Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Síða 26
38
MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987.
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Pántanasími 13010 ^ ^
Litakynning.
Permanettkynning.
Strípukynning.
Rakarastofan Klapparstíg
Pantanasími 12725
SENDLAR ÓSKAST Á AFGREIÐSLU
STRAX
Upplýsingar í síma 27022.
MATREIÐSLUMENN
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar að ráða mat-
reiðslumenn til starfa. Einnig er óskað eftir nemum í
matreiðslu.
Mjög góð enskukunnátta nauðsynleg.
Umsóknir berist Varnarmálaskrifstofu Utanríkisráðu-
neytisins, ráðningardeild, Brekkustíg 39, 260 Njarðvík,
eigi síðar en 8. september.
Nánari upplýsingar í síma 92-11973.
Sandkom
Hver á þig, góða mín?
Þúáttekki
músina
Margir vita að það getur
verið erfitt að eiga við trygg-
ingafélögin ef eitthvað þarf að
fá bætt og margir þekkja
skondnar sögur um „smáa
letrið".
Kylfingur nokkur á Akur-
eyri varð fyrir þeirri reynslu
að mús át stórt gat á golfpoka
hans sem var í geymslu á golf-
vellinum. Þar sem maðurinn
var með heimilistryggingu
hélt hann að tryggingafélagið
myndi bæta skaðann og hélt
því þangað. Þar var honum
hins vegar tjáð að ef hann
hefði sjálfur átt músina sem
tjóninu olli hefði tjónið að
sjálfsögðu verið bætt.
Billfyrirtug-
milljónir
Samver hf. á Akureyri hefur
fengið nýjan upptökubíl og er
kaupverð hans á þriðja tug
milljóna króna. Bíllinn kom
til landsins á dögunum en ekki
hefur verið viðlit að fá að taka
myndir af tækjakosti bílsins
sem mun vera ákaflega full-
kominn. Hlýtur það líka að
vera því verðið er aðeins
hærra en gengur og gerist með
bíla.
P&ll Magnússon fær engu að ráða hjá Eyflrska sjónvarpsfélaglnu.
Páll ræður
ekki hér
Mikið hefur verið um það
rætt að Gestur Einar Jónsson
útvarpsstjóri Hlóðbylgjunnar,
á Akureyri, yrði ráðinn frétta-
maður Stöðvar 2 í bænum.
Mun Páll Magnússon frétta-
stjóri hafa sótt það nokkuð
stíft en þó með því skilyrði að
Eyfirska sjónvarpsfélagið réði
hann á móti stöðinni og
greiddi helming launa hans.
Bjami Hafþór Helgason,
framkvæmdastjóri Eyfirska
sjónvarpsfélagsins, mun ekki
hafa verið tilbúinn að fallast
á þetta og segir sagan að
ástæðan sé sú að Páll Magn-
ússon hafi ekki með manna-
ráðningar að gera fyrir
Eyfirska sjónvarpsfélagið.
Hljóðbylgjan
áfmm
Þeir Hljóðbylgjumenn hafa
ekki farið varhluta af ýmsum
kjaftasögum í bænum að und-
anfömu. Einersúaðnúum
mánaðamótin fari allir starfs-
menn af launaskrá enda eigi
að loka stöðinni innan
skamms. Hið rétta mun þó
vera samkvæmt heimildum
Sandkoms að rekstur stöðvar-
innar hefur gengið þokkalega
eftir að gripið var til spamað-
arráðstafana sem meðal
annars fólu í sér styttri út-
sendingartíma. Þó hafi aug-
lýsingum eitthvað fækkað
eftir að sögusagnimar um að
verið væri að leggja stöðina
niður urðu sem háværastar.
í samkeppni
við sjálfan sig
f síðustu viku kom fram í
þessum dálki að Baldvin Vald-
imarsson hefur tekið við sem
forstjóri Sana á Akureyri en
Baldvin er sonur Valdimars
Baldvinssonar heildsala i
bænum.
Það fylgdi hins vegar ekki
sögunni að Heildverslun
Valdimars Baldvinssonar hef-
ur nú fengið umboð á Akur-
eyri fyrir Sól-gos Davíðs
Schevings og er því óhætt að
segja að Baldvin, forstjóri
Sana, sé kominn í hörkusam-
keppni við Hólmgeir bróður
sinn sem rekur heildverslun
föður þeirra. Svo má geta þess
í lokin að forstjóri Sana er um
leið hluthafi í heildverslun
Valdimars Baldvinssonar og
er því kominn í samkeppni við
sjálfan sig.
Þessl Akureyrlngur slakar á i góóa
veðrinu og lær sér smáblund auslan
III á bekknum.
Talað í áttum
Akureyringar hafa þann
skemmtilega sið að „tala i átt-
um“ ef svo má segja. Þeir tala
um að „skora á syðra mark-
ið“ þegar þeir fara á völlinn,
þeir tala um að hitt og þetta
sé norðan við eða austan við
þetta eða hitt þegar höfuð-
borgarbúar myndu segja
framan við eða aftan við. Einn
höfuðborgarbúi, sem sótti Ak-
ureyri heim, var búinn að fá
sig fullsaddan á þessu en fór
þó í mat á Hótel KE A. Þegar
þjónninn kom og ætlaði að
skammta á diskinn hans bað
höfuðborgarbúinn hann um
að setja kjötið vestast á disk-
inn en kartöflurnar austast.
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson
LÖGREGLUMENN
Lausar eru til umsóknar tvær stöður lögreglumanna
við embætti undirritaðs með aðsetri á Húsavík.
Umsóknarfrestur er til 10. september nk.
Stöðurnar veitast frá 1. október 1987.
Allar upplýsingar gefa Þröstur Brynjólfsson yfirlög-
regluþjónn og Daníel Guðjónsson varðstjóri í síma
96-41630.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu
Bæjarfógeti Húsavíkur,
Halldór Kristinsson.
REYKJKMIKURBORG
Jlauécvi Sfödun
FÓSTRUR ÓSKAST
Á EFTIRTALIN HEIMILI:
Skóladagheimilin: Völvukot, Hólakot, Hagakot, Heið-
argerði, Langholt og Hraunkot.
Dagheimilin: Vesturborg, Valhöll, Bakkaborg,
Völvuborg, Suðurborg, Garða-
borg, Laugaborg, Austurborg,
Múlaborg, Dyngjuborg, Hlíðar-
enda, Sunnuborg.
Leikskólana: Kvistaborg, Drafnarborg, Leikfell,
Árborg, Fellaborg, Hólaborg,
Lækjaborg, Barónsborg, Tjarnar-
borg.
Dagh./leiksk.: Ægisborg, Kvarnaborg (nýtt heim-
ili), Iðuborg, Fálkaborg, Hraun-
borg, Rofaborg, Ösp, Foldaborg,
Nóaborg.
Upplýsingar gefa forstöðumenn viðkomandi heimila
og umsjónarfóstrur á skrifstofu Dagvistar barna í síma
27277.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
HAUSTTILBOÐ
SOLHUSIÐ
Sólbaðsstofa
Astu B. Vilhjálms,
Grettisgötu 18, sími 28705
Takmarkað upplag
tilboðskorta
á að seljast.
VERIÐVELKOMIN
ÁVALLTHEITTÁ
KÖNNUNNI