Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1987, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1987.
21
íþróttir
Víkingur
í 1. deild
t
- eftir 3-2 sigur gegn Setfossi
„Þetta tókst,“ sagði Jóhann Þor-
varðarson, íyrirliði Víkinga, eftir að
þeir höfðu tryggt sér íslandsmeistara-
titilinn í 2. deild og endurheimt 1.
deildar sæti sitt eftir tveggja ára veru
í 2. deild. Sigur Víkinga er fyllilega
verðskuldaður en hætt er við að liðið
þurfi á liðsauka að halda fyrir hina
hörðu baráttu 1. deildar. Reyndar hef-
ur Sedov sýnt að hann hann er manna
færastur í þvi að byggja upp sterka
liðsheild og vissulega er efniviðurinn
fyrir hendi hjá Víkingunum.
Leikurinn í gær einkenndist af mik-
ilvægi hans fyrir bæði liðin. Selfyss-
ingar, sem áttu góða möguleika á þvi
að komast í 1. deild í fyrsta skipti, léku
undan sterkri norðanátt í fyrri hálf-
leik, vel studdir af fjölmörgum stuðn-
ingsmönnum liðsins sem lagt höfðu
leið sína til Reykjavíkur. Þeir byrjuðu
mjög vel og sóttu stift að marki Vík-
inga og á 20. mínútu skoraði hinn
hávaxni Jón Gunnar Bergs með góð-
um skalla eftir homspymu.
Við markið var eins og doði færðist
yfir Selfossliðið og Víkingar gengu á
lagið. Jöfhunarmark þeirra kom fimm
mínútum síðar og var þar að verki
Bjöm Bjartmarz eftir sendingu frá
Trausta Ómarssyni. Skömmu síðar
varð Trausti að yfirgefa völlinn vegna
meiðsla. Á 31. mínútu náðu svo Vík-
ingar forystu þegar Atli Einarsson
skoraði af stuttu færi.
1 seinni hálfleik léku Víkingar með
vindinn í bakið og á 52. mínútu átti
Jóhann skot í slá úr aukaspymu. Leik-
urinn var nokkuð fjörugur og færi á
báða bóga. Það var síðana á 75. mín-
útu sem Víkingar gerðu út um leikinn
og var það einstaklingsframtak Bjöms
Bjartmarz. Hann einlék í gegnum vöm
Selfoss, sem svaf á verðinum, og skor-
aði sitt fimmta mark í tveim leikjum.
Á síðustu mínútu leiksins tókst Bimi
Axelssyni að minnka muninn en þá
vom úrslitin ráðin.
Eins og áður sagði em Víkingar vel
að sigrinum komnir í 2. deild. Þeir
hafa yfir samstilltum hópi að ráða og
hafa metnað til að leika í 1. deild -
metnað sem Selfyssinga virtist skorta
i gær. Bestir Víkinga í gær vom Bjöm
Bjartmarz og Einar Einarsson.
-SMJ
„Við þurfum
liðsauka“
- segir Juri Sedov, þjálfari Víkinga
„Jú, auðvitað hlakka ég til að
leika aftur í 1. deild,“ sagði Juri
Sedov, hinn frábæri þjálfari Vík-
inga, glaðbeittur á svip, eftir að
Víkingar höfðu endurheimt sæti
sitt í 1. deild. Já, Sedovævintýrin
halda áfram að gerast. Gleði Vík-
inga var mikil að leikslokum og
var fljótlega kallað: „Upp með
kallinn" og síðan var Sedov toller-
aður enda hefur hann öðrum
fremur lagt gmnninn að þessum
sigri. En hvemig skyldi Sedov lít-
ast á 1. deildar baráttuna?
„Við gerum okkur grein fyrir að
Mikið skorað
í 2. deild
Auk leiks Víkings og Selfoss í 2.
deild í gær fóm fram þrír aðrir leikir.
Úrslit þeirra urðu þessi og markaskor-
arar vom eftirtaldir:
Einherji - Breiðablik, 2-5. Mörk
Einheija: Halldór Guðmundsson, 2
mörk, UBK: Jón Þórir 2, Guðmundur
Guðmundsson, Þorsteinn Hilmarsson,
Andrés Davíðsson, 1 hver.
ÍBÍ - ÍBV, 2-5. Mörk ÍBÍ: Stefán
Tryggvason og Kristinn Kristjánsson.
Mörk ÍBV: Friðrik Sæbjömsson, Óm-
ar Jóhannsson, Tómas Ingi Tómasson,
Ingi Sigurðsson og Hlynur Stefánsson.
KS - IR, 6-3. Mörk KS: Jónas
Bjömsson 2, Róbert Haraldsson 2,
Baldur Benónýsson og Gústaf Bjöms-
son. Mörk ÍR: Heimir Karlsson 3.
-JKS
það þarf að leggja ýmislegt á sig
til að leika i 1. deild. Þó að við
höfum ágætan mannskap núna þá
þurfum við á liðsauka að halda og
ég hef trú á því að við fáum hann.
Auðvitað setjum við stefriuna á
titilinn en raumhæf markmið
verða í því fólgin að halda sér í
deildinni."
Sedov kvað leikinn gegn Selfossi
hafa einkennst af taugaspennu
leikmanna liðanna en sigur hefði
unnist og það væri fyrir mestu.
SMJ
Lokastaðan
í 2. deild
Lokastaðan í 2. deild er þannig
eftir síðustu leikina um helgina: Víkineur - Selfoss 3-2
tBt-ÍBV £-5
KS-ÍR 6-3
Einheiji-UBK 2-5
Þróttur-Leiftur .2-1
Víkingur
.........18 11 2 5 35-26 35
Leiftur...l8 9 5 4 32-22 32
Selfoss ...18 8 5 5 35-28 29
UBK......18 9 2 7 34-23 29
Þróttur.,18 9 1 8 35-31 28
ÍBV......18 7 5 6 35-30 26
KS.......18 7 4 7 33-32 25
tR.......18 7 4 7 33-34 25
Einheiji 18 5 4 9 21-35 19
ÍBt......18 2 0 16 22-54 6
• Juri Sedov, þjálfari Vikinga, og Jóhann Þorvarðarson, fyrirliði liðsins, sjást hér ánægðir með sigurlaunin eftir sigur
Vikings gegn Selfossi. Árangur Sedovs með Vikingsliðið er einkar glæsilegur. DV-mynd GUN
JL
Ný spennandi snyrti-
vöruverslun í Seljahverfi
Af helstu vörutegundum, sem í boði eru, má nefna:
Clarins, Helena Rubinstein, Lancome,
Jean d’Avéze og Margaret Astor.
Auk snyrtivara
fœst í versluninni
fjölbreytt úrval
skartgripa KLEIFARSELI 18,
og wargt fleira. sÍMI 72525
10%
OPNUNARAFSLÁTTUR
★
ÚT ÞESSA VIKU
★
HÖFUM OPNAÐ
GLÆSILEGA
FATAVERSLUN
MEÐ ÞEKKTUM
VÖRUMERKJUM
--
viaíRR