Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1987, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987.
9
Utlönd
Stjórnarmyndun
Ný fjögurra flokka stjóm
Poul Schliiter, forsætisráðherra
Danmerkur, á tali við fréttamenn
eftir að hann baðst lausnar fyrir sig
og ráðuneyti sitt i gær.
Simamynd Reuter
Hauknr L. Haukssan, DV, Kaupmanuahafn;
Poul Schlíiter forsætisráðherra
kom flestum á óvart þegar hann
hélt til drottingarinnar í gærmorgun
og baðst lausnar fyrir sig og ráðu-
neyti sitt.
A þriðjudagskvöld hafði hann
ákveðið að fara ekki til drottningar-
innar en eftir smásvefri var hann að
eigin sögn skýrari í höfðinu en í ring-
ulreið kosningakvöldsins. Sagðist
Schluter hafa tekið þessa ákvörðun
upp á eigin spýtur, ekki síst þar sem
flokkamir taka þá stjómlagalega
ábjTgð á þeirri ríkisstjóm sem verð-
ur mynduð. Þannig væri best að fá
hreinar línur.
Formenn borgaraflokkanna sex
bentu allir á Schlúter sem manninn
til að mynda nýja stjóm. Jafnaðar-
menn og sósíalistar bentu á Anker
Jörgensen en Sameiningarstefnan
benti á Gert Petersen, formann sós-
íalista.
Anker Jörgensen hafði vonast eftir
samvinnu róttækra vinstri manna í
stjóm jafnaðarmanna og sósíalista
en Nils Helveg Petersen, formaður
róttækra vinstri manna, sagði að
hans flokkur hefði ekki gengið til
kosninga í þeim tilgangi að styðja
slíka stjóm.
Poul Schlúter kynnir nýju stjóm-
ina, sem eins og áður saman stendur
af íhaldsflokki, Vinstri flokki,
Kristilegum þjóðarflokki og Mið-
demókrötum, fyrir drottningunni í
dag. Verður um nokkur ný andlit
að ræða en búist er við að nýtt ráðu-
neyti, samskiptaráðuneytið, sem
taka á hluta af umráðasviði sam-
gönguráðuneytisins, verði stofnað.
Ekki þykir ólíklegt að Erhard
Jacobsen, frá miðdemókrötum, fái
ráðherrastöðu. Sagði Schlúter að
annað en fjögurra flokka stjómin
hefði aldrei komið til greina.
Þykir mörgum að stjóm, sem háð
er stuðningi bæði Róttæka vinstri
flokksins og Framfaraflokksins,
verði ekki langlíf. Framfaraflokkur-
inn kreíjist áhrifa sem erfitt er fyrir
stjómina að taka tillit til og því
spuming um hvenær en ekki hvort
Framfaraflokkurinn sprengi stjóm-
ina. í því sambandi talar varaform-
aður Alþýðusambandsins um
jólakosningar. Róttækir vinstri
menn muni ekki styðja stjóm er sit-
ur með hjálp Framfaraflokksins
skilyrðislaust. Mun flokkurinn taka
afstöðu í einstökum málum, óháð
tilliti til stjómarinnar.
Því hefur verið talað um aukið
samstarf yfir miðjuna, það er við
Jafhaðarflokkinn. Getur stjómin og
Jafhaðarflokkurinn, samkvæmt
heimildum úr stjómarbúðum, mæst
á miðri leið í ófáum málum. Þykir
farsælla upp á stöðugleika í dönsk-
um stjómmálum og ekki síst við-
skipta- og atvinnulífi að jafhaðar-
flokkurinn leiti yfir miðjuna í stað
þess að gera hosur sínar grænar fyr-
ir sósíalistum.
Jafnaðarmenn fái nýjan formann
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmannahö&i;
Finn Thorgrimson, varaformaður
danska Alþýðusambandsins, sagði
við blaðamenn í gær að leiðtoga-
skipti í Jafhaðarflokknum væm
innan sjónmáls. Sagði hann Anker
Jörgensen varla geta gegnt hlut-
verki flokksformanns við aðrar
kosningar, alla vega ekki ef þær
yrðu fyrst eftir fjögur ár.
Þó ekki sé hægt að skella skuld-
inni vegna þriðja fylgistaps jafriað-
armanna í röð yfir á Anker
Jörgensen er ekki hægt að horfa
framhjá þeirri staðreynd að hann er
orðinn sextíu og fimm ára. Þyrfti að
fara að hugsa fyrir nýjum formanni
Jafnaðarflokksins er gæti gert sitt
til að lyfta ímynd flokksins í næstu
kosningum.
Lánsvextir hækkuðu
Haukur L. Haukssan, DV, Káupmaimaho&u
Kosningaúrslitin á þriðjudags-
kvöld og heimsókn Schlúters til
drottningarinnar orsökuðu öng-
þveiti á verðbréfamarkaðnum við
opnun hans í gær.
Verðbréf og hlutabréf hraðféllu en
er líða tók á daginn róaðist ástand-
ið. Verðfall verðbréfa hafði þá
orsakað hækkun vaxta á lánum til
bygginga um hálft prósent.
Óopinber verðbréfamarkaður var
opinn kosningakvöldið og hraðféllu
verðbréf þá í verði. Sú tilhneiging
hélt áfram í gær og á tímabili voru
sum verðbréf íjórum stigum undir
gengi þriðjudagsins.
Talsmaður eins stórbankanna
sagði að margur, sem ætlaði að
græða á áframhaldandi og sterkari
fjögurra flokka stjóm, hefði tapað
töluverðum fjármunum.
Gengi krónunnar seig nokkuð í
gær og náði krítiskum mörkum á
tímabili miðað við vestur-þýska
markið. Fall krónu og verðbréfa or-
sakast af því að fólki á fjárhags- og
gjaldeyrismarkaðnum er illa við
óstöðugleika í stjómmálalífinu.
Óttast ófáir að lánsmöguleikar
Dana erlendis eigi eftir að minnka
eða vextir lánanna hækki. Hefur
enginn þó trú á að fundur fjármála-
ráðherra Evrópubandalagsins um
helgina muni orsaka gengisfellingu.
Em gjaldeyrissjóðir Seðlabankans
gildir og því hægt að styðja krónuna
í neyðartilfellum.
Góður fundur
Fundir Ingvar Carlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, með bandarískum
ráðamönnum, þar á meðal Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta, munu hafa
verið gagnlegir fyrir samskipti þjóð-
anna þótt á þeim hafi enn eitt sinn
sannreynst að stjómvöld þessara
tveggja ríkja greinir á um margt.
Carlsson hjónin sátu í gær kvöld-
verðarboð bandarísku forsetahjón-
anna.
Felldu níu manns
Skæmliðar kontrahreyfingarinnar,
sem með fulltingi bandaríkskra stjóm-
valda berst gegn ríkisstjóm Nic-
aragua, felldu í gær níu manns, þar á
meðal konu og unga stúlku, í árás á
samyrkjubú í Matagalpa héraði.
I árásinni eyðilögðu skæmliðarnir
heimili tólf fjölskyldna.
Skæmliðar hafa undanfarið aukið
aðgerðir sínar gegn samyrkjubúum og
öðrum illa vörðum miðstöðvum borg-
ara Nicaragua. Þeir hafa hins vegar
forðast bein átök við stjómarher
landsins.
INNFLUTTIR
NOTAÐIR
1987
CHEROKEE LAREDO * CHEROKEE PIONEER
1.390.000 1.280.000
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Bílar þessir eru lítið eknir með 4,0 lítra -6 cyl. -173 hestafla vél,
sjálfskiptir, með rafmagnslæsingar, rafdrifnar rúður og hlaðnir
aukahlutum.
Þessir bílar eru keyptir
af AMC JEEP verk-
smiðjunum og eru því
í ábyrgð, sem og aðrir
bílarsem fluttireru inn
af AMC JEEP um-
boðinu á Islandi, Agli
Vilhjálmssyni.
WAGONEE^UMETUDJ<R^U53frOO^J|^m^^m||^H|
ri Jeep EGH.L VILHJÁLMSSON HF.,
EINKAUMBOÐ A ISLANDI Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202.
n Jeep
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
n Jeep
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI