bundið
í hlutabréfum," sagði Þorgeir.
Hrafn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Sambands almennra lífeyris-
sjóða, sagði i samtali við DV í gær að
mjög óalgengt væri að lífeyrissjóðir
keyptu hlutafé. „Við höfum talið þetta
allt of áhættusama fjárfestingu og
aðrar leiðir betri við að ávaxta fé sjóð-
anna.“
-ES
Tvö Islandsmet
í Strasbourg
Jcm K. Sigurðssan, DV, Strasbourg;
Tvö íslandsmet vom sett á EM í sundi
hér í gær. Magnús Ólafsson setti met
í 400 m skriðsundi, synti á 4:05,76 mín.
Arnþór Ragnarsson setti met í 200 m
bringusundi. Hann synti vegalengdina
á 2:27,32 mín. Magnús og Amþór ko-
must ekki áfram. Alls hafa verið sett
fimm íslandsmet á EM.
-sos
Laugalæk 2, sími 686511.
OPIÐ
kl. 7.00-16.00 laugardaga
Frábær sumarauki
8 daga ferð til
Mallorka
"I-.
.2
U)
Vegna mikillar eftirspurnar og fádæma vinsælda
höfum við ákveðið að bjóða 8 daga sumarauka á
Mallorka þann 3. til 10. nóvember næstkomandi.
Gist verður á „klassa" íbúðarhótelunum okkar,
Royal Magaluf og Royal Playa de Palma.
Verðið slær allt út eða aðeins frá kr. 15.900,-
á mann
(fjórir saman í íbúð.)
Tryggið ykkur sæti í tíma því þessi ferð selst upp
á nokkrum dögum.
íuchmth:
O
HALLVEIGARSTIG 1,
SIMAR 28388
mammmm
28580
Umboð á islandi fyrir
DINERS CLUB
INTERNATIONAL