Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987.
15
Umm (rábært að fá svona konfekt
hérna. Sniðugt að hafa konfekt
svona handa fólki. • Þær voru
sannarlega ánægðar að komast i
nammið.
Uppákoma
Nei, konfekt, en æðislegt. Best að fá sér einn... Hún var ekkert að tví-
nóna við hlutina og lét ekki svona gotteri fram hjá sér fara.
Ætli maður megi fá sér einn mola? Konan lítur á stúlkurnar og veit
sjálfsagt ekki sitt rjúkandi ráð. „Ég hef ekki hugmynd um hver á þetta.
Ætli þetta sé ekki bara fyrir alla,“ gæti hún hafa svarað.
Kringlan er nýopnuð og hvað væri að því þó einhverjum dytti í hug
að bjóða konfekt. Á staðnum er konfektbúð Nóa og Siríus og ekkert
væri athugavert þó þeim dytti í hug að setja Nóa konfektkassa um
húsið handa gestum og gangandi. Eða hvað?
Enn á ný datt það í okkur á helgarblaðinu að bregða á leik. Nú var
hugmyndin að nýta Kringluna og nýja konfektbúð. Við fengum að
þessu sinni þá hugmynd að setja Nóa-konfektkassa á bekk á efri hæð
hússins og ætlunin var að sjá hvort gestir um húsið myndu þora að
fá sér mola úr kassanum. Fyrst um sinn biðum við átekta á góðum
felustað og horfðum á marga líta konfektið girndaraugum. Enginn
þorði að taka mola. Kona nokkur settist á bekkinn leit á kassann
með undrunarsvip og tók upp DV og fór að lesa. Á meðan gengu vegfa-
rendur um og störðu á konuna með kassann við hlið sér. Konan stóð
upp og fór og fullorðin kona settist. Hún var búin að sitja drykklanga
stund og sjálfsagt hafa margir haldið að þessi eldri kona hefði keypt
sér konfektkassa og biði nú eftir einhverjum sem hún þekkti...
Kassinn var ósnertur og við vorum farin að örvænta. Við báðum þá
strákgutta að fá sér einn mola úr kassanum. Hann gerði það og eftir
að hann hafði fengið sér mola var ekki að sökum að spyija fleiri komu
á eftir. Sumir fengu sér meira að segja fleiri en einn. Þetta var allt í
gamni gert og við mynduðum saklaus fórnalömbin sem sjálfsagt hafa
haldið að kassinn væri þarna uppstilltur fyrir gesti hússins - hann var
það að vísu en engu að síður smá hrekkjarbragð DV.
-ELA
Vá maður, konfekt hérna. Strákarnir voru
ófeimnir að krækja sér í mola en eitthvað
gæti konan verið að segja við þá. „Eruð
þið vissir um að þið megið þetta...?
m
m
...Og tvær konur settust. Þeim leist strax vel á kassann og fengu sér mola
enda var nú svo komið að efri helmingurinn úr kassanum var búinn og
búið að fjarlægja tóma hlutann og nú blasti við heil hæð af fallegum kon-
fektmolum...
Nei, hvað er að sjá - konfekt i
boði. Þau hjónin fengu sér mola
og strákurinn sem áður hafði verið
að sniglast í kringum bekkinn góða
starði á þau. Konan lætur sér ekk-
ert bregða enda eru margir búnir
að fá sér mola og sumir fleiri en
einn...
Fáðu þér mola elskan, sagði hún og síðan settu þær kassann
á milli sin. Nú var blaöamaður DV farinn að örvænta um
kassann og lallaði því til kvennanna og spurði hvort þær
hefðu nokkuð séð konfektkassa....ó guð, það er fullt að fólki
búið að fá sér úr kassanum, sagði önnur kvennanna skelfingu
lostin. Blaðamaður sagði það allt i lagi, tók kassann og gekk
burt án þess að skýra málið. Aumingja konurnar voru i öngum
sinum og ekki siöur strákurinn til vinstri á myndinni sem
hafði haft fyrir því að sniglast í kringum kassann á annan tima.
Fremst á myndinni er sigri hrósandi illkvittinn blaðamaðurinn
með nokkra mola i konfektkassa. En eins og við segjum þá
var leikurinn gerður til að grinast pínulitið og leikurinn hefði
ekkert orðið skemmtilegur ef enginn hefði fengið sér mola.
Viö vonum bara að molarnir hafi smakkast vel og enginn taki
þessu öðruvisi en sem gríni. DV-myndir Brynjar Gauti
Ég get svo sem alveg fengið mér mola eins og hinir, hefur frúin hugsað
með sér og nældi sér i einn. Skömmu síðar yfirgaf hún bekkinn og...