Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987.
45
Sviðsljós
Þessar myndir eru á meðal þeirra tuttugu og fimm Ijósmynda sem fundist hafa af Marilyn Monroe og hafa
fæstar birst ðður.
Merkur
lj ósmyndafundur
Eins dauði er annars brauð.
Þessi orð sannast rækilega á
hverju ári og nú síðast þegar tutt-
ugu og fimm ár voru liðin frá því
að Marilyn Monroe dó. Alls kyns
minjagripir hafa selst eins og heit-
ar lummur og virðist ekkert lát
vera þar á. Nú hafa fundist tuttugu
og fimm gamlar myndir af kyn-
bombunni sem teknar voru af
henni þegar hún var rétt að byrja
að koma fram. Fimmtán þessara
mynda hafa aldrei nokkurs staðar
birst almenningi og er því hér um
merkan fund að ræða. Er talið að
andvirði þessara mynda sé ein-
hvers staðar á bilinu ein til ein og
hálf milljón króna. Dágóð summa
það.
Nammi, namm..........súkkulaði er það besta sem ég veit. Og þaö er ekkert
verra að borða það með öllu andlitinu.
Bowie að róast?
David Bowie, sem hingað til hefur
verið rokkari í meira lagi, langar til
að snúa sér að rólegri tónlist og jafn-
vel vísnasöng í framtíðinni. Hann
segist vera búinn að rokka og ham-
ast svo mikið í gegnum tíðina að tími
sé kominn til að spreyta sig á ein-
hverri annarri tegund tónlistar.
Aðspurður hvort hann færi kannski
út í klassíkina svaraði hann að það
væri nú heldur ólíklegt. En róleg-
heitin ættu hug hans og hjarta og
hygðist hann einblína á þá línu á
næstu árum. David hefur einnig haft
orð á því að hann vildi fara í ein-
hverja kennslu hjá góðum söng-
kennara til að ná fullkomnu valdi á
röddinni í þeirri nýju tegund tónlist-
ar sem hann ætlar að einbeita sér
að. Þá höfum við það og bíðum
spennt eftir næstu ballöðu frá rokk-
aranum.
TÖSKUOG
HANZKABUÐIN HF
SKOLAVORÐUSTIG 7.
S.15814 REYKJAVIK.
MWiiM
David Bowie hyggst snúa sér að
rólegheitunum og Ijúfu tónunum í
tónlistinni.
KYOLIC
alveg lyktar- og bragðlausi
hvítlaukurirm
Nú geta
borðað úvitlauk
Algjörlega jafngildi hráhvítlauks
Gæði KYOLIC eru könnuð 250 sinnum frá sáningu
til fullunninnar vöru.
20 mánaða kælitæknivinnsla KYOLIC hráhvít-
lauksins fjarlægir alla lykt en viðheldur öllum
hinum fráhæru eiginleikum.
KYOLIC er eini iifrænt ræktaði hvítlaukurinn í
heimi án tilbúins áburðar eða úðunar skordýraeit-
urs. KYOLIC er ræktaður á nyrstu eyju Japans þar
sem jörð, vatn og loft er ómengað. Jarðvegur er
einungis blandaður laufi, jurtarótum og öðrum líf-
rænum efnum.
KYOLIC inniheldur margfalt meira af virkum
frumefnum og efnasamböndum hráu hvítlauks-
jurtarinnar í fullu jafnvægi en nokkur önnur
framleiðsla í veröldinni.
Það er sameiginlegt öllum öðrum hvitlauksfram-
leiðendum að nota mjög háan hita við fjarlægingu
lyktar og þurrkun eða þá að innihald er mestmegn-
is jurtaolíur annarra jurta (mjúk hylki og perlur).
Hitameðferð eyðileggur hvata og önnur mikilvæg
efnasambönd.
Ókeypis bæklingar fást á sölustöðum. Þeir fjalla
m.a. um nýjustu vísindarannsóknir, undraverða
lækninga- og heilsustyrkjandi eiginleika hvítlauks
og einstæð áhrif KYOLIC hvítlauksins. Lesið sjálf
hvað læknarit segja.
KYOLIC hefur til skamms tíma verið ófáanlegt
utan Japans en fæst nú loks hérlendis.
KYOLIC hefur nýlega verið bætt við hið sérstaka
heilsufæði sem íþróttamenn í Bandaríkjunum
borða á meðan þeir æfa fyrir Ólympíuleikana.
Njótið lífsgleði, orku og hreysti, komið í veg fyrir
sjúkdóma, notið þess vegna KYOLIC daglega.
Helstu útsölustaðir eru heilsuvöruverslanir, lyfja-
verslanir og fleiri.
Sendum í póstkröfu.
Fæst í töflum, hylkjum og fljótandi.
Heildsölubirgðix: Logaland, heildverslun,
simar 1-28-04 og 2-90-15