Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Side 36
r Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augtýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Útvatpsráð unt „Svefneyjafréts sjónvarpsins: Mistök og dóm greindarieysi „Við höfum átt ákveðið og langt samtal, ég og fréttastjórinn. Ég vil ekki gera það að blaðamáli. Ég hef sagt það áður að það var óeðlilega staðið að fréttinni og ég hef rætt það við fréttastjórarm,“ sagði Markús Öm Antonsson útvarpsstjóri þegar hann var spurður hver viðbrögð fundar útvarpsráðs vegna „Svefh- eyjafréttar“ sjónvarpsins hefðu verið. Fundur ráðsins var haldinn í gær. Ami Bjömsson, fulltrúi í útvarps- ráði, sagði að útvarpsráð hefði verið sammála um að það hefðu verið mistök að senda fréttina út og bæri með sér dómgreindarleysi starfs- manna fréttastofu. Amþrúður Karlsdóttir fréttamað- ur, sem vann hina umdeildu frétt, sagði orðrétt í viðtali við Stjömuna þegar hún var spurð hvort Ingvi Hrafh hefði verið búinn að sjá þann hluta fréttarinnar þegar viðmælandi hennar kallar sakbominginn í , ,Svefneyjamálinu“ kolmglaðan sík- ópat: „Jú, jú, það var hann buinn að sjá.“ Ingvi Hrafh Jónsson fréttastjóri sagði fyrr í vikunni í viðtali við DV að hann hefði ekki séð fréttina og hefði hann séð hana þá hefði hann tekið ákveðin atriði úr henni. Ingvi Hrafn og Amþrúður segja því ekki sömu söguna af meðferð fréttarinnar fyrir útsendingu. Vegna fréttarinnar hefur iögmaður sakbomingsins í „Svefheyjamálinu“ lýst yfir að höfð- að verði meiðyrðarmál á hendur útvarpsstjóra og ákvörðun verður tekin í næstu viku hvort bæjarfóget- inn í Hafharfirði geri slíkt hið sama. -sme BU '87 Smyglaða skinkan enn á boðstólum „Engin heimild borist frá okkur,“ segir ráðuneytisstjórinn „Það var með fullu leyfi Jónasar Jónssonar búnaðarmálastjóra og formanns sýningamefndar BÚ ’87 að við buðum fólki upp á að smakka ís- lenska skinku og danska. Það kom j^-eyndar aldrei til tals að danska skink- an yrði kynnt sem smygluð, eins og gert var, í samtali okka Jónasar," sagði Bjami Harðarson, ritstjóri Bændablaðsins, sem bauð sýningar- gestum að bragða á smyglaðri danskri skinku í bás sínum á BÚ ’87 á miðviku- daginn. Bjami ætlar enn að bjóða upp á danska skinku um helgina. „Tilgangurinn með þessu uppátæki okkar er að vekja athygli á stórfelldu skinkusmygli til landsins og búnaðar- málastjóri virtist vera mjög ánægður með þetta frumkvæði okkar.“ ins, sagði i DV í gær að þetta mál hefði aldrei verið borið undir sýning- arstjóm og enn síður verið samþykkt. Sveinbjöm var spurður hvað honum fyndist um að framhald yrði á fram- boði smyglaðrar skinku á BÚ ’87 um helgina. Ekki reyndist unnt að ná í Jónas Jónsson búnaðarmálastjóra, sem staddur er erlendis, én Sveinbjöm Dagfinnsson ráðuneytisstjóri, sem er í sýningarstjóm fyrir hönd ráðuneytis- „Það hefur engin heimild komið frá sýningarnefhd og þetta tiltæki sætti ávítum. Ég átti satt að segja alls ekki von á að framhald yrði á þessu,“ sagði Sveinbjöm. ATA Frjálst,óháð dagblað AGÚST 1987. LAUGARDAGUR 22 Utvegsbankamálið: KR-ingar skiluðu tiyggingum Hinir svo nefndu KR-ingar í Útvegs- 'bankamálinu, aðilamir 33 sem buðu á móti Sambandsmönnum, komu í fjár- málaráðuneytið um miðjan dag í gær og lögðu fram umbeðnar tryggingar fyrir eftirstöðvum þess kaupverðs er þeir buðu í bankann. Að sögn Sigurðar Þórðarsonar, skrifstofustjóra fjármálaráðuneytis- ins, verður unnið í því yfir helgina að fara yfir þessa pappíra, sem em í það minnsta 33 bréf og sennilega eitthvað meira. Meiningin er að á mánudags- morgun verði hægt að leggja niður- stöðuna fyrir viðskiptaráðherra. -S.dór Bam hljóp fyrir bíl í gær varð slys við leikvöll sem er við Háabarð í Hafharfirði. Fjögurra ára gamalt bam hljóp í veg fyrir bíl sem kom akandi eftir Háabarði. Bam- ið var flutt á slysadeild en mun ekki hafa slasast alvarlega. Fimm árekstrar urðu i Hafharfirði i gær. Enginn þeirra var harður og eng- in slys urðu á fólki. í fyrradag urðu sjö árekstrar í Hafnarfirði og segir lögreglan að sennilega megi kenna góða veðrinu um þennan mikla fjölda árekstra. -sme Jón L. Arnason varð sigurvegari Reykjavíkurskákmótsins í gær. Hlaut hann sex vinninga af sjö mögulegum en sex vinninga hlutu einnig Ágúst Karls- son, Jóhannes Gísli Jónsson og Róbert Harðarson. DV-mynd GVA LOKI Þeir segja að LIU-Kristján sé Valsari! Veðurhorfur á sunnudag og mánudag: Hægvíðri um allt land Suðaustangola verður suðaustanlands á morgun en víðast hvar annars staðar hægviðri. Hiti verður 9-16 stig og hlýjast á Norðurlandi. Á mánudaginn verður norðvestangola um norðvestanvert landið en annars staðar á landinu hægviðri. Hiti verður 9-16 stig og hlýjast suðvestan- og suðaustanlands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.