Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Qupperneq 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
'hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
RÍtÉÁÍ'Örn - Auglýsingar - Áskrift - DreífSng: Slmi 27022
MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987.
Tveir unnu
5 milljónir
Eftir að dregið hafði verið í lottó-
inu á laugardagskvöld kom fljótt í
^jós að tveir miðar höfðu allar fimm
tölumar réttar. Vinningurinn skipt-
ist því á handhafa miðanna þannig
að hvor um sig fær hvorki meira né
minna en 5.396.256,00 kr. Þetta er
hæsti lottóvinningur hér á landi til
þessa en næsthæsta vinninginn
hreppti á sínum tíma Ólafía Anan-
íasdóttir fi-á Akureyri, 3,2 milljónir.
Þegar DV hafði í morgun samband
við Vilhjálm Vilhjálmsson og Þórð
Þorkelsson hjá íslenskri getspá hafði
hins vegar hvorugur handhafa vinn-
ingsseðlanna gefið sig fram.
Annar miðinn hafði verið keyptur
í félagsheimili Fylkis í Árbæjar-
hverfi. Þann vinning munu hafa
hreppt þrír menn sem spiluðu eftir
^aokkuð stóru kerfi. I þeirra hlut
kemur hálf sjötta milljón. Síðast þeg-
ar þrefaldur vinningur var í boði í
Lottóinu vann þessi sami hópur
einnig og komu þá 2,4 milljónir í
þeirra hlut. KGK/ATA
Maður hlaut
áverka á hálsi
Mikil ölvun var í miðborg Reykja-
víkur á föstudags- og laugardags-
Ivöld. Mannfjöldi var mikill og réð
ögregla ekki við neitt þegar verst
lét.Talsverðar róstur voru og margar
rúður brotnar.
Alvarlegasti atburðurinn gerðist
þegar 25 ára gamall maður var skor-
inn á háls, að því er virðist án
nokkurs tilefnis. Maðurinn var á
gangi er komið var aftan að honum
og hann skorinn með hníf eða rak-
vélarblaði. Árásarmaðurinn hvarf í
mannþröngina efitir að hafa veitt
áverkann og er ekki vitað hver þar
var að verki.
Að sögn lögreglu hefur maðurinn
enga hugmynd um það hver þama
gæti verið að verki né hver ástæða
getur legið að baki verknaðinum.
Samkvæmt upplýsingum DV var
vSm tvo skurði að ræða og voru þeir
sinn hvorum megin á hálsinum, alls
um 10 cm á lengd. Þeir voru þó
grunnir og sluppu báðar hálsæðar
óskaddaðar en að sögn sjónarvotta
mátti ekki miklu muna að æðamar
sködduðust. -PLP
JVC
Stakk
G5j4fi Knspnssan, DV, Akmeyxi;
Portúgalskur maður á þrítugsaldri
hefur verið dæmdur í 14 daga gæslu-
varðhald fyrir að særa Dalvíking
með hnífi. Atburðurinn áttd sér stað
eflár dansleik í Víkurröst á Dalvík
Atvitóð mun hafa borið þannig að,
aðm mönnunum tveimur lenti sam-
an á planinu fyrir framan Víkurröst Mennimir voru báðir ölvaðir.
eftir dansleikinn og lauk þeim við- Portúgalinn, aem er búsettur á Dal-
stóptum þannig að sá portúgalstó vík, mun hafa lent í útistöðura við
stakk Dalvítónginn tvívegis með annan mann á dansleiknum fyrr um
hnífi í bíjósthol vinstra raegin. Dal- kvöldið og samkvæmt heimildum
víkingurinn var Öuttur í Fjórðungs- DV mun að einhverju leyti vera
sjúJcrahúsið á Akureyri þar sem gert hægt að tengja þessa tvo atburði
var að sárum hans. Hann mun ektó saman.
vera í Iífehættu og er Mðan hans eft-
ir atvikum.
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Um 30 tonn af fötum hafa safnast
Að minnsta kosti 30 torrn fatnaðar
eru afrakstur söfnunar sem Hjálpar-
stofhun kirkjunnar stóð fyrir og lauk
í gær. Er DV leit inn í bækistöðvum
söfhunarinnar í Breiðholtskirkju síð-
degis í gær voru komin um 15 tonn í
hús og áttu þá eftir að berast föt frá
mörgum sóknum á Reykjavíkursvæð-
inu og utan af landi.
Sigríður Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofriunar kirkj-
unnar, sagði m.a. að söfriunin hefði
gengið miklu betur en vænst hefði
verið. „Þetta er miklu meira en búist
hafði verið við og í merkilega góðu
ástandi, fötin eru nær öll nýþvegin."
-PLP
Veðrið á morgun:
Þurrt að
mestu
sunnan
lands
Á-morgun verður norðaustanátt
og rigning norðan- og austanlands
en að mestu þurrt suðvestanlands.
Hiti verður á bilinu 3 til 11 stig
eða heldur minni en verið hefur
undanfarið.
Skemmdar-
veik á bílum
Um hálffimmleytið á laugardags-
morgun voru tveir bílar skemmdir í
Breiðholti. Skemmdimar voru tals-
verðar en hellt hafði verið yfir þá lakki
og dekk skorin í tætlur. Báðir bílamir
vom í eigu sama manns og taldi lög-
reglan að verlcnaðurinn væri persónu-
legs eðlis og stefht gegn eiganda
bifreiðanna.
-PLP
Mikil olvun í
Keflavík
Mikil ölvun var í Keflavík um helg-
ina. Að sögn lögreglu var mikið
annrító bæði föstudags- og laugar-
dagskvöld og stóð það langt fram eftir
morgni bæði kvöldin. Iögregluþjónn
sagði í samtali við DV að það væri
eins og það hefði komið einhver hvell-
ur í mannskapinn því ölvun var
langtum meiri en venjulega og allar
fangageymslur fullar.
-PLP
Akureyri:
Hrapaði 8-9
metra
Gylfi Kiistjáns9an, DV, Akureyri:
Fatasöfnun Hjálparstofnunarinnar hefur gengið vonum framar og hafa þegar borist mörg tonn af fatnaði. Er nú
unnið af krafti við að flokka fatnaðinn og pakka honum. DV-mynd JAK
Ungur piltur lirapaði 8-9 metra er
Hjálparsveit skáta á Akureyri var að
sýna sig á húsvegg í miðbænum á
laugardag.
Sig skátanna utan á húsvegg að
Ráðhústorgi 1 var liður í hátíðar-
höldum í tilefhi af afmæli Akureyrar.
Skátamir létu sig síga niður af húsinu
á homi Ráðhústorgs og Hafharstrætis
og fylgdist fjöldi fólks með atburðin-
um.
Þegar pilturinn, sem slasaðist, hafði
sigið niður frá þaki hússins og átti
efitir um 8-9 metra að jörðu mun kað-
allinn, sem hann seig í, hafa skorist
sundur á þakbrúninni. Pilturinn skall
í hellulagða gangstétt, lenti á bakinu
og mun hafa brotnað nokkuð en nán-
ari upplýsingar um líðan hans liggja
ektó fyrir.
Uoydsmótið:
Þróstur með
annan áfanga
Þröstur Þórhallsson skákmaður
náði sér í annan áfanga af þremur að
alþjóðlegum meistaratitli þegar hann
gerði jaihtefli í gær við kanadíska
skákmanninn Ivanov á skákmóti Llo-
yds bankans sem haldið er í London.
Þröstur sagðist í samtali við DV
hafa haft unnið tafl á móti Kanada-
manninum en lenti í tímahraki og
missti skákina niður í jafntefli. Þröst-
ur er nú með 6,5 vinninga ásamt
nokkrum öðrum skákmönnum en í
efeta sæti eru þeir Chandler og Weild-
er með 7,5 vinninga, en næstir þeim
koma síðan Benjamin og Rogers með
7 vinninga. Síðan koma Þröstur og
nokltrir aðrir með 6,5 vinninga.
Hannes Hlífar Stefánsson er með 5,5
vinninga, Jón G. Viðarsson er með 5
vinninga og Amþór Einarsson er með
4,5 vinninga á mótinu.
Síðasta umferðin verður tefld í dag
og mætir þá Þröstur Bandaríkjamann-
inum Fedovitz. -ój