Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGOLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 550 kr. Verð í lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Hægarí hagvöxtur Aukning framleiðslunnar eða hagvöxturinn svo- nefndi eru undirstaða lífskjara okkar. Ný ríkisstjórn er setzt að völdum. Landsmenn spyrja: Hvert verður framhaldið? Góðæri síðustu ára stafaði að miklu leyti af því, að olíuverð lækkaði og verð á fiski okkar erlend- is hækkaði vel. Auk þess var afli mikill. En nú segja spekingarnir okkur, að dragi úr góðærinu. Verzlunarráð hefur nýverið gert úttekt á stefnu ríkisstjórnarinnar og fyrstu aðgerðum hennar. Þar sést, að átök eru lík- leg. Úttektin sýnir, að góðærið kann að verða enda- sleppt. Verzlunarráð leggur áherzlu á, að hagvöxtur og sparnaður verði að vera það, sem við byggjum á næstu ár. Þá þurfa stjórnvöld að skapa skilyrðin, svo að vel gangi. Nú skrifar dr. Þorvaldur Gylfason prófessor at- hyglisverða grein í síðasta hefti vikuritsins Vísbending. Hann telur líklegt, að hægari hagvöxtur sé framundan. Árin 1961-80 var hagvöxtur mjög mikill hér á landi miðað við önnur lönd. Þjóðarframleiðslan óx í raun um næstum fimm prósent á ári að meðaltali þessi tuttugu ár. En mjög hefur hægt á hagvexti síðan 1981. Fram- leiðslan óx aðeins um liðlega eitt prósent á ári að meðaltali milli 1981 og 1986, eða svipað og fólksfjöld- inn, svo að framleiðsla á mann stóð nokkurn veginn í stað. Þetta þýddi meðal annars mjög aukna skulda- byrði. Við lifðum um efni fram og jukum lánin erlendis. Erlendar skuldir urðu miklu þungbærari á þessum ára- tug en hinum næsta á undan vegna minni hagvaxtar. Nefnum nokkur dæmi um orsakir aukins hagvaxtar á fyrri áratugnum. Þar veldur miklu, hve konur komu í vaxandi mæli út á vinnumarkaðinn. Mannaflinn óx þannig. Líklegt er, að afnám stórra þátta haftakerfisins hafi aukið hagvöxt. Þá þrefaldaðist orkuframleiðsla landsins á sjöunda áratugnum. Útfærsla landhelginnar réð miklu um vöxt framleiðslunnar. Dr. Þorvaldur seg- ir, að álykta megi, að hagvöxturinn hefði gjarnan getað orðið meiri en fimm prósent á ári þennan gjöfula ára- tug, 1971-80, hefði verðbólgan ekki hamlað honum. Slævandi áhrif verðbólgunnar á framleiðsluna hafi að líkindum látið á sér kræla. Hvað er framundan? Af þessu má skilja, hvers vegna hægt hefur svo mjög á hagvexti á yfirstandandi áratug þrátt fyrir góðærið 1984-86. Atvinnuþátttaka kvenna hefur aukizt miklu hægar en áður. Ekki er líklegt, að hún vaxi mikið úr þessu. Raunverulegt aflaverðmæti hefur vaxið minna en áratuginn á undan. Aflasamdrátt- ur kann að verða næstu ár. Ekki verður til lengdar stætt á að skella skollaeyrum við tillögum fiskifræðinga um aflamörk. Raforkuvinnsla hefur aukizt mun hægar en áður. Ekki er þar búizt við örari vexti hin næstu ár. Enn má bæta við, að sennilega er verðbólgan að nýju að fara úr böndum. Yfirlit dr. Þorvalds sýnir, hvernig verðbólga dregur úr hagvexti. Ríkisstjórnin gæti þó enn skapað skilyrði til hagvaxtar með því að auka frjálsræði á markaðnum og leggja af þau höft, sem enn standa hagvexti fyrir þrifum. Það hefur stjórnin heitið að gera. í úttekt Verzlunarráðs voru vonir bundn- ar við þau loforð. Þótt draga kunni úr hagvexti í bráð og landsmenn lendi í nokkrum vanda við varðveizlu lífskjara, getur ástandið batnað að nýju. , Landið er auðugt. Þekkingu fleygir fram. Ekki er vonlaust, að landsfeður taki upp betri búskaparhætti. Haukur Helgason Brigitte Bardot komst að því að það væri „barbarí" að drepa sel. íslensk menn- ing og hvalir Menning Egypta var akuiyrkju- menning, Lappar eru hirðingjar, eskimóar eru veiðimenn. I mann- kynssögu standa oft setningar sem þessar og eru fullgildar skilgreining- ar á því að lífsviðhorf viðkomandi þjóða taka mið af þeirri staðreynd að þar ræður menning sem kennd er við akuryrkju, veiðar eða hjarð- mennsku. Til hvers lærum við sögu? Líklega er hún sú mannfræði sem við þurfum til að átta okkur á því hver við er- um. Hvað erum við íslendingar? Erum við akuryrkjuþjóð, hirðingjar eða veiðimenn? Sú þjóð, sem byggir afkomu sína að þrem fjórðu á veiði- mennsku, hlýtur að kallast veiði- menn. Eini tilgangur sjálfstæðis- baráttu okkar er sá að viðhalda þessari menningu. Menning fær útrás í tilraunum manna til að snerta aðra með þeim hætti að eftir verði tekið. Það gildir einu hvort um er að ræða ritstörf, tónsmíðar, myndverkun eða túlkun ó verkum annarra. Samhengið milli listanna og ann- arra þátta mannlífsins er oft óljóst en þó líklegra órjúfanlegt. Ekki fær maður t.d. með neinu móti séð sam- hengi milli þess hugljúfa andblæs, sem ríkir í myndum frönsku im- pressionistanna, og þess grimmilega blóðbaðs sem háð var á götum París- ar í byrjun 19. aldar. Samt er það víst að impressionism- inn gat ekki orðið annars staðar til en með því fólki sem sprottið var í því sama menningartúni og fyrstu lýðræðisríkin festu rætur í. Eins og grösin raða sér á heiðina eftir gerð og ástandi jarðvegs er okkar menningarspretta í beinu samhengi við þá staðreynd að við erum veiðimannaþjóð að mestu en annars hjarðmenn með fasta búsetu. Islenskum stjómmálamönnum ber einfaldlega skylda til að varðveita þennan menningargrunn eða að öðr- um kosti gera glögga grein fyrir skoðunum sínum á því hvaða at- vinnuvegir skuli móta menningu okkar. Á sjöunda áratugnum bjó mikil bjartsýni með mönnum um að auka mætti fjcjlbreytni atvinnulífs með iðnaði og losna þannig við þær sveiflur sem veiðimennsku fylgja. Þær vonir, sem menn bundu við álver o.fl., urðu ef til vill til þess að menn uggðu ekki að sér þegar Bri- gitte Bardot komst að því að það væri „barbarí" að drepa sel. Þess utan vorum við ef til vill viðkvæm- ari fyrir þvi þá en nú að vera kallaðir barbarar. Hvað sem olli þá sváfum við á verðinum og létum stela frá okkur í talfæri Stefán Benediktsson arðbærri veiðimennsku sem hafði verið okkur frá alda öðli lífsbjörg og tekjulind. Peningamir, sem áður runnu í vasa veiðimanna og bænda á heim- skautaslóðum, runnu nú i vasa umhverfisvemdarfólks sem kenndi sig við grænan fríð og flaug í þotum milli heimsálfa til að bjarga heim- inum undan villimönnum sem drepa stóreyga seli og brosandi hvali sér til framdráttar. Stöku heimamaður flaug með þessu fína fólki og tók undir þá fal- legu „sófalísfylu" að það er ljótt að drepa dýr eða hvað? Menn spurðu ekki nógu hátt þá hvort hér væri verið að eyðileggja nýtilega auðlind manna sem urðu þá og munu alltaf verða að byggja afkomu sína á veiðum úr sjó. Menn spurðu ekki nógu hátt þá hvaða afleiðingar veiðibann hefði á afkomu selsins og viðkomu hans. Fullvaxinn selur étur 40 sinnum meira af fiski en menn þeirra þjóða sem hvað mest neyta fisks. Það er spuming um 1000 kg á móti 25 kg. Grænfriðungar hirtu auðvitað ekki um að koma á norðurslóðir og kanna aðstæður fólks og dýra fyrr en eftir að allt var um garð gengið. Byltingaröflum hægindastólanna var bmgðið þegar þeim urðu ljósar afleiðingar gerða sinna, t.d. í Grænl- andi og Kanada. Það er hægt að afbera það að menn missi afkomu sína af völdum óviðráðanlegra afla náttúrunnar en það er niðurlægjandi að missa hana vegna duttlunga fólks sem af þekk- ingarskorti vinnur skaðræðisverk í „góðri trú“. Grænfriðungar reyndu að bæta um betur og sögðu að auðvitað mættu menn drepa sel sér til matar en fólk, sem er komið á opinbert framfæri vegna þess að það hefur misst at- vinnu sína, bætir hag sinn lítið þó það veiði sér til matar. Það kaupir einfaldlega viðurværi sitt fyrir fram- færsluna í súpermarkaðnum. Þá skiptu þeir úr sel yfir í hval og við meðtókum áróðurinn í fyrstu, gerðum ekki greinarmun á yfir- gengilegri rányrkju og veiðum þeirra sem kosta litlu öðm til en lík- amskröftum sínum. Við samþykktum líka bláeygir vís- indaveiðar og hugsanlegt veiðibann eftir 1990. Nú fyrst er það að renna upp fyrir mönnum að hér er e.t.v. annað og meira á ferðinni. Vísinda- veiðar Islendinga kunna að vera vafasamar í ljósi þeirra hagsmuna sem við verðum að beijast fyrir. Það er sýnilegt að þeir sem vilja banna okkur hvalveiðar stoppa ekki þar. I auglýsingum þeirra og áróðri kemur glöggt í ljós að þeir líta á ákvarðan- ir um nýtingu allra auðlinda hafsins sem sitt verkefni. Veiðimenn norðursins hafa síðan löngu bundist samtökum um sam- vinnu við skynsamlega nýtingu auðlinda sinna. Við erum fyllilega færir um að bera ábyrgð á vinnubrögðum okkar við veiðar og rannsóknir og við verð- um að stjóma veiðum okkar sjálfir því sjórinn er líf okkar. Af því að við erum veiðimenn er einasta leið okkar til að viðhalda mannréttindum eins og menntun, heilsugæslu og umönnun bama og gamalmenna sú að veiða meira en við neytum. Vegna aðstæðna á norðurslóð er vinnuafl nánast það eina „kapítal“ sem við höfum til að byggja upp at- vinnulíf. Náttúra norðurslóðar þyldi aldrei þá iðnvæðingu sem þyrfti til að koma í stað veiða. Menning á norðurslóðum byggist á veiðimennsku, þ.e. sjósókn og úr- vinnslu afla, og þessi menning mun gera það meðan hún varir. Þess vegna em öll brögð réttlætan- leg til að viðhalda hvalveiðum vegna þess að það em veiðar, og ekki bara okkar vegna heldur líka vegna bræðra okkar í austri og vestri. Ef við samþykkjum rétt utanað- komandi afla til að ákveða á hveiju við byggjum menningu okkar þá erum við að afsala okkur nýfengnu sjálfstæði okkar með svipuðum hætti og 1262. í stað forsjárhyggju nýlenduherranna kæmi forsjár- hyggja þotufólksins sem þvær samvisku sína með því að gera villi- menn að siðmenntuðu fólki. Stefán Benediktsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.