Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987.
Veitingahús
Eldsteiking i Eldvagninum. „Ekki gefst timi til að spilla matnum með löngum eldunartíma." DV-mynd Brynjar Gauti
Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús:
Einfalt og öðruvísi í Eldvagni
Allter pönnusteikt
I Eldvagninum er notuð einföld
matreiðsluformúla. Aðeins sjö að-
alréttir, sennilega allir pönnu-
steiktir, eru á seðlinum, hinir sömu
dag eftir dag, árið út og inn. Kokk-
urinn stendur inni í miðjum
borðsal. 1 augsýn gesta pönnusteik-
ir hann réttina á eldvagni, það er
að segja voldugum og afskaplega
göfugum prímus. Þetta er fljótlegt
og þægilegt fyrir alla aðila. Einnig
veitir það í hugann óljósum, en
unaðslegum minningum úr göml-
um útilegum fyrir daga úti-
grillanna. Ennfremur minnir það á
eldhöf sem fyrr á tímum þótti fínt
að láta gjósa upp í matsölum góð-
borgaralegra hótela.
Annar helsti kostur þessarar teg-
undar sýningar-matreiðslu er að
hún gefur engum kokki tækifæri
til að skilja matinn of lengi eftir á
pönnunni. Hraðinn verður að vera
svo mikill að ekki gefist tími til að
spilla matnum með löngum eldun-
artíma. Meðal annars vegna þessa
kemur, að frátöldum sósum og súp-
um, sómasamlegur matur úr því
leikhúsi sem Eldvagninn er öðrum
þræði. Auk þess getur kokkurinn
líka verið ágætur út af fyrir sig. Á
það reynir bara lítið, þegar þessi
snjalla formúla er notuð.
Hinn kosturinn er að opinber
matreiðsla gerir sumum gestanna
kleift að sjá hversu fallega eða illa
útlítandi hráefnið er og hvaða
kunnáttu og hreinlætis er gætt við
eldun þess. Þetta gulltryggir eigin-
lega, að vandað er til vals á
hráefnum og reynt er að fara
snyrtilega og kunnáttusamlega
með það. Á leiksviði er óheppilegt
að gera mistök og því eru þau ekki
gerð í góðum leikhúsum.
Fura í mörgum útgáfum
Eldvagninn er dálítið sérstakur í
útliti og verður tæpast kallaður
stílhreinn. Einkenni hans er fura í
ýmsum útgáfum. Fremst er mikið
glerhús með grófri, hrásmíðaðri og
ómálaðri furugrind og miklu af
stórum pottaplöntum uppi um allt.
Glerhúsið er nokkuð berangurslegt
og kaldranalegt, af því að það kúr-
ir í kjallara undir tröppunum niður
að veitingahúsinu, andspænis
voldugum bankavegg. Ekki virðist
smíðinni vera endanlega lokið, þótt
meira en ár sé liðið frá opnun, því
að málningarbrún frá hliðarvegg
nær hirðuleysislega út á grindina.
Hið innra er smíðin vandaðri og
því vandaðri sem neðar dregur í
salnum. I loftinu er furupanill, í
bitum og súlum hefluð eða spón-
lögð fura og í skenkjum og borðum
er límd fura.
Tveir skenkir eða vinnupláss eru
í litlum, 32 sæta salnum. Á hinum
ytri er girnilegt brauðval hússins,
að minnsta kosti þrjár tegundir.
■■■■■■■■■■■
'l?
H
•
Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið.
Ennfremur minna forvitnilegar
vínflöskur. Og loks skál með ís-
bergi, er gegnir hér hlutverki
hrásalats. Við innri skenkinn vinn-
ur kokkurinn af miklum tilþrifum.
Inni í þessum sal ferns konar furu
er svo ljósblár litur í gólfi, stóla-
sessum og stólbökum og bleikur í
stólum, kertum og pappírsþurrk-
um. Sums staðar eru múrsteins-
veggir í húsinu, annars staðar
ljósbleikir veggir. Koparpönnur og
koparáhöld eru á innsta vegg og
heljarlangt málverk á vegg þar við
hliðina.
Sumum kann að finnast traust-
vekjandi að fá að sjá að þjónustu-
fólkið við skenkinn getur skorið
brauð, opnað vínflöskur og mokað
isbergi upp úr salatskál. Verra var
að þjónninn sá ekki matarleifar
síðasta gests á borðinu sem ég sat
við. Að öðru leyti var þjónustan í
góðu lagi og þjóninn mundi til
dæmis eftir því að bera gestum
vatn og nýtt og heitara kaffi.
Ostakaka var best
Brokkálssúpa virðist vinsæl súpa
dagsins. I bæði skiptin var hún
venjuleg hveitisúpa með mauk-
soðnu káli og í annað skiptið með
þeyttum rjóma út á. Annars virðist
mér samkvæmt biturri reynslu, að
almennt hér á landi þýði orðalagið
„rjómalöguð“ súpa , að um hveiti-
súpu sé að ræða. Með súpunni
fylgdi mikið af góðu brauði og
smjör í smjörskál. Kalt laxasalat
sem forréttur var borið fram í eftir-
réttaglasi og minnti á eftirrétt, því
að notuð voru jarðarber, bláber og
kiwi til að gera réttinn litskrúðug-
an. Laxinn var ekki þurr.
Smálúða var ágætlega milt steikt,
borin fram með vermútsteiktri
blöndu af möndlum, papriku og
blaðlauk, pönnusteiktri papriku í
þremur litum, brokkáli og bakaðri
kartöflu, svo og sterkri karrísósu
úr hveiti. Piparsteik var afar meyr,
hæfilega pipruð, borin fram með
sterkri hveitisósu með piparkorn-
um, smjörsteiktum gúrkum,
mauksoðnum sveppum og létt-
steiktu grænmeti. Allar sósur
virtust bornar fram með skán og
allir réttir með bakaðri kartöflu í
álpappír og ísbergi, misjafnlega
fersku.
Ostakaka var mjög góð, borin
fram með girnilegum ávöxtum
ferskum, svo sem ananas, melónu,
grapefruit og kiwi svo og þeyttum
rjóma, sennilega besti réttur stað-
arins. Sæmilegasta kaffi var borið
fram með mintusúkkulaði.
I hádeginu er ekki eldað við prí-
mus. Þá er boðið ódýrt hlaðborð á
440 krónur, sem þýðir 500 krónur
með kaffi. Á borðinu var hveitisúpa
dagsins, margs konar fyrirmyndar-
brauð, nokkrar tegundir af hráu
grænmeti, nokkrir síldarréttir,
pottréttur og ferskir ávextir, svo
sem ananas og melóna. Þetta hlýt-
ur að teljast hagkvæmt tilboð.
Eldvagninn er ekki áberandi að
utanverðu. Hætt er við að sumir
sem sjá skiltið uppi við Laugaveg-
inn, rambi niður tröppurnar beint
inn í nágrannann Sombrero í stað
þess að beygja í 180 gráður að ósjá-
legum dyrum Eldvagnsins.
Frekar ódýr staður
Samt hefur staðurinn venjulega
verið þétt setinn erlendum ferða-
mönnum þegar ég hef komið þar.
Virðist mér að einhverjir í ferða-
þjónustu bendi fólki á staðinn,
enda er hann fremur ódýr af vín-
veitingahúsi að vera, raunar í
lægsta verðflokki slíkra staða. En
úrval borðvína er bæði fátæklegt
og ómerkilegt.
í heild finnst mér Eldvagninn
hafa það umfram marga nýlega og
nýja staði að hann hefur sinn sér-
staka stíl, bæði í matreiðslu og
útliti og á því fyllilega rétt á sér.
Miðjuverð þriggja rétta máltíðar
með kaffi er 1330 krónur.
Jónas Kristjánsson
Matseðillinn
170 Rjómalöguð súpa kvöldsins
310 Sveitapaté
280 Kalt laxasalat með sýrðum rjóma
380 Pönnusteiktir sniglar
350 Rækjuskál með þúsund eyja sósu
680 Blandaðir sjávarréttir
510 Pönnusteikt smálúða með hvítvínssósu
610 Smjörsteiktur lax með sjávarréttasósu
980 Nautapiparsteik með koníakssósu
790 Lambafilet með malíbúsósu
690 Eldsteiktar kjúklingabringur í barbeque
890 Heilsteikt nautafilet með frönskum kartöflum
310 Ostaterta með ferskum ávöxtum
280 Ferskur ananas með púrtvínsstaupi
365 Djúpsteiktur camembert með rifsberjahlaupi
190 Eplapæ með rjóma