Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Page 32
MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987.
Sviðsljós
« Morten Harket
söngvari hljómsveitarinnar
A-ha, á nóg af seðlum. Hann
hefur nýverið fest kaup á þrjátíu
og fimm milljón króna húsi í
London. Þar hyggst hann bjóða
vinum og kunningjum að gista
og hafa það þægilegt þegar
leiðin liggur um London. Mort-
en er mikill gleðimaður og hefur
reglulega gaman af því að bjóða
fólki til veislu. En allir sem leggja
leið sína til Mortens koma út
saddir og glaðir. Morten er
nefnilega mjög lagið að fylla
vini sína af súkkulaðibúðingi
sem er hans uppáhald og er
reglulega á borðum hjá honum.
Bruce
Springsteen
er orðinn dauðþreyttur á því að
vera stjarna. Allur hans tími fer
í vinnuna og ekkert annað
kemst að. Endalausar hljóm-
plötuupptökur, tónleikar og
annað. Hann segist gjarnan vilja
eiga meiri tíma fyrir sjálfan sig
eins og venjulegt fólk. Söngvar-
inn sér því fram á að hætta
söngnum og snúa sér að ein-
hverju sem tekur minni tíma.
Hætt er við að Springsteen-
aðdáendur verði svekktir og
. sárir við þessar fréttir. En því
miður, karlinn er orðinn lú-
inn...
Linda Evans
sem leikur eitt aðalkvenhlut-
verkið í Dynasty, fær hvorki
fleiri né færri en átján þúsund
aðdáendabréf í hverri viku. Þau
eru flest frá karlmönnum á öll-
um aldri sem tjá henni hrifningu
sína. Þeir eru flestir að bjóða
henni út að borða, vilja fá hana
í veislu til sín eða annað í þeim
dúr. Nokkuð fær hún þó af bréf-
um frá konum sem vilja leita
upplýsinga um það hvernig
henni tekst að líta eins vel út
og raun ber vitni. Enn aðrir eru
að ræða framkomu hennar í ein-
stökum sjónvarpsþætti. Telja að
hún hefði frekar átt að gera
svona en ekki hinsegin. Nú, svo
eru alltaf einhverjir sem eru
frámunalega dónalegir. Linda
les ekkert af þessum bréfum
sjálf enda gerði hún þá ekkert
annað.
—.. *--------------------------
sér
Á heimaslóðum eiginmannsins,
frumskógum Afriku. Þar búa hjúin
í þessum kofa. „Ég kann ágætlega
við það. Ailtaf áður en við förum
að sofa hreinsar hann allar pöddur
burtu svo mér liði betur,“ segir
Monika stolt af eiginmanninum.
áttu svo vel saman og voru fullviss
um að gifting væri það eina rétta.
Það verður að segjast eins og er
að ólík eru þau og ekki bara í út-
liti eins og myndirnar sýna glögg-
lega heldur og í öllu öðru atgervi.
Ástin á
Tískuhönnuðurinn Monika Lea-
dismo var ósköp venjuleg þýsk
stúlka sem hannaði kjóla og kunni
ágætlega við ljúfa lífið í tískuheim-
inum. En á ferðalagi í Afríku
kynntist hún afrískum bardaga-
manni sem hún varð ákaflega
ástfangin af. Skötuhjúin voru nú
ekki búin að þekkjast mjög lengi
þegar þau ákváðu að gifta sig. Þau
engin
takmörk...
Enda ekki nema von, þau eru alin
upp og hafa lifað við ansi ólíkar
aðstæður í gegnum árin. Hún í
tískuheiminum í stórborg en hann
í kofum í afrískum skógum.
En Monika er hæstánægð með
eiginmanninn og nýja heimilið.
Það sama er ekki hægt að segja
um foreldra og vini Moniku. For-
eldrar hennar fengu hálfgert
taugaáfall þegar þau hittu tengda-
soninn fyrst. Það er svo sem ekkert
skrýtið. Það er vel hægt að ímynda
sér venjulegt evrópskt borgarafólk
fá kolsvartan mann, síðhærðan
með fléttur og alls kyns skraut,
allt í einu inn á gafl til sín. Og þar
að auki giftan dótturinni. En það
er allt saman í lagi á meðan parið
sjálft er ánægt.
„Það var gaman að koma með
hann heim til foreldranna,“ segir
Monika. Hann hafði aldrei komið
í flugvél og var alveg með lífið í
lúkunum þegar hann settist í vél-
ina. En ég gat hughreyst hann og
sýnt honum fram á að þetta var
allt í lagi. Það var ekki síður gam-
an þegar hann settist við matar-
borðið hjá foreldrum mínum. Hann
gat varla hugsað sér að nota
hnífapör. Vildi bara nota fingurna
eins og venjulega. En það reddaðist
allt saman. Og eftir nokkra daga
með ættingjunum voru þeir alveg
farnir að venjast honum.“
l
Afriski eiginmaður Moniku gat varla hugsað sér að nota hnífapör þegar þau snæddu kvöldverö hjá foreldrum
hennar. En hann lét undan og reyndi eins og hann gat.
Sjón-
varp
r
1
háloft-
unum
Tæknin, og um leið þægindin,
eykst með degi hverjum. Sífellt
fáum við fregnir af nýjum tækni-
brellum. Hvaða nöfnum sem þær
nefnast. Fátt kemur fólki orðið á
óvart. Allt gert til að auka á þæg-
indin, spara sporin og tímann.
Flugfélögin hafa ekki látið sitt
eftir liggja í samkeppninni um við-
skiptavinina. Nú er farið að bjóða
upp á þessi litlu sjónvörp sem við
sjáum hér fyrir neðan. Flugfar-
þegar geta orðið stytt sér stundir
við að glápa á sjónvarp. Reyndar á
video og sjónvarpsleiki. Það er
breska flugfélagið British Airways
sem fyrst mun bjóða upp á þessa
nýju þjónustu. Farþegar munu geta
valið um fimm kvikmyndir og um
leið hvaða tungumál það kýs að
heyra talað í myndinni. Ensku,
spænsku eða frönsku. Þá verða sjö
tegundir sjónvarpsleikja á boðstól-
um sem og upplýsingar frá áhöfn
vélarinnar. Mat- og vínseðill, upp-
lýsingar um veður í helstu borgum
og fleira í þeim dúr.
Bandarísk flugfélög hyggjast
fylgja í kjölfarið og bjóða upp á
þessa þjónustu. En fyrst á að fylgj-
ast með því hvernig farþegar taka
þessu hjá breska flugfélaginu.
Ýj&i :*•*'*'■*;
Það er nú ekki amalegt að geta horft á heila kvikmynd á meðan á flugferð stendur.