Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Side 16
16 Frjálst,óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 550 kr. Verð i lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Nýtt tilboð Nýtt tilboð í Útvegsbankann hefur verið boðað frá starfsmönnum og viðskiptavinum bankans. Ef að líkum lætur mun þetta tilboð uppfylla þau skilyrði sem sett hafa verið fyrir sölu þeirra hlutabréfa sem ríkissjóður hefur boðið til kaups. Talað er um að boðið verði í öll hlutabréfin og að tilboðið verði lagt fram í nafni þús- unda einstaklinga. Ekki fer á milli mála að hér er athyglisvert tilboð á ferðinni og miklu fýsilegri kostur heldur en þau tvö sem fram að þessu hafa séð dagsins ljós. í rauninni er hér verið að gera tilraun til stofnunar almenningshlutafé- lags með þátttöku fjöldans, en það var einmitt upphaf- lega hugmyndin með sölu á Útvegsbankanum. Undanfarna daga og vikur hefur hatrömm deila stað- ið um það hvort fallast eigi á tilboð Sambandsins eða þrjátíu og þriggja einkaaðila. Vísa menn þar bæði til siðferðislegs réttar, laga og almennra samskipta í við- skiptum og sýnist sitt hverjum. Ágreiningurinn er þó fyrst og fremst pólitískur og nú um tveggja vikna skeið hefur ríkt styrjaldarástand innan ríkisstjórnarinnar. í örvæntingu sinni og ráðþroti hefur viðskiptaráðherra varpað fjöldamörgum möguleikum upp á borðið til lausnar á þessari pattstöðu en þeim hefur jafnharðan verið mótmælt eða vísað á bug. Svo hart hefur verið tekist á um þetta Útvegsbankamál að opinskátt er rætt um að ríkisstjórnin kunni að springa af þess völdum. Jafnvel þótt viðskiptaráðherra skeri á hnútinn á annan hvorn veginn, þannig að ríkisstjórnin haldi lífi, má ætla að trúnaður bresti og griðurinn rofni í samstarfi sem ætti að öðru jöfnu að vera í lagi fyrstu hveitibrauðs- daga nýrrar stjórnar. Hugmyndin um kaup starfsmanna og viðskiptavina Útvegsbankans er mikil himnasending. Ef tilboð þeirra verður að veruleika og hlutafjársöfnun tekst eins og fullyrt er, er einfaldast fyrir viðskiptaráðherra að hafna báðum tilboðunum tveim sem bitist hefur verið um og taka þriðja og síðasta boðinu. Bæði Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur eru skornir niður úr snörunni með þeirri ákvörðun. Báðir eru komnir upp í horn, harðákveðnir í að gefa ekki eftir. Hvorugur getur unnt hinum að hafa betur og pólitískur þrýstingur er á báða flokka að standa fast á sínu. Með þriðju leiðinni, þeirri að taka síðasta tilboðinu, bjarga ráðherrar og stjórnarflokkar andlitinu, auk þess sem sú leið er af efnisástæðum langgeðþekkust. Það hefur aldrei verið fýsilegur kostur að láta SÍS-hringinn yfirtaka Útvegsbankann og það eru margir fyrirvarar á ágæti þess að örfáir aðilar í nafni einkaframtaksins kaupi hlutabréf ríkisins. En þegar tilboð berast frá þús- undum einstaklinga og einkafyrirtækja innan og utan bankans sjálfs gegnir öðru máli. Þá er hrundið í fram- kvæmd þeim gamla draumi að ríkisbankar og ríkis- fyrirtæki verði eign fjöldans. Það er full ástæða til að fagna frumkvæði starfs- manna Útvegsbankans og hvetja almenning, sem lætur sig varða framtíð bankans, að taka þátt í þessari tilraun sem nú hefur verið hleypt af stokkunum. Hún er póli- tískt sniðug, hún er spennandi út frá sjónarhóli áhættufj árfestingar og hún er andsvar fjöldans gegn ofurvaldi hinna fáu sterku og ríku á fj ármálamarkaðin- um. Tilraunin er krókur á móti bragði, makleg og mátuleg ráðning gagnvart þeim sem vilja ráðskast með fjármagnið og valdið. Ellert B. Schram MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987. Fyrir rúmum áratug, þegar ég vann að skipulagi Kvosarinnar í Reykja- vík fyrir þáverandi borgaryfirvöld, lagði ég meðal annars til að Lækjart- org, Austurstræti og hluti Pósthús- strætis væru gerð að göngusvæðum. I tengslum við þessar aðgerðir var einnig lagt til að verulegt átak væri gert í bifreiðastæðamálum Kvosar- innar; að byggt væri yfir Hallæris- planið til að mynda nauðsynlegt mótvægi við væntanlegan miðbæ við Miklubraut/Kringlumýrarbraut og að umhverfi þessa svæðis væri bætt til muna. Einnig voru athugaðir möguleikar á því að byggja þak yfir Austurstræti, en horfið frá þeim hugmyndum, m.a. vegna þess hve margir bankar eru við götuna. Einungis hluti þessara tillagna var framkvæmdur, eða breyting Lækj- artorgs og Austurstrætis í upphitaða göngugötu. Þar með eignuðust ís- lendingar sína fyrstu göngugötu þar sem hægt var að njóta götulífs á alveg sérstakan hátt. Þar var hægt að hafa útimarkað, sóla sig og rabba saman í tiltölulega mengunarlausu umhverfi án þess að eiga á hættu að ekið væri á mann við næsta fót- mál. Tuminn gerir Austurstræti vistlegra Á þessum tíma bar það til að nauð- synlegt þótti að endumýja sölutum- inn sem áður hafði staðið á Lækjartorgi en þá stóð við gatnamót Kalkofnsvegar og Hverfisgötu. Ekki þótti samt rétt að flytja tuminn á sama stað við Kalkofhsveg aftur þvi að ráðgert var að tengja betur Hverf- isgötu og Hafharstræti um þann stað. Til álita kom að flytja tuminn á sinn fyrri stað á Lækjartorgi, sem þá var orðið að göngusvæði, en rétt þótti að hafa tuminn ekki á miðju torginu þvi að þar var talið að hann rýrði notagildi torgsins til samkomu- og fundahalda. Tók ég þátt í þessum „Allt orkar tvimælis þá gert er, hvort heldur um er að ræða göngugötur eða turna. Þó held ég að margir hafi haft gaman af göngugötunni, útimark- aðnum sem þar var komið á fót og jafnvel turninum lika.“ Turninn á Lækjartorgi bollaleggingum og vom fjölmargir staðir athugaðir áður en núverandi staður varð fyrir valinu. Þótti það vega þyngst að tuminn, eins og hann stendur nú, lokar Austurstræti og gerir það vistlegra en ella t.d. ef stað- ið er í Austurstræti eða Bankastræti. Einnig hjálpar tuminn til við að tengja stærðarhlutfóU gamalla og ný~ra bygginga á þessu svæði. Dæmi um líkar aðgerðir í sögu borgarskipulags em margar. Ef mig brestur ekki minni þá vakti eitthvað svipað fyrir Sixtusi páfa fimmta og arkitekt hans, Dominikusi Fontana, þegar þeir forðum völdu höfuðkirkj- um í Rómaborg stað á gatnamótum. Eitthvað svipað er líka sagt að hafi verið uppi á teningnum þegar Suður- gatan var látin stefiia á fjallið Keili. Allt orkar tvímælis þá gert er, hvort heldur um er að ræða göngu- götur eða tuma. Þó held ég að margir hafi haft gaman af göngugöt- unni, útimarkaðnum sem þar var komið á fót og jafnvel tuminum líka. Nú hafa borgaryfirvöld í Reykja- vík samt ákveðið að ganga í þetta mál og láta flyfja tuminn burt en ekki ákveðið hvurt. Þótt hér sé ekki um mikið skipulagsmál að ræða tel ég rétt að ofangreindar forsendur, sem réðu núverandi staðarvali, komi fram. Með nýjum herrum koma nýir sið- ir og ný sjónarmið. Það er ekki nema eðlilegt. Þó er margt skrýtið. Eitt af því fáa sem bjargaðist þegar það brann ofan af mér fyrir nokkrum mánuðum var bréf frá borgaiyfir- völdum í Reykjavík þar sem það var KjaUaiinn Gestur Ólafsson arkitekt og skipulagssfræðingur ítrekað að ég og samstarfsmenn mín- ir, sem unnu að ofangreindu skipu- lagi, væm ráðgjafar borgarinnar við skipulag Kvosarinnar í Reykjavík þar til aðalskipulag Reykjavíkur hefði hlotið staðfestingu. Jafnframt er okkur bannað að taka að okkur að teikna hús á þessu svæði. Síðan það bréf var ritað hafa margir arki- tektar verið settir í þetta verk og farið þar um bæði frjálsum höndum og ófrjálsum, án þess að ég og sam- starfsmenn mínir hafi verið hafðir þar með í ráðum eða leystir undan ofangreindri kvöð. Þetta hefði þótt undarlegur hjúaréttur í minni sveit og eru þó ekki ófáir löglærðir menn við stjómvölinn í Reykjavík. í aldanna rás skiptir það sennilega ekki miklu máli hvort tuminn á Lækjartorgi er eða fer. Aðalatriðið er kannski bara að búa til gott um- hverfi á hverjum tíma sem fólk getur fellt sig við. Hins vegar reynist það erfitt að skilja samhengið í meðferð Reykjavíkurborgar á hugverkum manna ef saman em borin loftið á Kjarvalsstöðum og göngugatan Austurstræti f Reykjavík. Vonandi tekst borgaryfirvöldum samt að finna betri stað fyrir tuminn og von- andi sér enginn eftir honum þegar hann er farinn af núverandi stað. Gestur Ólafsson „í aldanna rás skiptir það sennilega ekki miklu máli hvort tuminn á Lækjartorgi er eða fer. Aðalatriðið er kannski bara að búa til gott umhverfi á hverjum tíma, sem fólk getur fellt sig við.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.