Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987.
Fréttir
Landhelgisgæslan í Kjaradeilu við riklð:
Þyrluflugmenn vinna
ekki aukavinnu
nema þeir fai greitt fyrir hana
„Ef ekki nást samningar nm þessa
miklu aukavinnu okkar vill ríkis-
valdið augljóslega ekki halda uppi
þessari öryggisþjónustu með því
sniði sem hún hefur verið hingað
til. Þá munum við einungis vinna
þann tímafjölda sem samningar okk-
ar kveða á um en þá skapast óneitan-
lega alvarlegar gluíiir í þetta
öryggiskerfi sem við höfum verið að
byggja upp að undanfömu," sagði
Bogi Agnarsson, flugmaður hjá
Landhelgisgæslunni, í viðtali við
DV.
Nú stendur yfir kjaradeila flug-
mannanna og fj ármál aráðuneytis
vegna mikillar aukavinnu sem
þyrluflugmenn hjá Landhelgisgæsl-
unni hafa lagt af mörkum við
björgunarstörf síðustu misserin.
Á stóm þyrluna þarf flugstjóra og
annan flugmann til en þyrluflug-
menn hjá gæslunni hafa til skamms
tíma verið fjórir þar til nú í sumar
að sá fimmti bættist í hópinn. Þetta
þýðir að tvær tveggja manna vaktir
hafa í tæp þrjú ár skipt með sér bak-
vöktum ajlan sólarhringinn allan
ársins hring. „Það er augljóst mál
að fimm menn geta ekki haldið úti
þessari þjónustu til lengdar enda
höfum frestað sumarfríum okkar
margsinnis vegna þessarar mann-
eklu,“ sagði Bogi.
Þess má svo geta að útköllum þyrl-
unnar hefur fjölgað mjög á síðustu
mánuðum og nú þegar em útköllin
á þessu ári orðin mun fleiri en þau
vom á öllu síðasta ári.
í síðustu viku veiktist einn flug-
mannanna, með þeim afleiðingum
að ekki hefur verið hægt að nota
þyrluna nú um helgina, því að á
þeim tíma hefúr enginn getað leyst
þennan mann af.
„Við fáum okkar kaup samkvæmt
almennum taxta flugmanna og um
það er enginn ágreiningur," sagði
Bogi ennfremur. „Landhelgisgæslan
hefur einfaldlega keypt af okkur
hveijum og einum hundrað sjötiu
og fimm stundir á mánuði en vegna
mikils álags erum við iðulega með
hátt á þriðja hundrað tíma á mán-
uði. Þessar umframstundir höfum
við aldrei fengið greiddar í þessi tæp
þrjú ár. Það má þvi segja að hér sé
um sjálfboðavinnu að ræða ef við
ekki fáum eitthvað greitt fyrir þessa
aukatíma."
Bogi sagði að þeir hefðu hafið
máls á þessu nú í vor og hann vildi
taka fram að yfirmenn Landhelgis-
gæslunnar sýndu skilning á sjónar-
miðum flugmannanna enda væri
samvinna þessara aðila mjög góð.
Hins vegar eru þyrluflugmennimir
orðnir þreyttir á seinagangi málsins
í launadeild fjármálaráðuneytisins.
Nú hefúr launadeildin hins vegar
gefið þau svör að hún treysti sér
ekki til að taka ákvörðun í málinu
án samráðs við háttsetta aðila i
ráðuneytinu en í morgun munu emb-
ættismenn frá launadeildinni hafa
fundað með fjármálaráðherra um
málið. Flugmennimir eru svo boðað-
ir á fund í launadeildinni á miðviku-
dagsmorgun kl. ellefu en þá mun
framvinda málsins væntanlega ráð-
ast.
KGK
Við komuna til landsins í gær. Zheng Tuobin, utanríkisráðherra Kína, heils-
ar Pétri Thorsteinssyni. DV-mynd S
Utanríkisráð-
herra Kína
á íslandi
Kínverski utanríkisráðherrann,
Zheng Tuobin, kom í opinbera heim-
sókn til íslands í gær ásamt tólf
manna fylgdarliði. Pétur Thorsteins-
son tók á móti utanríkisráðherran-
um í stað Steingríms Hermannssonar
sem hefur legið í flensu og sá sér
ekki fært að mæta.
Kínverski utanríkisráðherrann
mun eiga viðræður við Steingrím í
ferðinni auk þess sem hann mun
skoða nokkur íslensk fyrirtæki. Af
þeim fyrirtækjum má nefna Granda
hf., Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
una hf. og Hampiðjuna hf.
Zheng Tuobin mun dveljast hér á
landi fram á miðvikudag.
-ELA
Kjaradeilur gæsluflugmanna:
Ágreiningur um
útreikninga
- segir Ásmundur Vilhjálmsson hjá launadeildinni
„Þessi ágreiningur snýst fyrst og því að þyrluflugmennimir vinna
fremst um það hvemig eigi að reikna miklu fleiri bakvaktartíma heldur
þá bakvaktatíma sem hér koma til en gengur og gerist í farþegaflugi.
álita,“ sagði Ásmundur Vilhjálms- Það má því vera að almennir flug-
son, lögfræðingur hjá launadeild mannasamningar eigi ekki við um
fjármálaráðuneytisins, þegar DV bar björgunarflugiö að þessu leyti. Hinir
undir hann þá kjaradeilu scm nú er eiginlegu flugtímar í björgunarflugi
í gangi milli þyrluflugmanna hjá eru ekki nema h'till hluti af heildar-
Landhelgisgæslunni og ríkisins. vinnu flugmannanna enda er það
„Við erum að vinna að því að finna aðalatriðið að hafa aðgang að þess-
leið til að tryggja þessa öryggis- um flugmönnum þegar á þarf að
þjónustu en álitamálið kemur til af halda,“ sagði Ásmundur. KGK
I dag mælir Dagfari__________________________
Ríkið selur sjálfu sér
Nú er það nýjast að frétta af Útvegs-
bankadeilunni að ríkisstjórnin
hugleiðir þá hugmynd að Lands-
bankinn og Búnaðarbankinn kaupi
Útvegsbankann. Þetta er alveg
stórsnjöll lausn á deilunni langvinnu
og maður er eiginlega alveg hissa á
því að þeim skyldi ekki hafa dottið
þetta í hug fyrr. í fyrsta lagi losnar
ríkisstjómin við að gera upp á milli
Sambandsins og einkaframtaksins. í
öðru lagi uppfylla þeir stjómarsátt-
málann með því að selja ríkisbanka.
í þriðja lagi á ríkið áfram bank-
ann. Og í fjórða lagi verður allt
óbreytt.
Eins og menn muna varð uppi fót-
ur og fit þegar Sambandið gerði
mönnum þann óleik að bjóða í Út-
vegsbankann meðan einkaframtakið
stóð úti í miðri laxveiðiá. Handhafar
peningavaldsins í einkageiranum
urðu að fara á handahlaupum upp
úr ánni og beint í bílasímann til að
nurla saman gagntilboði. Síðan
komu ráðherramir hver á fætur öðr-
um og fögnuðu því mjög að geta
losnað við útgjöldin af Útvegsbank-
anum og fá sjö hundruð milljónir í
kassann. Það þarf að vinna þetta
mál hratt, sögðu þeir og töldu það
tilboðshöfúm, ríkisstjóminni og
bankanum fyrir bestu að ákvörðun
lægi fyrir í vikunni.
Fljótlega kom í ljós að það var
ekki sama vikan, sem þeir höföu í
huga, því nú em liðnar að minnsta
kosti fjórar vikur síðan fyrstu al>
burðir gerðust og enn hefur bankinn
ekki verið seldur. Mikið vatn hefúr
til sjávar runnið í millitíðinni. Flest-
ir hafa talið að Sambandið hefði
móralskan rétt á kaupunum og mun
það vera í fyrsta skipti í sögunni að
SÍS hefur siðferðið sín megin. Hlýtur
það að vera merkilegur áfangi í sögu
Sambandsins þegar það hefur rétt á
einhverju af siðferðilegum ástæðum
enda em Sambandsforstjóramir svo
ánægðir að þeir hafa hótað málsókn
til að innsigla þennan atburð í nafiii
siðferðisins.
Um tíma leit út fyrir að ríkisstjóm-
in mundi falla á þessu máli eftir að
Steini haföi hringt í flokksráðið og
hótað stjómarshtum ef ekki væri
farið eftir þeim skilaboðum sem
hann fékk úr símahringingunum.
Staða hans þótti hin versta. En svo
kom Helgarpósturinn með skoðana-
könnun og niðurstaðan varð sú að
fylgi Sjálfstæðisflokksins rauk upp
úr öllu valdi og verður ekki önnur
ályktun dregin af þeim úrslitum en
sú að það sé best fyrir formann Sjálf-
stæðisflokksins að vera með allt
niður um sig til að bæta fylgi flokks-
ins. Ef menn vilja draga pólitískan
lærdóm af deilu þessari þá sýnist
best fyrir Sjálfstæðisflokkinn að
leyfa framsóknarmönnum að eigna
sér siðferðið meðan sjálfstæðismenn
eigna sér atkvæðin, enda er marg-
sannað að íslenskir kjósendur leggja
lítið upp úr móral og siðferði.
Um tíma ræddu menn þann mpgu-
leika að selja Búnaðarbankann líka
og svo fengu allir sér lögfræðinga
til að finna út hver færi að lögum
og hver ekki. Hinir siðlausu þurftu
nefrdlega að hafa lögin sín megin,
úr því þeir höföu ekki siðferðið á
sínu bandi. En sú viðleitni að láta
lögin ráða eða selja Búnaðarbank-
ann í kaupbæti gekk heldur ekki upp
vegna þess að enginn haföi áhuga á
Búnaðarbankanum eða lögunum
þegar á reyndi.
Þegar allt var orðið blýfast og stál
í stál kom viðskiptaráðherra með
lausnina: Að selja sjálfúm sér Út-
vegsbankann. Það er gert með því
að láta Landsbankann og Búnaðar-
bankann kaupa Útvegsbankann.
Þar sem tveir fyrmefndu bankamir
em líka ríkisbankar verður Útvegs-
bankinn einfaldlega fluttur úr hægri
vasa ríkisins í þann vinstri, Sam-
bandið og einkaframtakið mega eiga
það sem úti fiýs en ríkisstjómin er
búin að efna loforðið um að selja
Útvegsbankann! Snjallara getur það
ekki verið.
í staðinn fyrir að selja Útvegs-
bankann kaupir ríkissjóður ban-
kann aftur í gegnum hina ríkis-
bankana. í staðinn fyrir að selja
Búnaðarbankann í skiptum fyrir
Útvegsbankann verður Búnaðar-
bankinn látinn kaupa Útvegsban-
kann í skiptum fyrir Sambandið og
einkaframtakið. Og í staðinn fyrir
að draga úr rekstri ríkisbankanna
verða þeir efldir. Hókus, pókus og
Útvegsbankinn verður áfram á sín-
um stað. Nú vantar ekkert upp á
nema bara ráða aftur gömlu banka-
stjórana sem búið var að reka.
Dagfari