Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Side 12
12 LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987. Veitingahús Eldsteiking i Eldvagninum. „Ekki gefst timi til að spilla matnum með löngum eldunartíma." DV-mynd Brynjar Gauti Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús: Einfalt og öðruvísi í Eldvagni Allter pönnusteikt I Eldvagninum er notuð einföld matreiðsluformúla. Aðeins sjö að- alréttir, sennilega allir pönnu- steiktir, eru á seðlinum, hinir sömu dag eftir dag, árið út og inn. Kokk- urinn stendur inni í miðjum borðsal. 1 augsýn gesta pönnusteik- ir hann réttina á eldvagni, það er að segja voldugum og afskaplega göfugum prímus. Þetta er fljótlegt og þægilegt fyrir alla aðila. Einnig veitir það í hugann óljósum, en unaðslegum minningum úr göml- um útilegum fyrir daga úti- grillanna. Ennfremur minnir það á eldhöf sem fyrr á tímum þótti fínt að láta gjósa upp í matsölum góð- borgaralegra hótela. Annar helsti kostur þessarar teg- undar sýningar-matreiðslu er að hún gefur engum kokki tækifæri til að skilja matinn of lengi eftir á pönnunni. Hraðinn verður að vera svo mikill að ekki gefist tími til að spilla matnum með löngum eldun- artíma. Meðal annars vegna þessa kemur, að frátöldum sósum og súp- um, sómasamlegur matur úr því leikhúsi sem Eldvagninn er öðrum þræði. Auk þess getur kokkurinn líka verið ágætur út af fyrir sig. Á það reynir bara lítið, þegar þessi snjalla formúla er notuð. Hinn kosturinn er að opinber matreiðsla gerir sumum gestanna kleift að sjá hversu fallega eða illa útlítandi hráefnið er og hvaða kunnáttu og hreinlætis er gætt við eldun þess. Þetta gulltryggir eigin- lega, að vandað er til vals á hráefnum og reynt er að fara snyrtilega og kunnáttusamlega með það. Á leiksviði er óheppilegt að gera mistök og því eru þau ekki gerð í góðum leikhúsum. Fura í mörgum útgáfum Eldvagninn er dálítið sérstakur í útliti og verður tæpast kallaður stílhreinn. Einkenni hans er fura í ýmsum útgáfum. Fremst er mikið glerhús með grófri, hrásmíðaðri og ómálaðri furugrind og miklu af stórum pottaplöntum uppi um allt. Glerhúsið er nokkuð berangurslegt og kaldranalegt, af því að það kúr- ir í kjallara undir tröppunum niður að veitingahúsinu, andspænis voldugum bankavegg. Ekki virðist smíðinni vera endanlega lokið, þótt meira en ár sé liðið frá opnun, því að málningarbrún frá hliðarvegg nær hirðuleysislega út á grindina. Hið innra er smíðin vandaðri og því vandaðri sem neðar dregur í salnum. I loftinu er furupanill, í bitum og súlum hefluð eða spón- lögð fura og í skenkjum og borðum er límd fura. Tveir skenkir eða vinnupláss eru í litlum, 32 sæta salnum. Á hinum ytri er girnilegt brauðval hússins, að minnsta kosti þrjár tegundir. ■■■■■■■■■■■ 'l? H • Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið. Ennfremur minna forvitnilegar vínflöskur. Og loks skál með ís- bergi, er gegnir hér hlutverki hrásalats. Við innri skenkinn vinn- ur kokkurinn af miklum tilþrifum. Inni í þessum sal ferns konar furu er svo ljósblár litur í gólfi, stóla- sessum og stólbökum og bleikur í stólum, kertum og pappírsþurrk- um. Sums staðar eru múrsteins- veggir í húsinu, annars staðar ljósbleikir veggir. Koparpönnur og koparáhöld eru á innsta vegg og heljarlangt málverk á vegg þar við hliðina. Sumum kann að finnast traust- vekjandi að fá að sjá að þjónustu- fólkið við skenkinn getur skorið brauð, opnað vínflöskur og mokað isbergi upp úr salatskál. Verra var að þjónninn sá ekki matarleifar síðasta gests á borðinu sem ég sat við. Að öðru leyti var þjónustan í góðu lagi og þjóninn mundi til dæmis eftir því að bera gestum vatn og nýtt og heitara kaffi. Ostakaka var best Brokkálssúpa virðist vinsæl súpa dagsins. I bæði skiptin var hún venjuleg hveitisúpa með mauk- soðnu káli og í annað skiptið með þeyttum rjóma út á. Annars virðist mér samkvæmt biturri reynslu, að almennt hér á landi þýði orðalagið „rjómalöguð“ súpa , að um hveiti- súpu sé að ræða. Með súpunni fylgdi mikið af góðu brauði og smjör í smjörskál. Kalt laxasalat sem forréttur var borið fram í eftir- réttaglasi og minnti á eftirrétt, því að notuð voru jarðarber, bláber og kiwi til að gera réttinn litskrúðug- an. Laxinn var ekki þurr. Smálúða var ágætlega milt steikt, borin fram með vermútsteiktri blöndu af möndlum, papriku og blaðlauk, pönnusteiktri papriku í þremur litum, brokkáli og bakaðri kartöflu, svo og sterkri karrísósu úr hveiti. Piparsteik var afar meyr, hæfilega pipruð, borin fram með sterkri hveitisósu með piparkorn- um, smjörsteiktum gúrkum, mauksoðnum sveppum og létt- steiktu grænmeti. Allar sósur virtust bornar fram með skán og allir réttir með bakaðri kartöflu í álpappír og ísbergi, misjafnlega fersku. Ostakaka var mjög góð, borin fram með girnilegum ávöxtum ferskum, svo sem ananas, melónu, grapefruit og kiwi svo og þeyttum rjóma, sennilega besti réttur stað- arins. Sæmilegasta kaffi var borið fram með mintusúkkulaði. I hádeginu er ekki eldað við prí- mus. Þá er boðið ódýrt hlaðborð á 440 krónur, sem þýðir 500 krónur með kaffi. Á borðinu var hveitisúpa dagsins, margs konar fyrirmyndar- brauð, nokkrar tegundir af hráu grænmeti, nokkrir síldarréttir, pottréttur og ferskir ávextir, svo sem ananas og melóna. Þetta hlýt- ur að teljast hagkvæmt tilboð. Eldvagninn er ekki áberandi að utanverðu. Hætt er við að sumir sem sjá skiltið uppi við Laugaveg- inn, rambi niður tröppurnar beint inn í nágrannann Sombrero í stað þess að beygja í 180 gráður að ósjá- legum dyrum Eldvagnsins. Frekar ódýr staður Samt hefur staðurinn venjulega verið þétt setinn erlendum ferða- mönnum þegar ég hef komið þar. Virðist mér að einhverjir í ferða- þjónustu bendi fólki á staðinn, enda er hann fremur ódýr af vín- veitingahúsi að vera, raunar í lægsta verðflokki slíkra staða. En úrval borðvína er bæði fátæklegt og ómerkilegt. í heild finnst mér Eldvagninn hafa það umfram marga nýlega og nýja staði að hann hefur sinn sér- staka stíl, bæði í matreiðslu og útliti og á því fyllilega rétt á sér. Miðjuverð þriggja rétta máltíðar með kaffi er 1330 krónur. Jónas Kristjánsson Matseðillinn 170 Rjómalöguð súpa kvöldsins 310 Sveitapaté 280 Kalt laxasalat með sýrðum rjóma 380 Pönnusteiktir sniglar 350 Rækjuskál með þúsund eyja sósu 680 Blandaðir sjávarréttir 510 Pönnusteikt smálúða með hvítvínssósu 610 Smjörsteiktur lax með sjávarréttasósu 980 Nautapiparsteik með koníakssósu 790 Lambafilet með malíbúsósu 690 Eldsteiktar kjúklingabringur í barbeque 890 Heilsteikt nautafilet með frönskum kartöflum 310 Ostaterta með ferskum ávöxtum 280 Ferskur ananas með púrtvínsstaupi 365 Djúpsteiktur camembert með rifsberjahlaupi 190 Eplapæ með rjóma

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.