Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Side 18
18
MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987.
Frá Öskjuhlíðarskóla
Starfsfólk mæti til starfa þriðjudaginn 1. sept. kl. 10.
Vegna framkvæmda við húsnæði skólans seinkar því
að kennsla hefjist. Nánar auglýst síðar.
Skólastjórl
STÝRIMANNASKÓLINN
REYKJAVÍK
Skólinn verður settur þriðjudaginn 1. sept-
ember kl. 14.
Skólastjóri
FRÁGRUNNSKÖLUM
REYKJAVÍKUR
Nemendur komi í skólana föstudaginn 4. september
nk. sem hér segir:
9. bekkur komi kl. 9.
8. bekkur komi kl. 10.
7. bekkur komi kl. 11.
6. bekkur komi kl. 13.
5. bekkur komi kl. 13.30.
4. bekkur komi kl. 14.
3. bekkur komi kl. 14.30.
2. bekkur komi kl. 15.
1. bekkur komi kl. 15.30.
Fornámsnemendur í Réttarholtsskóla komi kl. 13.
Forskólabörn (5 og 6 ára), sem hafa verið innrituð,
verða boðuð í skólana símleiðis.
ATH. Nemendur Ártúnsskóla komi í skólann þriðju-
daginn 8. september, skv. ofangr. tímatöflu.
e^jA-
Ti?)l l/P
Laugavegi 58, sími 13311.
Fréttir
Hjólreiðakeppnin í Galtalæk var spennandi og hörð og þurfti mikla hæfni til að komast i úrslit. Hér er einn
keppenda í góðu jafnvægi á vegasaltinu sem var ein þrautanna í keppninni. DV-mynd Stefán Haraldsson
Ökuleikni BFÖ - DV
86 keppendur á bind-
indismótinu í GaHalæk
mesti Ijöldi keppenda í einni keppni til þessa
Síðasta undankeppni í ökuleikni
Bindindisfélags ökumanna og DV
var haldin á bindindismótinu í Gal-
talækjarskógi um verslunarmanna-
helgina. Keppnin fór fram á
laugardegi í sólskini og blíðuveðri.
Ökuleikni er fyrir löngu orðin fastur
liður í dagskrá mótsins og að þessu
sinni var hún stærsta og lengsta at-
riðið á mótinu. Hún hófst kl. 13 og
var ekki lokið fyrr en um kl. 21 og
þá var verðlaunaafhending eftir.
Þátttökumet í ökuleikninni
Fjöldi keppenda í ökuleikninni
hefúr aldrei verið meiri en í þessari
keppni. Alls voru keppendur 36 og
komust færri að en vildu því tak-
marka þurfti í fyrsta sinn fjölda
keppenda. Keppendur voru 7 talsins
í kvennariðli, sem er mesti fjöldi
kvenna í einni keppni í sumar, því
miður. En karlariðillinn var fjöl-
mennur, 28 keppendur, og því fara 3
efstu í karlariðli í úrslit á móti einum
í kvennariðli. Nú hafa rúmlega 500
tekið þátt í keppninni í sumar og
tæplega 3500 frá því keppnin byrjaði
fyrir 10 árum.
öskubíllinn með þeim efstu
Keppnin í báðum riðlum var
spennandi og jöfri og voru það um-
ferðarspumingamar sem réðu úrslit-
um hvar keppendur lentu. Það má
nefna að öskubfllinn á staðnum var
meðal ökutækja í keppninni og öku-
maður hans stóð sig frábærlega.
Þegar hann hafði ekið í brautinni
var hann í 2. sæti og átti hann þá
eftir að svara spumingunum. Þar
tókst honum ekki vel upp og varð
sér úti um 20 refsistig sem gerðu það
að verkum að hann varð í 3. sæti
með 211 refsistig. Þetta var Guðjón
Þorbjömsson. Hann rétt marði 3.
sætið því næsti keppandi var með
217 refsistig og þamæsti 220. Því
mátti litlu muna að hann næði 3.
sætinu.
Sá er silfrið fékk í karlariðli var
Þorkell Máni Antonsson. Hann
hlaut 198 refsistig og ekkert refsistig
fyrir umferðarspumingar. Sigurveg-
arinn var Ingvi Sigurðsson. Hann
ók á stórum GMC rallywagon og
fékk aðeins 181 refsistig. Allir þessir
þrír fara í úrslitakeppnina sem hald-
in verður þann 5. september nk. Þar
munu þeir keppa um íslandsmeist-
aratitilinn, sólarlandaferðir með
Terru og splunkunýjan Mazda 626,
sem Mazda umboðið mun gefa þeim
keppanda sem tekst að aka úrslita-
brautina villulaust.
í kvennariðli vom það einnig um-
ferðarspumingamar sem réðu
endanlegri úrslitaröð keppenda. Sig-
urvegari var Svanfríður Bjamadótt-
ir á Ford Granada með 304 refeistig.
f öðm sæti varð Björk Ólafedóttir á
Mazda 626 með 336 refeistig. Bronsið
hlaut hins vegar Vigdís Olafedóttir
með 362 refeistig. Sá er besta tímann
fékk, og þar með Casio úrið frá
CASIO umboðinu var Valgeir Geirs-
son.
Keppnin fór fram á eyrum Rangár
og því var brautin þung og ekki
mátti spóla neitt því slíkt hefði eyði-
lagt brautina.
Fjölmennasta hjólreiða-
keppnin til þessa
Hjólreiðakeppnin fór fram á dans-
pallinum og varð að takmarka fjölda
þátttakenda vemlega. Keppendur
vom alls 50 en heföu auðveldlega
getað orðið 100-150 ef ekki hefðu
verið þau tímamörk sem sett vom á
keppnina. Keppt var í tveimur flokk-
um eins og venjulega og var baráttan
hörð í yngri flokknum. Sá er bestan
árangur hlaut var Eyþór Frímanns-
son með 76 refeistig. í öðm sæti lenti
Axel Friðgeirsson með aðeins 4 refei-
stiga lakari árangur, eða 80 refsistig.
í eldri riðli sigraði Helgi Einar Harð-
arson með besta árangur í Galtalæk
eða 73 refeistig. Annar varð Daði
Lárusson með 103 refeistig og í þriðja
sæti varð Jón Valgeir Guðmundsson
með 113 refeistig.
Fálkinn hf. gaf öll verðlaun í hjól-
reiðakeppnum sumarsins um allt
land og hann mun einnig gefa ver-
launin í úrslitum í september í haust.
Þar munu 10 efstu keppendur yfir
landið í yngri flokki keppa um tvær
utanlandsferðir. Þeir sem þær hljóta
fara til Svíþjóðar um miðjan sept-
ember nk. sem fúlltniar íslendinga
í norrænni hjólreiðakeppni.
Þá mun Fálkinn gefa gullfallegt
DBS reiðhjól í happdrætti sem kepp-
endur í eldri flokki taka þátt í og
kemur í stað utanlandsferða þar sem
ekki verður mögulegt að senda kepp-
endur í eldri flokki í keppnina úti.
Mjög fljótlega mun DV birta lista
yfir efetu keppendur í báðum flokk-
um og þar með yfir þá sem komast
í úrslit í yngri riðli.
EG
Eins og sjá má voru farartækin af ýmsum stærðum og gerðum. Þessi stór-
gerði ruslabíll var liprari en margir héldu og lenti í þriðja.
DV-mynd Stefán Haraldsson
—