Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1987, Blaðsíða 6
24
MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1987.
MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1987.
25
íþróttir
íþróttir
Þorgrímur með íslandsbikarinn
íslendingaliðin í Belgíu unnu bæði
Knstján Bemburg, DV, Belgía;
Ghent, sem ekki hefur unnið leik í 1.
deildinni ennþá, mannaði liðið upp
fyrir leikinn gegn Winterslag, keypti
gamla landsliðsmanninn Vandereyc-
ken. í fyrri hálfleik leit út fyrir að
Ghent færi heim með bæði stigin þar
sem Raven náði að skora tvisvar í íýrri
hálfleik fyrir Ghent.
Guðmundur Torfason átti eitt
hættulegasta færið hjá Winterslag er
hann skallaði góðum bolta sem Laurij-
ssen náði að verja í hom. í seinni
hálfleik fóru leikmenn Winterslag á
kostum og jöfnuðu þeir Van Becelar-
ere og Daraeue leikinn. Á síðustu
mínútum leiksins skoraði Denier úr
vítaspymu og tryggði þar með Winter-
slag góðan sigur.
Guðmundur Torfason átti gott skot
úr vitateignum í seinni hálfleiknum
en Laurijssen markvörður varði á
undraverðan hátt. Ghent situr því á
botni deildarinnar með ekkert stig eft-
ir sex umferðir.
„Við vorum miklu betri allan leik-
tímann. Einnig vorum við óheppnir
að fá á okkur mark eftir aðeins 40
sekúndur. Þeir áttu þijár sóknir í fyrri
hálfleik og skomðu tvö mörk,“ sagði
Guðmundur Torfason í samtali við
DV.
„Annars er ég orðinn vel þreyttur
eftir erfiða landsleiki og flug. Ég ætla
að reyna að hvíla mig vel á milli æf-
inga í næstu viku,“ sagði Guðmundur.
• Anderlecht átti ekki í vandræðum
með Beerschot þó að ekki liti vel út í
fyrri hálfleik. Thamata var felldur inn-
an vítateigs Anderlecht en Darden,
sem tók vítaspymuna, lét markmann
Anderlecht verja frá sér.
í síðari hálfleik varð fyrsti útisigur
Anderlecht að vemleika með mörkum
frá Vervoort, Van Tiggelen og Danan-
um Friman. Amór Guðjohnsen lék
ekki með Anderlecht. Harrn lék hins
vegar með varaliðinu á laugardag.
„Ég fæ úr því skorið í dag hvort ég
fæ að fara til Þýskalands í meðferð
vegna meiðslanna. Einnig er sá mögu-
leiki fyrir hendi að ég þurfi að fara
með Anderlecht til Svíþjóðar í Evr-
ópuleikinn gegn Gautaborg. Þjálfar-
inn leggur þunga áherslu á að ég leiki
Evrópuleikmn," sagði Amór í viðtali
við DV.
V Úrslit í 1. deild:
Beerschot - Anderlecht.......0-3
Waregem - Beveren.............4-1
Winterslag - Ghent............3-2
Mechelen - St. Tmiden.........3-0
Charleroi - Racing............0-1
Lokeren - Kortrijk............2-2
Club Briigge - Antwerpen......2-2
Molenbeek - Cercle Briigge....0-0
FC Liege - Standard...........2-2
• Eftir sex umferðir er Antwerpen
efst með 10 stig. Waregem, Mechelen
og Anderlecht hafa hlotið 9 stig.
-JKS
in leynir sér ekki í svip Valsmannanna á þessari mynd. Þessir
kappar áttu ekki líFTrin þátt i sigri Valsmanna á íslandsmótinu. Frá vinstri er Jón Grétar
Jónsson, sem lék í fremstu víglínu liðsins í sumar, þá Sævar Jónsson, varnarkletturinn
sterki, Ámundi Sigmundsson horfir hugfanginn á verðlaunagripinn og sama má segja
um þá Guðna Bergsson, aftasta mann Valsvarnarinnar, og Guðmund Baldursson mark-
vörð sem virðist vera að spegla sig i gljáfægðum bikarnum. Guðmundur, sem margir
telja einn albesta markvörð landsins, varð nú íslandsmeistari annað árið í röð en hann
varð í fyrra meistari með Fram. DV-mynd Brynjar Gauti
Valsstúlkurnar i meistaraflokki gáfu körlunum ekkert eftir um
helgina. Þá tryggði Valur sér bikarmelstaratitilinn með því að leggja Skagastúlkurn-
ar að velli, 2-1, i Laugardal. Guðrún Sæmundsdóttir og Ingibjörg Jónsdóttir komu
Val i 2-0 en Laufey Sigurðardóttir minnkaði muninn fyrir leikslok fyrir ÍA. Þessi
félög elduðu grátt silfur á dögunum i úrslitaleik islandsmótsins og þá höfðu Skaga-
stúlkumar betur og tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn á Hliðarenda með því að
sigra Val, 0-1. Á myndinni fagna Valsstúlkurnar sigrinum. Ragnheiður Víkings-
dóttir, fyrirliði liðsins, hampar bikamum en þjálfarinn, Logi Ólafsson, er annar frá
vinstri. DV-mynd HH
ÞEGAR TVEIR
STERKIR STANDA
AÐ ÞUÓNUSTUNNI...
Van Leeuwen erstærsta lagerfyrirtæki röra og fylgihluta þeirra
í Evrópu. Sindra Stál rekurstærstu birgðastöð fyriríslenskan
málmiðnað.
Öflugtsamstarfvið V. Leeuwen gerir okkurkleift að bjóðafjölbreytt
úrval af svörtum og galvaniseruðum pípum, prófílpípum,
heildregnum pípum og suðutengjum.
Skjót og öflug þjónusta vegna sérverkefna!
VAN LEEUWEN
SINDRA
Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 27222.
„Við stefndum að því í byrjun að halda
sæti okkar í 1. deild og auðvitað er mað-
ur ánægður með að það skuli hafa tekist.
En þetta var tæpt í lokin og í raun mátti
þetta ekki tæpara standa,“ sagði Guð-
mundur Ólafsson, þjálfari Völsungs frá
Húsavík, eftir að Völsungar höfðu tryggt
sér áframhaldandi veru í 1. deildinni í
knattspymu. Völsungar gerðu marka-
laust jaíhtefli við íslandsmeistara Vals á
Hlíðarendavelli á laugardaginn og það
nægði þeim til að halda 1. deildar sætinu.
„Við gerðum okkur fulla grein fyrir því
í vor að það yrði á brattann að sækja hjá
okkur í sumar. En þrátt fyrir að við höfum
náð að tryggja okkur áframhaldandi veru
í 1. deild er ég ekki alls kostar ánægður
með árangur liðsins í sumar. Ég hefði
viljað ná í fleiri stig á heimavelli. Liðið
hafði alla burði til þess,“ sagði Guðmund-
ur ennfremur.
Rokið hafði völdin
Mikið rok var á meðan leikurinn fór
fram og einkenndist leikur beggja liða
mjög af aðstæðum. Bæði lið áttu þó sín
marktækifæri. Til að mynda fengu Völs-
ungar rakið marktækifæri innan vítateigs
í fyrri hálfleik en hittu knöttinn mjög illa.
I síðari hálfleik fengu Valsmenn mun
fleiri tækifæri og voru oft nálægt því að
skora.
• Leikur Valsmanna einkenndist fyrst
og fremst af því að þeir voru þegar orðn-
ir Islandsmeistarar og svo rokinu sem
áður er nefnt. Leikmenn liðsins reyndu
þó að halda knettinum niðri og tókst það
oft bærilega.
• Leikmenn Völsungs börðust hetju-
lega í þessum leik en léku þó greinilega
upp á jafnteflið, sérstaklega þegar líða tók
á leikinn. Þeim tókst að halda jöfnu og
geta þeir vel við árangurinn unað. Eftir
leikinn var íögnuður Völsunga og stuðn-
ingsmanna liðsins mikill en heldur dró
þó af norðanmönnum er það spurðist út
að þeir væru fallnir. Um nokkra hríð vissu
þeir ekki sjálfir hvort þeir væru fallnir
eða ekki. Síðan kom staðfestingin og þá
tóku menn gleði sína á ný.
• Eftir leikinn aíhenti Ellert B.
Schram, formaður KSÍ, Valsmönnum nýj-
an og stórglæsilegan bikar fyrir sigurinn
í 1. deild. Árangur Valsmanna hefur verið
glæsilegur undanfarin ár og knattspymu-
menn félagsins geta borið höfuðið hátt
um þessar mundir. -SK
Valsmenn kiýndir
ölsungar uppl
- Völsungar sluppu fýrir hom á Hlíðarenda, Valur-Völsungur 0-0
Knstjan Arason
átti stórleik
- þegar Gummersbach vann Schwabing, 18-22
Siguiöur Bjömsscn, DV, Þýskalandi’
Keppnistímabil þýskra hand-
knattleiksmanna hófst um helg-
ina. íslendingaliðin áttumisgóðu
gengi að fagna í sínum fyrstu
leikjum. Övæntustu úrslitin
urðu í leik meistaranna frá Essen
og Numberg sem em nýliðar í
Bundesligunni. Jafntefli varð í
leiknum, 20-20, sem fram fór f
Essen.
• Kristján Arason var besti
maður Gummersbach þegar liðið
sigraði Schwabing, 18-22, á úti-
velli en í hálfleik var staðan 7-11.
Kristján skoraði átta mörk í
leiknum. Gummersbach er spáð
mikilli velgengni í vetur.
• Dusseldorf, sem Páll Ólafs-
son leikur með, gerði jafhtefli við
Milbertshofen, 19-19. Dússeldorf
hafði tveggja marka forystu í
hálfleik, 11-9. í seinni hálfleik
missti liðið forskot niður og var
einu marki undir þegar 12 sek-
úndur vom til leiksloka. Þá fékk
Dússeldorf vítakast og Páll ól-
afsson skoraði af öryggi úr vítinu
°g tryggði liði sínu jafntefii. Alls
skoraði Páll 7 mörk.
• Lið Sigurðar Sveinssonar,
Lemgo, tapaði fyrir Grosswald-
stadt, 23-16. -JKS
I