Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987.
UtLönd
Verkfallsmenn
biðu ósigur
í gær var samþykkt að hækka orlofs-
greiðslur og bætur til ættingja þeirra
er látast vegna vinnuslysa. Hins vegar
vildu námueigendur ekki hækka boð
sitt um 23,4 prósent launahækkun.
Verkfallsmenn fóru fram á 27 prósent
hækkun.
Ákveðið hefur verið að ráða aftur
alla þá er sagt var upp störfum. Anglo
American mun hins vegar ekki taka
aftur við öllum þar sem ráðið hafði
verið stöður sumra er reknir voru.
Eigendur námufélaga í Suður-Afr-
íku hafa brotið á bak aftur víðtækasta
verkfall blökkumanna í landinu. Um
tvö hundruð og fimmtíu þúsund námu-
verkamenn streymdu aftur til vinnu í
gær eftir þriggja klukkustunda við-
ræður samningamanna .
Samþykktu verkfallsmenn boð um
bætt vinnuskilyrði og sams konar boð
um launahækkun og þeir höfðu hafn-
að fyrir nokkrum dögum. Leiðtogi
samtaka námuverkamanna, Cyril
Ramaphosa, neitaði samt að verka-
menn hefðu beðið ósigur. Námueig-
endur hefðu neitað að trúa því að svo
margir myndu taka þátt í verkfallinu
og að það myndi vara lengur en tvo
sólarhringa. Námumenn litu á þetta
sem eirrn lið í baráttu sem haldið yrði
áfram þar til gengið hefði verið að
öllum kröfum námumanna.
Sérfræðingar telja að úrslit vinnu-
deilunnar geti haft áhrif á aðstæður
verkamanna í landinu í framtíðinni
þar sem þau gætu orðið öðrum at-
vinnurekendum hvatning til að ganga
ekki að kröfum blökkumanna um laun
á við hvíta.
Naas Steenkamp, (ulltrúi námufélaga i Suður-Afríku, tilkynnti í gær að þriggja vikna verkfalli námuverkamanna lands-
ins væri lokið. Simamynd Reuter
BODDÍHLUTIR
VATNSKASSAR
Öxlar-liðir-hosusett-klossar
DRIFLIÐIR
Framljós Hliðarlistar Gólfmottur Þurrkublöð Límrendur Bíi nnsF
Póstsendum. E IS SKEIFUNNI 5 - 108 REYKJAVÍK (91) 33510-688510.
Viltu lægi við gerð a og ná góði Við bjóðum upp á al á mun lægra verði en : ÖLL PRENTUN kostnað luglýsinga tm árangri? hliða auglýsingagerð annarsstaðar þekkist. Á SAMA STAÐ tofa magnúsar ólafssonar
Mmm''auglýsinqas
Austurströnd 10, Seltjarnarnesi - Símar 611633 og 611533
Líbýskir hermenn sýna vopn er þeir segjast hafa tekið af hermönnum frá
Chad eftir bardagann um landamæraborgina Aouzou. Símamynd Reuter
Yfirvöld í Chad
neita ósigri
Yfirvöld í Chad fullyrða að her
landsins hafi ekki hörfað undan
Líbýuher í landamæraborginni
Aouzou. Því er einnig vísað á bug að
stjóm borgarinnar sé í höndum Líbýu-
manna.
Tilkynnt var í gær að líbýskir her-
menn hefðu gert flugárásir á tvær
borgir fyrir sunnan Aouzou. Segja
yfirvöld í Chad að tvær herflugvélar
og ein þyrla hefðu verið skotnar niður.
Fréttamaður frá BBC greindi fiá því
að hermenn frá Líbýu hefðu leitt hann
um borgina Aouzou sem er á svæði
sem báðir deiluaðilar gera tilkall til.
Þykir frétt hans styðja þá fullyrðingu
að Líbýumenn hafi borgina á valdi
sínu en Chadmenn láta sér fátt um
finnast.
Yfirvöld í Líbýu tilkynntu á föstu-
daginn að þau hefðu náð borginni
Aouzou aftur á sitt vald eftir tveggja
klukkustunda bardaga, þremur vikum
eftir að hermenn frá Chad náðu borg-
inni. Hún hafði þá verið undir yfirráð-
um Líbýumanna í fjórtán ár.
Oslóariögreglan sökuð um
Pál VHhjáímaaon, DV, Ctóó:
Lögregian í Osló hggur undir
ámæli fyrir að beita ónauðsynlegu
ofbeldi í viðskiptum sínum við mót-
mælagöngu gegn Nató sem fór fram
í vor. Opinber rannsóknamefiid seg-
ir lögregluna í höfuðborginni allt of
viljuga til að nota hunda og gúmmí-
kylfúr gegn Natóandstæðingum.
Sérstaklega er lögreglan gagnrýnd
fyrir handtöku á Stein Lillevolden
sem tahnn var höfuðpaurinn á bak
við mótmælin í Osló, tólfta til fjórt-
ánda maí síðastliðinn. Lögreglan
réðst með miklum liðsafla inn á veit-
ingahús í miðborg Osló að kvöldi
fjórtánda maí og handtók Lillevold-
en. í misgripum voru nokkrir sak-
lausir gestir veitingahússins einnig
handtcknir og einn þeirra var bitinn
af lögregluhundi.
Skæruliðar
ráðgera árásir
Tveir skipsfarmar af uppreisnar-
hermönnum verða ef til vill settir í
land á Caballo-eyju á Filippseyjum,
að því er embættismaður, er ekki vill
láta nafhs síns getið, hefur gefið í skyn.
Þar muni þeim veitast tími til að hugsa
um hvað þeir hafi gert af sér.
Ekki hefur enn verið ákveðið hvem-
ig refsa skuli þeim átta hundrnð
liðsforingjum og hermönnum sem gáf-
ust upp eða vom gripnir og komið var
fyrir á tveimur skipum flotans þar sem
ekki var um að ræða annað fanga-
rými. Hins vegar hefúr verið ákveðið
að yfirheyra um þrjú hundrnð starfs-
menn Villamor flugvallarins í Manila.
Uppreisnarmenn náðu hluta flugvall-
arins á sitt vald á fimmtudaginn er
þeir gerðu tilraun til að steypa Aquino
forseta.
Skæmliðar kommúnista hafa lýst
því yfir að þeir muni gera árásir á
bækistöðvar hersins. Ætla þeir að not-
Corazon Aquino, forseti Filippseyja,
sæmir hermann, sem særðist í bylt-
ingartilrauninni, orðu.
Simamynd Reuter
færa sér það upplausnarástand sem
ríkir eftir byltingartilraunina. Á laug-
ardaginn gerðu þeir árás á lögreglu-
stöð nálægt borginni Davao. Fjórtán
manns létust, þar á meðal tíu skæm-
liðar, að því er yfirvöld segja.
Vinstri menn hafa aftur á móti til-
kynnt að þeir muni ekki efna til
mótmæla að nýju vegna verðhækkana
á bensíni. í síðustu viku lamaðist allt
atvinnulíf í höfuðborginni Manila
vegna slíkra mótmæla.
Aquino forseti, sem kom fyrst fram
opinberlega í gær eftir uppreisnina,
viðurkenndi að mikill klofhingur væri
innan hersins. Hún tilkynnti að her-
sveitir hollar sér mundu halda áfram
að berjast gegn uppreisnarmönnum.
Tvö dagblöð í Manila greindu frá því
að nemar í herskóla hefðu farið í hung-
urverkfall til að lýsa yfir stuðningi
sínum við uppreisnarmenn.
Leiðtogi uppreisnarmanna, Greg-
orio „Gringo" Honasan, er nú eftir-
lýstur maður. Ekkert er vltað hvar
hann er nlðurkominn.
Sfmamynd Reuter