Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987. 31 Fólk í fréttum Einar Benediktsson Einar Benediktsson sendiherra hefur verið í fréttum DV vegna orð- sendingar frá Efnahagsbandalaginu um tollamál. Einar er fæddur 30. apríl 1931. Hann lauk BA-prófi í hagfræði frá Colgate Háskólanum í N.Y. í Banda- ríkjunum 1953, og MA-prófi frá Fletcher School of Law and Diplomacy Medford í Mass 1954. Hann var í íramhaldsnámi í hag- fræði í Englandi og Ítalíu 1954-1956. Einar var starfsmaður í hagdeild Framkvæmdabanka íslands 1955. Hann var fulltrúi í hagdeild og síðar í sjávarútvegsmáladeild Efhahagss- aiíivinnustofhunar Evrópu (OEEC) 1956-1960. Einar var deildarstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu 1960-1964 og skipaður deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu og sendi- ráðunautur við sendiráðið í París 1964-1968. Hann var deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu 1968-1970 og sendiherra gagnvart alþjóðastofnun- um í Genf 1970-76. Einar var sendi- herra í París 1976. Sendiherra í London 1982 og sendiherra í Brussel 1986 Kona Einars er Elsa Pétursdóttir, hafnarstarfsmanns í Rvík Pétursson- ar og konu hans, Jódísar Tómas- dóttur. Böm hans em: Trausti sagnfræð- ingur, Sigríður, myndlistamemi í Þýskalandi, Rristján, verkfræðinemi í Englandi, Einar Már, hagfræðing- ur hjá OECD í París, Pétur og Katrín, bæði í námi. Systkini Einars em Katrín Svala Daly, kona Fredrik R. Daly, komel í Bandaríkjaher, sem er látinn, Odd- ur, prófessor í tölvunarfræði, Val- gerður Þóra bókasafnsffæðingur, Ragnheiður Kristín kennari, gift Hauki Filippussyni tannlæknir. Foreldrar þeirra em Stefán Már Benediktsson, kaupmaður í Rvik, sem lést 1945 og kona hans, Sigríður Oddsdóttir. Föðinsystkini Einars vom Einar Valur, Margrét Svala, dó ung, Bene- dikt Öm, býr í Bandaríkjunum, Ragnheiður Erla, bjó í London, og Katrín Hrefna, dvelur á Elliheimil- _ inu á Kumbaravogi. Móðursystkini Einars em Gísli, togarasjómaður í Bretlandi, Stein- þór, verkamaður í Rvík, og Guðrún, kona Ásbergs Jóhannessonar kenn- ara, síðar gjaldkera á Reykjalundi. Faðir Einars, Stefán Már, er sonur Einars, skálds og sýslumanns á Stóra-Hofi á Rangárvöllum, Bene- diktssonar, yfirdómara og alþingis- manns, á Héðinshöfða Sveinssonar, prests á Mýrum í Álftaveri, Bene- diktssonar. Móðir Einars skálds var Katrín Einarsdóttir, umboðsmanns á Reynistað, Stefánssonar og konu hans, Ragnheiðar Benediktsdóttur Vídalín, systur Bjargar, ömmu Jóns Þorlákssonar forsætisráðherra og langömmu Sigurðar Nordal prófess- ors, föður Jóhannesar Nordal seðla- bankastjóra og ömmu Jóns Normanns, kaupmanns á Akureyri, afa Þuríðar Pálsdóttur ópemsöng- konu og langafa Katrínar Fjeldsted læknis. Föðuramma Einars, móðir Stefáns Más, var Valgerður Einarsdóttir Zoega, gestgjafa í Rvík, bróður Tóm- asar Zoega, langafa Geirs Hallgríms- sonar seðlabankastjóra og Jóhannesar Zoega, hitaveitustjóra í Rvík. Móðir Einars, Sigríður, er dóttir Odds, læknis á Miðhúsum í Reyk- hólasveit, Jónssonar, b. í Þórormst- ungu í Vatnsdal, Jónssonar. Móðir Sigríðar var Finnboga Ámadóttir, Einar Benediktsson sendiherra. b. í Kollabúðum í Reykhólasveit, Gunnlaugssonar, b. á Skerðingsstöð- um, Ólafssonar. Móðir Gunnlaugs var Þorbjörg Aradóttir, systir Sigríð- ar, ömmu Matthíasar Jochumssonar skálds og Guðrúnar, langömmu Ás- laugar, móður Geirs Hallgrímssonar. AEmæli Anna Guðmundsdóttir Anna Guðmundsdóttir, Amstapa, Ljósavatnshreppi verður níræð í dag. Anna fæddist að Kúfustöðum í Svartárdal í Húnavatnssýslu en fluttist ung með foreldrum sínum að Leifsstöðum í sömu sveit. Hún missti föður sinn þegar hún var á tíunda ári og var þá tekin í fóstur af prests- hjónunum að Hálsi í Fnjóskadal, þeim séra Ásmundi Gíslasyni og Önnu Pétursdóttm-. Þar ólst hún upp tii átján ára aldurs en fór þá einn vetur í Kvennaskólann á Blönduósi og var eitt sumar kaupakona að Ási í Vatnsdal. Anna kom svo aftur aust- ur og giftist Sigurgeiri Jóhannssyni árið 1918 og tóku þau þá við búinu á Amstapa þar sem þau bjuggu til 1956 en þá tók sonur þeirra við bú- inu. Sigurgeir, maður Önnu, var fædd- ur 20. okt. 1891 en hann lést í júlí 1970. Foreldrar Sigurgeirs vom Jó- harm Indriðason og kona hans, Kristín Bjamadóttir, bæði ættuð þaðan úr sveitinni. Anna og Sigurgeir eignuðust þrjá syni og fjórar dætur en einn sonur þeirra er látinn. Elstur bama þeirra er Guðmundur, b. að Klauf í Eyja- firði, f. 1918. Þá er Kristinn, f. 1919, en hann hefur verið smiður í Reykja- vík og býr nú á Sauðárkróki. Halldór, b. á Amstapa, var næstur í röðinni. Hann fæddist 1924 en lést 1968. Sigrún, f. 1926, er verslunar- stjóri hjá Osta- og smjörsölunni og býr í Reykjavík. Sigurveig, f. 1930, býr á Akureyri. Guðríður, f. 1933, er húsfreyja að Stómtjömum í Ljósa- vatnshreppi. Ema er yngst, f. 1934, en hún er húsfreyja að Hríshóli í Eyjafirði. Móðir Önnu átti eina dóttur fyrir áður en hún giftist föður hennar. Þessi hálfsystir Önnu er nú látin en hún hét Sigríður Snorradóttir og bjó á Miðnesi. Tvíburasystir Önnu var Sigríður en hún bjó í Reykjavík og er látin fyrir tæpum tveimur árum. Anna Guðmundsdóttir. Maður Sigríðar var Jón Jónsson frá Skeggjastöðum sem lengi var múrari í Reykjavík. Yngri alsystir Önnu var Guðrún, kona Halldórs Jóhannsson- ar, b. á Bergsstöðum í Svartárdal, en Halldór var bróðir Sigurgeirs. Guðrún er látin fyrir tveimur árum. Foreldrar Önnu vom Guðmundur, hómópati frá Hvammi í Svartárdal, Guðmundsson, og kona hans, Guðr- íður Einarsdóttir, ættuð sunnan af Miðnesi. Elín Guðrún Gísladóttir Elín Guðrún Gísladóttir, Sund- laugavegi 28, Reykjavík, er sjötug í dag. Hún fæddist á Ölkeldu og ólst þar upp. Elín vann það þrekvirki er hún var tvítug að liggja úti í 21 klukku- stund í ofviðri á Fróðárheiði. Hún hefúr unnið við ýmis störf og tekið mikinn þátt í félagsmálum á vegum Framsóknarflokksins í Rvík. Maður hennar er Þórður Kárason, lögregluvarðstjóri i Reykjavík, og em böm þeirra: Vilborg, starfar hjá búnaðardeild Sambandsins, maður hennar er Sigurjón Torfason, sölu- maður hjá Bílvangi, Kári, prent- smiðjustjóri á Akureyri, kona hans er Rósa Guðmundsdóttir, Gísli Þórmar, kennari og félagsráðgjafi í Danmörku, kona hans er Ulla Jörg- ensen og Þór Elmar, talkennari á Akranesi, kona hans er Ólína Sig- urðardóttir hjúkrunarkona. Systkini Elínar em Þórður, b. og skólastjóri á Ölkeldu, Alexander, verkamaður á Ölkeldu, Kristján Hjörtur, fyrrum b. og búfræðingur á Fossi í Staðarsveit, nú í Borgarnesi, Ólöf Fríða, kona Sverris Jónssonar, b. i Hrosshaga í Biskuptungum, Guðbjartur, fyrrum b. og búfræðing- ur á Ölkeldu, nú látinn, og Lilja, kona Marteins Níelssonar jámsmiðs í Rvík. Foreldrar þeirra em Gisli Þórðar- son, b. og oddviti á Ölkeldu í Staðarsveit, sem nú er látin, og kona hans, Vilborg Kristjánsdóttir. Faðir Elínar, Gísli, var sonur Þórðar b. í Ytri-Tungu í Staðarsveit, Gíslasonar. Elín átti eina föðursyst- ur sem komst upp. Jófríði, móður Ólafar Ólafsdóttur, er lauk nýlega guðfræðiprófi um sextugt, en meðal föðursystkina Elínar, samfeðra, vom Þórður Breiðfjörð, verkamaður í Rvík, afi Atla Heimis Sveinssonar tónskálds, Pétur, afi Péturs Lúters- sonar húsgagnarkitekts og Kristín, móðir Kristins Ólafesonar, tollstjóra Elin Guðrún Gisladóttir. í Rvik. Móðir Elínar er Vilborg Kristjáns- dóttir, b. á Hjarðarfelli í Miklaholts- hi-eppi Guðmundssonar, af Hjarðarfellsættinni. Meðal móður- systkina Elínar. samfeðra, vom Gpðbjartur, faðir Gunnars, b. á Hjarðarfelli og frv. formanns Stétt- arsambands bænda og Sigríður, amma Alexanders Stefánssonar al- þingismanns. 70 ára__________________________ Ólafía Sigurdórsdóttir, Suðurgötu 119, Akranesi, verður 70 ára á morgun. Hrafnhildur E. Ólafsdóttir, Háteigi 1, Akranesi, er 70 ára á morgun. 60 ára__________________________ PéturSörlasonjárnsmiður, Flyðru- granda 16, Reykjavík, er 60 ára á morgun. Fjóla Steingrímsdóttir símastúlka, Norðurvangi 21, Hafnarfirði, er 60 ára á morgun. Benedikt Benediktsson, Tjarnar- braut 9, Suðurfjarðarhreppi, er 60 ára á morgun. 50 ára _______________________ Steinar Benediktsson, Laugarás- vegi 71, Reykjavík, er 50 ára á morgun. Arnheiður Árnadóttir, Glæsibæ 1, Reykjavík, er 50 ára á morgun. Helgi Sæmundur Ólafsson, Brekkugötu 10, Hvammstanga, er 50 ára á morgun. Þorlákur Sigurðsson, Norðurgötu 46, Akureyri, er 50 ára á morgun. Eygló Ingvadóttir, Laugateigi 20, Reykjavík, er 50 ára á morgun. 40 ára_____________________ Þórdís Jónsdóttir, Fornósi 10, Sauðárkróki, er 40 ára á morgun. Svanur Kristjánsson lektor. Leiru- bakka 24, er 40 ára á morgun. Sigurlína Gumundsdóttir, Hjalla- stræti 23, Bolungarvík. er 40 ára á morgun. Sigrún Baldvinsdóttir, Víðimel 21, Reykjavík, er 40 ára á morgun. Guðmundur Gunnlaugsson, Breið- vangi 44, Hafnarfirði, er 40 ára á morgun. Birna Björnsdóttir, Rituhólum 7, Reykjavík, er 40 ára á morgun. Helga Gísladóttir, Brávallagötu 40, Reykjavík, er 40 ára á morgun. Úlfar Eysteinsson, Rauðagerði 62, Reykjavík, er 40 ára á morgun. Pálmi Aðalbergsson, Miðgarði 2, Keflavík, er 40 ára á morgun. Ragnar Jónsson, Mýrargötu 31, Neskaupstað, er 40 ára á morgun. Sigurður Finnbjörnsson Sigurður Finnbjömsson múrari, Vallholti 26, Ólafevík, er 80 ára á morgun. Sigurður fæddist í húsi númer sjö við Skipagötu á Isafirði en það hús er nú ekki lengur til. Þar ólst hann upp og bjó hjá foreldrum sínum fram yfir tvítugt en 1930 fór hann suður til Reykjavíkur og lærói múrverk hjá Jóni Bergsteinssvni. Náminu lauk hann 1934 og við múr- verk vann hann i Revkjavík samfellt í fimmtíu ár. Sambýliskona Sigurðar var Vil- helmína Vilhjálmsdóttir, f. 1912, en þau slitu samvistum og býr hún í Reykjavík. Böm Sigurðar og Vilhelmínu em sjö. Fimm bama þeirra em búsett í Bandaríkjunum, en þau em Elísa- bet, Guðríður, Hulda og Hermann sem er byggingameistari í Washing- tonfylki. María er í framhaldsnámi í læknisfræði í Svíþjóð og Margrét býr í Reykjavík þar sem hún vinnur skrifstofustörf. Systkini Sigurðar urðu fjögur og em tvö þeirra á lífi. Margrét f. 1905. giftist Kristjáni Tryggvasvni, klæð- skera á ísafirði og síðan í Reykjavík, en hann er nú látinn. Hermann Jó- el. f. 1908, dó í bamæsku. Jón prentari. f. 1909. er nú látinn en hann var giftur Jensínu Sveinsdóttur. Yngstur er Ámi. viðskiptafræðingur í Reykjavík. en hans kona er Guðrún Gestsdóttir. Foreldrar Sigurðar vom Finnbjöm Hermannsson. Sigurðssonar frá Læk i Aðalvík. og Elísabet Guðný Jóels- sonar frá Tjaldanesi í Dölum, Guðnasonar. Sigurbjörn Sigurðsson Sigurbjöm Sigurðsson. Hólabraut 7, Blönduósi, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Hann fæddist að Brú- ará í Strandasýslu en hefúr lengst af búið á Blönduósi. Hann hefur starfað sem bílstjóri í fjölda ára en starfar nú á mjólkurstöðinni á Blönduósi. Kona hans er Margrét Ámadóttir og eignuðust þau átta böm. Sjö þeirra em á lífi. Böm þeirra em Signý. f. 1948. Ingi. f. 1953. Ema. f. 1951, Baldur, f. 1952 en hann lést af slysförum. Sigurður. f. 1954. Kol- brún, f. 1956. Dóra. f. 1963. og Erla. f. 1965. Foreldrar Sigurbjöms vom Sig- urður Stefánsson og Sigríður Jónsdóttir. 90 ára_______________________ Guðmundur Símonarson verslun- armaður, Holtsgötu 12. Revkjavík, er 90 ára í dag. Gróa Guðjónsdóttir, Bugðulæk 17, Reykjavík. er 90 ár i dag. 80 ára_______________________ Margrét Þórðardóttir, Eskihlíð 12A, Reykjavík, er 80 ára í dag. Ólöf Gestsdóttir húsmóðir, Kóngs- bakka 9, Reykjavík, er 80 ára í dag. 60 ára_________________________ Helga Kristinsdóttir, Háholti 27, Keflavik, er 60 ára í dag. ívar Nikulásson, Strandaseli 11, Reykjavík, er 60 ára í dag. Ása Sigurðardóttir, Týsgötu 4C, Reykjavík, er 60 ára í dag. Páll Guðmundsson, Brekastíg 23, Vestmannaeyjum, er 60 ára í dag. Sigurbjörn Sigurðsson. 50 ára________________________ Jóhann Ævar Jakobsson. Grænu- mýri 11, Akureyri, er 50 ára í dag. Ingibjörg Þorvalasdóttir, Staðar- bakka 4. Reykjavík, er 50 ára i dag. Þorsteinn Sv. Stefánsson, Bústaða- vegi 103, Reykjavík, er 50 ára í dag. Björgvin Hansson. Þórustíg 3, Njarðvík, er 50 ára í dag. 40 ára__________________________ Hólmfríður Daníelsdóttir, Meðal- holti 13, Reykjavík, er 40 ára í dag. Oddný Heígadóttir, Bogahlíð 24, Reykjavík, er 40 ára í dag. Ásthildur Rafnar, Eikjuvogi 22, Reykjavík, er 40 ára í dag. Hildur Edda Hilmarsdóttir, Álfa- skeiði 104, Hafnarfirði, er 40 ára í dag. Tryggvi Ragnarsson, Ánastöðum, Lýtingsstaðahreppi, er 40 ár í dag. Gísli Hauksson, Hraunsvegi 3, Njarðvík, er 40 ára i dag. Birna Jónsdóttir, Marbakkabraut 13, Kópavogi, er 40 ára í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.