Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987. Neytendur Notið ykkur ódýra blómkálið - biómkálsréttir nu svo ódýrir að þeir falla innan hins þrönga ramma heimilisbókhalds DV! Blómkál er á mjög góðu verði þessa dagana, víða hægt að fá það á rúmlega 65 kr. íslenskt blómkál er án efa eitt- hvert allra besta sinnar tegundar í heiminum og því sjálfsagt að notfæra sér þessa vöru á meðan verðið er hag- stætt. Þannig kosta réttir með blómkál að aðaluppistöðu ekki nema kannski rétt rúmlega 150 kr. fyrir fjóra en eru samt öndvegismatur. Það er því ekki úr vegi að hafa blómkál í matinn þessa dagana. Blómkál er sérlega hollt og hitaein- ingasnautt og tilheyrir einnig þeim flokki grænmetis sem getur beinlínis komið í veg fyrir krabbameinsmyndun eftir því sem fróðir menn segja. Blómkál geymist einnig vel í frysti. Betra er þó að snöggsjóða það fyrir frystingu. Munið að nauðsynlegt er að snöggkæla kálið eftir suðu. Það er best að gera með því að eiga nóg af ísmolum í bala og kæla kálið með því að setja það í plastpoka og síðan í balann. Hægt að matreiða á margan hátt Blómkál er hentugt í margvíslega rétti. Hægt er að nota það í forrétt, aðalrétt, með aðalréttinum, soðið eða steikt og blómkál er líka einstaklega gott hrátt borið fram með góðri ídýfu. Þegar þið kaupið blómkál er best að velja hausa með kálinu á jafnvel þótt þurfi að greiða fyrir kálið sem ekki er notað. Hausamir eru miklu betri, hvítari og geymast þannig í nokkra daga eða jafhvel vikur í kæli. Geymslutíminn styttist um leið og kálið er skorið af. Veljið ykkur þétta og hvíta hausa, þeir eru bestir. Einnig er hægt að nota kálið í ýmsa rétti ef þið viljið. Soðið blómkál Hreinsið kálið af blómkálinu og hluta af stilknum. Ef sjóða á hausinn í heilu lagi er gott að skera kross í stilkinn. Látið hausinn liggja í köldu vatni með svolitlu ediki í í um það bil klukkustund áður en það er soðið. Þetta er gert til þess að lokka snigla eða önnur smádýr út úr kálhausnum áður en í pottinn kemur. Kálið er síðan látið í sjóðandi salt- vatn og soðið undir loki í 10-20 mínútur (fer eftir stærð). Gætið þess að sjóða kálið ekki of mikið. Kálið er síðan fært upp úr pottinum með stóru gatasigti og látið á heitan disk. Blómkálsgratín Blómkálsgratín eða bakstur er ein- hver besti og sumarlegasti matur sem hægt er að hugsa sér. í hann er notað Þannig á að undirbúa og sjóða blómkál. Skera kálið af og hluta af stilknum, láta það liggja í bleyti í ediksvatni svolitla stund, láta það í pottinn með stilkinn upp, færa það að lokinni suðu upp á heitt fat með gatasigti. blómkál sem er soðið í stutta stund og tekið sundur. Einnig er gott að nota soðnar gulrætur í þennan rétt. f hann fer: 1 stórt blómkálshöfuð salt, pipar 50 g smjörl. 2 dl soð 85 g hveiti 1 dl kaffhjómi 4 eggjarauður 4 eggjahvítur, stífþeyttar brauðrasp Sjóðið blómkálið sundurtekið eins og áður er sagt. Látið soðið leka af eftir suðu og geymið. Látið suðuna koma upp á ijóma og smjöri, hrærið hveitinu út í og bætið soðinu smám saman út í. Hrærið vel í. Þegar sósan er orðin þykk og glans- andi er potturinn tekinn af hitanum og þá er eggjarauðunum hrært saman við, einni í einu. Kiyddið nú með salti og pipar eftir smekk. Sumum þykir mjög gott að láta ögn af hvítlauks- dufti út í. Stífþeytið nú eggjahvítumar og blandið varlega saman við. Loks er blómkálið látið út í og gulrætumar ef þær em notaðar. Gætið þess að gera þetta mjög varlega. Þetta er látið í smurt eldfast mót með nokkuð háum og beinum hliðum. Stráið brauðraspi í formið og fyllið það aðeins að 3/4 hluta og stráið einnig brauðraspi ofan á. Bakið gratínið í 15 mín. við 200°C, lækkið 'þá hitann í 160°C og bakið áfram í ca 45 mín. Berið fram strax! Gott er að bera fram brætt smjör með gratíni en það er þó alls ekki nauðsynlegt. Þessi uppskrift passar fyrir fjóra en hráefrúskostnaðurinn er mjög lítill, eða um 150 kr. eða svo. Þessi réttur fellur því fullkomlega inn í hinn þrönga ramma heimilisbókhalds DV. Blómkál að pólskum hætti Þessi réttur kemur frá Póllandi eins og nafhið gefur til kynna. Þetta er fljótlegur og mjög góður réttur. f hann fer: 1 stórt blómkálshöfúð salt og pipar 2 egg 100 g smjörl. 1,5-2 dl brauðrasp söxuð steinselja Sjóðið blómkálið í heilu lagi eins og áður er sagt frá. Harðsjóðið eggin og brytjið þau fínt. Brúnið smjörlíkið á pönnu og látið brauðraspið út í. Bætið svo eggjunum og steinseljunni út í og kryddið með salti og pipar. Látið blómkálshausinn á heitt fat og hellið blöndunni yfir. Skreytið með niðursneiddum tómötum. Þannig bo- rið fram getur þessi réttur verið sem aðalréttur en eins er þetta mjög gott með kaldri skinku eða öðru köldu kjöti. Hráefhiskostnaðurinn við þennan rétt er mjög lítill, eða um 150 kr. Hann passar því einnig vel innan hins þrönga ramma heimilisbókhaldsins. Blómkál með ostasósu Þá er blómkál með ostasósu mjög ljúffengur réttur. Með honum passar vel að hafa bita af harðsteiktu beikoni eða annað reykt kjöt. En uppskriftin er svona: Stórt blómkálshöfuð salt, pipar 40 g smjörl. 1,5 dl hveiti 2 dl soð 2 dl kaffiijómi 75 g rifinn ostur 4 harðsteiktar beikonsneiðar Sjóðið kálið í heilu lagi eins og áður er lýst. Búið svo til sósuna þannig að 25 g af smjörinu er brætt í potti, hveit> inu hrært út í og síðan soðinu smátt og smátt þar til komin er þykk sósa. Látið hana sjóða í smástund en hræ- rið í á meðan. Takið pottinn af hitanum og hrærið 50 g af ostinum út Italskir ungbarnaskór nýkomnir Leðurfóðraðlr með leður- sóla, gúmmlhæl. Stærðlr 19-24. Verð kr. 1.580. Svart lakk Kvftt Skóbúðin Snorrabraut 38. Sími 29350. Skóbúðin Lipurtá, Borgartúni 23. Sími 29350. Hvftt, bMtt og rautt í og kryddið að vild. Látið nú blómkálið á eldfastan disk, hellið sósunni yfir, stráið afganginum af ostinum yfir og loks afganginum af smjörinu. Bregðið þá diskinum und- ir heitt grill í smástund eða í heitan ofn þangað til osturinn er bráðnaður. Stráið yfir 4 harðsteiktum smátt söx- uðum beikonsneiðum. Hráefrúskostnaður er rétt um 100 kr. en verðið fer eftir því hve dýr ostur er notaður í réttinn. Tilvalið að nota gamla ostaenda. Pikles Ef mikið er notað af kæfumat á heimilinu er ekki nokkur vafi á að það margborgar sig að búa til eigið pikles. Raunar er líka gaman að búa til eigið pikles og alls ekki dýrt. Þá er ekki amalegt að fínsaxa eigið pikles og blanda saman við majones og sýrðan rjóma og fá þannig remolaðisósu. Héma er góð uppskrift sem gefur um það bil 1 kg af pikles. 200 g smár laukur 200 g blómkál 3-4 stk. agúrkur 200 g gulrætur vatn salt Lögurinn: 2'/j dl edik 2/4 dl vatn 2-2!4 dl sykur 10 stk. heilir negulnaglar 10 stk. mustarðskom Setjið laukinn í sjóðandi vatn og látið sjóða í nokkrar mínútur. Hellið vatn- inu af og látið kalt vatn renna á hann. Flysjið laukana. Skiptið blómkálinu eftir greinum. Flysjið gulrætumar og skerið í sneiðar. Flysjið agúrkumar og skerið í cm bita. Látið allt græn- metið í kalt vatn og bætið örlitlu salti út í. Látið vatnið síðan renna vel af, jafhvel á hreinu handklæði eða eld- húsbréfi. Látið það síðan til skiptis í hrein glerglös. Sjóðið löginn og hellið á grænmetið og lokið glösunum. Geymið á köldum stað. Eftir nokkra daga á að hella leginum af á ný og láta suðuna koma upp og hella svo aftur sjóðandi yfir grænmetið. Lokið glösunum aftur. Geymið á köldum stað. Piklesinn er tilbúinn til neyslu eftir ca tvo daga. Þannig er hægt að nota blómkál á ótal vegu eins og annað grænmeti. Eins og segir fyrr í þessari grein er blómkál prýðilega vel fallið til fryst- ingar, raunar ein af fáum grænmetis- tegundum sem missir ekki allt sitt við þá geymsluaðferð. -A.BJ. Kjúklinga chalupa Það er áríðandi fyiir flest okkar að minnka við sig fitu í mat en það þarf þá að gera það þannig að hægt sé að lifa við það. Hér kemur upp- skrift að fitulitlum kjúklingarétti. JHpMik Svanfríður Hagvag JNj skrifar Það er hægt að nota tilbúnar taco- skeljar í þennan rétt en það er ekki heppilegt þar sem þær eru steiktar í feiti. Þess vegna fylgir uppskrift af tortillukökum sem mjög auðvelt er að baka. 2 bollar kjúklingasoð 2 stórir tómatar, saxaðir 1 stór saxaður laukur 1 hvítlauksbátur, smásaxaður 3 soðnar kjúklingabringur í tening- um 1/8—1/4 tsk. cayenne pipar 1/8 tsk. svartur pipar 1/8 tsk. salt 8 tortillukökur 1 tómatur, smásaxaður 1/2 laukur, smásaxaður 2 msk. rifinn ostur léttjógúrt Látið suðuna koma upp á kjúkl- ingasoðinu og bætið út í söxuðum tómötunum, lauknum og hvítlaukn- um. Látið suðuna koma upp aftur og látið malla við góðan hita í hálfa til eina klukkustund eða þangað til vökvinn er mikið til gufaður upp. Bætið út i kjúklingabitum og kiyddinu og látið malla í 15 mínútur í viðbót eða þangað til allt er orðið að þykku mauki. Hitið ofrúnn í 170 gráður. Leggið 8 tortillukökur á létt- smurða bökunarplötu. Það er líka hægt að leggja álpappír undir og þá þarf ekki að smyrja plötuna. Setjið kökumar í ofiiinn og hitið þær i 3-4 mínútur. Snúið þeim við og hitið í um það bil 3 mínútur í viðbót. Takið kökumar úr ofiúnum og þekið hveija með kjúklingamauki, síðím með smásöxuðum tómat, lauk og rifiium osti. Setjið jógúrt efst. Borið fram með salati.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.