Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Síða 17
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987. 17 Draumaíbúð Hófíar í Laugardalshöll: - segir Hólmfríður um innkaupin í íbúðina „Þetta er bæði búið að vera skemmti- legt og erfitt,“ sagði Hólmfríður Karlsdóttir er hún var spurð hvemig það væri að koma upp heilli drauma- íhúð í Laugardalshöll. „Ég var beðin um þetta um mánaðamótin mars/ apríl og siðan hef ég verið að hugsa um íbúðina." Á fimmtudaginn kemur verður opnuð í Laugardalshöll árleg heimil- issýning. Þar munu á annað hundrað fyrirtæki sýna vörur sínar til heimil- ishalds. Það sem einkennir þessa sýningu fram yfir annað er draumaíbúð Hóf- íar. Hún er á tveimur pöllum, alls um tvö hundruð fermetrar. Allt sem þarf að vera á heimili hefur Hófí valið og þeir sem leggja leið sína í verið erfitt. Það sem mér hefur þótt erfiðast er hversu tímafrekt það er að fara milli verslana. Ég er í fullu starfi og þarf að gera þetta fyrir utan minn vinnutíma.“ - Er draumaíbúðin svipuð þinni eigin íbúð? „Nei, hún er kannski ekki lík en það eru ýmsir hlutir þar alveg eins og ég á sjálf. “ - Á fólk að hafa það á tilfinning- unni er það skoðar draumaíbúðina að það sé að heimsækja þig? „Já, nema það vantar fólkið," svar- aði Hólmfríður. - Verður þú ekki í íbúðinni á sýn- ingunni? „Ég verð eitthvað en ekki nærri alltaf,“ sagði Hólmfríður og brosti sínu fallega brosi. Guðmundur Jónsson er einn af framkvæmdaaðilum sýningarinnar. Hann sagði að þessi sýning yrði íburðarmeiri en sýningin í fyrra. Þama verður mikið af heimilistækj- um, innréttingum, raftækjum og húsgögnum." - Nú talaði fólk um í fyrra að heim- ilissýningin stæði ekki undir nafni þar sem minnstur hluti hennar væri tengdur heimilinu? „Það er rétt enda getum við sagt að nú sé blaðinu snúið við. Á þessari sýningu er nefnilega mjög fjölbreytt úrval alls kyns hluta fyrir heimilið." - Hvað um skemmtiatriði? „Við verðum með mjög glæsilega leysigeislasýningu, sýningu á heims- mælikvarða sem erlendir listamenn sjá um. Það er erfitt að lýsa slíkri sýningu en það er ótrúlegt hvað menn geta gert með leysigeislanum. Þeir hafa haldið sýningar víða um heim, til dæmis í Ríó,“ sagði Guð- mundur Jónsson. Heimilissýningin stendur yfir frá 27. ágúst til 6. september. -ELA Hólmfríður Karlsdóttir hefur i nogu að snúast þessa dagana fyrir utan að passa börnin. Hún hefur tekið að sér að velja alla innanstokks- muni i tvö hundruð fermetra íbúð i Laugardalshöllinni. DV-mynd Gunnar V. Andrésson höllina eiga að geta séð hvernig draumaheimili hennar lítur út. „I júní voru teikningar að íbúðinni tilbúnar og þá fór ég að ganga á milli verslana og kanna hvað væri á boðstólum. Ég leitaði meira að segja í símaskránni svo ég myndi nú engri verslun gleyma," sagði Hófí. „Mjög margir hafa líka haft sam- band við mig og sýnt áhuga á íbúðinni. Ég versla ekkert frekar í einni verslun en annarri enda er um svo marga hluti að ræða.“ - Hefur verið erfitt að finna hluti sem þig langar í? „Nei, alls ekki. Það er einmitt svo margt fallegt til að það hefur ekki TOYOTA -1988- í ÁGÚST TOYOTA ER AD KOMA FULLKOMNARI & FALLEGRI EN NOKKRU SINNI FYRR „Bæði erfitt og skemmtilegt“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.