Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987.
23
Knattspyma unglinga
Valsmenn unnu
toppslaginn i D^nðli
- lögðu taplausa ÍR-inga að velli
Það var sannLallaður toppslagur
á roánudagskvöld þegar tvö efstu lið
B-riðils 2. ílokks, Valur og ÍR, leiddu
saroan hesta sína. Valsmenn sigr-
úðu, 2-0, í skemmtilegum leik og þar
með hefur Hlíðarendaliðið tryggt sér
sigur í riðlinum. Lið Vals er geysi-
lega sterkt og reyndar furða að liðið
skuli leika í B-riðli en til marks um
styrk liðsins þá eru V alsmenn komn-
ir í úrslit bikarsins og hfa slegið út
sterk iið úr A-riðli.
ÍR-ingar mættu til leiks taplausir
en mættu ofjörlum sínum að þessu
sinni. Það kom ekki á óvart þegar
Skúli Bgilsson skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir Val. Skúii er stórefrn-
legur leikmaður úr 3. flokki sem
hefru- tryggt sér fast sæti í 2. flokks
liðinu. Þrátt iyrir að nokkra faata-
menn vantaði í Valsiiðið þá hafði
hðið allmikla yfirburði gegn Breið-
hyltingum. Jón S. Helgason skoraði
annað mark Vals um miðjan síðari
hálfleik raeð góðu skoti eftir óbeina
aukaspymu. Valsmenn fengu síðan
möig fleiri marktækifæri efiir snilld-
arsendingar frá þeim Einari Tómas-
syní og Steinari Adólfssyni, bestu
mönnum Valsliðsins, en framher-
jamir vom ekki á skotskónum og
mörkin urðu ekki fleiri.
„Láðið hefúr leikið mjög vel í sum-
ar og breiddín í hópnum er mjög
raikil. Við lékum í kvöld án nok-
kurra fastamanna en það kom ekki
að sök. Tveir ieikraenn úr 3. flokki
léku með í þessum leik og stóðu sig
með prýði. Það verður spennandi að
sjá hðið í A-riðh næsta ár þegar við
leikum við sterkustu 2. flokks lið
landsins. Nú setjum við stefrmna
hins vegar á úrslitaleik bikarkeppn-
innar þar sem við mætum Víking-
um,“ sagði Hörður Hilmarsson,
þjálfari 2. flokks Vals, giaður í bragði
eftir leikinn, enda ánægður með sína
menn.
-RR
Fram-sigur
í Hæðargarði
Framarar lögðu Víkinga í 2. flokki
Umsjón:
Róbert Róbertsson
UTSALA
Höfum mikið magn af bílum sem við höfum sett
á útsöluna okkar.
Allt að 50% staðgreiðsluafsláttur.
Komið og skoðið. hvað við höfum upp á að bjóða.
Ýmisleg skipti koma til greina.
Fást einnig að hluta til eða allir á skuldabréfum.
DÆMI:
BMW 315 árg. 1981 - staðgreiðsluafsl. 23%
Mitsubishi Sapparo árg. 1981 - staðgreiðsluafsl. 20%
Mitsubishi Galant árg. 1982 - staðgreiðsluafsl. 25%
Saab 99 GLI árg. 1981 - staðgreiðsluafsl. 22%
Subaru 4x4 árg. 1981 - staðgreiðsluafsl. 27%
Subaru 4x4 árg. 1978 - staðgreiðsluafsl. 50%
Mikið af nýinnfluttum amerískum bílum á góðu verði.
Mitsubishi Lancer 4WD árg. 1987, ekinn aðeins
3.000 km, hvítur, með öllum útbúnaði.
Opið 10-19 alla daga nema sunnudaga.
ab
BILASALAN BUK
SKEIFUNNI 8, SÍMAR 686477, 687177, 687178 0G 686642
Framarar gerðu góða ferð í Hæðar-
garðinn á dögunum og sigruðu þar
Víkingspiltana í 2. flokki. Þegar upp
var staðið höfðu Framarar gert þrjú
mörk gegn einu marki Víkings. Sigur
Fram var mjög sanngjam og liðið lék
allan tímann mjög vel. Víkingar geta
leikið mun betur en í þessum leik en
liðið er komið í úrslitin í bikarkeppn-
inni og það var sem leikmenn liðsins
hefðu meiri áhuga á því.
Framarar byijuðu leikinn af krafti
og höfðu undirtökin allan fyrri hálf-
leik. Þórhallur Víkingsson skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir Fram og
skömmu síðar bætti Hlynur Jóhanns-
son öðru markinu við. útlitið var því
dökkt hjá Víkingum í hálfleik en þeir
komu tvíefldir til síðari hálfleiks og
voru óheppnir þegar Hafsteinn Arn-
arsson skaut þrumuskoti í stöng Fram
marksins. Það voru samt Framarar
sem skoruðu næsta mark eftir góða
sókn. Hlynur Jóhannson var aftur á
ferðinni og staðan orðin 3-0. Víkingar
náðu aðeins að rétta úr kútnum undir
lokin þegar Þórður Jónsson minnkaði
muninn með ágætu marki. Sigur
Framara var því í höfn og liðið heldur
enn í vonina að vinna Islandsmeistar-
artitilinn. Stjaman er enn einu stigi
fyrir ofan í stigatöflunni þegar aðeins
ein umferð er eftir.
Bestu menn Framara voru þeir Am-
ljótur Davíðsson og Þórhallur Vík-
ingsson en hjá Víkingum bar mest á
Úlfi Jónssyni.
-RR
Heyrðu, Gunni minn, eigum við ekki að spila fótbolta í dag
svona til tilbreytingar.
VELKOMINI
KRINGLUNA
KRINGLAN, verslunarmiðstöð í nýja miðbænum,
með 76 verslunar- og þjónustufyrirtæki,
opnar mánudaga-laugardaga kl. hálftíu.
KRINGLAN lokar mánudaga-fimmtudaga kl. sjö,
föstudaga kl. átta og laugardaga kl. fjögur.
Veistu að veitingastaðir KRINGLUNNAR eru opnir
fram undir mjðnætti alla daga vikunnar?