Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Side 18
18 LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987. Ragnar Örn Pétursson brosir þegar hann er kallaður Ólafur Laufdal Suðumesja. „Nei, ég get ekki fallist á þessa samlíkingu,“ segir hann. Samt er það svo að hann er orðinn umsvifamikill í veitingarekstri á Suðurnesjum og nú í vikunni færði hann enn út kvíarnar. Þá samdi hann við Flugleiðir um að annast allan veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fyrir rekur hann danshúsið Glaumberg í Keflavík og veitingastaðinn Sjávargullið. Ragnar Órn viðurkennir þó að umsvifin verði orðin töluvert mikil þegar reksturinn í flugstöðinni verð- ur að fullu hafinn. Hann reiknar þá með að hafa 90 manns í vinnu í allt. Áður voru um 50 manns á launaskrá hjá honum. Stórt stökk „Þetta er gífurleg aukning á rekstri hjá mér,“ segir Ragnar, „ekki síst vegna þess að flug er ekki bundið við ákveðinn afgreiðslutíma heldur kostar þetta 20 til 24 tíma vinnu á staðinn áður en ég opnaði. Ég fékk hundrað tillögur að nöfnum en fannst ekkert þeirra passa þegar ég fór að skoða þau. Það er oft þannig með nöfn að þau virðast ekki hljóma vel fyrr en farið er að nota þau. Glaumberg var eitt af þessum nöfnum cem ég hafnaði í fyrstu en ákvað svo að nota.“ - Valdir þú Starlight í fyrstu til að lokka Kanann að? „Nei, ég var ekkert að hugsa um slíkt." Lærði á Borginni Ragnar Öm er lærður þjónn og útskrifaðist árið 1974 og hefur starf- að í greininni alla tíð síðan. „Ég byrjaði að læra á Hótel Borg árið 1971,“ segir Ragnar. „Mér þótti þetta spennandi starf. Ég var að vísu ekki nema 17 ára þegar ég byrjaði. Ég og félagi minn, Guðjón Egilsson, sem nú rekur Naustið, vorum síðustu nemarnir sem útskrifuðust í hinum hefðbundnu hvítu jökkum sem allir þjónsnemar útskrifuðust í. Við ætt- um því að komast í einhverjar bækur ef einhvern tímann verður skrifað um þjóna hér. „Ja, kokkteilar eru nú ekki mínir uppáhaldsdrykkir en ég kem þeim niður. Það er ekki hægt að neita því.“ Bíósjúkur Þótt Ragnar telji sig nú til Suður- nesjamanna þá er hann Reykvíking- ur og segist einu sinni hafa átt Austurbæjarbíó fyrir annað heimili. Áður en bíóið var selt var það að hluta í eigu íjölskyldu Ragnars og rekið af föðurbróður hans. „Afi minn, Kristján Þorgrímsson frá Laugarnesi, stofnaði og byggði bíóið ásamt Ólafi bróður sínum,“ segir Ragnar. „Faðir minn var sýninga- stjóri þar í mörg ár. Ég fór að vinna þar strax og ég hafði aldur til að rífa af miðum fólksins. Ég kom með mitt, eigið vasaljós á myndir með Roy Rogers og hjálpaði stelpunum að vísa til sætis. Það má því nærri geta að ég var þama tíður gestur. Einu sinni sá ég sömu myndina 24 sinnum. Það er metið hjá mér. Það má sjá af þessu að ég var eiginlega bíósjúkur á þess- um árum. Bróðir minn er lærður sýninga- að selja það. Ég tel að þarna hefði verið hægt að gera ágæta hluti ef tímanlega hefði verið farið í það, án þess þó að ég sé að segja að það hafi endilega verið vitlaust að selja.“ Að missa ekki niður um sig - Nú er kaupandinn, Árni Samúels- son, Suðurnesjamaður en þú ert Reykvíkingur að hasla þér völl á Suðumesjum þannig að segja má að þið hafið snúið hlutverkunum við: „Ég vil nú ekki segja að ég sé að gerast kóngur hér á Suðurnesjum. Ég held að það sé ofsögum sagt. Þótt menn eignist eitt og annað og taki að sér rekstur á hinu og þessu þá er engin vissa fyrir að það gangi allt upp. Menn hafa verið með mikið umleikis í veitingarekstrinum um tíma en verið svo með allt niður um sig áður en varði. Sumum tekst þetta vissulega eins og komið hefur á dag- inn. En það er ekkert kappsmál hjá mér að vera með einokunarstarfsemi í veitingarekstri á Suðurnesjum." - Nú er þetta verulegur rekstur sem þú hefur á þinni könnu. Ertu alveg hættur að þjóna sjálfur á barnum? Vonin er auðvitað að þessi vinna skili sér í því að maður geti sjálfur slakað á þegar búið er að byggja reksturinn upp. Stefnan núna er að láta þetta kom- ast á rekspöl og reyna að byggja upp hið þokkalegasta fyrirtæki. Þetta er ekki bara minn hagur heldur allra Suðurnesjamanna. Glaumberg er eina danshúsið með vínveitingaleyfi á Suðurnesjum og þjónar 14 þúsund manna byggð. Það hefur mjög tíðk- ast að Suðurnesjamenn fari inn til Reykjavíkur að skemmta sér. Nú er stefnan að snúa því við og leggja hina akbrautina á Reykjanesbraut- ina.“ í beinni útsendingu - Nú þekkja flestir þig sem íþrótta- fréttamann. Hvernig stóð á því að þú réðst í það starf? „Ja, þetta er svolítið skondin saga. Ég byijaði sem afleysingamaður á Vísi og var þar sem sumarmaður fyr- ir Kjartan L. Pálsson. Eftir það bauðst mér starf á Tímanum og var ég þar á annað ár. Síðan hætti ég þar og kom ekki nálægt þessu um tíma. Ekki kóngur á Suðumesjum Ragnar Örn Pétursson veitingamaður með meiru í helgarviðtali sólarhring yfir mesta annatímann. Síðan er það eilítið minna á veturna. Það er heldur engin verslunar- mannahelgi eða neitt slíkt þegar hægt er að loka.“ Ekki vill Ragnar þó kannast við að hann verði vellauðugur á þessum umsvifum. „Hinu verður þó ,ekki neitað að þetta styrkir reksturinn hjá mér,“ segir hann og lætur það duga um afraksturinn. Flestir þekkja Ragnar Örn sem íþróttafréttamann hjá Ríkisútvarp- inu þctt hann hafi horfið af þeim vettvangi fyrir nokkru. Hann hóf veitingareksturinn í Keflavík árið 1983. Þá byrjaði hann með staðinn sem nú heitir Glaumberg en var áður rekinn undir nafninu KK og kenndur við Karlakór Keflavíkur. Þegar Ragnar byijaði gaf hann staðnum nafnið Starlight og hlaut ákúrur fyrir að velja honum erlent nafn. „Þetta nafn hlaut óblíðar mót- tökur,“ segir Ragnar. „Nú, ég varð mjög vinsæll þegar ég breytti nafn- inu í Glaumberg en óvinsæll áður. Það má eiginlega segja að það hafi verið fljótræði að velja þetta erlenda nafn. Ég var með hugmyndasam- keppni um nafnið í staðarblaði hér í Keflavík og óskaði eftir nöfnum á Ég gekk í barþjónaklúbbinn árið 1976 og varð þar fullgildur meðlimur tveimur árum síðar og byrjaði þá að taka þátt í mótum í blöndun hana- stéla. Mér gekk svona þokkalega framan af þótt mér hafi gengið ansi erfiðlega að verða Islandsmeistari. Ég var búinn að ná öðru og þriðja sæti hér heima og verða Norður- landameistari 1981 og 1982. Ég hafði einnig náð öðru sæti á heimsmeist- aramóti ungra barþjóna en það gekk erfiðlega að vinna hér heima. Það kom þó að því í fyrra og síðan aftur í vor. Nú stendur fyrir dyrum að keppa á heimsmeistaramóti í Róm í haust - og við hittum páfann í leiðinni. Ég hef tekið þátt í einni keppni á ári síðan 1978 þannig að ég er búinn að laga nokkuð marga kokkteila og fjórir þeirra hafa nægt mér til sig- urs.“ - Lítur þú á þetta sem íþrótt eða eitthvað annað? „Nei, það er nú varla hægt að kalla þetta íþrótt en það þarf að hugsa og leggja sig fram, að ógleymdu því að fylgjast með í greininni.“ - Éru þetta góðir drykkir sem þú hefur blandað? maður og starfar við það. Ég ætlaði að verða sýningamaður en var eigin- lega bannað það. Pabbi sagði þá að ég væri ekki nógu gamall og leiddi þetta hjá sér. Ég varð auðvitað alveg öskuillur þegar bróðir minn fór að læra þetta skömmu síðar þegar ég var byrjaður að læra til þjóns.“ - En lifið í bíóinu hefur leitt beint út í þjónsstarfið: „Jú, jú, þetta hefur sjálfsagt fylgst að. Það voru líka gullár hjá þjónum á þessum tíma og ég hafði auðvitað heyrt af því. Þar kom líka til að móðurætt mín er mikið tengd tón- list. Afi minni var Bjami Böðvarsson og Ragnar Bjarnason er móðurbróðir minn.“ - Er ekki eftirsjón í Austurbæjar- bíói? „Jú, ég fer ekkert ofan af því að ég tel að það hafi verið alröng stefna að selja það.“ - Þessi sala hefur ef til vill valdið deilum í ættinni: „Nei, það var nú reyndar ekki. Þetta var hlutafélag þótt stærstu hluthafamir séu í minni ætt. Amma mín átti þarna stóran hlut en hún skipti sér ekkert af rekstri bíósins. En við sem tengdumst bíóinu höfðum skiptar skoðanir um hvort rétt væri „Nei, ég er búinn að afgreiða hér á barnum síðan ég tók við honum 1. ágúst. Þetta hafa verið 18 til 20 tíma vaktir. Núna er ég að þjálfa upp starfsfólk á vaktirnar. Það er því aðeins farið að hægjast um en það tekur annað við. Við opnum veit- ingasalinn hér 1. september. Það verða 12 manns í vinnu og við erum að byrja að setja saman matseðil og gera klárt fyrir opnunina. Frekar en að skrifast á við konuna Konan mín, Sigríður Sigurðardótt- ir, hefur unnið með mér við rekstur- inn. Hún vinnur stundum meira en ég og hefur verið með á fullu frá byrjun. Það kom eiginlega ekkert annað til greina. Hún vann aldrei með mér þegar ég var í Reykjavík en það var annaðhvort að fá hana með eða skrifast á við hana. Ég er ekkert of mikið heima. Óneitanlega kemur svona vinna niður á heimilinu og krökkunum. Við eigum fjögur böm. Það elsta er 13 ára en það yngsta sjö. Ég held að ég sé búinn að lofa veiðitúr núna í þrjá mánuði en það hefur ekkert orð- ið af því. Þá gerðist það að Hermann Gunn- arsson var að fara í frí og ég var beðinn að leysa hann af á útvarpinu. Þetta bar frekar brátt að. Ég var þá að aðstoða Bjarna í Brauðbæ sem var að breyta hjá sér og taka inn vínveitingaleyfi. Það var hringt í mig upp á Brauðbæ. Ég var ekki við því að ég hafði skroppið niður i Skrif- stofuvélar að kaupa rúllur í af- greiðslukassann. Klukkan var hálfþrjú þegar Kári Jónasson, vara- fréttastjóri hjá útvarpinu, náði í mig hjá Skrifstofuvélum og spurði hvort ég gæti leyst Hermann af. Samúel Öm Erlingsson var þá í hálfu starfi hjá útvarpinu og það þurfti annan með honum. Ég sagðist ætla að kanna málið því ég þurfti að tala við Bjarna og fá mig lausan. Kári sagði að það yrði að gerast strax því að ég yrði helst að byrja þá um kvöldið. Nú, Bjarni gaf mér frí og ég hringdi í Kára klukkan fjögur og sagðist geta gert þetta. Hann bað mig að mæta eftir klukkutíma. Þegar ég kom á fréttastofuna var búið að úthluta mér fimm mínútna útsendingu í fréttunum klukkan sjö. Ég hafði auðvitað ekki hugmynd um hvað ég átti að gera. Ég vissi ekki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.