Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987. 9 DV Útlönd Lögfræðingar nokkurra af föngun- um, sem nú hafe haldið tuttugu og átta gíslum í sex daga í fengelsinu á ítölsku eynni Elbu, hafa verið fengnir til þess að reyna að miðla málum. Að sögn yfirvalda er vonast til þess að lögfræðingarnir geti talað skjólstæðinga sína til og fengið þá til samninga við yfirvöld. Stjómvöld vonast enn eftir því að finna friðsamlega kusn á deilunum en uppreisnarfengarnir, sem eru sex talsins, hafe hótað að myrða gísla sína verði ekki orðið við kröfúm þeirra. Myrti fímm og framdi sjálfsmorð ; Liðlega tvítugur maður myrti fimm manns í Boston í Bandaríkjunum í gærog ifamdi; að því loknu sjálfs- morð. Að sögn sjónarvotta varð fyrst vart við manninn þegar hann elti konu einn úti á götu og skaut hana að lokum til buna. Hann leitaði að því verki loknu skjóls í ibúðarbygg- ingu og mvrti fióra þar, áður en hann svipti sig lffi. Ekki er vitað hvað olh því að berserksgangur rann á manninn. Hann var innflytjandi ffá Vietnam og talið er að öll fómarlömb hans hafi einnig ver- ið innflytjendur þaðan. FjóldasjáKsmorð eða fjöldamorð? Krufningar hafa leitt í ljós að margir af þeim þijátíu og tveim meðlimum sértrúarsafnaðar í Seoul í Suður-Kóreu, sem fúndust látnir í verksmiðjubygg- ingu þar í gær, létust af eitri. LÖgreglan í borginni segist þó ekki hafa neitt scm bendi til hvort um fiöldamorð eða hópsjálfemorð er að ræða. í gær var leitað sextíu verkamanna úr verksmiðjunni, sem er nokkuð suður af Seoul, en án árangurs. TaLsmaður lögreglunnar sagði í gær að lík- legast væri talið að söfimðurinn hefði ákveðið að frcanja hópsjálfemorð. Þó var ekki talið útilokað að um morð hefði verið að ræða. Eirrn úr hópn- um fannst hengdur og er talið hugsanlegt að hann hafi ráðið hinum bana. Ummerki benda til að sumir þeirra hafi verið kyrktir en allir voru hinir látnu bundnir á höndum og fótum. Vanunu fyrir rétt Mordechai Vanunu, fyrrum kjam- orkutæknifræðingur, sem sakaður hefur verið um að hafe afhent bresk- um dagblöðum kjaniorkuleyndar- mál ísraelsrikis, kemur fyrír rétt í: dag. Yfirvöld hafa byrgt glugga réttar- salarins, þar sem réttarhöldin munu fara fram fyrir luktum dyrum, til þess að koma í veg fyriraö Vanunu, sem er Iiðlega þrítugur ísraeli, skýri frá því hvernig honum var komið til baka til ísrael. Hann var fiuttur nauðugur frá Bretlandi eftir að hafe skýrt þai-lendiun dagblöðum frá því að Israelsmenn hc-fðu átí kianwrku- vopn í tvo áratugi. Búist er við að réttarhöldin verði síðar opnuð almenningi. Minnast horfins leiðtoga Shítar í Líbanon efiidu í gær til minningargongu í t ilef'ni þess að níu ár eru nú liðin frá hvarfi Imam Musa Sadr, lciðtogans sem leiddi þá fyrstu skref baráttu sinnar fyrir tveim áratugum síðan. Tugþúsundir gengu í gær um bæ- inn Balbeck, þar sem nú er eitt helsta vígi róttækra shíta og íranskra bylt- ingarvarða. Sadr sást síðast árið 1978 þegar hann fór i heimsókn til Líbýu. Líbýu- stjóm hefúr neitað með öllu að eiga þátt í hvarfi hans og segir hann hafa farið þaðan i flugvél. 30 TONN af barnahúsgögnum tökum við heim og þau munu seljast upp á nokkrum dögum. HÉR ER VERÐIÐ! Svefnbekkur m/dýnu og þrem púðum kr. 8.320. Svefnbekkur m/yfirhillu, dýnu og 3 púð- um kr. 13.770. Svefnbekkur m/endahillu, dýnu og 3 púðum kr. 11.710. Bókahilla, há, kr. 3.670. Bókahilla, lág, kr. 2.450. Kommóða, 8 sk., mjó, kr. 4.240. Komm- óða, 8 sk. m/skáp, kr. 6.490. Kommóða, 8 sk.,kr. 5.380. Kommóða, 6 sk„ kr. 4.250. Kommóða, 4 sk„ kr. 3.250. Skrifborð nr. 55, lengd 150 cm, kr. 5.730. Skrifborð nr. 56, lengd 150 cm, kr. 5.380. Skrifborð nr. 53, lengd 120 cm, kr. 4.590. Skrifborð nr. 54, lengd 120 cm, kr. 4.120. Öll húsgögnin eru spónlögð með slitsterkri plastfilmu í kvistafuru eða hvítu. HUSGÖCIV húsgagna-höllin BÍLDSHÖFÐA 20 — 112 REYKJAVÍK —91-681199 og 681410

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.